Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1993, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1993, Side 6
Bogabrúin áFnjóská Fnjóská er dæmigerð dragá sem er við venjulegar aðstæður heldur vatnsminni en Laxá í Aðaldal þar sem hún rennur um Laxárdal, en verður í vatnavöxtum skaðræðisfljót og er þá í stærstu flóðum töluvert vatnsmeiri en Ölfusá. Fnjóská Bogabrúin á Fnjóská - fallegt mannvirki á fallegum stað. Brúin er 55 metra löng og efst er boginn aðeins 50 sm þykkur. Ljósm. Einar Hafliðason. Bogabrúin á Fnjóská sem byggð var 1908 hefur síðan heillað vegfarendur með formfegurð sinni. Það var danskur maður, Knud Reffstrup, sem hafði veg og vanda af brúarsmíðinni og varð fyrir því áfalli, að geysilegt hlaup í ánni 20. júní ruddi burtu eins og spilaborg því sem þá var komið af brúnni. Eftir PÉTUR INGÓLFSSON er brúuð á fjórum stöðum. Elst er boga- brú, byggð 1908, og er ætlunin að fjalla nokkuð um þá brú í þessu greinarkorni. Brúin spannar 55 metra milli bakka en þó er þykkt bogans aðeins 50 cm efst í boganum. Svo sparlega er farið með efni í brúna að hvergi er neinu ofaukið. Þegar hið fíngerða útlit brúarinnar er skoðað blas- ir við sú dirfska sem þurfti til að byggja þetta mannvirki. Brúin er ákaflega faileg. Mér finnst henni best lýst með því að vitna í íslandsklukkuna og heimfæra lýsingu á Snæfríði íslandssól yfir á þessa brú „mjó og björt með dulinn ofsa í blóðinu og spenn- ing í kroppnum". En það er ekki nóg með að brúin sé falleg. Þegar hún var byggð var hún lengsta bogabrú á Norðurlöndum. Hins vegar fer því íjarri að brúin hafi á þessum tíma verið lengsta bogabrú Evrópu því í Gruenwald í Þýskalandi var byggð árið 1904 bogabrú 70 m löng og sama ár og Fnjóská var byggð var í Gmuender Tobel í Sviss byggð bogabrú með 79 m lengd. Fnjóská var verulegur farartálmi á þjóð- leiðinni austur um Ljósavatnsskarð og því var brýnt að hún yrði brúuð fyrr en seinna. Kannski segir sagan um gömlu konuna í Mývatnssveit, sem ætlaði að flytja til Vest- urheims og kveið engu meir varðandi ferða- lagið en að fara yfir Fnjóská, allt sem segja þarf þegar lýsa á hver farartálmi áin var áður en hún var brúuð. Áður en lengra er haldið er rétt að átta sig á heistu dráttum í brúarsögu landsins fram til ársíns 1908. Árið 1881 var fyrsta íslenska stórbrúin vígð en það var brúin yfir Skjálfandafljót hjá Fosshóli. Ingólfur Gíslason segir svo frá brúarbyggingunni og brúarvígslunni í Lesbók Morgunblaðsins í febrúar 1945: Brýr yfir Skjálfandafljót eru nú fullgerðar að kalla. Þær eru tvær, önnur yfir megin- fljótið og mun hún vera um 160 fet að lengd en hin yfir kvíslina og er sú brúin nálega hálfu styttri en þó viðameiri og rammgerari með því að hún hvílir aðeins á undirstöðum undir brúarsporðunum. Brú- in yfir meginfljótið hefir aftur styttri lot því hún liggur milli endanna á tveimur stöpplum, sem hlaðnir eru á kletta svo lengsta lotið er aðeins 60 fet. Hæðin frá vatninu — eins og það er jafnaðarlegast — og upp að brúnni er 20 fet. Eins og þessi lýsing ber með sér var þetta engin stórbrú nema að íslenskum skilningi. Fyrsta raunverulega stórbrúin hér var Ölfusárbrúin, byggð 1891. Bygging þeirrar brúar var mikið tækni- afrek því hún var að stórum hluta byggð án þess að hin merka uppfynding, hjólið, sem