Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1993, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1993, Qupperneq 9
RANNSOKN I R A ISLANDI Umsjón: Sigurður H. Richter Kynþroska bleikjuhængur með áberandi útlitseinkenni. Fiskurinn er horaður með hlutfallslega stóran haus, krók á neðri skolti og rauðan kvið. Samanburður á bleikjustofnum M ikil áföll hafa orðið í laxeldi á íslandi. Ein ástæðan var sú að laxastofnar sem aldir voru uxu hægt og urðu kynþroska áður en markaðsstærð var náð. Við kynþroska hætt- ir fískurinn að éta og notar orkuforða til þess að mynda hrogn og svil, með þeim afleið- ingum að vöxtur stöðvast, fiskurinn tapar holdum og verður léleg söluvara. Þegar áhugi vaknaði á bleikjueldi þótti ástæða til að læra af reynslu laxeldismanna og athuga íslenska bleikjustofna áður en farið væri af stað með miklar fjárfestingar. Síðastliðin þijú ár hafa staðið yfir rann- sóknir á íslenskum bleikjustofnum á vegum Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Hólaskóla. Þrettán stofnar, víðsvegar að af landinu (1. mynd), voru bornir saman með tilliti til hversu hratt þeir vaxa, hvenær þeir verða kynþroska og fleiri þátta sem skipta máli í eldi. Norður á Skaga er Ölvesvatn. Þar er óvenjuleg bleikja. Hún er gulgræn að lit, með stuttan, lítinn haus og mjög þykkvaxin. Samanburðarrannsóknir á allmörgum bleikjustofnum hafa sýnt að þessi bleikja vex mjög hratt, verður seint kynþroska (þ.e. á 3.-4. ári) og nýting í flökun er yfir 60%. Þetta eru helstu kostir sem eldisfiskur þarf að hafa. Eftir EMMU EYÞÓRS- DÓTTUR, ÞURÍÐIPÉT- URSDÓTTUR OG EINAR SYAYARSSON so 70 60 50 40 30 20 10 Framkvæmd Tilraunar- INNAR Hrognum var safnað haustið 1989 og þau klakin í tilraunastöð RALA í flskeldi á Keldna- holti og í Hólalaxi í Hjaltadal. Seiðin voru aiin fram að áramótum 1990/1991 í þessu tveimur stöðvum. Þá voru þau merkt með einstaklingsmerkjum og þeim dreift á sex aðrar eldisstöðvar víða um landið (1. mynd). Þetta var gert til að kanna hvort stofnarnir höguðu sér eins við mismunandi aðstæður. A þriggja mánaða fresti var farið á stöðvarnar og tekin sýni úr hópunum til að fylgjast með vexti, útliti, holdlit, kynþroskaeinkennum og kynþroska hjá stofnunum. Þrisvar sinnum var allur fískurinn mældur og veginn; í janúar 1991, október 1991 og í júlí 1992 þegar rann- sókninni var hætt. NIÐURSTÖÐUR Vöxtur og kynþroski. Helstu niðurstöður eru þær að mikill mun- ur er á stofnunum og þeir henta því misvel til eldis. Bleikjustofninn úr Ölvesvatni á Skaga sýndi yfírburði í hröðum vexti og kynþroski kom ekki fram fyrr en á þriðja ári eða síðar. Þessi bleikja er yfírleitt gulgræn á litinn en ekki silfurgrá eins og menn eiga að venjast og er auk þess mjög þykkvaxin, svo að nýting í flökun fer yfir 60% (2. mynd). Aðrir stofnar sem uxu vel voru t.d. Hólableikja og bleikja úr Grenlæk í Landbroti og Litluá í N-Þingeyj- Ölvesvatnsbleikja (í miðjunni) og önnur bleikja. Ljós litur og þykkt vaxtarlag eru áberandi einkenni Olvesvatnsbleikjunnar. Frtvik »tofno Iró Eldvatnsst. 