Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Qupperneq 5
Úr tónlistarstúdíói tónlistardeildar Háskólans í Heisinki. prófessors Einojuhani Rautavaara og síðan á árunum 1988-1992 almennar tónsmíðar og tölvutónsmíðar hja Paavo Heininen við sömu stofnun. Árið 1989 lauk Kjartan kandidatsprófi frá Síbelíusarakademiunni en frá árinu 1988 hefur hanri unnið að þróun tónsmíðaforritsins Calmus sem nú er stór þáttur í Lic. gráður hans við sömu stofnun. Eins og ég sagði í upphafi er Kjartan Ólafsson um þessar mundir að ljúka námi sínu við stofnunina. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að vera með Kjartani og fylgjast með honum að störfum í vikunni fyrir hinu opinberu tónleika sem krafist er við slík lokapróf og hlusta á fyrirlestur er hann hélt í Síbelíusarakademíunni, og sem einnig er hluti lokaverkefnis hans. Áður fýrr var það mjög mikilvægt fyrir tónskáld að þau hefðu sérstaka tækni- menn, eða fræðinga, sér til aðstoðar við tækin. Með tilkomu tölvunnar og þeirrar tækni sem henni fylgir hafa tónskáldin tekið við báðum þessum hlutverkum. Bæði vegfia þess að vinnuumhverfið er miklu þægilegra og svörin úr tækjunum fást í flestum tilfellum samstundis, en ekki dag- inn eftir eins og oft vildi koma fyrir. Tölvu- verið í Síbelíusarakademíunni er byggt í hring eins og maður sér í James Bond kvikmyndum og situr Dr. No í bólstruðm ergónómískt byggðum stól og getur teygt sig í takka og tól á mjög þægilegan hátt, enda eins gott því mörgu þarf að fylgjast með. Kjartan var að vinna að nýju tón- verki sem hann hefur í sumar samið sér- staklega fyrir þennan kammermúsíksal sem nefndur er hér að framan. Er verkið samið með notkunarmöguleika salarins í huga og á þann hátt má skapa verk með margar víddir, verk sem lifir bæði í tíma og rúmi. Einnig var hann að vinna að ýmis konar hljóðblöndun. I öðrum verkum sínum og þá sérstaklega á verkinu Tvíhljóð frá árinu 1993 má heyra undurfagi'a tóna gítarsins í höndum Péturs Jónassonar þeyt- ast í kringum sig í salnum. Fyrirlesturinn byggði Kjartan fyrst og fremst á að kynna tónsmíðaforritið sitt CALMUS og hug- myndafræðina og tæknina þar að baki. Þar inn fléttaði hann síðan nokkrum tónverkum sem hann hefur samið með aðstoð forrits- ins og flutti af segulbandi til að sýna fram á þá möguleika sem forritið býður upp á. Grunnhugmyndin á bak við notkun CAL- MUS forritsins í tónsmíðum er sú að því er ætlað að vera eins konar millistykki milli einfaldrar tónhugmyndar og fullbúins tónverks. Forritið vinnur út frá svokölluð- um algrímskum reikniaðferðum sem geta verið ákaflega margvíslegar alveg eftir því á hvern hátt maður nálgast þær. Aðferðin er ekki óþekkt og má þar til nefna D’Arezzo nokkurn sem uppi var um árið 1000 og samdi ákveðnar reikniformúlur til að tengja saman mismunandi tónhæðir við sérhljóða texta. Ekki ólíkt finnur maður í síðasta verki Bachs, Die Kunst der Fuge, þar sem hann notar bókstafina í nafni sínu, BACH, til að byggja upp stef. Við þetta má bæta tónskáldinu Liszt og hinni stóru orgel- fantasíu hans, verkinu Rebus eftir Nils Gade og seinustu kvartetta Beethovens. Enn ein aðferðin er samband talna og tóna og eru þá gjarnan nefndir til sögunnar fulltrúar hins