Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Síða 6
Vegir guðs H afa farvegir illskunnar breikkað? Eru fljót hennar straumþyngri nú en áður? Um það er engum blöðum að fletta: Tölvu- hraði nútímans og vídeótaktar samfélagsins setja mark sitt á samskipti bama og unglinga. Kung-fu-kynslóðin gengur með hnúa- járn. Það er mikið talað um einelti í skólum og sögur sagðar af ótrúlegum fólskuverk- Tveir strákar voru ötulastir við að stríða Símoni og festa uppnefnin við hann. Annar þeirra var Ómar, sem fór um hverfið og stal reiðhjólum og öðru, en hinn var Maggi, jafnan kallaður Maggi feiti. SMASAGA eftir EINAR MÁ GUÐMUNDSSON Einelti er grimmd, en grimmd var til löngu á undan tækniheimi nútímans. Hafa fantatökin breytt um form eða er innihald þeirra nýtt? Um daginn, þegar ég var að róta í gömlu dóti, rakst ég á Lestrarbók frá því í gagn- fræðaskóla. Bókin var velkt og slitin og spássíur hennar útkrotaðar. Það voru aðal- lega flatneskjulegar andlitsmyndir. Ég fletti henni og allt í einu blasti við mér smásagan Grímmd eftir Halldór Stef- ánsson. „Hann valhoppaði yfir hnútótta móa upp á lyngþúfur og ofan í grasdokkir ...“ Eg var um leið kominn inn í kennslustof- una og Eggert íslenskukennari stóð upp við töfluna og las. Ég saug upp í nefið og fann sama klökk- vann og þá. Gátu börn verið svona grimm? I skólastofunni ríkti þögn. Svo fleygði drengurinn í sögunni sér niður í fjörugijótið og fór að gráta. Þá heyrðist allt í einu grátur í skólastof- unni. Símon, strákurinn sem sat við fremsta borðið í dyraröðinni, var farinn að gráta. Hann hágrét. Símon var ekki holgóma einsog drengur- inn í sögunni, en hann stamaði. Hann hafði oft grátið heima hjá sér, í einrúmi, en aldr- ei í skólastofunni. Símon bjó í einni af bæjarblokkunum við Skipavoginn. Hann átti mörg systkini, sjö eða átta, og raunar fleiri ef lausaleiks- börnin, sem Heimir pabbi hans átti, voru talin með. Heimir var hávaxinn með þykkt svart hár sem hann greiddi til hliðar og aftur. Hann klæddi sig ekkert ósvipað og ungling- arnir, gekk í leðuijakka og með sólgler- augu. Röddin var gróf og húðin líka. Heimir virtist ekkert vinna. Hann var oft heima og á vappi um hverfið. Stundum ók hann með leigubllum og einhveijir gaur- ar með honum. Svo hvarf hann. Þá sögðu systkinin að hann væri á sjónum. „Ha? Á sjónurn?" „Já, hann er á miililandaskipi," sögðu þau. „Hann siglir um höfin.“ Ef einhveijir báru brigður á þetta var eldri bræðrum Símonar að mæta. Þeir spunnu upp sögur um ævintýraferðir hans um frumskóga og borgir. Eitt sinn þegar Heimir hafði verið óeðli- lega lengi í burtu sögðu þeir að hann væri farinn til Nýja-Sjálands. „Og hvað gerir hann þar?“ var spurt. „Hann er slökkviliðsmaður,“ sögðu eldri bræðurnir. í rauninni þurfti einskis að spyija. Það vissu allir í nágrenninu og skólanum að Heimir var afbrotamaður. Hann var ekki á sjónum heldur I fangelsi. Heimir vann fyrir sér með innbrotum og ávísanafalsi og tveir af bræðrunum áttu eftir að ganga sömu braut: Þeir voru sömu svolarnir og pabbi þeirra, en Símon og systurnar tvær, Dagbjört og Gunnhildur, voru blíðlyndari. Seinna skrifaði Dagbjört smásögur. Þær þykja vel skrifaðar en eru að sama skapi nöturlegar. Sumir gagnrýnendur segja Dagbjörtu hafa opnað nýja umræðu. ' Dagbjört hefur lýst því, bæði I blaðavið- tali og smásögu, hvernig Símon iá stam- andi í kjöltunni á Erlu, mömmu þeirra, og reyndi að hugga hana þegar búið var að stinga Heimi í steininn. Systurnar voru kvaldar og innhverfar, en þær stömuðu ekki einsog Símon. Ein setning gat verið heila eilífð á leiðinni út úr honum, ef hún kom þaðan nokkum tíma. Kennararnir urðu að vera þolinmóðir. Símon gat ekki lesið nema fyrstu tvö grein- arskilin í lestrarprófinu. Því var hann í upphafi settur í mun lakari bekk en ástæða var til. Það var ekki fyrr en í ljós kom hve góð- ur hann var í stærðfræði og yfirleitt þeim fögum þar sem hægt var að leysa verkefn- in í hljóði að hann var fluttur í betri bekk. Einu sinni í viku mætti Símon hjá tal- kennaranum. Hann hét Guðjón, virðulegur maður, dálítið rauðþrútinn í framan og gekk með