Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.1996, Qupperneq 5
Heppnast þá með hamingju
hðlma bráins komekru
í faðm ódáins fullsælu
fagna og sjá, að eilífu.
»Ei skal kvíða« sé vort svar
»senn hjá líða raunirnar.
Harðfengt stríðið hérvistar
himins prýða kórónar«.
Þar samfundir vakna vífs.
Við það undir stemmast klífs.
Baldri grundarbenja knífs
birta upp stundir harma lífs.
Guð alvaldur gefí mér,
gefnin spjalda, að fagna þér,
þar kífs aldan þögnuð er
við þúsundfaldar glaðværðir.
Líf og öndin leika þar
laus við gröndin farsældar,
en harms þeim böndin hjá losar
haukaströndin Guðssonar.
Svo framt Rínarvarma ver
vit ei dvíni og kraftarnir
og máli ei týna tungan fer
tryggð skal mína geyma þér.
1) Þó að kali heitan hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
2) Verði sjórinn vellandi,
víða foldin kalandi,
hellubjörgin hrynjandi,
hugsa eg til þín stynjandi.
Meðan lífi auðgrund á
er, og hlífír guð mér sá,
er gaf mér víf, og gladdi þá
er gjöld nú drífa synda á.
Mín sú ræða einlæg er,
unnar-glæða storðin hér,
að biðja algæða gnægð, seim ber,
Guð upphæða, fyrir þér.
Þar til yndi útvöldum
englar mynda í himninum,
en Hel sig bindur handsölum
hamnum synda náköldum.
Hjá þér safnist heillimar,
hjartans- kafni raunirnar,
yndi dafni’, og allt, sem bar
áður nafnið glaðværðar.
Guðs ímynd, er gisti á tré,
gjald þér synda lét í té,
lífs þér yndi og svölun sé
sorgavindinn á hasti.
Himnar, vindar, höfin, lönd,
hvað sem myndar Drottins bönd,
þinni bindi unun önd.
Ofnis linda fögur strönd.
Óríons-landa þengill þig,
þiljan banda, lífs um veg
á kærleiksanda kjömum stig
kyssi að vanda fyrir mig.
Lifðu í yndi lukkunnar
laus við vindi mæðunnar.
Rós þér bindi rósemdar
reifalindi Guðs-náðar.
Af engri þurrð ann eg þér,
öllum burðum lífsins hér,
naðurs-furðu nokkur ver
nafn Sigurðar meðan ber.
Brostínn prýði baghendur
bragurinn hliði-líns sendur,
von og striði venzlaður,
Vetrarkvíði réttnefndur.
Víst hlýtur sú kona að vera mikilhæf,
sem nýtur slíks ástríkis bónda síns í gegn-
um þær mestu þrengingar, sem manni
geta mætt. Þó var Þorbjörg borin því ámæli,
þá löngu liðin, að hún hafi þótzt of góð
bónda sínum, og því ekki farið heim til
hans, er hún kom úr fangelsinu. Þessu
hrinda kirkjubækur Tjarnarkirkju alger-
lega, því að þær telja hana húsfreyju í
Katadal 1936, en það ár kom hún heim.
Vorið eftir flytjast þau hjón og Bjarni son-
ur þeirra að Tjörn til séra Ögmundar Sig-
urðssonar, en Elinborg dóttir Sigurðar af
fyrra hjónabandi, fer að búa í Katadal.
Síðar er þeirra ekki getið í manntali, en
Sigurður andaðist í Tungu hjá Bjarna syni
sínum 1838, »úr vatssýki«. Þorbjörg var í
Tungu þangað til, en fluttist næsta ár suð-
ur á land, en fluttist norður aftur og dó í
tungu 1846.
1) og 2) Þessar vísur hafa ranglega veri’ eignaðar Skáld-Rósu.
Á valdi vínguðsins
Eftir ÞORSTEIN ANTONSSON
Málarinn eftir Otto Dix.
