Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.1996, Side 9
)að var keypt til afnota fyrir Háskóla ís-
lands árið 1911 en árið 1973 var húsið flutt
Árbæjarsafn. Lóðin sem húsið stóð á var
mjög stór enda veitti ekki af því Halldór
hafði töluverðan búskap og stóran kálgarð.
kálgarðinum var Alþingishúsið reist og
jað tókst svo vel að síðar þegar til stóð
að byggja yfir fleiri stofnanir mændu menn
vonaraugum á svuntuhornið sem eftir var
á lóð yfirkennarans.
Á milli Tjarnargötu og Templarasund
voru einungis tvær lóðir og sú þriðja var
vestan Tjarnargötu en hún liggur á milii
Kirkjustrætis 2 og 4. Á lóðinni Kirkju-
stræti 2 þar sem Herkastalinn er núna var
nær alla 19. öldina eitt helsta samkomu-
og veitingahús bæjarins. Húsið var venju-
lega kallað Klúbburinn og þar voru Útilegu-
mennirnir eftir Matthías Jochumsson frum-
sýndir árið 1862. Árið 1866 tók Sjúkrahús
Reykjavíkur til starfa á efri hæð hússins
en á fyrstu hæðinni var áfram veitinga-
rekstur og dansleikjahald. Læknaskólinn
var þar einnig fyrst til húsa eftir að hann
tók til starfa 1876. Hjálpræðisherinn eign-
aðist húsið 1895 og hefur síðan haft þar
bækistöðvar sínar eins og áður segir.
Svæðið milli Tjarnargötu að húsi Hall-
dórs Kr. Friðrikssonar var fyrrum ein lóð,
eins og það er orðið aftur í dag. Nú eru
einungis þrjú hús uppistandandi en fyrr á
öldinni var það þéttskipað húsum. í tíð Inn-
réttinganna stóð smiðja þar sem síðar varð
Kirkjustræti 4. Árið 1791 keypti Jóhannes
Zoéga smiðjuna og gerði að íbúðarhúsi.
Sonur hans Jóhannes bjó þar um tíma og
þama fæddist Geir Zoéga einn helsti at-
sögunnar og þess vegna þurfti ekki að taka
tillit til eldstæðis við hönnun hússins. Á
húsinu voru tveir skorsteinar og var eldavél-
in tengd öðrum þeirra. Kristján bjó í húsinu
til dauðadags árið 1915 og ekkja hans,
Helga Magnea Jónsdóttir, fram á fjórða
áratuginn. Helga Magnea var ekkja eftir
Matthías Johannessen kaupmann, afa Matt-
híasar ritstjóra sem bjó þama um tíma hjá
ömmu sinni. Eftir lát Helgu Magneu bjuggu
þar ýmsir um lengri eða skemmri tíma.
Kristján rak verslun á neðri hæð hússins
og um tíma var Náttúrugripasafnið þar til
húsa. Skrifstofa borgarstjóra var þar um
hríð og Matthías Einarsson læknir hafði
læknastofu sína þar. Kona Matthíasar var
Ellen Ludvika, dóttir Helgu Magneu og
Matthíasar Johannessen, en dóttir þeirra er
eins og kunnugt er Louisa listmálari. Versl-
un hefur ætíð verið í húsinu, eins og húsinu
við hliðina, og var það allt þar til ráðist var
í endurbyggingu húsanna. Skömmu eftir að
húsið við hliðina, Kirkjustræti 8b, var reist
var byggt í sundið á milli húsanna og var
sú viðbygging til lítillar prýði. Það einkenni-
lega við viðbygginguna var að þó efri hæðin
væri í sama stíl og húsið tók jarðhæðin mið
af Kirkjustræti 8b hvað varðar gluggastærð
og hæð á sökkli. Þegar hafist var handa
um endurbyggingu húsanna var þessi við-
bygging rifin en gert er ráð fýrir nýrri tengi-
byggingu milli húsanna.
