Alþýðublaðið - 12.01.1982, Qupperneq 4
alþýðu
■ H hT'jT'J
Þriðjudagur 12. janúar 1982
'Ctgéfandi: Alþýöuflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guðmundsson
Stjórnmálaritstjórl og ábm.: Jón Baldvin Hannibalsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Guðmundur Arni Stefánsson.
* Blaðamenn: Einar Gunnar Einarsson, ólafur Bjarni Guðnason og Þráinn Hallgrimsson.,
Útlitsteiknari og ljósmyndari: Einar Gunnar Einarsson.
Gjaidkeri: Halldóra Jónsdóttir. Auglýsingar: Sigrfður Guðmundsdóttir.
Dreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Siðumúla 11, Reykjavik, simi 81866.
Askriftarsíminn
er 81866
Amnesty með herferð gegn
„mannshvörfum”
Kúgunaraðferð þessi hefur færst
i vöxt á siðasta áratug
Amnesty International hefur
hafið alþjóðlegar aðgerðir gegn
,,m annshvarfi”, sem er kúgun-
araðfcrð ýmissa rikisstjórna
viða um heim. Félagar úr
starfshópi, er mun stjórna þessu
starfi, þau Jóhanna Jóhannes-
dóttir, Helgi Kristinsson og
Baldvin Bjömsson sögðu i við-
tali við hlaðið i vikunni, að lögð
vrði áhcrsla á kynningu þessa
málcfnis i fjölmiðlum. Þar á
meðal verða grcinaskrif i blöö,
dagskrá i útvarpi og væntanlega
rinnig sýning sjónvarps á kvik-
mynd um mannshvörf, sem
gerð var fyrir tveimur árum.
Valdir verða um 20 fangar úr
úrtaki :t00 - 400 fanga og þeim
gerð nokkur skil. Síðar i mánuð-
inum vcrða kynningarnámskeið
i bréfaskriftatækni þeirri er
samtökin bcita til að hafa áhrif
á stjórnvöld. Þcss má geta, að
nú eru starfandi um 70 virkir fé-
lagar Amnesty hér á landi, en
stuðn ingsfélagar eru hátt á
fjórða hundraö.Hérá landi mun
aðgcrðin gegn „mannshvörf-
um” standa i mánuð eða fram
til janúarloka. Um hundrað
deildir Amnesty I heiminum
munu leggjast á eitt i þessu
kvnningarstarfi.
Með þessari skjótvirku og út-
breiddu aðferð „mannshvarfi”
hafa þúsundir manna verið
numdir á brott og látnir
„hverfa” á undanförnum árum
að undirlagi yfirvalda — jafnvel
hafa stundum einkennisklæddir
lögreglumenn eða hermenn
framkvæmt mannránið. Mis-
i 1 ÍSLANDSDEILD L> amnesty p international Pósthólf 7124. 127 Reykjavik j
”MANNSHVARF”1982 ! i
rétti þetta bitnar á fjölskyldu og
vinum hins ,,horfna” og heldur
öðrum, sem stjómin grunar um
græsku, f skefjum.
Heimildir sýna glögglega að
„mannshvarfi” hefur verið
beittí einu landinu á fætur öðru
á undanförnum áratug — i
Chile, Argentinu, Guatemala,
E1 Salvador, Eþíópiu, Gineu, á
Filipseyjum, i Alþýðulýðveldinu
Yemen og i öðrum löndum. Auk
fjöldamorðanna, sem áttu sér
stað i Kampútseu undir Khmer
Rouge og i Úganda á valdatim-
um Idi Amin, vom einnig fjölda-
margir látnir „hverfa”.
Aðaleinkenni kúgunaraðferð-
ar þessarar er, að enginn kann
skil á hinum handteknu, þeir
eru „horfnir” án vegsum-
merkja, og stjórnvöld segjast
enga vitneskju hafa um dvalar-
stað þeirra eða ferðir. Vitaskuld
er óttast um lif fjölda fórnar-
lambanna.
Aðstandendum er jafnvel
einnig varnað að syrgja hinn
„horfna”, fjölskylda hans verð-
ur að búa við stöðuga óvissu.
Það ber við að fjölskylda „horf-
ins” manns fær fregnir um, að
hann hafi sést I fangabúðum,
t.d. getur komið fyrir að fangi,
sem látinnhefur verið laus geti
skýrt frá sliku. Oftast liða þó
vikur, mánuðir og ár án nokk-
urra frekari fregna.
t Guatemala, þar sem þús-
undir manna hafa horfið, hafa
mörglik fundist, sem hafa verið
sködduð, svo að þau þekkist
ekki. I Argentinu hafa, að þvi að
talið er, „horfið” fimmtán þús-
und manns siðan stjórnarbylt-
ing varð 1976. Tók þá herfor-
ingjastjórn við völdum og stofn-
aðihún fjöldamargar leynibúðir
i ýmsum héruðum landsins.
Pyntingar voru algengar og
margir fanganna eru taldir af,
enda þótt stjórnvöldi neiti enn
að gera grein fyrir þeim.
Félagar Amnesty Internat-
ional um allan heim vilja með
bréfum, beiðnum, plakötum,
fundum og öðrum ráðum beina
athygli manna að allmörgum
hinna „horfnu” fanga. Má þar
nefna verkalýðsleiðtoga á Fil-
ipseyjum, verslunarmann i Za-
ir, trúarleiðtoga i Eþiópiu,
kennara I Alþýðulýðveldinu
Yemen.
