Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Side 5
Úr tónlistarstúdíói tónlistardeildar Háskólans í Heisinki.
prófessors Einojuhani Rautavaara og síðan
á árunum 1988-1992 almennar tónsmíðar
og tölvutónsmíðar hja Paavo Heininen við
sömu stofnun. Árið 1989 lauk Kjartan
kandidatsprófi frá Síbelíusarakademiunni
en frá árinu 1988 hefur hanri unnið að
þróun tónsmíðaforritsins Calmus sem nú
er stór þáttur í Lic. gráður hans við sömu
stofnun.
Eins og ég sagði í upphafi er Kjartan
Ólafsson um þessar mundir að ljúka námi
sínu við stofnunina. Ég varð þeirrar ánægju
aðnjótandi að fá að vera með Kjartani og
fylgjast með honum að störfum í vikunni
fyrir hinu opinberu tónleika sem krafist
er við slík lokapróf og hlusta á fyrirlestur
er hann hélt í Síbelíusarakademíunni, og
sem einnig er hluti lokaverkefnis hans.
Áður fýrr var það mjög mikilvægt fyrir
tónskáld að þau hefðu sérstaka tækni-
menn, eða fræðinga, sér til aðstoðar við
tækin. Með tilkomu tölvunnar og þeirrar
tækni sem henni fylgir hafa tónskáldin
tekið við báðum þessum hlutverkum. Bæði
vegfia þess að vinnuumhverfið er miklu
þægilegra og svörin úr tækjunum fást í
flestum tilfellum samstundis, en ekki dag-
inn eftir eins og oft vildi koma fyrir. Tölvu-
verið í Síbelíusarakademíunni er byggt í
hring eins og maður sér í James Bond
kvikmyndum og situr Dr. No í bólstruðm
ergónómískt byggðum stól og getur teygt
sig í takka og tól á mjög þægilegan hátt,
enda eins gott því mörgu þarf að fylgjast
með. Kjartan var að vinna að nýju tón-
verki sem hann hefur í sumar samið sér-
staklega fyrir þennan kammermúsíksal
sem nefndur er hér að framan. Er verkið
samið með notkunarmöguleika salarins í
huga og á þann hátt má skapa verk með
margar víddir, verk sem lifir bæði í tíma
og rúmi. Einnig var hann að vinna að
ýmis konar hljóðblöndun. I öðrum verkum
sínum og þá sérstaklega á verkinu Tvíhljóð
frá árinu 1993 má heyra undurfagi'a tóna
gítarsins í höndum Péturs Jónassonar þeyt-
ast í kringum sig í salnum. Fyrirlesturinn
byggði Kjartan fyrst og fremst á að kynna
tónsmíðaforritið sitt CALMUS og hug-
myndafræðina og tæknina þar að baki. Þar
inn fléttaði hann síðan nokkrum tónverkum
sem hann hefur samið með aðstoð forrits-
ins og flutti af segulbandi til að sýna fram
á þá möguleika sem forritið býður upp á.
Grunnhugmyndin á bak við notkun CAL-
MUS forritsins í tónsmíðum er sú að því
er ætlað að vera eins konar millistykki
milli einfaldrar tónhugmyndar og fullbúins
tónverks. Forritið vinnur út frá svokölluð-
um algrímskum reikniaðferðum sem geta
verið ákaflega margvíslegar alveg eftir því
á hvern hátt maður nálgast þær. Aðferðin
er ekki óþekkt og má þar til nefna D’Arezzo
nokkurn sem uppi var um árið 1000 og
samdi ákveðnar reikniformúlur til að tengja
saman mismunandi tónhæðir við sérhljóða
texta. Ekki ólíkt finnur maður í síðasta
verki Bachs, Die Kunst der Fuge, þar sem
hann notar bókstafina í nafni sínu, BACH,
til að byggja upp stef. Við þetta má bæta
tónskáldinu Liszt og hinni stóru orgel-
fantasíu hans, verkinu Rebus eftir Nils
Gade og seinustu kvartetta Beethovens.
