Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1993, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1993, Blaðsíða 9
Á þessari mynd sem tekin var árið 1907 má sjá hvar verið er að leggja lokahönd á byggingu söluturnsins á Lækjartorgi fyrir komu Friðriks konungs 8. Síðan hefur söluturninn verið á flakki um miðbæinn og er nú í Mæðragarðinum við Lækjargötu. Rögnvaldur Ólafsson sem kallaður hefur verið fyrsti íslenski arki- tektinn teiknaði söluturninn. Thomsen kaupmaður hefur skreytt hús sitt í tilefni af komu konungs. Á þessari mynd af Aðalstræti, sem tekin var árið 1880 má sjá tvö af þeim húsum sem hafa verið merkt. Fyrir enda Aðalstrætis er Vesturgata 2, Bryggjuhúsið, sem byggt var af Koch útgerðarmanni árið 1862 upp af aðalbryggju bæjarins. Gangurinn (borgarhliðið) í gegnum húsið niður að bryggju er skreyttur í tilefni af komu jarðneskra leifa Jóns Sigurðssonar og konu hans Ingibjargar Einarsdótt- ur. Tölusetning húsa við götur Reykjavíkur byrjar ávallt á þeim enda götu sem nær er Bryggjuhúsinu. Vinstra megin, fyrir framan Vesturgötu 2, er Aðalstræti 2, sem reist var af Robert Tærgesen kaupmanni árið 1855. Þetta þótti eittglæsi- legasta hús Reykjavíkur. Frá Árbæjarsafni Söguleg hús Afundi borgarráðs Reykjavíkur 10. ágúst síðast- liðinn var samþykkt tillaga Árbæjarsafns að merkingum sögulegra húsa í Reykjavík með koparskiltum. Ástæður þessarar merkingar eru margvíslegar. Við sem vinnum við rannsóknir, viðhald og ráðgjöf á gömlum húsum höfum orðið áþreifanlega vör við aukinn áhuga almenn- ings á hinu byggða umhverfi og sögu þess. Að miklu leyti hefur þessi áhugi beinst að byggingarháttum fyrri tíma, þ.e. hand- bragði, efnum og öðru því sem tilheyrir eldri byggingum. Áhuginn beinist sem sé að hinu byggða umhverfi sem heildar en ekki að einum takmörkuðum hluta þess. Undanfarin 20 ár hefur komið til sögunn- ar hópur fólks sem hefur viljað gera upp og búa í gömlum húsum. En oft hefur þessi áhugi staðnæmst við það að vera bara tíska. Ekki hefur verið leitað réttrar ráðgjafar við endurgerð húsa, en þau gerð upp samkvæmt nýjustu tísku eins og um nýtt hús væri að ræða. Við sjáum þessa glögglega merki í eldri hverfum Reykjavíkur, þar sem mörg hús sem gerð hafa verið upp hin síðustu ár standa eftir afskræmd og hið rétta and- lit þeirra hefur verið, ef svo má að orði komast, flysjað. Af þessum sökum hafa margar eldri götur Reykjavíkur misst það yfirbragð sem þær annars gætu haft og gerði þær áhugaverðar’og eftirsóttar, því það er alveg ljóst að efniviðurinn er fyrir hendi. Nú er enn svo komið að áhugi fyrir eldri húsakosti er mikill og ljóst að nú ristir hann dýpra en oftast áður. Það þýðir að við endur- gerð gamalla húsa er aflað upplýsinga um upphaflega gerð hússins og endurgerðin framkvæmd í samræmi við það. Ávexti þessa sjáum við nú vaxa og þroskast allt í kringum okkur, fyrir alla að sjá að þessi gömlu hús njóta sín mun betur og verða „Nú er enn svo komið að áhugi fyrir eldri húsakosti er mikill og ljóst að nú ristir hann dýpra en oftast áður. Það þýðir að við endurgerð gamalla húsa er aflað upplýsinga um upphaflega gerð hússins og endurgerðin framkvæmd í samræmi við það eftir NIKULÁS ÚLFAR MÁSSON Lækjargata 2 árið 1889. Þetta hús, sem var byggt árið 1852, var upphaflega einlyft. Er ákveðið var að leggja veg meðfram Læknum urðu lóðirnar næst honum mjög vinsælar. Þessa lóð hneppti kaupmaður Knudtzon, sem byggði hús- ið, og var þetta fyrsta lóðin sem bæjarstjórn Reykjavíkur seldi. Sigfús Eymunds- son Ijósmyndari og bóksali bjó og starfaði í þessu húsi á árunum frá 1871 til 1911. Á þessari mynd, sem tekin var árið 1901, stendur Frederiksen bakari með fjöl- skyldu sinni á tröppum hússins að Fischersundi 3, en starfsfólk á götunni fyrir neðan. Þetta