Fylliraftar Og
Neytendur
ú eru sérfræðingar búnir að
leggja undir sig þetta ágæta orð
fíkn, - og „neyslu” nota þeir um
það sem í mínu ungdæmi var
kallað drykkjuskapur. Þegar ég var strákur
þótti manndómur í að nefna hluti réttum
nöfnum og þegar að áfengi kom mátu karl-
ar magn og styrkleika öðrum veraldargæð-
um fremur, drógu ekki dul á það, þegar
að áfengi laut urðu þeir því þurradrambs-
legri sem þeir tæmdu fleiri glös, - rétt eins
og gilti um mjaðarhornin fyrr á tíð.
Nú er öldin önnur. Samband manns og
víns eða ölglass á kaffi- eða öldurhúsi
minnir fremur á ástarsamband en hatur
og ofstæki eins og það gerði fyrir tíð borg-
aralegra neysluhátta enda eru farvegir fyr-
ir fíknir ótal margir núorðið og varla ástæða
til að gnísta tönnum yfir áfengi frekar en
öðrum neysluvarningi sem getur afvegaleitt
menn. Auglýsingar hampa því helst sem
svarar til frumaþarfa borgarans fyrir ör-
yggi, saðningu, sjálfgleymi, upphefð, og
allir skilja því tilefni þess að notuð eru sömu
orð um látæði manns á markaði og þess í
rennusteininum, og allir mega koma aftur
þótt þeir búi þar um sinn.
Já, málin horfðu öðru vísi við fyrrum
þegar að áfengi kom. Ég gekk aldrei um
Hafnarstræti þegar ég var strákur, enda
alinn upp af konum sem kenndu mér að
þar reikuðu lífshættulegir rónar fram og
aftur frá einu skuggasundi til annars, glat-
aðar sálir - eins í útliti og jólasveinarnir á
Þjóðminjasafninu. En þá þekkti ég ekki í
þá tíð.
Ég vil sleppa tæpitungu og orða vandann
svona: Drykkfelldur maður er höfuðlaus
her; hann drekkur frá sér sjálfstjórnina uns
hún tekur að fælast hann, vínið tærir sjálf-
ið, breytir forsendum sjálfsvitundar, bönd
bresta, órar verða hlutskiptið, glös fara að
drekka með glösum og loks drykkjan mann-
inn. Þá kemur til kasta meðferðarfulltrúa
sem stríðir við eigin afvegaleiddar fíknir.
Þeim sem misst hefur tökin reynist fulltrú-
inn hæfari stuðningsaðili en hinn sem ekki
hefur háð glímu við eigin áfengishneigð.
FÍKNIR
Það er fíkn að lifa. En þann reiðskjóta
lærir maður að temja þegar hann eldist,
lífskraftinn í brjósti sér. Stöku tekst svo
vel til að hann ríður láð og lög á fullorðinsá-
rum, en aðrir verða að láta sér nægja brokk
og galhopp alla ævi, sumir lestarganginn
einan. Það setur sterkan svip á samfélagið
hvernig tekst til um tamningu fíknanna.
Og það gerir gæfumuninn hvor stjórnar,
maðurinn eða reiðskjótinn.
Þeir menn eru til sem varpa sér af baki
í miðri reið, neita svo að stíga á bak á ný,
ósáttir við reiðskjótann. í stað þess að semja
fíknirnar að lífskjörum sínum nota þeir
fíkniefni til að temja skapgerð sína. Og það
er mjótt á mununum hvað telst ámælisvert
og hvað lofsvert í þeim efnum. Samfélagið
réttir þeim villuráfandi fleyginn til að taka
úr sér hroll, býður honum til sætis meðal
sér líkra, úr leið þeirra sem sinna
hvunndagsverkum, og skenkir á glösin. Það
er hefð fyrir því að gerast fíkill yfír glasi,
en lausagangur manna aldrei vinsæll hvað
sem þeir hafa í hyggju.
Fíknir gefa lífinu gildi með auðveldari
hætti en nokkuð annað. Segið því ekkert
ljótt um fíknir manna. Þær eru undirstaða
félagslífs okkar, að viðbættri fínlegri skurn
stílfærslunnar. Vilji hestsins skiptir tamn-
ingamanninn jafn miklu og hlýðni hans.
