Tíminn - 02.12.1966, Síða 8

Tíminn - 02.12.1966, Síða 8
TÍjVLINN Unnsteinn Olafsson Unnsteinn var HúnveUiingur. Hann var íæddur á Stóru-Ásgeirsá í Víðidal 11. febrúar 1913, sonur Ólafs bónda þar Jónssonar Skúla- Eonar á Söndum í Miðfirði. Móð- ir Unnisteins var Margrét Jóbann- esdóttir frá Útibleiksstöðum í Mið firði. Unnsteinn var mjög frænd- margur í Vestur-HúnavatnssýSlu, og stóðu að honum sérstaklega traustar ættir, dugmikils sveita- fðltos. Afi hans, Jón Skúlason á Söndurn, var annálaður höfðingi og aflamaður og hjálparhella sveit unga sinna á erfiðum tímum bæði í heyskorti og matarskorti. Þótt nok'kuð sé liðið síðan þessir frænd- ur fluttust frá Söndum, er enn talað um Sanda og þá frændur frá Söndum með hlýhug og aðdá- un. Á kreppuárunum 1930—1940 áttu flestir bændur í miklum erf- iðleikum, bæði vegna sölutregðu á afurðum og lágs verðlags, en einnig vegna fjárpesta. Það var ekki árennilegt fyrir unga menn á þeim á-rum að gera landbúnað að lífsstarfi. En samt var það svo á þessum örðugu timum, að tals- vert stór hópur ungra og mana- vænlegra bændasona fór til út ianda til að nema ýmis konar vísindi og sérgreinar landbúnaðar ins, og á kreppuárunum eignaðist þjóðin fyrst svo fjölmennan hóp Háskólamenntaðra landbúnaðar- fræðinga að um munaði. Mennt- un er ekki einhlít, en þegar gáf- aðir manndómsmenn afla sér menntunar og ganga af óeigin- gjörnum áhuga til starfa, fer aldr- ei hjá því, að efni verði í nokkra sögu. Nú em tveir af þessum bændasonum, sem réðust i það á ■kreppuárum búskapar að afla sér menntunar í þágu atvinnugrein- ar feðra sinna, fallnir í valinn. Runólfur heitinn Sveinnson, sand græð'Slustjóri, féll fyrir rúmum áratug í miðri orrustu sinnar hug- sjóna- og framfarabaráttu. Og nú berst mönnum sú fregn, að Unn- steinn Ólafsson, skólastjóri Garð yrkjuskólans á Reykjum, sé all ur. Ég þekkti Unnstein í tvenns konar ham. Við áttum samleið um tveggja ára skeið við nám í Land- búnaðarháskólanum í Kaupmanna höfn, og minnist ég hans þar fyrst fyrir þann eldlega áhuga, sem hann hafði á viðfangsefni sínu. Hann hlakkaði til að komast heim til að reyna og rannsaka, hvað hægt væri að gera á íslandi f garð- yrkjumálum, og hvernig hagnýta mætti jarðhitann á því sviði. Hann var líka sérlega heppinn og hamingjusamur. Okkur fannst honum berast allt upp í hendurn- ar. Staðan beið hans heima að loknu prófi, að veita forstöðu Garðyrkjuskóla ríkisins. Hann var fyr9ti háskólagengni garðyrkju- maður íslands að fara heim til að stofnsetja fyrsta garðyrkju- skóla þjóðar sinnar. Og þetta var áhugamál heillar þjóðar, — þjóð- ar sem var í þann veginn að sigr- ast á örðugleikum heimskrepp- unnar. Það var að vora eftir þungan vetur. Unnsteinn var sannarlega vormaður. Hann var vígreifur, gáfaður og fallegur mað ur með hugsjónaeld og fullkomna menntun. Hann kvæntist í Dan- mörku sinni ágætu konu, Elnu, og var hann þá enn við nám. Já, ég minnist þe.siara ára, vissulega var til mikil lífshamingja og vorhug- ur meðal ungra, íslenzkra bænda- sona í kreppunni gömlu þrátt fyr ir allL skéBastjéri Og Unnsteinn tók til starfa. Hann lá hvergi á liði sínu^ Hann kom skólanum upp, hann reisti og rak umfangsmikla