Tíminn - 23.12.1966, Blaðsíða 2
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 23 desember 1966
I dag er mesti umferðardag-
ur ársins í Reykjavík og af því
tiletfni hefur lögreglan gert
margs konar ráðstafanir til þess
að umferðin, bæði gangandi
fólks og ökutækja, megi ganga
sem allra bezt. Nú er það bara
ykkar, vegfarendur góðir, að
fara eftir þeim fyrirmælum,
sem lögreglan hefur sett eða
kann að setja, til lausnar á um
ferðarvandamálum einstakra
staða í borginni. Eitt af því,
sem lögð er mikil áherzla á
núna, er að menn leggi bílum
sínum vel í stöðureiti, en ekki
eins og bifreiðarstjórinn á
sendiferðabílnum hér að ofan,
en með því að leggja svona
kæruleysislega skapar hann
veruleg vandræði í umferðinni
og ekki meira en svo að strætis
vagninn komist fram hjá. Sýn-
um tillitssemi og varkárni í um
ferðinni í dag og á aðfangadag
svo enginn þurfi að halda jólin
á sjúfcrahúsi vegna þess að
hann hafi lent í umferðarslysi.
J
NÝR DOKTOR í GUÐFRÆÐI
doktorsprófi (Ph. I og cand. theol. frá H. í. 1963 (ag.
eink). Veturinn 19©1—62 nam
‘hann við guðfræðideild háskólans
í Chicago og 1963—66 við Edin
borgarháskóla.
Nýlega lauk
D.) í guðfræði við Edinborgarhá-
skóla Björn Björnsson, sonur
Björns Magnússonar prófessors og
konu hans, Charlotte Jónsdóttur.
Ritgerð hans, sem ber heitið „'Phe
Lutheran Doctrine of Marriage
in Modern Society," fjallar um
lútherska hjúskaparkenningu og
rekur íiöfuðþætti sögulegrar þró-
unar hjúskaparmála á fslandi með
tilliti tíl löggjafarinnar. Þá segir
frá félagsfræðilegri rannsókn höf-
undar, sem hann gerði í einu
sveitarfélagi hér á landi og vann
úr við mannfélagsfræðideild há-
skólans í Edinborg. í ritgerðinni
greinir frá mism-unandi fjölskyldu
formum, svo sem sambúðaxfjöl-
skyldunni, trúlofunarfjölskyld-
unni og hjúskaparfjölskyldunni,
sem varpar nýju ljósi á hlutfalls-
tölur opinberra skýrslna um ósfcil
getin börn og á félagsfræðilegt
gildi þeirra sérstæðu fjölskyldu-
forma, sem hér hafa þróast.
Dr. Björn Björnsson er 29 ára
að aldri, varð stúdent (MR) 1957
YFIRMANNASKIPTI
Á KEFLAVÍKURVELLI
W j í ", íwíft
AUvUh:
FB—Reykjavík, fimmtudag.
Hinn 14. janúar næstkomandi
mun Ralph Weymouth aðmíráll
láta af störfum á Keflavíkurflug-
velli, sem yfirmaður varnarliðsins
þar, en í stað hans kemur Erank
jBradford Stone aðmíráll.
Waymouth aðmíráll kom hing-
að til lands í janúar 1965 og hefur
, því verið hér í tvö ár. Aðmírálnum
! hefur nú verið falið að hafa yfir-
jstjórn skipa, sem ætluð eru til
a******* ; þess að berjast gegn kafbátum og
eru staðsett á Kyrrahafinu og er,
heimahöfn þeirsa skipa í Kali-
þeirra hjóna
Florida.
er í Prange Park í
• ■ ■ ■ .......................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................
j fornju.
,lln síðan í almanakinu. Myndin ,er frá 1840.
| Stone aðmíráll, sem hér tekur
!:;;: við yfirstjórn NATO-herjana hef-
ur gegnt störfum í sambandi við
bandaríska flotann á Atlantshafi
og í Miðjarðarhafinu. Stone er
; kvæntur Frances Elizabeth Morrow
■ frá Jacksonville í Florida og eiga
þau hjón tvo syni, og heimili
JÓLASVEINA
BRÉF TIL ÍS-
LANDS 06
GRÆNLANDS
SEND ÁFRAM
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
í ensku blaði var nýlega
skýrt frá því, að póstyfir-
völdum í Bretlandi bærust
nú tugir þúsunda bréfa,
sem árituð væru til jóla-
sveinsins.
Heimilisfang Jólasveins-
ins hefur verið marghátt-
að. Aðailega er hann þó á
þessum bréfum talinn eiga
heima í Hreindýralandi.
Norðurpólnum, íslandi,
Grænlandi og Finnlandi, að
sögn blaðsins.
Skýrir blaðið frá því, að
þau bréf, sem árituð séu til
íslands eða Grænlands séu
send til þessara landa og
þeim svarað þaðan. Öðrum
bréfum er svarað í Bret-
landi sjálfu.