Þegar tamningin mistekst, fíknir taka völd-
in af manni er það vegna þess að hann
getur ekki sæst á ósamræmi milli óska sinna
og getu heldur æðrast, - þess vegna æðru-
leysisbæn AA- samtakanna. Vílgjam maður
smíðar óskum sínum sértakt afdrep, óháð
veruleikanum, byggingu á sandi. Að baki
glottir ásýnd mánans.
Leiðindi eru ein undirstaða neyslusamfé-
lagsins, á þeim byggir skemmtiiðnaðurinn
en einnig aðrir neysluhættir, enda eru þau
framleiðsluhvetjandi. Það er því til siðs að
leiðast, vera ónógur sjálfum sér, og líkurn-
ar þaðan af meiri á að menn grípi til rót-
tækra úrræða við leiðindunum. En það er
ekki fyrr en fíknunum er alvarlega misboð-
ið sem þær taka að þrífast á öðrum einkenn-
um manns, - sem þá verða meðvirk, skyn-
semi, ástríður, tilfínningar. Fyrstar beygja
ástríðurnar sig. -
Mælikvarðinn á alkóhólisma er leiðindi.
Alkanum leiðist þvi meir sem hann er ver
haldinn uns hann er orðinn sjúkur og heim-
urinn honum reiðulaus ómynd sem ekki
rætist úr fyrr enn á þriðja glasi. í stað
þess að reyna að breyta aðstæðum sínum
beitir alkinn áfengi til að hafa áhrif á ræt-
ur skynjunar sinnar og dómgreindar. Hann
sér og upplifir allt hið sama sem allsgáðir
menn en viðbrögðin undir áhrifum eru önn-
ur. Órar hans og rugl eru til marks um það
eitt að hann er óvirkur gagnvart umhverfí
sínu og aðstæðum, en hann er einlægur í
órunum og fótar sig uns ágjöfin er orðin
um of. Fíknir eru hægur undirstraumur uns
farvegurinn þrengist, þá magnast
straumurinn og getur orðið að flúðum og
iðustrengjum og þeim hætt sem höfðu sitt
á þurru.
Alkinn hefur valið sér til hægari verka
að hrófla ekki við hversdagsleikanum held-
ur snýst i staðinn gegn sjálfum sér svo að
líðanin verði betri. Úrræðið er rökrétt svo
langt sem það nær, enda enginn svo afvega-
leiddur að ekki sé ábyrgur fyrir „neysl-
unni“. Á hinn bóginn hlýtur slík atlaga að
rótunum að brengla raunskynið og ekki
annars að vænta en að árangurinn geti
orðið varanlegur.
Drykkjurafturinn verður, þegar túrunum
fjölgar, sjálfum sér ósamþykkur í öllu,
hvernig sem annars er ástatt fyrir honum.
Rétt eins og hver annar vitleysingur upplif-
ir hann lengst af allt hið sama og aðrir, en
í milli skilur, hans og hinna heilbrigðu, að
ályktanir hans stríða gegn dómgreind
venjulegra fólks. Þær eru rugl.
Geðveikin
Hinir geðveiku eru yfirleitt einir í bijál-
un sinni. Rugl drykkjumannsins á hins veg-
ar samleið með öðrum sem eins er ástatt
um. Löstum ekki samdrykkjuna, ef ekki
væri fyrir hana hefði líklega ekki orðið til
annar helstur þáttur vestrænnar siðmenn-
ingar eins og hún blasir við okkur í dag,
grísk heimspeki. Það er ekki fyrr en leiðind-
in taka af alkanum öll ráð og hann er tek-
inn að hleypa inn á sig skrípiverum sem
bjóða honum fylgilag öllum stundum, í
huga sem í reynd, að hið guðdómlega rugl
heimspekinnar víkur fyrir því djöfullega
sálarlífs sem heyr helstríð við sjálft sig.
Hrunið fer fram eins og hallarbylting; ein-
ræðisherrann er tekinn að drekka í leit að
lausn á síðasta glasi, allt um-
hverfis grúfa myrkir skýjabólstr-
ar leiðindanna. Að morgni, eftir
ölvunarsvefn, hafa skrípiverurn-
ar tekið völdin. Lítið inn á Skip-
perinn, Hafnarkrána, Keisarann
og þá skiljið þið hvað ég meina.
