Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.1996, Qupperneq 12
FORMAÐUR KARLAKORSINS HEIMIS I SKAGAFIRÐI I 23 AR
EKKISLITIÐ
FRÁÞESSU
Morgunblaóið/Ásdís Ásgeirsdóttir
ÞORVALDUR G. Óskarsson formaður Karlakórsins Heimis ítrjágarðinum á Sleitustöðum.
GET
MIG
Ekkert lát viróist vera á
velgengni Karlakórsins
Heimis og er það líklega
einsdæmi aó sveitakór
nái slíkum vinsældum.
Söngmennirnir leggja
líka á sig mikla vinnu og
mikió mæóir á formann-
inum. HELGI BJARNA-
SON kom vió á Sleitu-
stöóum og ræddi vió
Þorvald G. Oskarsson
formann Heimis.
SÍÐASTA starfsár var eitt hið
allra besta og jafnframt það
lengsta í sögu Karlakórsins
Heimis í Skagafirði. Vegna
söngferðar til Kanada lauk því
ekki fyrr en í júnílok og eftir
það söng kórinn við ýmis tæki-
færi, þannig að það var ekki
fyrr en í lok júlí eða byrjun ágúst að eigin-
legt sumarfrí hófst. Haldnir voru 25 tónleikar
á árinu, auk þess sem sungið var við ýmis
tækifæri. Þá var gefín út hljómplata. Nýtt
söngár hefst svo að venju í október.
Sleppa ýmsu fyrir kórinn
Mikið mæðir á stjórn kórsins og þá sérstak-
lega formanni. Þorvaldur G. Oskarsson bif-
vélavirki á Sleitustöðum í Hólahreppi hefur
verið formaður kórsins í 23 ár. Hann hefur
verið 40 ár í kór, fyrst í Karlakórnum Feyki
og síðan í Heimi eftir sameiningu þeirra
1970. „Það er mikil vinna að halda starfí
kórsins gangandi, vinna sem maður innir af
hendi í frístundum. Það fer einhver tími í
þetta á hveiju einasta kvöldi allan veturinn,
oft allt kvöldið," segir Þorvaldur.
Starf formannsins felst í því að útvega
söngstjóra og undirleikara, þegar sömu menn
halda ekki áfram. Sjá um skipulagningu
æfínga og tónleika í samráði við stjórn kórs-
ins og söngstjóra. Mikil samskipti eru út á
við, við að útvega hús fyrir tónleika, öku-
tæki og fæði þegar farið er í söngferðir.
Þorvaldur segist einnig aðstoða söngstjóra
við að fínna skemmtileg lög og reyna að
útvega nótur. Hann segir að konan sín, Sigur-
lína Eiríksdóttir, hjálpi sér mikið við starfíð,
til dæmis við að útbúa söngskrár og ljósrita
nótur fyrir æfíngar.
„Þetta er skemmtilegt. Stundum spyr
maður sig þó að því af hveiju maður sé að
eyða svona miklum tíma í þetta. Eg hef
margoft ætlað að hætta en ekki látið verða
af því. Einhvem veginn hefur maður ekki
getað slitið sig frá þessu,“ segir Þorvaldur.
Hann bætir því við að þótt hann leggi mikið
af mörkum geri aðrir það ekki síður. Menn
sleppi ýmsu fýrir kórstarfíð og margir aki
langar leiðir á æfingar. Þá hjálpi eiginkonurn-
ar þeim mikið, bæði með beinni aðstoð við
kórinn og svo verði þær að vera heima á
meðan karlamir syngi.
Karlakórinn Heimir var stofnaður af bænd-
um í framhéraði Skagafjarðar árið 1927 og
verður því 70 ára á næsta ári. Enn eru nokkr-
ir bændur í kórnum en þeim fer þó fækk-
andi og í staðinn koma menn úr ýmsum stétt-
um. Þriðjungur kórfélaga er frá Sauðár-
króki. Tveir búa utan héraðs, Óskar Péturs-
son frá Álftagerði keyrir á æfíngar frá Akur-
eyri og Guðmundur Hagalín frá Blönduvirkj-
un. Héraðið er víðlent og þurfa margir að
aka langa leið á æfíngar. Æft er tvisvar í
viku í Miðgarði allan veturinn og yfirleitt eru
haldnir upp undir 20 tónleikar á hveiju ári
úti um allt land, auk söngs við ýmis hátíðleg
tækifæri. Gefnar hafa verið út fjórar plötur
og farið í söngferðalög til útlanda.