svokallaðs annars Vínar- skóla, Schönberg og nemendur hans Alban Berg, Anton Webern að ógleymdum Hau- er. Einnig má nefna hið svokallaða Pitch Class Set sem kennt er við Allan Forte. John Cage notaði Random Choice eða Chance Theory í sumum af sínum verkum, Xenakis yfirfærði notkun á Markov-keðjum við tónsmíðar og Conlon Nancarrow notaði einnig stærðfræðilegar formúlur við samn- ingu sumra verka sinna. Það er einmitt þessi aðferð, hin algrímska, sem forritið vinnur út frá. Ýmsan efnivið má nota í tónsmíðum. Má þar nefna að hin tónala tónlist byggir nær eingöngu á þríhljómnum sem grun- neiningu. Margir nota að auki ákveðna laghendingu eða hrynbrot sem grunn. Einnig má nefna notkun Bach á sínu eigin nafni, svo og notkun margra annarra tón- skálda á sama nafni í tónsmíðum. Við bygg- ingu tónverks gengur maður út frá ákveð- inni eða ákveðnum sellum. B-A-C-H getur t.d. verið sella og er hún sett inn í forritið og síðan hjálpar það eftir ákveðnum for- sendum, sem tónsmiðurinn sjálfur velur sér. Sama má segja um hljómana. Maður ákveður einn hljóm sem verður að stýri- hljómi og athugar þá tölvan hvaða mögu- leikar eru fyrir hendi við notkun hans. Tónsmiðurinn ákveður sjálfur bæði hversu marga möguleika hann vill láta tölvuna athuga og;velja. Á þennan hátt má búa til safn tónhugmynda sem géta orðið .að ákveðnu mynstri í tónsköpun, jafnvel í fleiri en einu verki, og verður á þann hátt smátt og smátt til hugmyndabanki sem tónskáld- ið getur notfært sér í tónsmíðum. Þau verk sem Kjartan lék fyrir gesti voru fyrsta verkið sem hann samdi með forritinu, verkið Calculus frá árinu 1991. Var verkið samið fyrir Manuelu Wiesler að beiðni Tónskáldafélags íslands. Á því ári var Kjartan ennþá að vinna að þróun forritsins, en var þó kominn það langt að geta nýtt sér það út frá þeim forsendum sem hann gaf sér. Annað verk sem hann samdi með aðstoð forritsins var Útstrok frá árinu 1992 fyrir hljómsveit og stafrænan tóngjafa. Verk sem hefur ákveðið íslenskt yfirbragð sem minnir á vissan hátt á tónlist Jóns Leifs. Við frumflutning verksins á íslandi 4. nóv- ember 1993 þar sem Sinfóníuhljómsveit Tslands lék hljómsveitarþátt verksins var ákveðnum elektrónískum aðferðum beitt. M.a. var upptaka Ríkisútvarpsins af verk- inu leikin beint í gegnum 20.000 watta hljóðkerfi sem var til staðar og heyrðu menn þá í fyrsta sinni „almennilega í hljóm- sveitinni". Við þær aðstæður sem verkið var leikið á fyrirlestri Kjartans í Finnlandi var verkið einnig mjög áhrifamikið. Það var eins og að sitja meðal hljóðfæraleikar- anna. Þriðja verkið var Tvíhljóð frá árinu 1993 sem var frumflutt á Myrkum músíkdögum í Reykjavík í febrúar 1993. Er verkið skrif- að fyrir gítar (Pétur Jónasson) og „tölvu- hljómsveit" (Kjartan Olafsson). Var verkið ákveðið tæknilegt tilraunaverk frá höfundi - sem á engan hátt rýrir tónlistarlegt gildi þess - þar sem það var flutt „lifandi“. Kjartan hafði unnið töluvert með hljóð- blöndun á þessu verki nú í Finnlandi og m.a. flutt það yfir á 8 rásir svo það fengi notið sín fþessum sérbyggða kammermús- íksal. Fjórða verkið sem leikið var var verkið Þríþraut frá árinu 1993 og var frumflutt sama ár í júnímánuði af Chalameuox klarí- nettutríóinu sem