Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1995, Blaðsíða 4
_L
LANDSÝN til Tallinn, höfuðborgar Eistlands. Hæst ber turnspíruna á kirkju heilags Ólafs, þar sem KGB var með njósnabúnaðinn.
Eistland
Fagurt land
með blóði
drifna sögu
egar siglt er yfir Finnskaflóa til Tallinn og borg-
in rís úr hafi ber einn turn hæst; turninn á
kirkju heilags Ólafs, sem í eina tíð var næst
hæsta bygging heims. A Sovéttímanum komu
Eistlendingar til kirkju til að þjóna guði sínum,
Eistland hefur alla tíð
þurft að sæta ágangi
voldugra nágranna. Eftir
friðsamlega byltingu og
nýfengið sjálfstæði er við
margan vanda að etja og
þar á meðal er rússneski
minnihlutinn í landinu.
Eftir ARNAR
GUÐMUNDSSON
Á EYNNI Muhu hefur framtaks-
samur eyjaskeggi gert upp þessa
vindmyllu við þjóðveginn og malar
þar hveiti auk þess sem hann sker
út ilmandi minjagripi í eini, ein-
kennistijátegund svæðisins.
grunlausir um að í turninum fyrir ofan þá
leyndist fullkominn njósnabúnaður sovésku
leyniþjónustunnar KGB, sem notaði kirkju-
turninn til að fylgjast með samskiptum á fló-
anum. Sem nýfijáls þjóð þurfa Eistlendingar
að glíma við efnahagslega uppbyggingu á
samhliða erfiðu uppgjöri við fortíðina.
Eistland hefur aila tíð þurft að sæta ágangi
voldugra nágranna. Frá miðöldum hefur
landið tilheyrt Dönum, Þjóðveijum, Svíum
og Rússum. í lok heimsstyijaldarinnar fyrri
lýstu Eistlendingar yfir sjálfstæði og eftir
tveggja ára frelsisstríð við keisaraher Þýska-
lands og bolsévískt Rússland vár friðarsamn-
ingurinn, sem kenndur er við borgina Tartu,
undirritaður. Þar viðurkenndu Rússar sjálf-
stæði Eistlands skilyrðislaust um alla fram-
tíð. Þessi samningur aftraði Rússum þó ekki
frá því að gera leynilegt samkomulag við
ríkisstjórn Hitlers um yfirráð yfir Eistlandi.
17. júní 1940 hernámu Rússar Eistland og
innlimuðu í Sovétríkin. Eftir að Þjóðveijar
réðust inn í Sovétríkin réðu þeir landinu frá
1941 til 1944 þegar Rússar náðu því til baka.
Rússar eyðilögðu stjórnmálakerfi Eistlands
markvisst. Þeir fluttu fólk nauðungarflutn-
ingum frá landinu og sendu rússneska inn-
flytjendur í þeirra stað. Eistland skyldi gert
hluti af Rússlandi. Eftir að vopnað andóf var
brotið niðurtók við menningarleg sjálfstæðis-
barátta Eistlendinga sem staðið hefur óslitið
fram á þennan dag og átti mikilvægan þátt
í að endurreisa sjálfstæði landsins. Byltingin
í Eistlandi hefur verið kölluð .syngjandi bylt-
ingin“ og fór að mestu friðsamlega fram.
11. september 1988 markar viss þáttaskil
en þá söfnuðust 300 þúsund manns, eða
nærri þriðjungur eistnesku þjóðarinnar, sam-
an á söngvanginum við Tallinn. Fólkið söng
ættjarðarsöngva og krafðist fulls sjálfstæðis
á meðan rússneskir hermenn máttu sín einsk-
is gegn margmenninu. Byltingin í Eistlandi
var einnig friðsamleg vegna þess hve varlega
sjálfstæðissinnar fóru í sakimar. Þeir þekktu
nágranna sinn í austri og tóku eitt skref í
einu. Það var ekki fyrr en 20. ágúst 1991
að Eistlendingar lýstu því yfir að landið hygð-
ist endurreisa sögulegt sjálfstæði sitt. En
sjálfstæðið markaði aðeins upphafið að erfiðu
tímabili. Endurreisa varð efnahaginn, ákveða
hvað gera skyldi við þúsundir Rússa sem
bjuggu í landinu og byggja upp samskipti
*■, :~f
.j—r_
I
DÆMIGERÐ hús og bakgarðar fyrir Vesturlandið.
