Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1993, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1993, Blaðsíða 12
HOFUNDUR:OÞEKKTUR MYNDASAGA: BÚI KRISTJÁNSSON Bárður svarar fyrrl og sagðl Fjarri er það mínum vilja að Ólafur sé arfgengur ger. Hefur Ólafur ærið fé áöur. Hefur þú faðir þar marga þína muni til gefna og lengi mjög misjafnað meö oss bræðrum. Mun ég eigi upp gefa þann sóma með sjálfvild er ég er til borinn. Faðir ég mun gera þetta eftir því sem þú villt. Því að ég vænti mér sóma af Ólafi í alla staði, því heldur sem hann er féríkari. Eigi munuð þið vilja ræna mig lögum, að ég gefi tólf aura syni mínum svo stórættuðum í móðurkyn sem Ólafur er. Þorleikur játar því. Síöan lét Höskuldur taka gullhring Hákonar- naut, hann vó mörk, og sverðið konungsnaut er til kom hálf mörk gulls og gaf Ólafi syni sínum og þar meö giftu sína og þeirra frænda, kvaðst eigi fyrir því þetta mæla að eigi vissi hann aö hún haföi þar staöar numið. Ölafur tekur viö gripunum og kvaöst til mundu hætta hversu Þorleiki líkaði. Honum gast illa aö þessu og þótti Höskuldur hafa haft undirmál við sig. Eigi mun ég gripina lausa láta Þorleikur því að þú leyfðir þvílíka fégjöf við vitni. Mun ég til þess hætta hvort ég fæ haldiö. Bárður kvaöst vilja samþykkja ráði föður síns. Eftir þetta andaðist Höskuldur. Það þótti mikill skaði, fyrst að upphafi sonum hans og öllum tengdamönnum þeirra og vinum. Synir hans láta verpa haug virðulegan eftir hann. Lítið fé var borið í haug hjá honum. En er því var lokið þá taka þeir bræður tal um það að þeir muni efna til erfis eftir föður sinn þvf að það var þá tíska í það mund. Þessu játa þeir bræður en Ólafur fer nú heim. Þorleikur og Bárður skipta fé meö sér. Hlýtur Bárður fööurleifð þeirra því að til þessa héldu fleiri menn því að hann vaf vinsælli. Þorleikur hlaut meir lausafé. Vel var meö þeim bræörum Ólafi og Báröi heldurstyggt með þeim Ólafi og Þorleiki. Þá mætlti Ólafur: Svo líst mér sem ekki megi svo skjótt aö þessi veislu snúa ef hún skal svo virðuleg verða sem oss þætti sóma. Er nú mjög á liðið haustið en ekki auðvelt aö afla fanga til. Mun og flestum mönnum þykja torvelt, þeim er langt eiga til að sækja, á haustdegi og vís von aö margir komi eigi þeir er vér vildu helst aö kæmu. Mun ég og nú til þess bjóðast í sumar á þingi að bjóöa mönnum til boös þessa. Mun ég leggja fram kostnaö að þriðjungi til veislunnar. Og er flestir menn voru f brott farnir þá víkur Ólafur til máls viö Þorleik bróður sinn og mælti: Svo er frændi sem þér er kunnigt að meö okkur hefir verið ekki mart. Nú vildi ég til þess mæla að við betruðum frændsemi okkar. Veit ég aö þér mislíkar er ég tók viö gripum þeim er faðir minn gaf mér á deyjanda degi. Nú ef þú þykist af þessu vanhaldinn þá vil ég það vinna til heils hugar þíns að fóstra son þinn og er sá kallaöur æ minni maöur er öðrum fóstrar barn. Nú líður sá hinn næsti vetur og kemur sumar og líður að þingi. Búast þeir Höskuldssynir nú til þings. Var auösætt að Ólafur mundi miög vera fyrir þeim bræörum. Gengu nú menn til lögbergs, þá stendur Ólafur upp og kveður sér hjóðs. Biður nú Ólafur þingheim til erfis eftir Höskuld föður þeirra bræðra. Bauð hann öllum goöorösmönnum því aö þeir munu flestir hinir gildari menn er f tengdum voru viö Höskuld, svo líka bændum og hverjum þeim er þiggja vildi, sælum og veslum. Og er Ólafur lauk sínu máli þá var góður rómur ger og þótti þetta erindi stórum sköruglegt. Og er Ólafur kom heim til búöar sagöi hann bræörum sínum þessa tilætlan. Þeim fannst fátt um og þótti ærið mikið við haft. Og er aö veislu kemur er þaö sagt aö flestir viröingamenn koma þeir sem heitiö höföu. Var það svo mikið fjölmenni að það er sögn manna flestra að eigi skyrti níu hundruð. Þessi hefur önnur veisla fjölmennust verið á íslandi en sú er Hjaltasynir gerðu erfi eftir föður sinn. Þar voru tólf hundruð. Þorleikur tekur þessu vel og sagði sem satt er aö þetta er sæmilega boöið. Tekur nú Ólafur við Bolla syni Þorleiks. Þá var hann þrevetur. Skiljast þeir nú meö hinum mesta kærleik og fer Bolli heim í Hjarðaholt með Ólafi. Þorgerður tekur vel viö honum. Fæöist Bolli þar upp og unnu þau honum eigi minna en sínum börnum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.