Grænlandsalmanak
Burmeister & Wain
SJ-ReykjaVík, fimmtudag. j almanök, en eitt af þeim fyrir-
Mörg fyrirtæki leggja metnað! tækjum sem er orðið frægt vegn-a
sinn í að gefa út sem vönduðust i fallegra og vandaðra almanaka er
danska skipasmíðastjöðin Burmeist
er & Wain. í fyrra vom í al-
manaki þeirra ákaflega fallegar
myndir af íslenzkum handritum
og fylgdi hverri mynd langur
texti. Umboðsfyrirtæki B&W hér
á iandi, H. Benediktsson og Co.,
fékk send 200 almanök í fyrra
og hurfu þau sámstundis. þar
sem mjög margir leituðu eftir
þessum almanökum skrifaði fyrir-
taekið til Danmerkur og óskaði
eftir fleiri almanökum, en þá
voru þau öll búin. Magnús Björns
son, fulltrúi hjá H. Ben., sagði
fréttamanni blaðsins, að nú í ár
væru í almanakinu gamlar mynd-
ir frá Grænlandi, en ekki fengju
aðrir almanakið hér en nokkrir
útgerðarmenn, sem fá það sent
beint frá B&W, og svo 1. vél-
stjórar á skipum, sem eru með
vélar frá B&W-
í almanakinu 1967 eru bæði fal-
Ekur 100 km leið viku-
lega í sjúkravitjun
ÓÓ—Króksfjarðarnesi, mánud.
Eins og kunnugt er af fréttum
hefur A-Barðastrandasýsla verið
læknislaus í vetur, og hefur Jón
Jóhannesson, læknir í Búðardal
komið akandi frá Búðardal til
Reykhóla einu sinni í viku það,
sem af er vetri. Þrátt fyrir þunga
færð og rysjótt veður hefur hon-
um tekizt fram til þessa að halda
þeirri áæflun að mæta á Reykhól
um á hverjum miðvikudegi.
Læknirinn má talsvert leggja á
sig eins og sést bezt á því að leiðin
frá Búðardal til Reykhóla er um
100 km. löng, eða um 200 km.
fram og til baka.
UM MEÐFERÐ
JÓLATRJÁA
Jólatré þau, sem hingað flytjast
eru aðallega rauðgreni. Þeim hætt
ir til að missa barrið er þau standa
lengi í heitum stofum við mikinn
loftþurrk. Erlendis er það siður
að henda jólatrjám út fyrsta eða
annan jóladag. Hér á landi vilja
menn láta þau standa inni sem
allra lengst.
Til þess að svo megi verða, eru
þessi ráð: Tréð skjjl geyma úti
fram á aðfangadag. Það verður að
vera á skjólgóðum stað, t.d á svöl
um þannig, að ekki næði um það.
Bezt er að láta það liggja og ýra
það með köldu vatni, þegar frost-
leysa er. En allra bezt er að breiða
striga yfir það og halda honum á-
vallt vel rökum.
I Eftir að tréð er komið inn er
sjálfsagt að loka fyrir hitann í
stofunni um nætur og gæta þess
að loftið sé rafct með því að hafa
opin vatnsílát við miðstöðvarofn-
ana. Einnig má fá sérstaka fætur
undir trén þar sem þau standa í
vatni. Slíkir fætur auka á endingu
trjánna, svo fremi sem þess er
gætt, að vatnið gufi aldrei upp.
Þinir þeir, sem ýmsir kaupa,
þótt þeir séu um 6 sinnum dýrari
en venjuleg tré, halda barri sínu
lengi Samt er ráðlegt að fara
eins með þá, svo og þau jólatré
önnur, sem sprautuð hafa verið í
þeim tilgangi, að þau haldi barri
lengur en ella. Blaðfóturinn á
þeim þornar nærri jafnhratt og á
ósprautuðum trjám, og þá fellur
barrið.
Um þinina er það annars að
segja, að þeir eru alveg ilmlausir
og greinar þeirra ekki eins stífar
og á rauðgreni. Því bera þau tré
g . m'nna skraut. Og ennfremur skal
þess gætt að þau eru miklu eldfim,
ari en venjuleg tré, þegar þau ná
að þoma. Þess vegna er nauðsyn-
legt að hafa látið þau drekka vatn
á sig áður en þau eru sett upp.
L/ESIÐ NÚ
Weymouth
legar myndir og merkilegar sögu-
lega séð. Þrjár myndir eru eftir
listamanninn Israil Nicodemus
Gormansen frá 1840, en þótt
merkilegt megi virðast þá er ekk-
ert vitað um listamanninn, en "f
myndum hans má nokkuæn ve-g-
inn sjá hvar á vesturströnd Græn
lands hann hefur búið. Nafn hans
er furðuleg blanda af biblíunöfn-
um og dönskum nöfnum. í texta
sem fylgir myndunum segir að
þær hafi mikið heimildargildi, þar
sem listamaðurinn teiknaði fólk
og hluti af mikilli nákvæmni og
samvizkusemi.
KÞReykjavík, fimmtudag.
Á Þorláksmessu í fyrra
bar mikið á því að pökkum
væri stolið úr bílum á bíla-
stæðum í og við miðborg-
ina, og núna á laugardag-
inn mun eittihvað hafa bor-
ið á þessu, en samt ekki
nándar nærri eins mikið og
í fyrra.
Bílarnir sem pökkunum
var stolið úr, voru svo að
segja allir ólæstir, en það
er vítavert kæruleysi hjá
fólki að geyma pakka í
ólæstum bílum á bílastæð-
um.
Lögreglan skorar á fólk
að hafa bíla sína læsta á
bílastæðum í annríkinu á
Þorláksmessu, svo þeir
freisti ekki óheiðarlegra ná
unga.