0.2 0.4 0.0 001^ ■IH _s______i.....i C&r Or* Hðt U9S Ml EM MB V» IMt Lox EM 0k> Votn Sog Brú Hlutfallslegur þungi bleikjustofna við lok tilraunarinnar, miðað við Eldvatns- bleikju (meðaltal tveggja hópa úr Eldvatni er sett sem viðmiðunarlína). Stofnun- um er raðað eftir þunga og leiðrétt er fyrir stöðvamun. X kynþroakl I £3 I II 11 I I I I Mm Olv Gr» Hdl Utl Þrfl Eld MI6 VT4 Hrút Lax Eld Ölo Vatn Sog Brú Stofnar Tíðni kynþroska á öðru ári (1+) eftir stofnum. Kynþroski er metinn út frá hlut- falli þunga hrogna og svilja af heildarþunga fisksins. dw6P. - mmm >s Uppruni bleikjustofna í rannsókninni og staðsetning samstarfsstöðva þar sem fiskurinn var alinn. Línur og punktar sýna upprunastaði og ferhyrningar sam- starfsstöðvar. Stofnarnir eru úr eftirtöldum ám og vötnum: Hrútafjarðará, Mið- fjarðará, Víðidalsá, Vatnsdalsá, Laxárvatni, Ölvesvatni, Hólableikja (eldisstofn), Olafsfjarðará, Litlaá, Grenlæk, Eldvatni, Brúará, og Soginu. arsýslu (3. mynd). Tveir stofnar, úr Brúará og Sogi, skáru sig úr með mjög hægan vöxt. Athygli vakti að vöxtur á seiðastigi virtist hafa afgerandi áhrif á þunga við lok tilraun- arinnar þannig að stofnar sem uxu hratt á seiðastigi héldu forskotinu út tilraunatímann. Við lok tilraunar, eftir u.þ.b. 2‘A ár frá klaki, var meðalþungi Ölvesvatnsbleikjunnar um 1.200 g en lökustu stofnarnir voru enn um 200 g að þyngd. Nokkrir stofnar (Hólableikja, úr Litluá, úr Vatnsdalsá, o.fl.) urðu kynþroska strax á öðru ári. Aðrir urðu ekki kynþroska að neinu ráði fyrr en á þriðja ári (úr Grenlæk, Ölves- vatni og Laxárvatni, 4. mynd). Kynþroski á öðru ári dró úr vexti á síðari hluta eldistímans. Munur á hegðun stofnanna eftir eldisstöðv- um var óverulegur. Því má ætla að nota megi sama stofninn til eldis við mismunandi aðstæður með góðum árangri. Utlitseinkenni og kynþroski. Eitt af markmiðum rannsóknarinnar var að reyna að fínna leiðir til að þekkja í sundur ókynþroska og kynþroska fisk af báðum kynj- um. Gefnar voru einkunnir eftir lit á baki, hliðum, kvið og uggum og hvort fiskurinn væri silfraður eða mattur. Erfítt reyndist að skilgreina kynþroskaeinkenni á fullnægjandi hátt út frá þessum einkennum sérstaklega hjá hrygnum. Einkunnagjöf fyrir kynþroska- einkenni, sem tók bæði til litareinkenna og vaxtarlags ásamt einkennum á gotrauf gaf hins vegar góða vísbendingu um kynþroska- stig (5. mynd). LOKAORÐ Niðurstöðurnar sýna að bleikjustofnar geta verið mjög ólíkir. Til þess að fiskeldi skili hagnaði þarf að ala góðan stofn, og hann er til. I framhaldi af þessum rannsóknum er að hefjast, á Hólum í Hjaltadal, skipuleg ræktun á bleikju til eldis. Þar verður framleiddur kynbættur eldisstofn í framtíðinni. Höfundar eru kynbótafræðingur, líffræðingur og fiskeldisfræðingur og starfa á Rannsókna- stofnun landbúnaðarins á Keldnaholti og við Hólaskóla. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. JÚLÍ 1993 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.