Nokkmm árum eftir að Kristján Ó. Þor-
grímsson byggði hús sitt í kálgarði Gróu
Oddsdóttur keypti Helgi Helgesen skóla-
stjóri bamaskólans lóðina við hliðina, sem
Geir Zoéga átti, og byggði íbúðarhús. Þetta
Ljjósm.Lesbók/Ásdís.
HÚSIN í Kirkjustræti, Hótel Skjaldbreið nr 8, nr 8bog 10 eins ogþau líta út núna.
hafnamaður Reykjavíkur fyrr og síðar.
Zoégafólkið varð ekki mosagróið við Kirkju-
stræti og húsið var selt og lóðin bútuð nið-
ur. Gunnar Einarsson kaupmaður, faðir
Jóhannesar biskups í Landakoti, byggði
stórt timburhús á lóðinni Kirkjustræti 4
skömmu fyrir aldamótin og þar var lengi
verslun og veitingahús. Fyrri eigandi Kirk-
justrætis 4, Gróa Oddsdóttir, byggði hús
fyrir sig og dætur sínar að Kirkjustræti 6
og flutti þangað. í Kirkjustræti 4 rak Krist-
ín Þorvaldsdóttir, læknis Jónssonar, list-
verslun til margra ára. Kristín var ein þeirra
kvenna sem um aldamótin lögðu fyrir sig
myndlistanám erlendis en störfuðu því mið-
ur lítið eða ekkert að list sinni eftir að þær
komu heim. Loks var húsinu breytt í veit-
ingastað sem fékk nafnið Tjarnarlundur og
þar héldu Menntaskólinn og Kvennaskólinn
sameiginleg böll sem þóttu öðrum böllum
betri. Bæði húsin brunnu árið 1947 og þar
hefur ekki verið byggt síðan.
Upphaf á Íslenskri
Klassík
Húsin sem nú- standa við Kirlqustræti,
að Alþingishúsinu og Herkastalanum frá-
töldum, eru númer 8, 8b og 10. Elsta húsið
byggði Kristján Ó. Þorgrímsson konsúll með
meiru í kálgarði Gróu Oddsdóttur um 1880.
Með byggingu hússins að Kirkjustræti 10
mótar fyrir nýrri stefnu í útliti húsa í Reykja-
vík sem hefur verið kölluð íslensk klassík.
Það er tvílyft grindarhús byggt á kjallara,
klætt listasúð og með járnþaki. Sökkullinn
var óvenjuhár og í kjallara voru nokkur
herbergi. Að innra skipulagi telst það einnig
til tíðinda að eldamaskínur eru komnar til
var einlyft grindarhús með steypu í grind-
inni klætt listasúð á háum sökkli svo kjallar-
inn var manngengur. Hús Helga hefur ver-
ið Kirkjustræti 8 en árið 1903 keypti Magn-
ús Th. S. Blöndahl trésmiður húsið og lóð-
ina, skipti lóðinni í tvennt, byggði nýtt hús
og seldi gamla húsið. Sá hluti lóðarinnar
þar sem hús Helga stóð varð Kirkjustræti
8a en nýbygging Magnúsar varð Kirkju-
stræti 8b. Sigríður Sigurðardóttir sem bjó
í Kirkjustræti 6 keypti íbúðarhúsið sem
Helgi lét byggja af Magnúsi árið 1906 lét
rífa það og byggði nýtt hús sem ennþá
stendur. í Kirkjustræti 8 var í fyrstu rekið
veitingahúsið Skjaldbreið, stundum nefnt
Sigríðarstaðir, og þar var vinsælt bakarí
um tíma. í endurminningum Sigurðar Har-
alz segir hann meðal annars frá því hvem-
ig umhorfs var í spænsku veikinni í Reykja-
vík. í Kirkjustræti mætti hann dönskum
manni sem hann kannaðist við og sá var
mjög svangur enda nær alls staðar lokað.
