Tíminn - 02.12.1966, Blaðsíða 16

Tíminn - 02.12.1966, Blaðsíða 16
Hugsað heim um LJL 'eftir Guðmund llOll Halldórsson IGrÞ-Reykjavílk, fimmtudag. Komið er út í smábókaflokki Menningarsjóðs sögusafnið „Hugs að heim um nótt“, eftir Guð- mund Halldórsson. Þetta er fyrsta bók höfundar, en sögur eftir hann hafa birzt í tímaritum. í eftirmála um höfundinn seg ir Hannes Pétursson: „Sagnagcrð Guðmundar er unnin upp úr ís- lenzku sveitalífi eins og því hefur verið háttað frá styrjaldarlokum, birtir sveitalífið frá sjónarhorni æskumanns sem stendur á vega skilum. Hugur hans stefnir ýmist Guðmundur Halldórsson heim eða að heiman, heim til þess sem var, að lieiman til þess sem orðið er. Á aðra hönd kyrrð og fásinni, á hina umbrot og hraði. Þessum almennu aðstæðum finnur höfundur fastan stað á heimaslóð um sínum, þar gerast sögur hans, þar er allt saman komið á þröngu sviði: árdalur.inn, þjóðbrautin, skemmtistaðurinn." Níu sögur eru í bók Guðmund ar Halldórssonar. Nefnast þær Messudagur, Haust, Forsjónin, Annó 1959, Hugsað heim um nótt, Burtför, Hljómur landsins, í fá- sinninu og Mín kæra. Guðmundur Halldórsson er nú búsettur á Blönduósi. Hanu er fæddur að Skottastöðum í Svart árdal í Húnavatnssýslu 24. febrú ar árið 1926 og er því á fertugasta og fyrsta aldursári. Hann ólst upp í Svartárdal við almenn bústörf, en fluttist burt úr dalnum ásamt foreldrum sínum árið 1963. Þeim sem fylgzt hafa með skrifum Guðmundar er það fagn aðarefni að út skuli komnar sögur eftir hann og eflaust mun þessi bók verða til þess að vekja á hon um athygli út fyrir þann hóp, sean alltaf hefur verið þess vitandi hvers hann er megnugur á sviði sagnalistar. MIKLAR UMRÆÐUR A ÞINGI LÍ.Ú. UM BOTNVÖRPUVEIUAR SJ-Reyfkjavík, fimmtudag. Á þingi GÍÚ j dag voru lögð fram áiit nefnda, m. a. um friðun tilteikinna hrygningarsvæða nyíja- fiska við hverskonar veiði um hrygningartímann. Einnig var lagt fram álit nefnda um að sjómanna lögunum verði breytt varðandi greiðslu til sjómanna í veikinda- og slysatiifell'um. M lágu fyrir fundinum tillögur um auknar botnvörpuveiðar inn- an fistkveiðitakmarkanna. Miklar umræður urðu um þessar ti'llög- ur og var afgreiðslu málsins ekki lokið um kvöldmatarleytið, en fundurinn átti að halda áfram eft- ir kvöldmat. Sjávarútvegsmálaráðherra, Egg- ert G. Þorsteinsson, mun ávarpa þingið á morgun, föstudag. SUF OG FUF Á AKUREYRIEFNA TIL FUNDAR UM NÝ VIÐHORF í ÍSLENZKUM STJÓRNMÁLUM FB-Reykjavik, fimmtud. Stjórn Sambands ungra Fram sóknarmanna | heldur á föstu- j dagskvöld norð- j ur til Akureyrar, I en þar mun hún í dveljast um helg ina, ræða við unga menn. Er þetta nýbreytni í _ j starfi SUF og Baldur ætlunin að stjórnin heimsæki sem flesta af kaupstöðum landsins í vetur og fram á vor. í sambandi við þessa för stjórnarinnar, mun FUF á Ak- ureyri og SUF gangast fyrir saimeiginlegum fundi kl. 2 á sunnudaginn á Hótel KEA. Þar verða rædd ,.Ný viðhorf í is- lenzkum stjórnmálum,“ og verða framsögumenn Baldur Óskarsson formaður SUF, Björn Teitsson ritari og Ólaf- ur R. Grímsson. Björn Ólafur Deleríum Bubonis sýnt í Borgaraesi f kvöld verður leikritið Del erium Bubonis frumsýnt í sam komuhúsinu í Borgarnesi og hefst sýningin klukkan 9 e. h. í gær var uppselt á frumsýn- inguna og langt komið að selja á næstu sýningu, sem verður á sunnudaginn. Þriðja sýning á Delerium Bubonis verður svo á þriðjudagskvöldið á sama stað og sama tíima. Gert er ráð fyr ir að aðeins verði um fáar sýn- ingar ag ræða fram að jólum. Þá hefur Tíminn frétt að litiar líkur séu til þess, að leikritið verði sýnt utan Borggrness. Eins og kunnugt er, þá er Delerium Bubonis eftir þá Jón Múla og Jónas Árnasyni, og er það nýlunda, að Jónas, fyrir utan að leikstýra sýningunni í Borgarnesi, leikur eitt helzta hlutverkið í leifcnum. Myndin var tekin í kaffiihléi á æfingu fyrir nokkru síðan, og á henni eru f. v.: Geir Björns son, Freyja Bjarnadóttir, Hilm ir Jóhannesson, Þórhildur Lofts dóttir, Sigrún Símonardóttir hvíslari, Jónas Árnason, höfund