Kjartan Óskarsson, Sig- urður E. Snorrason og Óskar lngólfsson skipa. Á þeim tíma hafði Kjartan þróað forrit sitt það mikið að það réði orðið við þá kanóníska raddfærslu sem notuð er í verkinu. Hér er gott dæmi um nótkun tölvu við tónsmíðar. Engin tölvuhljóð heyrast í verkinu heldur er tölvan notuð sem hjálpar- tæki við samningu verksins. í þessu tilfelli má segja að tölvan dragi sig í hlé, inn í músíkalskan bakgrunn sem er til staðar en kemur ekki fram við flutning tónverks- ins. Fimmta verkið sem Kjartan lék af bandi fyrir áheyrendur var samið nú í sumar og ber nafnið Summary (Samantekt) Er það sérstaklega samið til að sýna þá möguleika sem kammersalur Síbelíusarakademiunnar hefur upp á að bjóða. Eins og nafnið ber me(5 sér er hér um ákveðna samantekt eða uppgjör að ræða. í verkinu notast Kjartan við allan þann „concréte" efnivið sem hann notaði í þeim tónverkum sem til urðu á námsárunum við Síbelíusarakademíuna. Eru það verk af ýmsum toga, m.a. verk fyrir gítar og elektróníska hljómsveit, strengjakvartett, sópran rödd og píanó, klarínettutríó og fleiri verk. Voru menn sammála um það að tónleikunum loknum að vel hefði tekist til bæði fagurfræðilega og tæknilega, og hafði einn kennari stofn- unarinnar á orði hvort þeir mættu ekki halda eftir afriti af verkinu til að geta leyft fólki að heyra þá möguleika sem salurinn býður uppá. Það er stórkostleg upplifun að heyra tölvutónlist flutta í þessum sal þar sem hljóðið berst úr öllum áttum. Með þessari tækni má skapa sérstakt hljóðum- hverfi og láta tónverkið ekki eingöngu lifa í tíma heidur einnig í rúmi. Eftirmáli Það er alveg ljóst að menn verða að kunna sína teoríu vel til að geta nýtt sér forrit Kjartans við tónsköpun. Fræðilega er þó hægt að búa til „eitthvað“ með forrit- inu og senda frá sér sem tónsmíð. Það er þó hætt við að slík vinnubrögð standist ekki dóm manna. Ýmsir sem ekki hafa velt fyrir sér tónsmíðaaðferðum eiga oft erfitt með að skilja í raun og veru um hvað hlutirnir fjalla. Til er hugtak sem heitir form og notað er við sköpun, í arki- tektúr, myndlist, ljóðlist, tónlist og svo mætti lengi telja. Það er erfitt að hugsa sér hlut án forms. Form í tónlist er ákaf- lega stór þáttur í sköpun verksins og geta verið margvísleg. Þeirra hlutverk er að sjá um heild verksins og jafnframt að skapa ákveðna -andstæðu. Þrátt fyrir marga efa- semdamenn meðal tónlistarmanna og margra annarra gagnvart notkunar tölvu við tónsmíðar og tónlistarflutning þá er það alveg ljóst að eyra tónskáldsins hefur síðasta orðið í sambandi við niðurstöður í tónsköpun. Sannur tónsmiður semur ekki bara eitthvað. Likt og auga myndlistar- mannsins segir honum hvenær verkinu er lokið eða hér beri að hætta notar tónskáld- ið notar eyrað til hins sama. Það er einn kosturinn við notkun tölvu við tónsmíðar að maður getur heyrt niðurstöðurnar sam- stundis. Ekki þarf að bíða eftir að stór hljómsveit æfi verkið og þá fyrst fái tón- skáldið vísbendingu um hvort vel eða illa hafi til tekist. Sumir tónlistarmenn hafa það vel þjálfað innra eyra að geta heyrt það sem stendur á blaðinu en ekki allir. Notkun tölvu í tónsköpun í dag getur ver- ið margvísleg. M.a. geta menn skrifað raddskrá sína inn í