„Inni á Skjaldbreið var ein dama uppistand-
andi en var þó orðin lasin. Við keyptum af
henni allar rjómakökur og allt súkkulaði,
sem á boðstólum var, og Daninn hakkaði
þetta í sig.“ Síðar var þar einnig um ára-
tuga skeið Hótel Skjaldbreið sem hýst hefur
margan manninn. Þar bjuggu yfirmenn af
þýska skipinu Bahia Blanca sem sökk und-
an Vestfjörðum í ársbyrjun 1940 en undir-
mennirnir bjuggu í Herkastalanum og á
Hótel Heklu. Hótelið hafði um tíma mis-
jafnt orð á sér, einkum á stríðsárunum þeg-
ar sum herbergin voru jafnvel leigð út í
fáar klukkustundir í einu. Húsinu hefur
verið breytt nokkuð og múrhúðað en upp-
haflega var það klætt bárujárni. Skjaldbreið
er tvílyft grindarhús á kjallara með port-
byggðu risi og kvistum og var hið glæsileg-
asta. Húsið við hliðina bar þó af enda á það
fáa sína líka.
Fæðingarstaður
V ÖLUND ARBRÆÐRA
Kirkjustræti 8b var teiknað og byggt af
Magnúsi Th. S. Blöndahl trésmið árið 1905.
Hann bjó þar aldrei því hann seldi Chr. Fr.
Nielsen konsúl húsið meðan það var enn í
byggingu. Húsið er tvílyft timburhús með
risi og kjallara og á framhliðinni eru þrjú
útskot, karnapar, og upp af útskotinu í
miðjunni er stór kvistur en hinum tveimur
eru turnar. Á turnunum voru vindhanar sem
settu virðulegan svip á húsið. Upphafleg
teikning gerði ráð fyrir meiri íburði og
skreytingum á húsinu en raun varð á. Fjöldi
manns hefur búið í þessu húsi um lengri
eða skemmri tíma, t.d. bjó Hannes Haf-
stein þar urri hríð eftir að hann lét af ráð-
herraembætti árið 1914, enda var þar yfir-
leitt tvíbýli og auk þess leigð út herbergi.
Húsið varð snemma bæði verslunar- og
íbúðarhús. Sveinn Jónsson trésmíðameist-
ari, sem var einn af stofnendum Völundar,
keypti húsið árið 1917 og bjó þar til ársins
1936. Sveinn rak verslun í kjallaranum en
bjó sjálfur á fyrstu hæðinni en á annarri
hæðinni bjó dóttir hans Siguiyeig ásamt
börnum sínum og rak matsölu. Á háaloftinu
voru 7-8 herbergi sem voru leigð út og þar
þótti gott að búa enda stutt í alla þjónustu.
Sveinn lét setja þar upp síma fyrir leigjend-
ur en símar voru þá ekki í öllum húsum
og allra síst fyrir leigjendur. í símaskrá frá
þessum árum eru leigendurnir að-
greindir frá öðrum íbúum sem „háa-
loftsbúar“. Um tíma bjó einnig á
annarri hæðinni Sveinn M. Sveins-
son forstjóri í Völundi og þar fædd-
ust þeir Völundarbræður, Sveinn,
Haraldur og Leifur. Sveinn byggði
nýtt hús fyrir fjölskyldu sína að
Tjamargötu 36 árið 1928 og þar
býr Leifur enn.
Seint á fimmta áratugnum eign-
aðist Samband íslenskra samvinnu-
félaga húsið ásamt lóðum í ná-
grenninu. Fyrstu hæðinni var breytt
í verslun og gluggarnir stækkaðir,
á annarri hæð var saumastofan
Gefjun en skrifstofur á háaloftinu.
Um tíma var Hermann Vilhjálms-
son húsvörður þar en hann var föð-
urbróðir Vilhjálms Hjálmarssonar
fyrrv. ráðherra sem skrifað hefur
bók um þennan frænda sinn sem
setti svip sinn á Reykjavík um ára-
bil. Húsið var notað undir verslunar-
rekstur allt fram á síðustu ár en
skrifstofurnar voru löngu fluttar.