Margir vilja komast i kórinn
Sextíu og fjórir félagar em í Heimi og
mikil ásókn er í að komast í kórinn. Þorvald-
ur segir að það sé vandamál að taka nýja
menn inn því þeir sem fyrir eru hætti ekki,
menn fari helst ekki úr kómum öðruvísi en
láréttir. „Við leyfum mönnum að syngja með
á meðan þeir treysta sér til. Þetta er góður
félagsskapur og það er gott fyrir fullorðna
menn sem hættir eru að vinna og hafa því
nægan tíma, að hitta félagana og syngja,"
segir Þorvaldur. Hann segir að eingöngu
mjög ungir menn séu teknir inn í kórinn
þegar sæti losna. Nauðsynlegt sé að end-
urnýja með ungum mönnum, annars verði
kórinn of gamall. Segir Þorvaldur að ekki
sé hægt að stækka kórinn endalaust því í
núverandi stærð komist hann varla fyrir á
venjulegu leiksviði og stundum-séu vandræði
með að koma honum fyrir í húsum sem þeir
leigi fyrir tónleikahald.
Söngur er aðalverkefni hópsins en félags-
skapurinn er einnig mikilvægur þáttur. „Menn
hittast, spjalla saman og gera að gamni sínu.
Miklar vegalegndir eru innan þessa héraðs og
í kómum kynnast menn sem annars myndu
ekki þekkjast," segir Þorvaldur.
Lög fyrir fólkió i landinu
Karlakórinn Heimir hefur undanfarin ár
verið einn allra vinsælasti kór landsins og
Þorvaldur segir að ekkert lát virðist vera á
vinsældum hans. Bendir hann á að kórinn
hafi yfirfyllt Háskólabíó sl. vetur og fjöldi
fólks orðið frá að hverfa þegar haldnir voru
tónleikar í Langholtskirkju í vor. Sumir kórar
kvarta yfir viðtökunum heima, en ekki Heim-
isfélagar. Skagfirðingar mæta vel á tónleika
kórsins, þar er nánast alltaf fullt hús, og
styðja vel við bakið á sínum mönnum.
„Eg tel að því ráði nokkur atriði sem vinna
saman,“ segir Þorvaldur spurður um ástæður
vinsældanna. „Okkur hefur lánast að vera
með skemmtileg lög. Við reynum að velja lög
fyrir fólkið i landinu en ekki afmarkaða hópa
fólks. Þetta eru bæði létt lög og þyngri,
rammíslensk og erlend. Við höfum geysilega
góðan söngstjóra, Stefán R. Gíslason, sem
hefur rifið kórinn upp. Hann útsetur líka
fyrir okkur og með því móti getum við verið
með lög sem aðrir kórar syngja ekki. Þá
erum við með góða einsöngvara, þá Álfta-
gerðisbræður Gísla, Pétur, Sigfús og Óskar
Péturssyni og Einar Halldórsson, og höfum
verið heppnir með undirleikara, nú síðustu
árin Thomas Higgerson píanóleikara. Svo
hlýtur það einnig að vera að fólki þyki flutn-
ingur okkar áhugaverður," segir Þorvaldur.
Alls staðar fullt i Kanada
Söngferðin til Kanada í sumar tókst mjög
vel að sögn formanns Heimis. Haldnir voru
fimm tónleikar í íslendingabyggðum Kanada
og var fullt á þeim öllum og móttökur góð-
ar. Eftir alla tónleikana hittu kórfélagar
síðan Vestur-íslendinga í kaffiboðum og það
jók mjög á gildi ferðarinnar sem að sögn
Þorvaldar tókst í alla staði mjög vel undir
öruggri stjórn sérstakrar ferðanefndar kórs-
ins.
Á næsta ári verður Karlakórinn Heimir
sjötugur og segir Þorvaldur að eitthvað verði
gert til hátíðabrigða af því tilefni, hvort sem
það verði í vor eða næsta haust. Síðasta plata
kórsins kom út fyrir síðustu jól og gekk vel
og bytjað er á nýrri plötu sem ekki kemur
þó út í vetur. Þá er stefnt að söngferð til
Grænlands næsta sumar en endanleg ákvörð-
un hefur ekki verið tekin um það.
Þorvaldur telur enga ástæðu til að ætla
annað en kórinn haldi núverandi stöðu sinni
enn um sinn. „Ef við getum haldið okkar
striki með lagaval og gerum eins vel og við
getum tel ég að við þurfum ekki að óttast
að aðsókn að tónleikum okkar minnki," seg-
ir Þorvaldur G. Óskarsson.
FERTUGASTA STARFSÁR KAMMERMÚSÍKKLÚBBSINS HEFST Á MORGUN
KaMMERMÚSIKKLÚBBUR-
INN hefur nú fertugasta
starfsár sitt. Af því tilefni
gengst hann fyrir sex tón-
leikum í vetur í stað fimm,
þar á meðal sérstökum af-
mælistónleikum þann 9.
febrúar en þá verða liðin 40
ár og tveimur dögum betur frá því fyrstu
tónleikar klúbbsins voru haldnir í samkomu-
sal Melaskólans í Reykjavík. Á afmælistón-
leikunum verður meðal annars frumfluttur
nýr íslenskur strengjakvartett sem saminn
er sérstaklega af þessu tilefni. Hvaða tón-
skáld er þar að verki verður á hinn bóginn
ekki gefíð upp fýrr en nær dregur. Á starfs-
árinu gefst einnig tækifæri til að minnast 200
ára afmælis Schuberts og 100 ára ártíðar
Brahms.