GAMLA torgið í hjarta Tallinn, umkringt veitingastöðum, börum og verslun-
um þar sem verðlagið getur ekki annað en komið ferðamanni á óvart, ekki
síður en fegurð miðaldastrætanna.
við Rússland. Þetta eru enn meginverkefni
Eistiendinga.
Efnahagsleg Endurreisn
Eistneskir ráðamenn ákváðu að besta leið-
in til efnahagsbata væri að láta óhjákvæmi-
legt áfall ríða yfir af fullum þunga og vinna
sig svo úr þeirri stöðu. Samhliða mjög hraðri
breytingu á efnahagskerfinu og hröðum bata
hefur því ríkt mikið atvinnuleysi og sums
staðar mikil nauð. Harri Tido, stjórnmálarit-
stjóri útvarpsstöðvarinnar Kuku í Tallinn
segir að stjórnarstefnan hafi að mörgu leyti
verið athyglisverð. Ráðherrar hafi flestir ver-
ið reynslulitlir og ríkisstjórnin í raun ekki
haft neina sérstaka stefnu. ,Þeir hræddust
ekkert því þeir vissu ekki hvað skyldi óttast
en komu landinu samt merkilega áleiðis,"
segir Tido. í apríl sl. urðu ríkisstjórnarskipti
og við tók ríkisstjórn mið- og bændaflokka
undir forsæti Tiit Vahi. Sú stjórn lofar mild-
ari aðgerðum og bótum til handa bændum
og ellilífeyrisþegum. Tumme Kelam, sem
sæti átti í síðustu ríkisstjórn, kveðst harma
þessa sveigju til vinstri og segir skýringuna
vera þá að fólk vilji ekki leggja á sig vinnu
út úr erfiðleikunum. Váhi segir stefnubreyt-
ingu hafa verið nauðsynlega og meginverk-
efnið nú sé að laga öll lög landsins að lögum
Evrópusambandsins með aðild í huga. Hann
bindur miklar vonir við evrópska samvinnu
og nú þegar eru í gangi verkefni á borð við
,Eurohouse“, sem er samvinnuverkefni hér-
aða og eyja í vesturhluta Eistlands og Born-
hólms um atvinnuuppbyggingu.
RÚSSNESKIMINNIHLUTINN í
Eistlandi
í samtölum við eistneska stjórnmálamenn
kemur fram hve erfitt það er fyrir Eistlend-
inga að fást við rússneska minnihlutann.
Tumme Kelam segir að þrátt fyrir sjálfstæði
landsins hafi stór hluti rússneska hersins
aldrei farið, þeir hafi bara farið úr búningn-
um og reynt að blandast þjóðinni. En rúss-
neski minnihlutinn í Eistlandi á sér mun
lengri sögu en frá því 1940 þegar landið var
hernumið af Rússum. Öldum saman höfðu
Rússar búið í landinu. Eftir að kommúnistar
komust til valda í Rússlandi 1917 myndaðist
stórt samfélag landflótta Rússa í Eistlandi.
Þeir nutu réttinda sem minnihlutahópur og
skipulögðu sig í menningarlegu og pólitísku
samstarfi við aðra hópa á alþjóðlegum vett-
vangi. Eftir hernám Rússa hófust skipulagð-
ir flutningar til landsins með það að markm-
iði að gera Eistland rússneskt. Á árunum
1940 til 1989 fjölgaði Rússum meira en sex-
falt í landinu og voru á tímabili um 35% þjóð-
arinnar. í dag eru rússneskumælandi um 30%
af einni og hálfri milljón íbúa landsins.
Vegna þessara flutninga fólks til landsins
á hernámstímanum var ákveðið að lögin um
ríkisborgararétt í fijálsu Eistlandi skyldu
miðast við það að allir sem bjuggu í landinu
16. júní 1940 eða væru beinir afkomendur
þeirra, fengju sjálfkrafa ríkisborgararétt.
Aðrir þurfa að sækja um ríkisborgararétt og
uppfylla kröfur um tungumálakunnáttu og
þekkingu á Eistlandi. Rússneskir hermenn
4