garðyrkju- stöð, hann reyndi margvíslegar nýjungar, — já, hann gerði svo ótalmarga hluti fyrir ótrúlega lítið fjármagn. Við vinir Unm- steins komumst eitt sinn að þeirri niðurstöðu í samræðum, að það væri skaði, hversu fjárhagur Garð- yrkjuskólans hefti Unnstein og héldi aftur af honum. Það var því líkast, er gæðingi er haldið ií skefjum með allt of stífu taum- haldi. Menn éíns ' 'ðg‘" Únhsteinn eiga-að fá að gera það sem þeim sýnist, og þá má aldrei skorta fé. Þeir starfa af ákafa og ást á verkefninu. Þeir reyna hundrað hluti meðan miðlungsmenn reyna einn eða engan. Þeir skila þjóð sinni miklum arði. Þeir bæta landið bæði raunverulega og einn ig í vitund þjóðar sinnar, og er það kannske mest um vert. Svo liðu árin, þennan eldheita hugsjóna- og starfsmann, vantaði eldsneyti. Og þá eyddi hann af sjálfum sér. Hann fórnaði starfi sínu og áhugamálum af lifsorku sinni. í slíku ástandi barðist þessi hetja síðustu ár ævi sinnar. Með hálfri orku æskuáranna var hann kominn vel á veg með að reisa skóla sínum nýtt hús, fagurt stór- hýsi, sem ber honum gott vitnl Þar má sjá bæði hagsýni, fegurð- arskyn og framsýni, allt borið uppi af húnvetnskri reisn. Það mætti rita langt mál, og stikla þó aðeins á stóru, um störf og áhugamál Unnsteins Ólafsson- ar, en hér er ekki timi eða rúm til þess. Heldur var það ætlun |mín með línum þessum að minn- i ast góðs drengs og vinar, sem ág mat mikils, og minningu hans tel ég vera góða eign þjóðar minn- ar. Unnsteinn var skemmtilega heill og opinn í fasi, eins og hátt- ur er margra Húnvetninga. Und- irferli, leikaraskapur og yfirborðs- mennska var í mikilli fjanægð frá honum. Hann var glaðsmna, hávær og hláturmildur. Þeir sem töldu sig hafa efni á að kasta steinum að Unnsteini Ólafssyni í önn dags, þyrftu máske einhvem tíma að endurskoða afstöðuna til hans og sinnar eigin stærðar. Unnsteinn varðist ekki alltjf árás um, því að hann var friðsamur og vildi fremur yrkja tjóð um góða menn og fögur málefni en standa í blaðadeilum. Það er eng- inn vafi á, að Unnsteinn gerði meira en flestum öðrum mönnum hefði tekizt að framkvæma fyrir sama fjármagn og hann hafði úr að spila. Ekki er ég viss um, að slíkur maður hefði orðið fyrir minni árásum, ef hann hefði haft meira framkvæmdafé og látið enn meira að sér kveða. Ég votta konu hans og börn- um samúð mina við fráfall hans. Ég veit það verður hljótt og tóm- legt á Reykjum í bili. Lognið merkist ætíð glöggt, er storma lægir. Gunnar Bjarnason. Deyr fé, deyja frændr, deyr sjalfr et sama. En orðstírr deyr aldrigi, hveims sér góðan getr. Unnsteinn Ólafsson, skólastjóri Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykj um í Ölfusi, lézt í Landsspítalan um þann 22. þ. m. eftir skamma legu aðeins 53 ára gamall. Hann var skólastjóri Garðyrkju skólans frá stofnun hans árið 1939 til dauðadags. Hann var fyrsti maður, sem hafði það hlutverk með höndum að móta og stjórna þeirri stofnun, sem kenndi bæði bóklega og verk lega garðyrkju. Hann var ungur að árum er hann hóf starf sitt, sem skólastjóri við þessa nýju stofnun, fullur af áhuga og starfsþreki, vel menntað ur og áræðinn, enda hvikaði hann aldrei frá settu marki í baráttu