Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Page 9
„Stefnumótun til Iengri tíma er látin dankast, heildarsýn er óljós og forgangsröðun verkefna vanrækt. Rætur vandans teygja sig víða og liggja djúpt í ætta- og kunningjasamfélaginu." Myndin er úrAIþingi. blaða. Hlutur ljósvakamiðla hérlendis er því sérlega mikilvægur en fjárhagsgeta þeirra er eins og kunnugt er einnig tak- mörkuð. — Fámenni íslenskrar þjóðar er atriði sem verður stöðugt að hafa í huga þegar tii framtíðar er litið. HVERS VEGNA NÝTAST Upplýsingar Svo Illa? Vík ég þá aftur að kjarna þess erindis sem ég vil koma á framfæri við lesendur, þ.e. að áhugamenn víðs vegar um land efni til umræðu um þjóðmál til hliðar við stjórnmálaflokkana og leggi þannig fram sinn skerf í nýjan grunn íslenskra stjórn- mála. Ég varpa fram þeirri staðhæfingu að margvíslegar upplýsingar um þjóðlífið sem þrátt fyrir allt er að finna hjá stofnunum ríkisvalds, hagsmunaðila og félagasam- taka, nýtist ekki nema að takmörkuðu leyti við mótun almenningsálits í landinu og jafnvel ekki heldur nema að takmörkuðu leyti þegar til ákvarðana stjórnvalda kem- ur. Þessu veldur einkum, að mínu áliti, hve hin opinbera umræða um þjóðmál er slöpp, tilviljanakennd og yfirborðsleg. Stjórn- málaflokkarnir bera mikla ábyrgð í þessu efni enda hljóta þeir að hafa beint og óbeint úrslitaáhrif á landsmálaumræðuna og framvindu hennar. Sennilega speglast hvergi skýrar en í þessum punkti ágallar íslenska flokkakerfisins; hversu stefnumið flokkar.na eru óljós, oft mótsagnakennd og vinnubrögð þeirra úrelt. Flokkarnir bregðast líka of oft þeirri skyldu að taka óvinsælar ákvarðanir sem samt má telja víst að stuðli að betri hag almennings til frambúðar. En á sama tíma er metnaðar- gjörnum forystumönnum látið haldast uppi að hrinda af stað framkvæmdum við per- sónuleg gæluverkefni (oftast ijárfrek) sem frá sjónarmiði hagkvæmni og almennings- heilla mættu að ósekju bíða um nokkur ár eða jafnvel áratugi. Fjárveitingar til knýjandi verkefna, t.d. á sviði atvinnu- mála, uppeldis- og menntamála fást hins vegar ekki. Og alþingismenn eru vísir til að samþykkja ný og ný lög án þess að tryggja framkvæmd þeirra með nauðsyn- legu fjármagni. Hér ber enn að sama brunni. Stefnumótun til lengri tíma er lát- in dankast, heildarsýn er óljós og forgangs- röðun verkefna vanrækt. Rætur vandans teygja sig víða og liggja djúpt í ættar- og kunningjasamfélaginu en stofnanir okkar flestar ungar og vanmáttugar. Ónóg miðl- un upplýsinga til almennings um efna- hags- og atvinnumál á ríkan þátt í þessu ástandi. En athygli mín beinist þó einkum að áhrifavaldi stjói-nmálaflokka, valdi sem í skjóli úreltrar kjördæmaskipunar og kosn- ingalaga er lítt sýnilegt. Forystumenn flokkanna hafa einnig í vaxandi mæli á síðustu árum, að því er mér virðist, glatað sambandi við raunverulegar þarfir þorra almennings í landinu. Þrátt fyrir trausta menntun margra sérfræðinga okkar á ýmsum sviðum eru rannsóknir þeirra (sem því miður líða mjög fyrir ijárskort) oft misnotaðar, rangtúlkaðar eða þagaðar í hel þar til í algert óefni er komið. Þetta á ekki aðeins við um rannsóknir og niðurstöð- ur sérfræðinga á sviði fiskveiða og sjávar- útvegs þótt dæmin séu þar e.t.v. augljós- ust. Það er að þessu leyti sem að rnínu áliti má tala um óbeina