Árið 1967 keypti ríkissjóður Hót-
el Skjaldbreið og 15 árum síðar
eignaðist ríkissjóður önnur hús og
lóðir við Kirkjustræti. Ráðgert var
að rífa húsin enda þótti að þeim
lítil prýði þar sem þau höfðu drab-
bast niður. Ríkissjóður afsalaði sér
húsunum og lóðunum til Álþingis árið 1987
í tilefni þess að fyrirhuguð nýbygging Al-
þingis átti að rísa þarna. Ekkert varð af
þeirri fyrirætlan og um tíma vissu menn
ekki hvað til bragðs átti að taka en nú
hefur loksins verið tekin ákvörðun um að
varðveita húsin, a.m.k. 8b og 10, í sinni
upprunalegu mynd og nýta þau undir starf-
semi Alþingis. Til þess að svo megi verða
þarf að breyta töluverðu innandyra en að
ytra útliti verða húsin gerð upp í uppruna-
lega mynd. Tengibyggingin milli húsanna
hefur verið rifin en i hennar stað kemur
ný tenging með stiga og lyftu og verður
hún aðalinngangur i húsin. Um það má
deila hversu langt skuli gengið í verndun
þessara húsa og hverju má breyta en ljóst
er að ef það á að nýta þau getur stundum
verið nauðsynlegt að aðlaga þau nútímakr-
öfum. Nýja tengibyggingin þjónar þessum
tilgangi þótt varla teljist hún prýði en gamla
tengibyggingin var nú heldur ekkert augna-
yndi.
Nú þegar endurbyggingu þessara húsa
að utanverðu er lokið sést hvað þau eru
glæsileg og mikil bæjarprýði. En ekki má
láta staðar numið. Brýnt er að koma Skjald-
breið í upprunalegt horf að utanverðu og
til að styrkja og bæta götumyndina væri
æskilegt að flytja gömul hús á lóðirnar
númer 4 og 6 eða byggja ný hús sem féllu
vel að þeim húsum sem fyrir eru. Alþingi
ætti að sjá sóma sinn í að standa fyrir
þeirri endurreisn.
Hjörleifur Stefánsson arkitekt hefur lagt
til, að Vonarstræti 12 verði flutt á lóðimar
Kirkjustræti 4-6.
Höfundur er sagnfræðingur.
SIGFRÍÐ ÞORISDÓTTIR
Heimspekin
eftir daga
Sókratesar
. .. og Stóru Börnin
dreyptu á nýjum
vitundarveigum.
í algleymi sínu
dönsuðu þau
frá Kjarnanum
í hringrás hártogana
innan takmarka
mannlegs gufuhvolfs.
Kerfis-
sköpun
kærleikans
Sagt er,
að þjáningin sé forritið
sem ber okkur
á ieiðara
til Ljóssins.
Hví
verður svo að vera;
þarf Allt allt
að vera skorðað
í forrit
og kerfi.
Segðu mér
okkar á milli;
er ekki þjáningin
bara galli
í sköpunarforriti
barna þinna.
Höfundur er iðnrekstrarfræðingur.
INGA GUÐRÚN
ÁRNADÓTTIR
Söknuður
Ég finn tár renna
niður gluggana
sem eru á andlitinu
Ég finn fyrir söknuði sem
lætur kinnar mínar
bólgna út
Mig langar að hverfa,
hverfa frá því leiðinlega lífi
sem brennur inni í mér
Hverfa frá því öllu sem kemur
mér við
Ég fæ hausverk
því ég hugsa of stíft
um framtíðina.
Fortíðina
og hvar ég stend núna
Ég reyni að brosa,
en það glaðlega í mér kemur ekki
upp.
Litla saklausa stelpan
sem allt hafði í höndum sér
finnur aðra leið, vonda leið
Brosmiida stelpan
sem gekk svo vel.
Höfundurinn er ung Reykjavikurmær.
LESBÓK MORGUN8LAÐSINS 17. FEBRÚAR 1996 9