sinni fyrir velferð skólans. Hann helgaði' þessari stofnup alla ,sína starfskrafta og það var hans von að sjá nýjan og veglegan skóla rísa af grunni að Reykjum sem mennta setur garðyrkjunnar í landinu. Sú von var í þann mund að rætast. er hann féll frá, því að bygging nýja skólans er hafin og komin vel á veg eins og hann vildi, að hún yrði, og er ég viss um að þar hefði ekki verið betur ráðið af öðrum um skipan alla. Er vonandi að þeim beri gæfa til að feta fót- spor hans, sem við stjórn staðar- ins taka. Það er oft stormasamt í kring um þá menn, sem ber hærra en aðra eða skara fram úr á ein- hverju sviði. Það er eins og vakni minnimáttarkendin hjá aukvisun um og tilhneigingin til að níða skóinn niður af þeim, sem framar standa, en Unnsteinn stóð ætfð sem klettur úr hafinu, og vopnin snérust í höndum andstæðingsins enda var hann maður mjög vel gefinn og vel máli farinn og átti aldrei í neinum vandræður með að finna hugsunum sínum orð. Eg, sem þessar fáu ljnur rita, átti því láni að fagna að vera nem andi hans við Garðyrkjuskólann og minnist ég hans sem frábærs skólastjóra og kennara, og þó nú séu liðin rúm 22 ár síðan ég vfir gaf þennan stað, sem nemandi, minnist ég enn fjölmargra kennslu stunda hjá honum, því að kennsl an var lifandi og frjó og oft farið út fyrir það, sem í bókunum stóð. Nú hin síðari ár urðu kynni okk ar Unnsteins meiri í gegnuon fé- lagsmál okkar garðyrkjumanna og kom þá skýrt í ljós, að hann vildi allt af mörkum leggja til fræðslu og framgangs garðyrkjunnar í landinu og hafa engir reynzt þar traustari en hann. Að síðustu vil ég þakka þér Unnsteinn, allar þær stundir, sem ég átti undir hand leiðslu þinni, nemandi og eru mér nú ómetanlegur fjársjóður á lífs leiðinni, ennfremur ráðleggingar óg margar góðar ábendingar á síðari árum. Eftirlifandi eiginkonu og börn um votta ég innilega samúð. Svavaf F. Kjærnested FOSTUDAGUR 2. desember 1966 Eitt af því sem sýnir hve sjónvarpið íslenzka stendur raunar tæpt er deilan við tæknimennina, sem leyst var á síðustu stundu fyrý- útsend ingu á miðvikudag. Stofnunin er enn í þeirri mótun, að ekk ert má út af bera svo ekki komi til stöðvunar eða vandkvæða við útsendingar. Við höfum áð ur bent á þá staðreynd, að stofnunin er svo fáliðuð, að menn eru þar ekki við hendina til skipta, ef um forföll er að ræða. En sjónvarpig heldur á- fram og smám saman vex því fiskur um hrygg. Það er raun ar forvitnilegt að fyigjast með svona fyrirtæki í mótun, vegna þess að það á framtíðina fyrir sér og á eftir að stækka og efl ast og verða eitt af hinum sjálf sögðu hlutum hins t'aglega lífs í landinu. Byrjunarerfiðleikarn ir, sem við er aö etja í dag. heyra brátt sögunni til og þeim sem hana vilja kynna sér sið ar meir. Skrif okkar um sjónvarpið byggjast meðal annars á því að við viljum að sem flestir geti fylgzt með ýmsum innan og utanhússmálum sjónvarps- ins, einmitt nú, þegar það er í mótun. Gagnrýni okkar á ein- staka þætti þess er líka sett fram yegna þess að allt er þetta nýtt fyrir okkur, og þörf á því að sem flestir hug leiði hvað fram fer í sjónvarp inu og hvernig. í sambandi við það má t. d. nefna, að í síð- asta sjónvarpsþætti okkar kom fram