ritskoðun á Islandi þótt ég skuli ósagt látið hvort henni er beitt vísvitandi eða hún stafar mestmegnis af fákænsku og ofstopa hagsmunaaðila. Flokkakerfið Og Bætt Stjórnarfar Það er með hliðsjón af framangreindum atriðum sem ég held því fram að flokka- kerfið á íslandi sé úr sér gengið og valdi ekki lengur hlutverki sínu (sjá um þetta efni m.a. grein mína í Lesbók Mbl. 30. okt. og 6. nóv. 1993). Endurskipan íslenska flokkakerfisins er nauðsynleg ef bæta á stjórnarfar í landinu. Með þessari staðhæf- ingu er ekki átt við að kenna megi stjórn- málaflokkum um flest eða allt sem miður fer í landsmálum. Því fer fjarri. Tíðarandi og hugarfar fólks almennt ræður miklu um gang mála, e.t.v. mestu. Og auk þess setja þýstihópar flokkunum oft beinlínis steininn fyrir dyrnar. Að þessu leyti má segja að styrkja þurfi vald kjörinna fulltrúa og framkvæmdavaldsins. En þá verða þess- ir aðilar líka að vita hvað til síns friðar heyrir og hvernig þeir ætla að nota það umboð sem þeir hafa fengið frá almenn- ingi. í staðhæfingu minni að framan felst heldur ekki að setja þurfi endilega á lagg- irnar nýja flokka sem starfi á alnýjum grunni. Nokkrar mikilvægar forsendur ís- lenska flokkakerfisins eins og það mótaðist á 2. og 3. áratug þessarar aldar eru að vísu mjög breyttar eða alls ekki lengur til staðar. Þessar staðreyndir kalla óhjá- kvæmilega á breytingar — miklar breyting- ar. En sjálft hlutverk stjórnmálaflokka mun í meginatriðum haldast óbreytt svo lengi sem lýðræðislegir stjórnarhættir halda velli. Fólk mun hér eftir sem hingað til skipa sér í flokka eftir lífsskoðun og nokkrum meginviðhorfum til þjóðmála en flokkaskip- anin hlýtur þó að mestu leyti að byggjast á hagsmunum stétta og annarra hags- muna- eða minnihlutahópa (t.d. kvenna, fólks í dreifbýli, innflytjenda o.s.frv.). Meg- inskil munu ávallt verða milli þeirra sem búa við dágóð lífskjör í skjóli eigna sinna, hæfileika, menntunar og atvinnu, og svo hinna sem verða af ýmsum ástæðum að sætta sig við að bera skarðan hlut frá borði í lífsbaráttunni. Þessar staðreyndir munu áfram verða grundvöllur pólitískrar flokkaskipunar meðal þjóða þar sem fólk er sæmilega upplýst og opinber umræða má sín einhvers. Þannig er líklegt að í ríkj- um þar sem lýðræði hefur náð nokkurri fótfestu muni jafnan myndast tvær megin- fylkingar í stjórnmálum en síðan verða gjarnan til smáflokkar á útjöðrum og á miðjunni utan um sérhagsmuni hópa eða hugsjónir og skoðanir fáeinna einstaklinga. Smáflokkar sem þessir eða flokksbrot iifa sjaldnast lengi en geta engu að síður haft mikil og stundum varanleg áhrif. Það er við þær sérstöku aðstæður, er hér hefur að nokkru verið lýst, sem ég tel að myndun umræðuhópa um þjóðfélagsmál geti stuðlað að endurnýjun íslenska flokka- kerfisins á málefnalegum grunni og þannig komið samfélaginu öllu til góða en ekki aðeins fáeinum hagsmunaaðilum eða þrýstihópum. Mér er ljóst að umræðuhóp- ar, myndaðir á þessum forsendum, munu naumast verða margir né langlífir en þeir gætu þó ef vel tækist til unnið gott verk og jafnvel haft umtalsverð áhrif á gang mála og pólitíska þróun í landinu. Orðræða í slíkum hópi gæti einnig orðið einhveijum þátttakanda hvatning til að láta þjóðmál síðar til sín taka. Minna má á að skilyrði áhugahópa af þessu tagi til starfa eru allt önnur