Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.1994, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 10.09.1994, Blaðsíða 8
Nútímaleg útfærsla á klukkuturninum, -campanile-, sem var á hverju aðaltorgi í hinum latneska heimi. „Jarðskjálftarifan “ sem nær þvert yfir torgið og er raunar tilbúin, en á að minna Los Angelesbúa á það, hvar þeir búa. :» un ftíKiair? i *i ti u irtm nrögatni 1 u ii ii ut?nm i M II II 1 1* II || , »1 «1 u -ifPtJi , iriíti Pershing Square og skýjakljúf- ar Los Angeles í baksýn. Torginu er ætlað að vera mið- punktur mannlífs- ins, frið- sæll reitur í stórborg- inni og griðland fótgang- andi um- ferðar. '< f \ . X-' •isr.- Umhverfi/Arkitektúr Los Angeles fær nýtt aðaltorg Los Angeles - Borg engl- anna - hefur ekki verið talin engilfðgur til þessa og oft hefur hún verið tekin sem dæmi um frem- ur leiðinlega borg, þar sem eru endalaus, lágreist úthverfi, eða samvaxnir svefnbæir, en engin miðborg. Það eru vita- skuld ýkjur; ekki þarf annað en líta til skýja- kljúfanna til að sjá hvar miðjan er. Los Angeles er hin dæmigerða bílaborg; flest hefur verið miðað við bflinn og torgin í námunda við skýjakljúfana - California Plaza er þeirra kunnast - hafa ekki verið gerð til að laða að sér fótgangandi fólk. Frá því snemma á öldinni hafði þó Pers- hing Square átt að heita aðaltorg borgarinn- ar, en var svo niðurnítt að Biltmore-hótelið sem þar stendur, tók þann kost að láta for- hlið sína snúa út að annarri götu. Vegna Olympíuleikanna 1984 vildu borgarfeður bæta ímynd Los Angeles og settu milljón Bandaríkjadali í andlitslyftingu á Pershing Square. Ekki þótti hún takast sem skyldi, en nú vildu menn reka af borginni slyðruorð- ið; glæsilegt aðaltorg skyldi hún fá. Efnt var til alþjóðlegrar samkeppni um útlit og skipulag torgsins og 242 teiknistof- ur eða arkitektar spreyttu sig á verkefninu. Svo fór að fyrir valinu urðu mexíkóski arki- tektinn Ricardo Lagorreta, landslagsarki- tektinn Laurie Olin frá Philadelhpiu og Barbara McCarren var ráðin sem listrænn ráðunautur. Þau fengu frá borginni hálfa aðra milljón Bandaríkjadala og nú skyldi reynt til þrautar. Skemmst er frá því að segja að lausnin þvkir frábær og þykir hafa gefið Los Angel- es alveg nýtt vægi sem lífvænlegri og glæsi- legri borg. Torgið rúmar nú fjölda manns og því er skipt upp í þrjú lítið eitt aðskilin rými. í einu þeirra er hringlaga útileikhús - amphiteater - eftir fornri, grískri fyrir- mynd og þar geta 2000 manns horft á leik- sýningar. Sérstök sælkeraveitingahús eru í skærgulum veitingaskálum, en fyrirferðar- mestur á torginu er klukkuturninn - camp- anile - sem er latneskt fýrirbæri í margar aldir og sjálfsagður hlutur í miðju borgar. Frá honum liggur annað mannvirki; veggur sem er fjólublár eins og turninn. Dálítil lækjarspræna er í rennu uppi á veggnum og fossar út í tjörn. í henni eru „sjávarföll" - vatnið hækkar í nokkra tíma og lækkar síðan aftur. Sprænan minnir á „aquaduct“ Rómveija hinna fornu; vatnsveitur þeirra, sem lyft var stundum með mörgum súlna- röðum yfir lautir og dali. Ekki verður þó sagt að hér sé post-modernísk stæling á því. Þeim sem skrifar um Pershing Square í tímaritið The Architectural Review verður tíðrætt um slagkraft litanna og þykir frá- bærlega hafa til tekizt. Grámenn íslands gætu eitthvað af þessu lært; samt þurfa Kaliforníubúar minna á litum að halda en við með okkar oftastnær þungbúna, gráa himinn. En það er önnur saga. Torgið var opnað skömmu eftir að jarð- skjálftinn mikli í janúar slíðastliðnum möl- braut og felldi bæði hús og umferðarmann- virki í Los Angeles. Á torginu urðu ekki skemmdir, en Barbara McCarren, listrænn ráðunautur við framkvæmdina, vildi minna borgarbúa á að þeir búa sífellt við þann möguleika að jörð rifni og skjálfi. Til þess að minna á það er 20 metra löng ,jarð- skjálftarifa" í torginu. Steinlagningunni þar er hagað á þann veg að því er líkast að torgið hafi slitnað í tvennt um rifuna. Gagnstætt því sem menn hafa átt að venjast í Los Angeles er bíllinn útlægur ger af þessu torgi. Það er fyrir fólk til að sýna sig og sjá aðra, slappa af undir Kaliforníu- sólinni og njóta umhverfisins. Næstu bygg- ingar við torgið eru „aðeins“ um 15 hæða, brúnar múrsteinsbyggingar frá því fyrr á öldinni, en á bak við þær rís hinn mikilfeng- legi skógur ennþá hærri bygginga og hrein- ræktaðra skýjakljúfa, sem eru þó tilbreyt- ingarríkir í þá veru, að sumir eru sívalir en aðrir kantaðir, sumir hvítir og aðrir klæddir spegilgleri. Pershing Square er nú eins og notaleg vin í eyðimörk stáls og steinsteypu. Gísli Sigurðsson. 8

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.