Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Qupperneq 8
Þjóðmálaþankar Hundvitlaust Eg var minntur á það á dögunum að fyrir aldar- fjórðungi ritaði ég nafn mitt á bænaskjal til borg- aryfirvalda. Þar var beðið um að hundahald yrði leyft. Ekki hreií það og máttu hundaeigendur (óiöglegir) fela gripi sína um sinn og kvein- uðu sáran. Tilefnið var ramakvein mitt yfir hundum og hundaeigendum. Nú hlýtur mönnum að leyfast að skipta um skoðun á aldarfjórð- ungi og það hef ég gert. Ég vil losna við hunda úr þéttbýli, á meðan margir hundaeig- endur, níðast á lögunum sem um slíkt fjalla. Hér bý ég á friðsælum stað í Hafnarfirði og held mitt hús og minn garð. Á dögunum var ég að vökva þegar ég sá hundflykki setja sig í stellingar til að skíta þar á lóð- inni sem börn leika sér mest. Ég ákvað að vera ekki með neinar vöflur og beindi vatns- geislanum undir afturenda hundsins sem þaut burtu. Eigandinn sveiflaði ólinni sem hefði átt að vera föst í hundinum og jós yfir mig skömmum á meðan hundurinn mé í hjólkopp nærliggjandi bifreiðar. Að lokinni þeirri sprænu hljóp þessi, án efa ágæti og vel uppaldi hundur, sem var á stærð við Lassí, um götuna og elti þriggja til fjögurra ára börn sem hlupu skelfingu lostin undan honum og ekki í fyrsta skipti. Hvað hefði hundeigandinn gert ef ég hefði fnigið á bílinn hans, hægt mér í lóðinni hans og hlaupið á eftir börnunum hans og hrætt þau? Líklega hefði hann lagt til að ég ætti að vera í bandi, - og það sama fínnst mér um hundinn. Ég hljóp til og forðaði börnun- um, sem án efa héldu að hundurinn ætlaði að snæða þau, með hundóðan manninn á eftir mér. Hann fór og er án efa að velta því fyrir sér hvort ekki megi skjóta menn sem eru vondir við hunda. Spytja má hvor okkar hafi brotið af sér? Hundar eiga að vera í bandi. Það virða fá- ir. Og of fáir eigendur hunda skilja að fólk getur verið hrætt við þá. Og tæplega á að líða það að kálfstórir hundar hægi sér hvar sem er, hvort sem hirt er upp eftir þeim eða ekki! í Elliðarárdal eru skilti út um allt sem banna umferð hunda. Samt þeysa þeir um allt þar og eigendur jafnvel langt í burtu. Hver eru áhrifin? Til dæmis óvirðing fyr- ir lögum og rétti. Skilaboðin sem slíkir hundaeigendur senda eru að ekki eigi að virða lögin. Og hvað skyldu þeir gera ef brotist yrði inn hjá þeim? Væntanlega hneykslast á því hve illa lögin séu virt. Þessir hundaeigendur brjóta lögin vísvit- andi og virða í engu rétt annarra. Vitaskuld er hópur sem fer að lögum eins og framast er unnt. Þeir hirða upp eftir hundana og hafa þá í bandi. Þeir virða það að fólk vilji ekki fá eitthvað bráðókunnugt flykki í fang- ið. Þeir þjálfa og sýna hunda sína, eins og aðrir frímerkajsafnið sitt, láta þá keppa í hundaíþróttum og ala þá sem bestur er kost- ur. Til að gera öllum það ljóst þá er vandinn ekki hundumir sem slíkir. Vandinn er eig- endumir, sem ekki geta virt þær reglur sem þeim eru settar. Sama gildir reyndar um fleiri gæludýr. Það er eins og fólk .haldi að það sé að fá sér úttroðna bangsa sem megi troða á enda- laust. Hvaðan koma villikettirnir í nágrenni höfuðborgarinnar? Og hvað um kattaeigend- ur sem læsa dýrin sín úti að næturþeli þann- ig að þau leiti sér að skjóli m.a. í sandköss- um leikskólabarna? Ég minnist heimilis sem ég kom oft á sem bam. Þar bjó köttur sem einn góðan