hús, sem jafnan var nefnt norska bakaríið, var byggt árið 1876. Stíll þessi er meira í ætt við steinhús (Viðeyjarstofa o.fl.) en timburhús síns tíma. Bjarnaborg, Hverfisgata 83, árið 1902, sama ár og byggingu þess lauk. Á tröppunum stendur að öllum líkindum Bjarni Jónsson snikkari og kaupmaður, sem byggði húsið. Bjarni var lang atkvæðamestur húsbyggjenda í Reykjavík á árunum frá um 1890 til 1910, sem var blómaskeið timburhúsabygginga. Á þess- um tíma byggði hann um 150 hús. Bjarnaborg, sem var tvímælalaust merkasta bygging þessa mikla framkvæmdamanns, var byggð í útjaðri bæjarins og var fyrsta fjölbýlishús landsins. fallegri ef rétt er með farið og þeim leyft að halda sinni eðlilegu ásjónu. Það er sem verið sé að losa hús úr álagaham sem þau voru hneppt í og eftir standa þau hafandi öðlast endurnýjun lífdaga, full af stolti og tilbúin að bjóða öllu byrginn sem reist hefur verið frá byggingu þeirra. Segja má að fyrrnefnd samþykkt borgar- ráðs um merkingar sé gerð til að koma til móts við hinn aukna áhuga almennings á sínu umhverfi og greina frá örlitlu broti af þeirri stórmerku sögu sem mörg gömul hús í Reykjavík hefðu frá að segja ef þau mættu tungu hræra. Það er tilgangurinn, að öllum megi ljós vera hversu stór hluti okkar menn- ingar felst í þeim húsakosti sem hver kyn- slóð erfir eftir þær sem á undan fóru. Það er þar af leiðandi skylda hverrar kynslóðar að halda þessum arfi sínum við, og þannig skila honum eins ósködduðum og framast er unnt til þeirrar næstu. Hér er að sjálf- sögðu ekki átt við það að varðveislugildi hluta sé falið í aldri þeirra einum og því skuli öllu eira. Eðlileg endurnýjun og þróun hlýtur alltaf að eiga sér stað í vaxandi og lifandi borg, því er það mikilvægt að velja og hafna þannig að þráður byggingarsög- unnar haldist óslitin. Þau hús sem valin voru til merkingar í þessum fyrsta áfanga eru eftirtalin: Aðal- stræti 2, byggt 1855, Bókhlöðustígur 6, Stöðlakot, byggt 1890, Fischersund 3, norska bakaríið, byggt 1876, Hverfísgata 83, Bjamaborg, byggð 1902, Lindargata 51, franski spítalinn, byggð 1902, Lækjar- gata 2, byggð 1852, Pósthússtræti 11, Hótel Borg, byggð 1930, Söluturninn í Mæðragarði, byggður 1907, og Vesturgata 2, bryggjuhúsið, byggt 1862. I þessum fyrsta áfanga voru valin hús, sem eru góðir fulltrúar byggingalistar þess tíma er þau voru reist. Lækjargata 2, Aðal- stræti 2, Vesturgata 2 og Fischersund 3 voru öll glæsileg iðnaðar- og verslunarhús, byggð um og eftir miðja síðustu öld, hvert í sínum stíl. Um þetta leyti fór fólk að öðl- ast trú á framtíðina og Reykjavík tók vaxt- arkipp og stutt í að hún færi langt fram úr öðrum bæjum í íbúatölu. Á þessum lista er einnig steinbær, Stöðlakot, sem er sér reykvískur byggingarstíll. Þá er á listanum ein síðasta stórbygging timburhúsatímabils- ins í Reykjavík, Bjarnaborg, sem var fyrsta fjölbý^hús landsins, og Hótel Borg, fulltrúi fyrstu háhýsa steinsteypualdarinnar. Einnig voru Lindargata 51, franski spítalinn, sem er elsta spítalabygging sem enn stendur í Reykjavík og sölutuminn í Mæðragarði, teiknaður af Rögnvaldi Ólafssyni fyrsta ís- lenska arkitektinum, heiðruð með skiltum að þessu sinni. Flest þessarra húsa hafa nýlega verið gerð upp, og eru góðar fyrirmyndir fyrir þá sem enn eiga eftir að gera upp hús sín, en skammt er þangað til önnur verða endur- gerð. Skilti, sem sett vom á ofantöld hús á afmæli Reylqavíkurborgar 18. ágúst sl., era fræðandi um byggingarsögu Reykjavíkur, auk þess sem vonast er til að þau virki hvetjandi á áframhaldandi gott viðhald og umhyggju fyrir eldri húsakosti Reykvíkinga. Höfundur er arkitekt og safnvörður húsdeildar LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 18. SEPTEMBER 1993 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.