menningarþjóðir hafa notað til flutn- inga frá forsögulegum tíma, kæmi þar verulega við sögu. Allt efni brúarinnar var dregið á sleðum frá Eyrarbakka, m.a. stál- strengirnir sem hvor um sig vó 3,5 tonn. Árið 1906 er fyrsta steinsteypta brúin á íslandi byggð á Bláskeggsá í Hvalfirði og aðeins 2 árum síðar er tekist á við Norðurlandamet við byggingu bogabrúar- innar á Fnjóská. Brúin á Fnjóská var teiknuð af dönsku verkfræði- og verktakafyrirtæki, Chrisiani & Nielsen og hingað kom frá Danmörku ungur verkfræðingur, Knud Reffstrup, til að stjórna framkvæmdum. Frásögn Séra ásmundar í Fnjóskadal taldist þessi brúargerð til stórtíðinda. Séra Ásmundur Gíslason, síðar biskup, var þá prestur á Hálsi í Fnjóskadal. Ásmundur lýsir þrúarframkvæmdum svo í ævisögu sinni „Á ferð“: Sunnudaginn 17. maí 1908 kom ég síðla dags út að Skógum í Fnjóskadal frá því að messa á IHugastöðum og ætlaði að.fá mig feijaðan yfir ána, sem var í talsverðum vexti. Sunnan og neðan við bæinn hafði ég hitt danskan mann, sem stóð þar á ár- bakkanum hjá miklum tijáviðarhlaða og alls konar dóti, sem flutt hafði verið þang- að yfir heiðina um daginn á hestum og var þó allt annað en gott færi til slíkra flutn- inga, því að á heiðinni var mikill snjór og svo aur og leðja þegar neðar dró. En menn og hestar voru þar ýmsu vanir og létu ekki allt fyrir brjósti brenna. Þessi danski maður var verkfræðingur að nafni Knud Reffstrup frá firmanu Christiani & Nielsen í Kaupmannahöfn, sem tekið hafði að sér að byggja þarna steinbogabrú yfir Fnjóská — langþráða brú, sem beðið hafði verið um fé til á mörgum alþingum, og nú hafði það loks verið veitt. Þetta var fremur ungur og lag- legur maður, stillilegur og alúðlcgur, og hafði með sér sjö eða átta landa sína, aðal- lega trésmiði og múrara, en annars átti að fá íslenska verkamenn til brúargerðar- innar. Það var kuldalegt umhorfs þetta kvöld. Snjór var víða í lægðum og í hveiju gili neðan til, en fjallabrúnirnar allar fönn- um þaktar. Nöpur norðangola þeytti þoku- bólstrum á undan sér utan dalinn og skæn- ingur var að koma á pollana. Útlendingarn- ir, sem stóðu þarna á árbakkanum, voru að byrja að slá upp skúr, sem þeir ætluðu að búa í og sumir voru líka að hagræða dóti sínu. Sennilega hafa þeir kviðið fyrir vistinni þama næstu dægrin. Ég talaði nokkur orð við verkfræðinginn og varð mér þegar hlýtt til hans, þó aldrei væri fyrir annað en það að hann ætlaði að fara að byggja brúna. Svo fór ég út í prammann, teymdi hest- inn minn út í á eftir, en Einar gamli feiju- maður og bóndi í Skógum tók til áranna og fórum við svo allir á ftjúgandi ferð nið- ur eftir ánni þangað til okkur bar að landi við snarbrattan melbakka að austanverðu. Þar skriðum við Ægir minn upp og kvödd- um Einar. Næstu daga var ekki um annað talað en brúarsmíðina og brúna. Það streymdu að verkamenn, því marga langaði í aur- ana, sem von var. Það var ekki svo mikið af þeim á þeim dögum og kaupið var held- ur ekki mikið. Mig minnir að það væru 3-4 krónur á dag án fæðis. Eftir nokkra daga var byijað á verkinu. Það hafði dregið úr ánni vegna kuldans, svo auðveldara var að grafa fyrir stöplum og koma fyrir undir- stöðustaurum, sem steypumótin áttu að hvíla á, en vegna þess hversu árbotninn var grýttur og víða hellur og klappir var ómögulegt að reka staurana niður. Þó að ég hefði mikið að gjöra um þessar mundirgat ég ekki stillt mig um að skreppa vestur að ánni næstu daga, tveggja km leið, til þess að sjá, hvernig verkið gengi. Það flaug áfram. 