veður- dag hafði birst og sest upp. Hann var ágæt- lega vaninn og gerði sosum ekki miklar kröfur til heimilismanna. Mörgum árum seinna hvarf hann sporlaust, þá gamall, haltur og hálfblindur. Sjálfsagt lenti hann undir bíl. Oft velti ég því fyrir mér hvaðan hann kom og hvers vegna ágætlega vaninn köttur flutti skyndilega að heiman. Sama gildir um kanínur og dúfur, hamstra og mýs. Eg efa ekki það sem ýmsir fjölfróð- ir menn segja að dýr og menn eigi að geta átt gott sambýli. En ég fullyrði að margir séu ófærir um að sinna sínum dýrum. Hve margir hafa ekki gengið hjá húsum um miðjan dag þar sem neyðaróp hunda heyr- ast út? Á að líða svona? Hvareru hundavinifi MAGNÚS ÞORKELSSON Höfundur er kennslMStjóri Menntaskólans viö Sund. Umræðuhópar um stjórnmál Orðræða um þjóðmál til hliðar við pólitísku flokkana Fáum mun dyljast að mikil pólitísk umbrot eiga sér nú stað hér á landi, einkum innan svo- nefndra vinstri flokka. Á hitt má líka minna að ekki er síður þörf endurnýjunar á hægri væng íslenskra stjórnmála. Því miður bendir „Athygli mín beinist þó einkum að áhrifavaldi stjórnmálaflokka, valdi sem í skjóli úreltrar kjördæmaskipunar og kosningalaga er lítt sýnilegt. Forystumenn flokkanna hafa einnig í vaxandi mæli á síðustu árum, að því er mér sýnist, glatað sambandi við raunverulegar þarfír þofra almennings í landinu.“ Eftir JÓNAS PÁLSSON margt til að þau átök sem mest ber á um þessar mundir séu, eins og svo oft áður, sprottin af tímabundnum deilum og valda- baráttu einstakra stjórnmálamanna fremur en skipulegum tilraunum til myndunar nýrra stjórnmálasamtaka. En slík samtök þyrftu, ef vel á að vera, að tengjast stefnumótun fyrir ísland á nútímalegum grunni, svo sem tillögum um nýsköpun í atvinnuháttum, breytt vinnubrögð við hagsmunagæslu starfsstétta og endurskipan íslenska stjóm- kerfisins. Víst hafa ýmsar byijanir verið gerðar í þessa veru á síðustu árum. En betur má ef duga skal. Margir Islendingar bera, að ég hygg, eins og undirritaður, ugg í bijósti um framtíð íslenska lýðveldisins og óttast að illa kunni að fara ef þjóðin og forystumenn hennar sýna ekki meiri for- sjálni og stefnufestu um stjórn landsins en saga síðustu áratuga sýnir. Til vitnis um þessar áhyggjur eru nokkrar vandaðar blaðagreinar sem birst hafa á síðustu mán- uðum um efnáhags- og atvinnumál, stjórn- skipan landsins og stjórnsýslu. HVARERUM VlÐ Á VEGI Stödd? Ég leyfi mér að varpa fram þeirri spurn- ingu hvort ekki sé tímabært að fólkið í landinu myndi á eigin vegum starfs- eða umræðuhópa um íslensk þjóðmál. Slíkir grasrótarhópar gætu verið með ýmsu móti, misjafnir að stærð, sex til tíu þátttakend- ur, helst bæði karlar og konur, ungir jafnt sem aldnir og viðfangsefni þeirra margvís- leg. Sameiginlegur tilgangur allra slíkra hópa væri að glöggva sig á framtíðarhorf- um íslenskrar þjóðar og stöðu íslands í umheiminum. Hver einstakur hópur hefði afmarkað viðfangsefni til umfjöllunar; fag- legt eða hagnýtt. Sem dæmi um verkefni mætti nefna atvinnuvegi landsmanna, stjórn fiskveiða, erlenda fjárfestingu, markaðsmál, framtíðarmótun þjóðríkis á íslandi, endurskipan flokkakerfisins, efl- ingu lýðræðis og starfsemi fjölmiðla, breyt- ingar á stjórnskipan ríkisins og stjórnsýslu, utanríkismál og samstarf við aðrar þjóðir, þróun og skipan byggðar í landinu. Enn mætti