Enn ein aðferðin er samband talna og tóna
og eru þá gjarnan nefndir til sögunnar
fulltrúar hins svokallaðs annars Vínar-
skóla, Schönberg og nemendur hans Alban
Berg, Anton Webern að ógleymdum Hau-
er. Einnig má nefna hið svokallaða Pitch
Class Set sem kennt er við Allan Forte.
John Cage notaði Random Choice eða
Chance Theory í sumum af sínum verkum,
Xenakis yfirfærði notkun á Markov-keðjum
við tónsmíðar og Conlon Nancarrow notaði
einnig stærðfræðilegar formúlur við samn-
ingu sumra verka sinna. Það er einmitt
þessi aðferð, hin algrímska, sem forritið
vinnur út frá.
Ýmsan efnivið má nota í tónsmíðum.
Má þar nefna að hin tónala tónlist byggir
nær eingöngu á þríhljómnum sem grun-
neiningu. Margir nota að auki ákveðna
laghendingu eða hrynbrot sem grunn.
Einnig má nefna notkun Bach á sínu eigin
nafni, svo og notkun margra annarra tón-
skálda á sama nafni í tónsmíðum. Við bygg-
ingu tónverks gengur maður út frá ákveð-
inni eða ákveðnum sellum. B-A-C-H getur
t.d. verið sella og er hún sett inn í forritið
og síðan hjálpar það eftir ákveðnum for-
sendum, sem tónsmiðurinn sjálfur velur
sér. Sama má segja um hljómana. Maður
ákveður einn hljóm sem verður að stýri-
hljómi og athugar þá tölvan hvaða mögu-
leikar eru fyrir hendi við notkun hans.
Tónsmiðurinn ákveður sjálfur bæði hversu
marga möguleika hann vill láta tölvuna
athuga og;velja. Á þennan hátt má búa
til safn tónhugmynda sem géta orðið .að
ákveðnu mynstri í tónsköpun, jafnvel í fleiri
en einu verki, og verður á þann hátt smátt
og smátt til hugmyndabanki sem tónskáld-
ið getur notfært sér í tónsmíðum.
Þau verk sem Kjartan lék fyrir gesti
voru fyrsta verkið sem hann samdi með
forritinu, verkið Calculus frá árinu 1991.
Var verkið samið fyrir Manuelu Wiesler
að beiðni Tónskáldafélags íslands. Á því
ári var Kjartan ennþá að vinna að þróun
forritsins, en var þó kominn það langt að
geta nýtt sér það út frá þeim forsendum
sem hann gaf sér.
Annað verk sem hann samdi með aðstoð
forritsins var Útstrok frá árinu 1992 fyrir
hljómsveit og stafrænan tóngjafa. Verk
sem hefur ákveðið íslenskt yfirbragð sem
minnir á vissan hátt á tónlist Jóns Leifs.
Við frumflutning verksins á íslandi 4. nóv-
ember 1993 þar sem Sinfóníuhljómsveit
Tslands lék hljómsveitarþátt verksins var
ákveðnum elektrónískum aðferðum beitt.
M.a. var upptaka Ríkisútvarpsins af verk-
inu leikin beint í gegnum 20.000 watta
hljóðkerfi sem var til staðar og heyrðu
menn þá í fyrsta sinni „almennilega í hljóm-
sveitinni". Við þær aðstæður sem verkið
var leikið á fyrirlestri Kjartans í Finnlandi
var verkið einnig mjög áhrifamikið. Það
var eins og að sitja meðal hljóðfæraleikar-
anna.
Þriðja verkið var Tvíhljóð frá árinu 1993
sem var frumflutt á Myrkum músíkdögum
í Reykjavík í febrúar 1993. Er verkið skrif-
að fyrir gítar (Pétur Jónasson) og „tölvu-
hljómsveit" (Kjartan Olafsson). Var verkið
ákveðið tæknilegt tilraunaverk frá höfundi
- sem á engan hátt rýrir tónlistarlegt gildi
þess - þar sem það var flutt „lifandi“.
Kjartan hafði unnið töluvert með hljóð-
blöndun á þessu verki nú í Finnlandi og
m.a. flutt það yfir á 8 rásir svo það fengi
notið sín fþessum sérbyggða kammermús-
íksal.
