Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Page 12

Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1994, Page 12
Hvort sem við köllum þau kommúnisma eða kapítalisma eru hugmyndakerfin í raun ávöxtur sömu við- horfa til lífsins; þeirra viðhorfa að veröldin sé ekkert annað en leiksvið mannsins. Mynd: George Grosz. U ndanlátssemin Iljóði úr flokknum Sonnettur til Orfeusar, hugleiðir Rainer María Rilke hvaðan; úr hvaða eilíflega regn- votu görðum ávextirnir sem verða á vegi okkar séu komnir. Hann hugleiðir líka hversu unaðslegir og þroskaðir þeir eru þegar við tínum þá upp af fátæk- Samtíminn æðir þindarlaust áfram í krafti þeirrar trúar að maðurinn sé öllu öðru lífi æðri, fullkomnunin holdi klædd. Eftir ÞORVARÐ HJÁLMARSSON legri götu okkar. Við undrumst stærð þeirra, fuilkomleik og að þeir eru okkar og urðu okkar, áður en hamslaus fuglinn gat hremmt þá, eða orminum í rótinni, öfundsjúkum og skríðandi gafst færi á að naga þá. Hvaðan bárust ávextirnir höndum okk- ar? í sköpunarsögu Biblíunnar segir frá því þegar Drottinn allsheijar skapaði manninn í sinni mynd og fól honum það hlutverk að ríkja yfir öllum skepnum jarðarinnar, svo og fuglum himinsins og fiskum sjávar- ins. I þeirri sömu bók er því haldið að okkur að fegurðin sé okkar, hinn skyni gæddi maður sé eina veran á jörðinni sem skynji fegurðina og hafi í frammi viðleitni til að auka hana, væntanlega af einskærri fegurðarþrá. „Maðurinn gerði endi á myrkrið," segir í Jobsbók. Ránfuglarnir sveimuðu yfir vötn- unum og sléttunum. Villidýrin reikuðu um og drápu sér til matar. Gnægtarbúrið óþijótandi. Þá ruddist undarleg vera fram á sjónarsviðið, maðurinn með hendur sínar og hugsun, atorku sína og athafnaþrá. Hann gerði endi á myrkrið og tók sér það vald sem honum stóð til boða frá önd- verðu; vald Guðs í sínar eigin hendur. En höfundur Jobsbókar slær varnagla: „Örn- inn þekkir ekki veginn þangað og valsaug- að sér hann ekki, hin drembnu rándýr ganga hann ekki og ekkert ljón fær hann.“ Og okkur verður eftilvill ljóst hvaðan Rilke fær hugmyndir sínar um ávextina sem féllu okkur óverðugum í hlut áður en fuglinn gat hremmt þá eða ormurinn í rótinni fékk nagað þá. Þetta nefna sumir menn dulhyggju vest- urlanda. Hugmyndina um ófullkomleik mannsins frammi fyrir skapara sínum og veröldinni. En hún er fjarri því hugmynd samtíma okkar, sjálfsagt ekki einu sinni tekin gild lengur. Samtíminn æðir þindar- laust áfram í krafti þeirrar trúar að maður- inn sé öllu öðru lífi æðri, fullkomnunin holdi klædd. Ofurtrúnni fylgir líka fullvissa um að sá sannleikur sé ekki til sem taki sannleika mannsins fram. Afsiðunin er al- gjör. Og með þessa trúarsetningu að leiðar- ljósi höfum við skapað hugmyndakerfi sem snúast fyrst og fremst um veraldleg gæði, kerfi sem meta lífsgæði í hlunnindum, þó aðallega krónum og aurum. Hvort sem við köllum þau kommúnisma eða kapítalisma, eru þau í raun ávöxtur sömu viðhorfa til lífsins; þeirra viðhorfa að veröldin sé ekk- ert annað en leiksvið mannsins. Hugmyndafræði byggð á svo veikum grunni hlýtur að dæma sjálfa sig úr leik. „En alla hluti skildu þeir jarðlegri skiln- ingu ...“ segir í Prologus Snorra Eddu. Við höfúnl tekið allt frá heiininum, án þess þó aó gefa nokkuð tii baka. þó ætti okkur að vera það ljóst að við verðum að finna samræmi við náttúruna og lifa í sátt við heiminn sem við erum þrátt fyrir allt sprott- in úr og erum einungis hluti af. Við alda- lok tuttugustu aldar sjáum við það vel að auðlindir jarðarinnar eru ekki óþijótandi. Dýrin reika ekki lengur í stórum hjörðum um slétturnar, villt dýr eru víðast hvar í útrýmingarhættu. Veran sem batt endi á myrkrið, hefur borið með sér meira myrkur en hún sigraðist á. ELLEFTA BOÐORÐIÐ Þetta myrkur og þennan jarðlega skiln- ing hafa menn kallað nauðhyggju. Þá hugs- un að maðurinn geti ekki skilið neitt annað en það sem hann hefur beinlínis not fyrir eða nýtur augnabliks ágóða af. Ekkert sið- ferðislegt gildismat er ríkjandi. Allir hutir eru afstæðir, munurinn á réttu og röngu er ekki lengur til. Allt er jafnrétthátt, hversu skaðlegt sem það kann annars að vera. Kjörorð nútímans kalla þessir sömu menn ellefta boðorðið og er það svohljóð- andi: „Ef ég geri þetta ekki, þá gerir ein- hver annar það.“ Oneitanlega læðist að manni sá grunur að ellefta boðorðið setji mark sitt á samtíð- ina og skjóti um leið styrkum stoðum und- ir þá firringu sem mörgum þykir orðið nóg um; undanlátssemina við það illa. Kynslóðir eftirstríðsáranna í Evrópu voru eins og bornar út á hjarnið. Álfan öll hólfuð af í hugmyndafræðileg áhrifasvæði, jafnvel múruð inni. En önnur hlið var líka á málinu. Manninum hafði loksins tekist að fullkomna draum sinn og taka sér end- anlegt alræðisvald í hendur. Með einni snertingu gat hann tortímt sjálfum sér og veröldinni með í kaupbæti. Svo langt aftur sem um miðja síðustu öld, á tímum Edgars Allans Poes, skrifuðu menn um dauðadýrkun hins vestræna manns og ofurást hans á hinu illa. Samfé- lögin þóttu stjórnast af blindri efnishyggju og eftirsókn eftir vindi. Og dauðadýrkunin blasir allsstaðar við. Á götum stórborganna liggja eiturlyfjafíklar í hrönnum og sjá engin úrræði önnur en að stela og myrða til að fjármagna neyslu sína. Hin hliðin á volæðinu er að aðrir menn sjá sér hag í að notfæra sér auðnuleysið til að maka krók sinn. Harmleikur eins og ónýtt manns- líf er vandamál hvers og eins. Ellefta boðorðið sýnir enga miskunn. Vandinn er raunverulegur. En ofurtrú á pólitíska hugmyndafræði eða efalaus Guðs- trú held ég að veiti ekki svar við nokkrum vanda. Vafalaust má þó draga nokkurn lærdóm af hugsun Rilkes, sem kannski má kenna við háspeki sem ekki þykir leng- ur fín eða eftirsóknarverð. Því hvað sem ávöxtum þessa heims og annars líður, hlýt- ur stærsti ávöxturinn alltaf að vera sjálft lífið. Höfundur er rithöfundur. 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.