Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1994, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1994, Page 1
O R G U L A Ð S Stofnuð 19 2 5 6. tbl. 12. FEBRÚAR 1994 — 69. árg. Kaflar úr Apókrýfu bókunum Hið íslenska Biblíufélag hefur gefið úr Apókrýf- ar bækur Gamla testamentisins, sem svo eru nefndar. Orðið mun merkja huldurit vegna þess að uppruni þeirra er hulinn. í þessum bálki eru 1. og 2. Makkabeabók, Bæn Man- Málverk eftir Tintoretto frá 1560: Súsanna íbaðinu. Myndin er varðveitt á Listsögu- safninu í Vínarborg. Sjá ltafla á næstu síðu Apókrýfu bækumar úr Gamla textamentinu hafa ekki alltaf verið með í Biblíunni, en eru það nu. Auk þess er nú búið að gefa þær út sérstaklega og hér er gripið niður í þær á þremur stöðum. asse, Tóbítsbók, Júdítarbók, Esterarbók, Speki Salomons, Síraksbók, Barúksbók, Bréf Jeremía, og Viðbætur við Daníelsbók. Apókrýfu bækurnar komu út sérprentaðar á íslensku 1931, en sú bók er löngu uppseld. Núna koma þær út í nýrri þýðingu séra Arna Bergs Sigurbjörnssonar í samvinnu við dr. Guðrúnu Kvaran og Jón Sveinbjöms- son prófessor. Apókrýfu bækurnar voru í íslensku Biblíunni framá miðja síðustu öld. Þær voru í Guðbrandsbiblíu og kaþólikkai' hafa alltaf haft þær í sinni Biblíu. Á siðbótar- tímanum kom upp ágreiningur um bækurnar og kalvínistar höfnuðu þeim algerlega. Þær féllu út úr Biblíunni hér vegna þess að Breska & Erlenda biblíufélagið styrkti út- gáfu Biblíunnar hér frá því fyrir síðustu alda- mót til 1981 að ný Biblía var gefin út á veg- um Hins íslenska Biblíufélags, en kalvínsk áhrif voru sterk í breska félaginu. Bókin er gefin út án mynda til að halda verði hennar niðri, en geysilega mikið og margvislegt myndefni stendur til boða, því margir stórmeistarar myndlistarinnar á liðn- um öldum sóttu gjarnan myndefni í sögurn- ar. Má þar til dæmis nefna Botticelli, Tintor- etto, Cai’avaggio og Rembrandt. Bókin er rúmai' 500 blaðsíður og kostar kr. 3.850. Ur Júdítarbók 12. kafli Trúfesti JÚDÍTAR VIÐ Trú Feðranna Hólofernes lét því næst fylgja Júdít þang- að sem silfurborðbúnaður hans var lagður á borð og bauð að búa henni veislu svo að hún gæti neytt af dýrindis ki'ásum hans og víni. En Júdít sagði: „Ég mun ekld borða af þessu því að það myndi verða mér til falls. Það nægir sem ég hafði meðferðis." „En þegar það þrýtur sem þú ert með,“ sagði Hólofer- nes, „hvaðan eigum vér þá að fá sams konar mat handa þér? Enginn af þjóð þinni er hér á meðal vor.“ Júdít svaraði: „Svo sannarlega sem þú lifir, herra minn, þá mun ambátt þín eigi hafa lokið því sem hún hafði meðferð- is fyrr en Drottinn hefur framkvæmt það sem hann ætlar með hendi minni.“ Þá fylgdu þjónar Hólofernesai' henni inn í tjaldið. Svaf Júdít þai' lágnættið. Undir dögun fór hún á fætur og sendi Hólofernesi þessi boð: „Herra. Bjóð þú að ambátt þín fái að fara út til að biðjast fyrir." Hólofernes ski]»ðt lífvörðunum að hindra ekki fór hennar. Júd- ít dvaldist í þrjá daga í herbúðunum en gekk jafnan á næturmu' út í dalinn við Betúlúu og laugaði sig í herbúðunum við vatnslind- ina. Er hún steig upp úr vatninu bað hún Drottin, Guð ísraels að greiða götu sína til þess að veita börnum þjóðar hans viðreisn. Þegar hún hafði hreinsað sig sneri hún aftur og hélt sig í tjaldi sínu. Að kvöldi neytti hún matai' síns. Málverk eftir Caravaggio (1560-1609) sem sýnir á mjög dramatískan og raunsæjan hátt hina siðprúðu mær Júdít afhausa Hólofernes. Margir þekktir málarar fyrr á öldum spreyttu sig á sögunni um Júdít og Hólofernes.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.