Fjórða verkið sem leikið var var verkið
Þríþraut frá árinu 1993 og var frumflutt
sama ár í júnímánuði af Chalameuox klarí-
nettutríóinu sem Kjartan Óskarsson, Sig-
urður E. Snorrason og Óskar lngólfsson
skipa. Á þeim tíma hafði Kjartan þróað
forrit sitt það mikið að það réði orðið við
þá kanóníska raddfærslu sem notuð er í
verkinu. Hér er gott dæmi um nótkun tölvu
við tónsmíðar. Engin tölvuhljóð heyrast í
verkinu heldur er tölvan notuð sem hjálpar-
tæki við samningu verksins. í þessu tilfelli
má segja að tölvan dragi sig í hlé, inn í
músíkalskan bakgrunn sem er til staðar
en kemur ekki fram við flutning tónverks-
ins.
Fimmta verkið sem Kjartan lék af bandi
fyrir áheyrendur var samið nú í sumar og
ber nafnið Summary (Samantekt) Er það
sérstaklega samið til að sýna þá möguleika
sem kammersalur Síbelíusarakademiunnar
hefur upp á að bjóða. Eins og nafnið ber
me(5 sér er hér um ákveðna samantekt eða
uppgjör að ræða. í verkinu notast Kjartan
við allan þann „concréte" efnivið sem hann
notaði í þeim tónverkum sem til urðu á
námsárunum við Síbelíusarakademíuna.
Eru það verk af ýmsum toga, m.a. verk
fyrir gítar og elektróníska hljómsveit,
strengjakvartett, sópran rödd og píanó,
klarínettutríó og fleiri verk. Voru menn
sammála um það að tónleikunum loknum
að vel hefði tekist til bæði fagurfræðilega
og tæknilega, og hafði einn kennari stofn-
unarinnar á orði hvort þeir mættu ekki
halda eftir afriti af verkinu til að geta leyft
fólki að heyra þá möguleika sem salurinn
býður uppá. Það er stórkostleg upplifun
að heyra tölvutónlist flutta í þessum sal
þar sem hljóðið berst úr öllum áttum. Með
þessari tækni má skapa sérstakt hljóðum-
hverfi og láta tónverkið ekki eingöngu lifa
í tíma heidur einnig í rúmi.
Eftirmáli
Það er alveg ljóst að menn verða að
kunna sína teoríu vel til að geta nýtt sér
forrit Kjartans við tónsköpun. Fræðilega
er þó hægt að búa til „eitthvað“ með forrit-
inu og senda frá sér sem tónsmíð. Það er
þó hætt við að slík vinnubrögð standist
ekki dóm manna. Ýmsir sem ekki hafa
velt fyrir sér tónsmíðaaðferðum eiga oft
erfitt með að skilja í raun og veru um
hvað hlutirnir fjalla. Til er hugtak sem
heitir form og notað er við sköpun, í arki-
tektúr, myndlist, ljóðlist, tónlist og svo
mætti lengi telja. Það er erfitt að hugsa
sér hlut án forms. Form í tónlist er ákaf-
lega stór þáttur í sköpun verksins og geta
verið margvísleg. Þeirra hlutverk er að sjá
um heild verksins og jafnframt að skapa
ákveðna -andstæðu. Þrátt fyrir marga efa-
semdamenn meðal tónlistarmanna og
margra annarra gagnvart notkunar tölvu
við tónsmíðar og tónlistarflutning þá er
það alveg ljóst að eyra tónskáldsins hefur
síðasta orðið í sambandi við niðurstöður í
tónsköpun. Sannur tónsmiður semur ekki
bara eitthvað. Likt og auga myndlistar-
mannsins segir honum hvenær verkinu er
lokið eða hér beri að hætta notar tónskáld-
ið notar eyrað til hins sama. Það er einn
kosturinn við notkun tölvu við tónsmíðar
að maður getur heyrt niðurstöðurnar sam-
stundis. Ekki þarf að bíða eftir að stór
hljómsveit æfi verkið og þá fyrst fái tón-
skáldið vísbendingu um hvort vel eða illa
hafi til tekist. Sumir tónlistarmenn hafa
það vel þjálfað innra eyra að geta heyrt
það sem stendur á blaðinu en ekki allir.
