Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1993, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1993, Side 2
•>•> Aþögnég best hef flotið“ ) Um skáldmæltar systur frá Saxahóli Eftir ARMANN JAKOBSSON f sögu íslensks kveðskapar getum við aldrei fengið nema ófullkomna mynd. Enda þótt margt sé varðveitt af kveðskap fyrri ára eru hin ljóðin þó fleiri sem brennt var eða aldrei skrifuð á blað. Mörg skáldin hafa orðið nafn- kunn en hin fleiri sem höfðu sinn skáldskap fyrir sig og hafa því horfið á vit gleymskunn- ar. Þau skáld sem fræg urðu af iðju sinni eru yfirleitt karlmenn. í íslenskri bók- menntasögu eru konur fáséðar. Skáldskapur var ekki starfi kvenna. En þó að konur séu fáséðar meðal hinna þekktu skálda er ekki þar með sagt að skáldskapargáfan hafi ekki blundað í þeim. Aftur á móti hafa kon- ur haft annað að sýsla en að stunda yrking- ar. Því hafa mörg ljóð þeirra glatast og ísland alið margar óþekkta skáldkonuna. Hér verður fjallað um tvær þeirra, systur frá Snæfellsnesi: Sveinborgu og Guðrúnu Ármannsdætur. Þær systur voru dætur Ármanns Jónsson- ar, hreppstjóra og skipasmiðs á Saxahóli og síðar í Reykjavík, og konu hans, Katrín- ar Sveinsdóttur. Sveinborg var eldri, fædd 5. apríl 1881 en Guðrún fæddist 20. septem- ber 1884. Bróðir þeirra var Kristinn, latínu- kennari og síðar rektor Menntaskólans í Reykjavík. Á þeim árum átti ungt fólk ekki jafnmargra kosta völ og nú er. Kristinn var settur til náms og reyndist afburðanáms- maður en systur hans áttu engan kost á slíku. Þeirra biðu hin hefðbundnu örlög kvenna, að giftast, eignast börn og sjá fyr- ir búi. Þess vegna er varðveittur skáldskap- ur systranna ekki mikill að vöxtum og veit- ir einungis óskýra mynd af skáldverkum þeirra. LÍF í LJÓÐUM Báðar systumar voru húsfreyjur í Reykja- vík um árabil. Sveinborg giftist Skapta Öl- afssyni bankamanni en Guðrún Jakobi Bjamasyni vélstjóra. Fyrir þær systur var skáldskapurinn hluti af hversdagslífinu. Sveinborg skrifaði aldrei svo bréf að hún lyki því ekki á vísu og hjá Guðrúnu vom vísur hluti af bamauppeldinu. Hún kenndi bömum sínum að kveðast á og gerði þann- ig ljóðalærdóminn að skemmtilegum leik. Sjálf var hún þó fæmst allra í þessum leik því að ef hún komst í þrot gat hún ort vís- ur jafnharðan. Bróðurpartur kveðskapar þeirra systra Aftur á móti hafa konur haft annað að sýsla en að stunda yrkingar. Því hafa mörg ljóð þeirra glatast og ísland alið margar óþekkta skáldkonuna. Hér verður fjallað um tvær þeirra, systur frá Snæfellsnesi: Sveinborgu og Guðrúnu Ármannsdætur. Guðrún Ármannsdóttir Sveinborg Ármannsdóttir er því tækifæriskveðkapur. Þar á meðal er þessi vísa eftir Sveinborgu sem fylgdi af- mælisgjöf hennar til bróður síns á sextugs- afmæli hans, forkunnarlampa: Meðan dagsins máttur þverr myrkrið tekur völdin lampinn á að lýsa þér löngu vetrarkvöldin. Þannig gátu vísur haft það hlutverk að fylg)a gjöfum úr hlaði en þær heyrðu þó ekki einungis til hátíðarstundum. Þannig sendir Sveinborg bónda sínum vísur þegar hann var að vinna úti á landi og hana var farið að lengja eftir honum til Reykjavíkur: Fýkur grúi af fíðrinu fugl hér rúinn áttu til að hlúa að hreiðrinu heim því snúa máttu. Gaum að slíku gefa skalt glettið líka er vífíð slæmt ef fýkur alveg allt út í Víkurlífið. Kveðskapurinn gat komið til skila mikil- vægum skilaboðum sem óbundnu máli var ekki treyst fyrir. Báðar ortu systumar til bama sinna og bamabarna. I þessum vísum leiðbeina þær gjaman og áminna og sumar eru persónulegasti kveðskapur þeirra. Þessa vísu orti Guðrún til dóttursonar síns, Gunn- ars Finnbogasonar: Ei þarf óttast elskan mín alda lífs þótt kviki ef þú siglir elsku vin eftir réttu striki. Til Elínar, dótturdóttur hennar, er hins vegar þessi vísa ort: Sorg ef hijáði muna minn meins var ráðin bótin mjúkt er þáði klapp á kinn kærleiks þráðu hótin. Um Gunnar, son sinn, orti hún einnig vísu á barnsaldri: Gunnar hefír geðið stillt gengur vel að skrifa ég ætla hann verða efnispilt ef hann fær að lifa. Gunnar fórst með Skúla fógeta 10. apríl 1933 ásamtföður sínum