sú skoðun varðandi inn- lendan fréttamyndaþátt, að þar hefði ekki verið um nógu skarpt fréttamat að ræða. Auð vitað eru alltaf deildar mein- ingar um fréttamat, og það þekkja þeir bezt sem á blöðum vinna. Hins vogar er ekki verið að deila á félagasamtök og starfsemi þeirra, þótt látið sé í ljós, að sú starfseroi jafnist ekki á við stórviðbuiði. Hún er jafngóð fyrir því. Vísast í þessu efni til fréttamyndar af fyrirlestri á vegum Varðbergs- Fyrirlesturinn var fluttur af mætuim manni um merkt efni i virðulegum félagsskap Það at riði var ekki til umræðu hér í þættinum, heldur var fjallað um fréttir sem slíkar og mat á þeim. Erlendu fréttaþættimir eru stöðugt að verða betri og betri, og eiginlega er ekki lengur rétt nefni að kalla þáttinn „Frá lið inni viku“, því að í gærkvöld t. d. voru flestar fréttirnar al- veg nýjar. Fyrir nokkru fékk sjónvarpið myndritunartæki, sem gerir því kleift að fá frétta ljósmyndir frá víðri veröld sam dægurs. Þátturinn um Denna dæma lausa vakti óskipta athygli yngri kynslóðarinnar, enda var hann afar skemmtilegur. Minnisstæðastir þættir úi dagskránni eru þáttur Luey Ball, Dýrðlingurinn Flintstone og erlendu fréttamyndirnar. Þetta heyrir maður hjá fólki. sem fylgjist með sjónvarps- sendniga. Ekki er hér um sér staklega menu.igarlega þætti að ræða, en þeir eru skemmti legir og spennandi (Dýrlingur inn). Auðvitað verður annað og alvarlegra efni að fylgja með, en ástæða er Ul að vara við því, að verið sé með þætti í sjónvarpinu, á meðan dagskrá in er ekki meiri en þetta, sem varða aðeins fámennan hóp áhugamanna, og einnig er á- stæða til að vara við því að sýna kvikmyndir í sjónvarpinu, sem fólki þykja ekkj skemmti legar. Af nógu er að taka, þar sem kvikmyndir eru. Lengi hafa kúrekamyndir verið vin- sælar hjá kvikmyndahúsgest- um, svo eitthvað sé nefnt en ekkert er því til fyrirstöðu að kynna sér hjá kvikmyndahús um hvers konar myndir eru mest sóttar og hafa það til hliðsjónar Stjórnendur sjónvarpsins verða aS hafa í huga, að það er ekki fyrir neðan virðingu neinnar menn:ngarstofnunar að miðla skemmtilegu efni. Á dagskránni í kvöld eru tveir skemmtilegir þættir. Kl. 20.30 er þáttur Luey Ball, en nú á hin rauðhærða valkyrkja að stjórna kosningum, og ger- ist væntanlega eitthvað sögu legt, eins og yfirleitt í kosning um, jafnvel þótt alvörumeira Viggo Spaar fólk sé á ferli en Lucy. Og kl. 21.45 kemur Dýrlingurinn. Þátl urinn nefnist „Hamingjuhrólf- ur“, sem er fomt orð og gott og líklegast komið úr e;a- hverjum rímnakveðskap. Símon Templar hefur að vísu aidrsi heyrt rímur kveðnar, en hann getur verið jafngóður í þætti um einhvern hamingjuhrólf fyr ir því. Annars hefst dagskráin á inn lendum fréttaþætti í máli og myndum. Næst koma íþróttir og á eftir Lucy-þættinum þátt ur um Dalai Lama, sem sam- kvæmt trúarbrögðum Tíbet- manna er endurholgaður guð. Iíann er nú landflótta, endur- holdgaður og allt. Kl. 21.25 er stutt teiknimynd byggð á hugmyndum Hoffnungs en fimm mínútum síðar kemur töframaðurinn Viggo Spaar fram á sjónarsviðið og sýnir list ir sínar. Dagskrárlok eru svo kl. 22. 35. Þulur er Ása Finnsdóttir. *

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.