tölvu og látið hana síð- an leika verkið. Það er hægt að leika verk inn á svokallað sequenser-forrit í gegnum midi-tengt hljómborð og hlustað síðan á það. Þetta verk má þá opna í nótnaskriftar- forriti og prenta þaðan út. Meðal þess sem | unnið er að í dag er að eins og hægt er með með prentaðan texta, að lesa prentað- ar nótur inn á tölvu og láta tölvuna síðan leika verkið. Hér í Danmörku vinna menn t.d. að því að lesa inn gömul nótnahand- rit, og þá helst frá miðöldum, og láta tölvu ; breyta þeim yfir í nútíma nótnasetningu. Einnig má nefna tölvur í sambandi við nótnaútgáfu. Nú er t.d. unnið að því að ; skrifa öll verk Nils W. Gades inn á tölvu ! með heildarútgáfu í huga og er það verk vel á veg komið. Enn stærra verkefni er j að fara í gang, þ.e. heildarútgáfa á verkum j Carls Nilsens en þau verða einnig öll sett í tölvutækt form (eru menn farnir að huga ! að heildarútgáfum á verkum íslenskra tón: skálda og setja þau í tölvutækt form?). í Hollandi og víðar vinna menn með rann- sóknir á því hvernig manneskjan heyrir tónlist og hefur verið búinn til svokallaður dansskór sem bregst við upplýsingum frá tölvu sem „heyrir“ leikna tónlist og síðan gefur eftir algrímskum reikniaðferðum skónum til kynna hljóðfallið í tónlistinni. Ogerningur er að telja upp þá hluti er tengj- ast tölvum og tónlist en fátt eitt er eftir þar sem tölvan kemur ekki einhversstaðar nálægt. Fram að þessu hafa menn verið að þróa þá möguleika sem notkun tölvu býður upp á, ekki bara í tónlist heldur á nánast öllum sviðum. Með góðum tölvum hafa menn getað leyst ýmis vandamái á örstuttum tíma sem áður tók langan tíma. Að mínu mati er tölvan smátt og smátt að læðast inn um bakdyrnar í lifi okkar og minni og minni ástæða að ræða um niðurstöður sem fengnar eru með aðstoð tölvu sem einhverj- ar sérstakar tölvuniðurstöður. Ef við tökum til dæmis hönnun á mannvirkjum nú til dags, eins og brúnni yfir Stórabelti í Dan- mörku eða göngin undir það, eða væntan- lega brú yfir Eyrarsund. Öll þróunar- og hönnunarvinna er þar unnin með aðstoð tölvu. Ég hef engan heyrt tala sérstaklega um tölvubrýr eða tölvugöng. Sama má segja með tónlistina. Ég trúi því að þegar „bakraddirnar“ átti sig á því að tónverk er listaverk sem búið er til úr hljóði þá hætti menn að taia um hvaða vinnuaðferð- um hafi verið beitt við samningu tónverks- ins. Einstakur tónn leikinn á píanó eða fiðlu hefur ekkert með tónlist að gera. Það hef- ur heldur ekki háa C-ið hjá söngvaranum. Þetta eru bara einstök hljóð. Þau hafa fyrst tónlistarlegt gildi þegar þau eru sett í músíkalskt samhengi og þá er spurning eftir. Eru hljóð hinna hefðbundnu hljóð- færa eða raddarinnar þau einu sem eiga rétt á sér við tónsköpun? Ef tónlistarmaður vill segja eitthvað sem listamaður þá á hann rétt á að velja sér þann miðil sem honum hentar og á það bæði við um hvern- ig einstakt hljóð er myndað og í hvaða samhengi það er lagt. Það er svo eyrað sem segir tónsmiðnum hvenær sagt hefur verið það sem segja skal. Höfundur er í rannsóknartengdu framhalds- námi í tónvísmdum við háskólann i Álaborg. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15. OKTÓBER 1994. 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.