en þau voru fyrir 50 til 100 árum. Því veldur bylting í upplýsingamiðlun og fjarskiptum. Tölvupóstur og bréfasíini (fax) eru orðin hluti af daglegu lífi fólks um allt land. Tekið skal fram að undirritaður stendur að kalla einn að þessari tillögu um myndun umræðuhópa. Ég hefi engan stuðning að baki við uppátækið, hvorki fjárhagslegan né pólitískan. Von mín er sú að úti í samfé- laginu finnist fólk sem hefur nægilegan áhuga á þjóðmálum til að mynda hópa um málefni sem þátttakendur hafa þekkingu á og skipta þá máli. Þessvegna áræði ég að láta þessa hugleiðingu frá mér fara. Ég legg til að áhugasamir einstaklingar eigi frumkvæði að myndun margnefndra hópa, hver í sínu nágrenni eða byggðar- lagi. Hugsanlega gætu starfshópar haft samband sín í milli. Niðurstöðum af um- ræðum hópa mætti síðan koma á framfæri við ijölmiðla. I frumhópum sem þessum yrðu væntanlega einstaklingar með fjöl- þætta þekkingu og reynslu. Þeir myndu vafalaust einnig hafa ólíkar pólitískar skoð- anir sem ég tel reyndar æskilegt miðað við þau markmið sem ég hefi gert mér í hugarlund að þessir hópar setji sér. Breytingar á íslenska fiokkakerfinu hljóta fyrr en síðar að ná fram að ganga. En miklu varðar að endurskipan flokkanna byggist á málefnalegum og vel ígrunduðum forsendum. Myndun umræðuhópa til hliðar við núverandi flokka eða flokksbrot og með því sniði sem stuttlega var lýst að framan er á sinn hátt ein leið til að stuðla að fram- vindu er miði í þá átt. Höfundur er sálfræðingur og fyrrverandi rektor Kennaraháskóla islands. ANNA MARÍA ÞÓRISDÓTTIR Tjáningar- máti trjáa Tré tjá sig ekki með orðum, þau tala saman með hreyfingum. Ég hef séð aspir óðamála í vindi, blöðin bærðust ótt og títt eins og varir á kerlingum yfir kaffibollum. Birkið strýkur hvert öðru mjúkum glansandi blöðum og grenitré gefa sitt til kynna með hátíðlegum bendingum. En fururnar hnubbast sín á milli, það fann ég í vor þegar ég leysti „fríðu furu“ úr snjóviðjum. Þá hnoðaði hún mig í síðuna eins og vinaleg kvíga. Haustnótt Ég vaknaði um nótt og gægðist út um gluggann. Stjörnurnar voru svo stórar! Eins og þær hefðu færst miklu nær. Skyldi jörðin hafa stolist á stefnu- mót langt út í geim meðan við sváfum? Höfundur er húsmóðir í Reykjavík. THELMA ÁSDÍSARDÓTTIR Fréttamynd frá Vilnius / dag sá ég ófreskju með enga fætur. Hún kramdi samt mann alveg upp að hálsi. „Mamma, hvað er þetta?" Spurði ég forvitin. „Æi, þetta er bara drekinn. Drekinn í landi Austursins. Hann kemst aldrei, aldrei yfir hafið og mun aldrei, aldrei kremja þig dýrmæta barn Vestursins.“ Og við hentum Ijótu myndinni og gleymdum boðbera frelsisins sem lá enn kraminn undir stáldrek- anum. Hann var hvort sem er dauður. Svo fórum við hlæjandi saman og ættleiddum hval úr djúpinu. Gáfum tíkall í litla kassann fyrir hungraða heiminn. Nú voru blindar sálir okkar mun hreinni en nágrannans. Höfundur er einstæð móðir i Hafnarfirði. HELGA SVERRISDÓTTIR Ef þú bara vissir Að kynnast þér var eins og að ganga yfir jökulbreiðu. Það var kalt, ég var með snjóblindu og fékk sólsting. FjöIIin í kring geyma bergmál þúsund ósagðra orða. Við vorum tveir álfar sem urðu að steinum við það að horfast í augu. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15. OKTÓBER 1994 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.