Ef þið hafíð séð eða tekið
þátt í slímusetum alka yfir mið-
inum þá hafið þið líka séð augna-
blikið þenja sig út um allar jarð-
ir; einkaheim þess vitskerta.
Ekkert er eins ömurlegt og
augnablik sem getur ekki hætt
að vera. Þegar svo er komið á
umskiptingurinn ekki aftur-
kvæmt öðru vísi en fyrir sturlun
og óminni.
Það veit ég af viðkynningu
en aldrei reynt á sjálfum mér,
enda ekki alki. Far vel samt fláa
skemmtun! Með aldrinum verður
maður tillitssamari.
Allir drykkjumenn sem á ann-
að borð eru ekki útbrunnin skör
eiga sameiginlega vissu um að
þeir og drykkjufélagarnir séu
bæði gáfaðir og skemmtilegir
meðan á drykkju stendur. Á hinn
bóginn er það sameiginleg
reynsla þeirra sem umgangast
drukkna menn allsgáðir að leiðin
liggi norður og niður, nærvera
þess drukkna getur orðið stress-
andi hryllingur enda tímaskyn
þess drukkna allt annað en þess
ódrukkna. Bæði af þeirri ástæðu og hinni
að sá drukkni deyfir tilfínningar sínar með
áfenginu, þjösnast hann á tilfinningum
allsgáðra nærverandi án þess að geta ann-
að skilið en að allt sé með felldu.
Léttdrukkið ástand er auðvitað að sama
skapi milt. En sama gildir, tilfinningamar
þvælast síður fyrir og vitsmunirnir geta
m.a. af þeirri ástæðu orðið upplyftari en
ella. Hógleg deyfíng getur verið góð þeim
öra. Margur maðurinn hefur náð tökum á
ást sinni fyrir tilstyrk léttra veiga, nægilega
til að koma að henni hjartnæmum orðum.
HINN FORHERTI
Tveir menn lágu í tjaldi frammi á heiði
um sumarnótt. Annan dreymdi að hann
svífi burt og til hallar einnar þar sem margt
var um manninn og mikill is og erill. Þar
átti hann glaðan dag. Heitt var um morgun-
inn, og sólskin, þegar þeir félagar komu
út úr tjaldinu. Nærri því sáu þeir skinin
höfuðbein af hrossi og skriðu þar flugur
um holur og tóftir, örar af hita og sól. Hér
var komin höll félagans.
Barinn er höll þess drukkna, á meðferðar-
stofnuninni kemur hrosshausinn í ljós. Á
barnum heyir hinn forherti stríð sitt, einn
yfir glasi í rökkrinu og skilur ekki annað,
fyrir karlmannlega einfeldni sína, en að við
mennskan andstæðing sé að etja. Vínguðinn
blekkir hann enn hastarlegar en hina sem
taka glasið mildari tökum, fyrir að sýna
sér ekki þá ástúð sem svo mörgum er gjamt,
þeim sem kjassa glasið, sleikja stútinn.
Spenna sem hvergi finnur sér aflausn
magnast og tómt glasið kallað á það næsta
uns honum hefur tekist það: hið útflatta
augnablik teygir sig í allar áttir út frá hon-
um, allt til endimarka jarðar. Til að atburð-
ir gerist þarf hann ekki lengur annað en
hugsa þá.
Hann er konungur. Við barinn sveima
þegnarnir, svartir skuggar.
Flugur. Leitið að flækjumálum milli þess
forherta og forráðenda hans í nútíð eða
þátíð. Ekki endilega hatri. Sumir þeirra
erfiðari bæta sér upp föðurmissi á viðkvæm-
um aldri með sídrykkju, í fari þeirra er
ekki hatur heldur ást sem engan hljóm-
grunn hefur hlotið síðan í æsku. Konum
sem leggja ofurást á föður sinn er sérstak-
lega hætt; þær hafa gefíð honum svo stór-
an skerf af sjálfum sér að nú drekka þær
með honum í órunum og þótt hann sé fjarri.
Þeim forherta er guð hinsta bjargráðið.
Annar hluti greinarinnar birtist í næstu
Lesbók.
Höfundur er rithöfundur.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. FEBRÚAR1996 5