Notkun tölvu í tónsköpun í dag getur ver-
ið margvísleg. M.a. geta menn skrifað
raddskrá sína inn í tölvu og látið hana síð-
an leika verkið. Það er hægt að leika verk
inn á svokallað sequenser-forrit í gegnum
midi-tengt hljómborð og hlustað síðan á
það. Þetta verk má þá opna í nótnaskriftar-
forriti og prenta þaðan út. Meðal þess sem |
unnið er að í dag er að eins og hægt er
með með prentaðan texta, að lesa prentað-
ar nótur inn á tölvu og láta tölvuna síðan
leika verkið. Hér í Danmörku vinna menn
t.d. að því að lesa inn gömul nótnahand-
rit, og þá helst frá miðöldum, og láta tölvu ;
breyta þeim yfir í nútíma nótnasetningu.
Einnig má nefna tölvur í sambandi við
nótnaútgáfu. Nú er t.d. unnið að því að ;
skrifa öll verk Nils W. Gades inn á tölvu !
með heildarútgáfu í huga og er það verk
vel á veg komið. Enn stærra verkefni er j
að fara í gang, þ.e. heildarútgáfa á verkum j
Carls Nilsens en þau verða einnig öll sett
í tölvutækt form (eru menn farnir að huga !
að heildarútgáfum á verkum íslenskra tón:
skálda og setja þau í tölvutækt form?). í
Hollandi og víðar vinna menn með rann-
sóknir á því hvernig manneskjan heyrir
tónlist og hefur verið búinn til svokallaður
dansskór sem bregst við upplýsingum frá
tölvu sem „heyrir“ leikna tónlist og síðan
gefur eftir algrímskum reikniaðferðum
skónum til kynna hljóðfallið í tónlistinni.
Ogerningur er að telja upp þá hluti er tengj-
ast tölvum og tónlist en fátt eitt er eftir
þar sem tölvan kemur ekki einhversstaðar
nálægt.
Fram að þessu hafa menn verið að þróa
þá möguleika sem notkun tölvu býður upp
á, ekki bara í tónlist heldur á nánast öllum
sviðum. Með góðum tölvum hafa menn
getað leyst ýmis vandamái á örstuttum
tíma sem áður tók langan tíma. Að mínu
mati er tölvan smátt og smátt að læðast
inn um bakdyrnar í lifi okkar og minni og
minni ástæða að ræða um niðurstöður sem
fengnar eru með aðstoð tölvu sem einhverj-
ar sérstakar tölvuniðurstöður. Ef við tökum
til dæmis hönnun á mannvirkjum nú til
dags, eins og brúnni yfir Stórabelti í Dan-
mörku eða göngin undir það, eða væntan-
lega brú yfir Eyrarsund. Öll þróunar- og
hönnunarvinna er þar unnin með aðstoð
tölvu. Ég hef engan heyrt tala sérstaklega
um tölvubrýr eða tölvugöng. Sama má
segja með tónlistina. Ég trúi því að þegar
„bakraddirnar“ átti sig á því að tónverk
er listaverk sem búið er til úr hljóði þá
hætti menn að taia um hvaða vinnuaðferð-
um hafi verið beitt við samningu tónverks-
ins. Einstakur tónn leikinn á píanó eða fiðlu
hefur ekkert með tónlist að gera. Það hef-
ur heldur ekki háa C-ið hjá söngvaranum.
Þetta eru bara einstök hljóð. Þau hafa fyrst
tónlistarlegt gildi þegar þau eru sett í
músíkalskt samhengi og þá er spurning
eftir. Eru hljóð hinna hefðbundnu hljóð-
færa eða raddarinnar þau einu sem eiga
rétt á sér við tónsköpun? Ef tónlistarmaður
vill segja eitthvað sem listamaður þá á
hann rétt á að velja sér þann miðil sem
honum hentar og á það bæði við um hvern-
ig einstakt hljóð er myndað og í hvaða
samhengi það er lagt. Það er svo eyrað
sem segir tónsmiðnum hvenær sagt hefur
verið það sem segja skal.
Höfundur er í rannsóknartengdu framhalds-
námi í tónvísmdum við háskólann i Álaborg.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15. OKTÓBER 1994. 5