og 11 öðmm. Þann- ig breyttu örlögin þessari saklausu dægur- vísu í einkennilega forspá. Náttúran Og Maðurinn Náttúran hefur verið stöðugt yrkisefni íslenskum skáldum í þúsund ár og ást á náttúmnni kemur víða fram í vísum beggja systranna, til að mynda í vorvísum Svein- borgar Ármannsdóttur: Vetrar gjóla gengin hjá grær við hól og dranga allt er skjóli um að ná undir sólar vanga Hennar gæða fagurt flúr fylla klæðir bauginn vetrarlæðing leysast úr lífsins æðaslögin. Enn mun gróðurorka ný örlög þjóðar geyma fóstran góða fínnur því fómarblóðið streyma. Hún á margt sem hyllir frið hún ber skart við barminn hennar hjarta vermist við vorsins bjarta arminn. Hugglöð þrátt ég halla mér að hennar máttar brunni því að sátt við allt ég er úti í náttúmnni. Eftir Guðrúnu liggja einnig vísur til nátt- úmnnar. Þar á meðal er þessi sem e.t.v. er ort á vori eins og í ár þegar menn vom orðnir langþreyttir á að bíða eftir sumrinu: Væn er hún Esja vorin á vafin sólarljóma nú er hún öll af ísi grá orpin vetrardróma. Níðkveðskapur Ein elsta kveðskapargrein íslendinga eru níðvísur. Síðan hemaður lagðist af á Islandi hafa níðvísur verið einu leyfílegu vopn manna og hafa högg þeirra á stundum sært menn ekki síður en kutar og korðar. Það er til að mynda talsverður broddur í þessari vísu Sveinborgar: Mæla fiátt um flesta kann fyrir sáttum tefur eflir mátt við andskotann allra gátta þefur. Guðrún gat líka verið hvassyrt og hefur þá ljóðað á óvini sína: Auðsætt hrúta eðlið ber illsku þrútinn hrati oft hjá pútum unir sér úldinn grútar snati. Þín er mygluð þýjalund þú í myrkram læðist ég met þig bara minna en hund manns þótt flíkum klæðist. Eins og sést á þessu hefur skáldskapar- gáfan ekki einungis verið notuð til að heiðra menn lifandi og látna heldur einnig til að níða þá sem það áttu skilið. En það sýnir ef til vill betur en flest annað nytsemi skáld- skaparins sem öldum saman var þarfasti þjónn okkar íslendinga. Lífsspeki Enda þótt kveðskapur systranna hafi að miklu leyti verið tækifæriskveðskapur er ekki þar með sagt að hann hafi ekki falið í sér talsverða lífsspeki. Það sést til að mynda í heilræðavísum Sveinborgar til vinar þeirra hjóna sem var læknir: Finndu auð í fjöldans hylli fylltu ótrauður vonir hans. í sjúkdómsnauðum sýndu snilli svo á dauðann komi stans. Harma dauðans hönd þín stilli hnekktu ótrauður valdi hans. Lífsins brauð með læknis snilli leggðu í nauð á varir manns. Þetta hefur eflaust verið gott veganesti ofan á skólalærdóminn. Eins og áður sagði missti Guðrún mann sinn og son í sjóinn. Þessi vísa var ort nokkrum árum síðar: Hallast falla fegurst blóm fínnst hér valla griðastaður iúðrar gjalla dauðadóm degi hallar gæt þín maður. Síðar færist ellin yfír. Þessi vísa er ort 1957, tveimur árum áður en Guðrún lést: Grá á vöngum græðir hár gremja þröng og tregi vægir öngum ellifár á lífs ströngum vegi. Vegur lífsins hefur verið strangur íslend- ingum 1100 ár í óblíðu landi og ekki hefur mönnum alltaf litist á blikuna. Það hefur Guðrúnu ekki þegar þessi vísa er ort: Dyggðum hrakar daglega dárar taka völdin öllu er stjakað afvega ýmsa þjaka gjöldin. En íslendingar hafa ævinlega átt eitt ráð í kreppu, að yrkja sem mest þeir máttu. Seinasta vísa -Guðrúnar sem birt verður hér er ort til dótturdóttur hennar, Elínar, og felur í sér annað af þeim ráðum sem íslend- ingar hafa löngum gripið til í kreppu: Þó að eitthvað mótdrægt mæti, máttu þola því hvað stoðar að kjökra og vola. Rýmið leyfir því miður ekki frekari um- ijöllun um kveðskap Sveinborgar og Guð- rúnar. Þótt þær gæfu aldrei út ljóðabók eða kveddu sér hljóðs sem skáld er ekki þar með sagt að þær hafi ekki virkjað skáldskap- argyðjuna í eigin þágu. En það var ekki fyrir önnum kafnar húsfreyjur að stíga á stokk og hefja raust sína yfír lýðinn. Það sést á þessari vísu Sveinborgar sem kemur í lok stærra kvæðis: Sögn mig brestur þraut er það á þögn ég best hef flotið allt var nestið afskammtað enda að mestu þrotið. Höfundur stundar framhaldsnám í íslenzku. 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.