25-30 menn unnu þarna alla virka daga og héldu vel áfram. Það voru steypt stykki af boganum, sem áttu að harðna, áður en fyllt væri upp í bilin á milli þeirra. Jón Þorláksson, landsverk- fræðingur, kom við og við til þess að líta eftir verkinu, en skrapp þess á milli austur um sveitir eða til Akureyrar. Þegar komið var í seinustu viku júnímánaðar var langt komið að steypa bogann, en þó eftir að fylla upp í nokkur bilin á milli stykkjanna. En þá breyttist veðráttan skyndilega. Þok- an, sem legið hafði niður í miðjum hlíðum, hvarf nú með öllu, en allhvass og glóðheit- ur sunnanvindur kom og heilsaði upp á snjóinn á fjöllunum og hann var enn mik- ill, því að vorið hafði lengst af verið kalt. 20. júní mun hitinn hafa verið yfir 20°C og með þeim hita allhvass sunnanvindur. Fannbreiðan fram á heiðum og í hinum löngu dölum framan við byggðina bráðnaði snögglega, allir lækir flæddu yfir bakka sína og áin óx svo í asahlákunni, að skömmu eftir miðjan dag ruddi hún undir- stöðustaurum brúarinnar burtu og það sem búið var að steypa féll niður í vatnið. Þá var ægilegt og ömurlegt um að litast þarna á bakkanum. Menn stóðu daprir og ráða- lausir, en mest kenndi ég í bijósti um Reffstrup, sem tók sér þetta afar nærri. — Trjáviðurinn, sem fluttur hafði verið með mestu harmkvælum yfir Vaðlaheiði, var nú að fljóta út ána og voru verkamennirn- ir á hlaupum út með henni beggja vegna, til að reyna að ná í spýtur sem bar að landi og bjarga þeim, en útlit var fyrir, að mest af viðnum mundi lenda út í Eyjaijörð. Við, sem biðum á bakkanum, með brostnar vonir, vorum hljóðir og hnuggnir ogþorðum ekki að svara spurningunni, sem alltaf hljómaði í huganum: „Er þá útséð um brúna?" Þennan óleik átti þá Fnjóská eftir að gjöra. Hún hafði ekki vaxið svona mikið í manna minnum og þau 28 ár, sem ég var á Hálsi eftir þetta, komst vöxtur árinnar aldrei í samjöfnuð við það, sem hann var þennan dag. Það var eins og hún vildi sýna okkur hvað hún gæti, að hún tæki ekki nærri sér að storka og stríða verkfræð- ingunum, bæði útlendum og innlendum, og blési á þessa spilaborg, sem þeir voru að byggja yfir hana. Það lét hátt í lækjun- um, sem steyptust niður hliðarnar með fossafalli, en tilkomumest var þó elfan sjálf — hamhleypan, sem ruddi öllu með sér sem hún náði í. Daginn eftir var hún lítið minni. Ég þurfti þá yfir hana til þess að jarð- syngja mann á Illugastöðum og ætlaði að láta ferja mig yfir þar suður í dalnum, en menn treystust þar eigi til að feija, töldu að straumkastið og stormurinn mundi hvolfa bátnum, svo ég mátti snúa heim aftur, án þess að geta lokið erindinu. Næstu dagana vorum við óþreyjufullir og kvíðandi um, hversu þessu brúarmáli mundi lykta. Reffstrup fór til Akureyrar og náði sambandi viðyfírmenn sína íKaup- mannahöfn og valt auðvitað mikið á því hvað þeir legðu til málanna. ÁKVEÐIÐ AÐ HALDA ÁFRAM Það smá dró úr ánni og nú gat hún Brúin var byggð sumarið 1908 og þótti mikil samgöngubót. Hér er umferð ríð- andi og gangandi manna á brúnni skömmu eftir að hún var byggð.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.