Það verður Erling Blöndal Bengtsson selló-
leikari sem ríður á vaðið í Bústaðakirkju ann-
að kvöld, sunnudagskvöld, og heíjast tónleik-
arnir kl. 20.30. Mun hann leika Svítu fyrir
selló nr. 6 í D-dúr eftir J.S. Bach, Dal regno
del silenzio eða Úr þagnarheimi eftir Atla
Heimi Sveinsson og Sónötu fyrir selló op.8
eftir Kodály.
í tilkynningu frá stjóm Kammermúsík-
klúbbsins segir að það sé sérstakt ánægju-
efni að fá Erling Blöndal Bengtsson til að
ERLING B. BENGTS-
SON RÍÐUR Á VAÐIÐ
fyrir blásturshljóðfæri eftir Ni-
elsen, Sextett fyrir píanó og blás-
arakvintett eftir Poulenc og
Kvintett fyrir píanó og blásturs-
hljóðfæri í Es-dúr eftir Mozart.
Haydn, Mozart,
Beethoven
Sigrún og Sigurlaug Eð-
valdsdætur, Guðmundur Krist-
mundsson og Richard Talkowsky
koma fram á þriðju tónleikum
vetrarins, 24. nóvember. Á efnis-
skrá verða Lævirkinn eftir Ha-
ydn, Strengjakvartett í A-dúr
eftir Mozart og Strengjakvartett
í D-dúr, op.59.3 eftir Beethoven.
Fjórðu tónleikamir, 12. jan-
úar, verða tileinkaðir 200 ára
syni píanóleikara. Munu þeir leika sex smálög afmæli Schuberts og mun Tríó Reykjavíkur
fyrir blásturshljóðfæri eftir Ligeti, Kvintett ásamt Sigrúnu Eðvaldsdóttur fíðluleikara,
hefja afmælisárið en til íslands
kemur hann í því skyni að minn-
ast þess, á öðrum vettvangi, að
fimmtíu ár eru liðin frá því hann
kom fyrst fram opinberlega á
tónleikum hér á landi. „Hann
hefur alla tíð verið klúbbnum
haukur í horni og hefur síðan
1958 leikið á 14 tónleikum
klúbbsins, einn eða með Árna
Kristjánssyni. Fjórum sinnum
hefur hann leikið allar svítur
Bachs í röð og ásamt Árna öll
verk Beethovens fyrir knéfiðlu
og jn'anó," segir ennfremur.
Á öðmm tónleikum starfsárs-
ins, 13. október, verður Blásara-
kvintett Reykjavíkur í sviðsljós-
inu ásamt Kristni Emi Kristins-
Erling Blöndal
Bengtsson
Sigurbirni Bemharðssyni víóluleikara og
David Wells sellóleikara flytja verk hans Pía-
nótríó í B-dúr, op.99 og Strengjakvintett í
C-dúr, op.163.
Fimmtu tónleikarnir, 9. febrúar, verða fyrr-
nefndir afmælistónleikar Kammermús-
íkklúbbsins. Verður þar fluttur af Bernardel-
kvartettinum Strengjakvartett í B-dúr, op.130
eftir Beethoven, auk hins nýja íslenska
strengjakvartetts.
Á lokatónleikunum, 9. mars, verður 100
ára ártíðar Brahms minnst. Verkin sem flutt
verða eru Kvintett fyrir píanó og strengi í
f-moll, op.34, ljóðin Sapphische Ode,
Geistliches Wiegenlied, Gestillte Sehnsucht
og Botschaft, auk Kvintetts fyrir klarinettu
og strengi í h-moll, op.115. Listamennirnir
sem láta munu ljós sitt skína verða Sigrún
og Sigurlaug Eðvaldsdætur fiðlur, Helga
Þórarinsdóttir víóla, Richard Talkowsky selló,
Alina Dubik messósópran, Einar Jóhannesson
klarinetta og Richard Simm píanó.
Ofangreindir tónleikar verða allir í Bústaða-
kirkju og hefjast kl. 20.30 en fyrirvari er um
breytingar á tónleikaskránni. Þá vekur stjórn
klúbbsins athygli á því að Japis hf. mun eftir
föngum reyna að hafa á boðstólum hljóðritan-
ir af öllum þeim verkum sem flutt verða í
vetur og standa þær klúbbfélögum til boða
með 15% afslætti.
12 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 14. SEPTEMBER 1996