nefna málaflokka eins og matvæla- iðnað, ferðaþjónustu og hugbúnaðarvinnu af ýmsu tagi, að ógleymdum uppeldis- og menntamálum, félagsmálum og heilsu- gæslu. Við þessa upptalningu mætti lengi bæta en hefur næsta lítinn tilgang enda skarast þessir málaflokkar og veltur á áhuga og sérhæfingu þátttakenda hvaða viðfangsefni væru valin og hvernig henta þætti að afmarka þau. Verkefni slíkra hópa þyrftu ekki að vera átthagabundin þótt þeir störfuðu vítt og breitt um landið. Nú munu margir segja að starfsemi af þessu tagi sé bæði óþörf og óhagkvæm, jafnvel þótt einhveijir vildu leggja á sig slíka fyrirhöfn. Eðlilegra sé fyrir áhuga- menn að ganga beint til starfa innan pólití- skra flokka, gamalla eða nýrra. Margar sérfræði- og rannsóknarstofnanir vinni þegar markvisst að verkefnum á þessu sviði (Þjóðhagsstofnun, Hafrannsóknar- stofnun, rannsóknarstofnanir á vegum at- vinnuvega; rannsóknarstofnanir innan há- skóla, sérfræðingar hagsmunasamtaka o.s.frv.). Alþingi, stjórnvöld og stjórnmála- flokkar efni einnig á hveijum tíma til fjölda nefnda og starfshópa til að kanna einstaka málaflokka og gera tillögur um hvernig betur megi að málum standa. í þessu sam- bandi er eðlilegt að nefna greinargerðir sem „Framkvæmdanefnd um framtíðarkönnun á vegum forsætisráðuneytis“ (sett á stofn 1983/4) hefur á undanförnum árum birt um störf sín. Opinber Umræða Enn í Skötulíki Vissulega eru til staðac margvísleg gögn og upplýsingar um íslenskt þjóðlíf og sem betur fer hafa vísindarannsóknir eflst veru- lega á síðustu árum. (Sbr. athyglisverða ráðstefnu sem haldin var fyrir skömmu af Viðskipta- og hagfræðideild og Félagsvís- indadeild Háskóla íslands.) Samt þarf að gera miklu betur í þessu efni og enn vant- ar mikið á að nægilegu fé sé varið til rann- sókna á sviði atvinnu- og efnahagsmála, félags-, heilbrigðis- og menntamála. Hitt er samt miklu verra, og það er aðalatriði þess máls sem hér er flutt, að þær upplýsingar sem þó eru fyrir hendi, liggja oft ýmist ónotaðar eða eru misnotað- ar. Hlutlæg, upplýst umræða á íslandi er því miður enn þá oft óburðug og nær ekki nægilega til almennings í landinu þrátt fyrir viðleitni fjölmiðla í þessu efni síðustu árin, einkum Ijósvakamiðla. Gamalgróin forræðishyggja embættismanna og stjórn- málamanna veldur hér miklu. Einnig mætti spyija hvernig skólamir sinni þessum mál- um en í 2. gr. grunnskólalaga segir m.a.: „Hlutverk gtunnskólans, í samvinnu við heimilin, er að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi.“ Ákvæði sem miða í sömu átt mun einnig að finna í lög- um um framhaldsskóla. Blöð hafa frá upphafi vega hér á landi flest verið flokksmálgögn og gjarnan hald- ið uppi einhliða og lituðum málflutningi. Frjáls óháð og markviss umræða fjölmiðla á Islandi um þjóðmál og stjórnmál er því enn í dag mjög í skötulíki. Og nú er svo komið að aðeins tvö dagblöð (eða kannski aðeins eitt) hafa fjárhagslega getu (eða metnað?) til að fullnægja nokkurn veginn þeim kröfum sem gerðar eru meðal ná- grannaþjóða okkar til menningarlegra Hin opinbera umræða um þjóðmál er slöpp, tilviljanakennd og yfirborðsleg. Ftjáls, óháð og markviss umræða fjölmiðla á íslandi um þjóðmál og stjórnmál er því enn í dag í skötulíki. Myndin er af umræðuþætti í Sjónvarpinu árið 1982. 8

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.