ur, leikari og leikstjóri, Oddný Þorkelsdóttir undirleikári, Þórð ur Magnússon, Friðjón Svein- björnsson, Sigríður Héðinsdótt ir og Jón Pétursson- (Tímamynd: K-J.) 40 BILAR TEPPTIR A H V ALF J ARD ARSTRO N D KJ-Reykyjavík, fimmtudag. Á tímabili í gærkvöldi voru fjörutíu bílar a. m. k. tepptir vegna ófærðar á þjóðveginum skammt frá Kalastöðum á Hvalf járðarströnd, og voru þeir allir á leið vestur og norð ur um land. Þarna voru bæði á ferðinni litl ir fólksflutningahílflr, jeppar og stórir áætlunar og vöruflutninga- bílar. Var ófærðin á veginum þarna mikil, allt norður fyrir Fiski læk í Melasveit, en úr því fór færðin að batna. Að vísu var ekki samfelld ófærð á þessum kafla, en víða var mjög slæmt yfirferðar, og alófært öllum bílum. Veghef- ill ruddi brautina fýrir bílana, en það tafði nokkuð er hann fór út af veginum við Laxárbrú. Stórir bílar sem fóru frá Reykja vík um klukkan fimm og -upp í Borgarnes, voru ekki komnir á leiðarenda fyrr en undir mið- naetti, eri venjulega er þessi vega lengd farin á þrem tímum. Háir ruðningar eru komnir sumsstaðar beggja megin vegarins á þessari leið, en þess á milli er vegurinn al auður. Búast má við að þungfært verði þar sem ruðningarnir eru í kvöld, ef heldur áfram að skafa, en í morgun og fram á miðjan dag var þessi leið sæmilega fær. Ekkert vit er í að leggja. upp á litlum bílum, án þess að hafa ná- kvæmar spurnir af færðinni áður, eða þá að vera í samfloti við aðra bíla. Þrengslavegurinn hefur verið þungfær í dag, og ekki farandi þar um nema á stjórum bílum og jeppum 24 KLUBBAR HAFA VERIÐ STOFNAÐIR 23. og 24. Klúbburinn Öruggur akstur voru stofnaðir á Norður- landi um síðustu helgi sem hér segir: Á Hofsósi lgugardaginn 26. nóv. í fundarsal kaupfélagshússins. Fundarstjóri var Björn Jónsson hreppstjóri í Bæ, en íundarritari Kristján Jónsson bóndi og kaup félagsformaður á Óslandi. Félags svæði hins nýstofnaða klúbbs er Skagafjörður austan Héraðsvatna. í stjórn voru kosnir: Framhald á bls. lö. 17 stiga frost á Hveravollum SJ-Reykjaví'k, fimmtudag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðunstofunni í dag var talsvert mikið frost um allt land, mest var frostið á Hveravölluf, 17 stig, en á láglendi var frostið 7—10 stig. Veðurhæðin var almennt 4—6 vind stig á lándinu, léttskýjað á Suður landi, en él allt frá Vestfjörðum og suðurfyrir Reyðarfjörð. Ýmislegt bendir til að aftur taki að hlýna um hdgina. Á Bretlandseyjum var í dag hvasisviðri og rigning. Ekki er óalgengt að það komi harðir frostkaflar á þessum tíma árs og í nóvember í fyxra var harð ur frostakafli. Borað eftir bæði heitu og köldu vatni í Bolungarvík KRJUL-Bo'lungarvík, fimmtudag. Hér hafa verið boraðar fjiírar holur í Ieit að köldu vatm. Úv einni holunni fást nú 50—60 tonn af vatni á sólarhring. Það var ís- húsfélagið, sem stóð fyrir tilraun þessari, og hefur nú leit* vatn að frystihúsi sínu, en það er um 500 mctra leið. Hættir íshúsfélagið þv> að fá vatn úr vatnsveitu 15oiung.tr- víkur, og er þá von til þcss, að vatn aukist almennt, en mikið heiur borið á vatnsskorti hja íbúum þorpsins, aðallega þegar unnið liefur verið í íshúsinu. Einnig hefur verið ha'dið áfram leit að heitu vatni í Gilslandi. Þar hafði verið boruð 55 metra djúp hola, og hitinn reyndist vera 30 stig. Síðan varð að hætta borun, en nú hefur verið hafizt handa aftur, og holan er orðin 70 metra djúp. Ilins vegar er ekki hægt að segja enn til um þao, hvort hit,- inn sé meiri, eftir því sem neðar dregur ,þar sem dæla verður köldu vatni í holuna á meðan á borun stendur. Jóhannes Norda! svarar fyrirspurn- um um efna- hagsmá! Kaffiklúbbur FramsóOoiarfé lags Reykja- víkur og FUF kemur saman í fyrsta sinn á vetrinum í átt hagasal Hótel Sögu n- k. Ilaugardag kl. 3 síðdegis. Gestur fundarins verður Jóhannes Nordal bankastjóri og mun hann svara fyrir- spurnum um efnahagsmál. Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta vel og stundvíslega.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.