hatt. Guðjón hafði aðstöðu í lítilli skrifstofu í skólanum. Glugginn á talkennarastofunni vissi út á skólalóðina. í frímínútum lágu bekkjarsystkini Símons á glugganum og horfðu á þegar Guðjón lét hann breyta tungunni í vindil, gera úr henni bolla og skella í góm. -Þ Sumir náðu árangri, en ekki Símon. Ef eitthvað var stamaði hann meira eftir að hann kom út frá Guðjóni talkennara en áður en hann fór inn til hans. Símon átti aðeins eitt ráð við staminu og það var að þegja. Það gat verið dýrt spaug að tala, því orð sem Símon hikstaði á og stamaði festust við hann. Tveir strákar voru ötulastir við að stríða Símoni og festa uppnefnin við hann. Annar þeirra var Ómar, sem fór um hverfið og stal, reiðhjólum og öðru, en hinn var Maggi, jafnan kallaður Maggi feiti. Maggi fylgdi Ómari einsog hnöttur og var ótrúlega stríðinn og hrekkjóttur, einsog títt er með feita stráka. Ómar var í tossa- bekk en Magga gekk betur að læra. Eitt sinn buðu þeir félagarnir Símoni að koma með sér á leynistað. Það var dimm- ur og niðurgrafinn kjallari í bílskúr við götuna fyrir ofan Dvergheima. Rúðurnar voru brotnar, gluggarnir ein- sog dimm augu, gólfið þakið spýtnabraki og drasli. „Kemurðu ekki með?“ sagði Maggi. Hann brosti breitt. „É-é-é-ég vei-vei-veit ekki,“ sagði Sím- on. „Auðvitað kemurðu með,“ sagði Ómar. Hann gaf Símoni kumpánlegt olnboga- skot. Símon réði ekki við tilfinningar sínar. Hann veðraðist allur upp við þennan skyndilega áhuga sem honum var sýndur. Hann brosti til þeirra og kinkaði kolli. „É-é-ég uhm uhm m-m-á það?“ „Auðvitað Símon,“ sagði Ómar. „Við erum að bjóða þér með okkur.“ Þeir gengu frá Skipavoginum, yfir fót- boltavöllinn og áfram stíginn meðfram róluvellinum. Omar hélt á bréfpoka. Maggi brosti og hendur hans dingluðu, en Símon horfði niður fyrir sig. Skolleitt hárið féll fram. Hann var ijóður og feiminn. „Við eigum bæði kex og kók,“ sagði Ómar og opnaði bréfpokann. Á meðan Símon kíkti ofan í pokann blikkaði Ómar Magga. Maggi sneri sér við. Kinnar hans blésu út. Hann reyndi að halda niðri í sér hlátrinum. Ómar hafði stolið kexinu og kókinu úr kjörbúðinni. Hann var líka með sígarettur. Þær tók hann upp úr bijóstvasa gallajakk- ans þegar þeir voru sestir niður í kjallarann. Þeir sátu I myrkrinu, mauluðu nokkrar kexkökur og drukku kók. Símon svimaði þegar hann reykti. Honum var illt I magan- um. Hann stóð upp og gekk um kjallarann. „Hvað er að?“ sagði Maggi. „Mé-mé-mér er svo i-i-illt í ma-ma-mag- anum,“ sagði Símon. „Varstu að éta eitthvað eitur?“ sagði Ómar. „É-é-ég held það sé sí-sí-sí-sígarettan.“ Símon leit í kringum sig. Hann gekk að veggnum. Gluggarnir voru hátt uppi. Tré- stiginn sem þeir höfðu gengið niður var horfinn. Símon gekk yfir til Ómars og Magga og horfði á þá bænaraugum. Hann vildi komast upp en þeir hreyfðu hvorki legg né lið. Sígarettuglóðin lýsti upp glottandi andlit þeirra. Þá sagði Símon: „Ha-ha-haldið þið að það séu nokkrar ro-ro- rottur hérna? Mé- mé-mér er ne-ne-nefnilega svo mikið mál að _skí- skí-skíta.“ Ómar og Maggi skellihlógu. Nú höfðu þeir heyrt það sem þeir vildu. Um leið rann upp fyrir Símoni að ekkert bjó á bak við vinarþel þeirra nema löngun- in til að hlusta á hann stama. Þetta urðu Símoni dýrkeypt orð. Maggi feiti greypti hvert þeirra í huga sér og iðaði í skinninu eftir að veita öðrum hlutdeild í þeim. Hann stöðvaði fólk á göt- um úti. Upp við ljósastaura og húsveggi buldu hlátrasköll. Áður en vika var liðin sat Símon uppi með uppnefnið „Skí- skí-skíta“. Svo rækilega festist það við hann að hann var aldrei kallaður Símon. Hann hét „Skí-skí-skíta“. Það hefði engu breytt þó Símon hefði verið látinn auglýsa Luxsápu með Raquel Welch eða fengið af sér andlitsmynd á þvottabrúsana frá Frigg. „Skí-skí-skíta“ var nafn hans. Það virtist hrína á honum. Símon varð fram úr hófi sóðalegur. Hann þvoði sér hvorki né greiddi. Hann fór ekki í sturtu eftir leikfimi. í sturtuklefanum var alltaf einhver sem sagði: „Þa-þa-þarftu e-e-ekki að skí-skí- skíta?“ Hann hætti ekki að stama, en hann sagði færri og færri orð.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.