Þessi herferð Amnesty Inter-
national hefur það einnig að
markmiði að auka og efla við-
leitni annarra aðila, sem leitast
við að hamla gegn kúgunarað-
ferð þessari: Sameinuðu þjóð-
irnar lita alvarlegum augum á
vandamálið. Hafa þær skorað á
rikisstjórnir aðildarrikja að
hafa samstarfum aðfinna fórn-
arlömbin og að binda endi á
mannréttindabrot af þessu tagi.
Mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna hefur komið á fót
vinnuhópi, sem safnar gögnum
og krefur yfirvöld um upplýs-
ingar. Þegar að fyrstu starfsári
liðnu skýröi vinnuhópurinn frá,
að nokkrir þeir fangar, sem
hann hefði leitað að, hefðu fund-
ist og verið látnir lausir.
Þ.
Ingimar Jónsson skólastjóri látinn
Ingimar Jónsson skólastjóri
lést þann 7. þ.m. niræður aö
aldri.
Ingimar var fæddur i Hörgs-
holti, Hrunamannahreppi sonur
hjónanna Jóns Jónssonar og
Sesseliu Guðmundsdóttur.
Hann lauk gagnfræðaprófi frá
Flensborg árið 1911, kennara-
prófi 1913 stúdentsprófi frá
Menntaskólanum i Reykjavík
1916 og útskrifaðist guðfræöing-
ur úr Háskóla tslands árið 1920.
Ingimar Jónsson átti við-
burðarika æviað baki. Hann var
kennari við Flensborg og seinna
prestur að Mosfelli i Grimsnesi
1922 - 28. Frá þvi hann lét af
prestsstörfum gerðist hann
skólastjóri Gagnfræðaskóla
Reykjavíkur (seinna Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar) 1928 -
53.
Hann gegndi ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir Alþýðuflokkinn
allt frá árinu 1930 m.a. sat hann
i niðurjöfnunarnefnd, yfir-
skattanefnd Reykjavikur, i
hreppsnefnd Grimsneshrepps. t
skólamálanefnd og i þjóðleik-
húsráði. Ingimar átti sæti i
stjórn Alþýöusambands lslands
vg i stjórn Alþýðuflokksins árin
1932 - 54. 1952 var hann sæmdur
ridciarakrossi hinnar islensku
fálkavrðu fyrir störf sin.
Ingim ar Jónsson var kvæntur
Elinborgn Lárusdóttur rithöf-
undi.
Alþýðublaðiö mun minnasl
Ingimars Jónssonar siðar.
Fram nú
allir í röð ..
Hjólum
aldrei
samsíða
á vegum
|JUMFERÐAR
HUS TIL SÖLU
Reykjavikurborg auglýsir til sölu húseignina að Bröttu-
götu 6, hér i borg.
Húsið er timburhús að hlöðnum sökkli, byggt 1907.
Grunnflötur húss brúttó 113 ferm •.
Grunnflötur alls brúttó 305 ferm
Rúmmál alls brúttó 920 ferm .
Gólfflötur alls nettó 202 ferm.
Húsinu fylgja leigulóðarréttindi.
Útboðsgögn fást hjá undirrituðum dagana 12—15. janúar
og skal miða tilboð við skilmála þeirra.
Húsið verður til sýnis dagana 13.—17. janúar kl. 10—17.
Tilboöum skal skila til undirritaðs og verða þau opnuö i
skrifstofu minni, Austurstræti 16, fimmtudaginn 21.
janúar n.k. kl. 11.00 að viðstöddum bjóðendum.
Bæjarritarinn i Reykjavik
7. janúar 1982
FLOKtöSTARF
Auglýsing um framboðs-
frest fyrir prófkjör
vegna borgarstjórnarkosn-
inga í Reykjavík
Fulltrúaráð Alþýðufiokksins i Reykjavik samþykkti á
fundi 10. desember sl. að prófkjör um skipan framboös-
lista Alþýðuflokksins við borgarstjórnarkosningar I
Reykjavik 1982 fari fram dagana 13. og 14. febrúar.
Kosið verður um skipan sex efstu sæta.
Prófkjör er bindandi ef frambjóðandi, sem . kjöri nær, fær
a.m.k. 20 af hundraði kjörfylgis Alþýðuflokksins við sið-
ustu borgarstjórnarkosningar i Reykjavik.
Prófkjör er einnig bindandi ef frambjóðandi verður sjálf-
kjörinn
Kosningarétt hafa allir þeir sem orðnir eru 18 ára, eiga
lögheimili i Reykjavik og ekki eru flokksbundnir i öðrum
stjórnmálaflokki.
Kjörgengihafa þeir sem hafa meðmæli minnst 50 manna,
sem flokksbundnir eru i félögum Alþýðuflokksins i
Reykjavik og uppfylla lagaskilyrði um kjörgengi til
Alþingis.
Tillögur um framboð ber að senda formanni kjörstjórnar
Asgeiri Agústssyni, á skrifstofu Alþýðuflokksins við
Hverfisgötu i Reykjavik. Framboðsfrestur er til kl. 24.00
miðvikudaginn 20. janúar n.k.
Tillögur um framboð sem siðar koma fram verða ekki
teknar til greina.
Kjörstjórn
Auglýsing um prófkjör Alþýðuflokksins í Hafnarfirði um
skipan framboðslista við bæjarstjórnarkosningar 1982
Prófkjör um 4 efstu sætin á framboðslista Alþýðuflokksins
illafnarfirði við bæjarstjórnarkosningarnar 1982 fer fram
dagana 6. og 7. febrúar 1982.
Niðurstöður prófkjörs eru bindandi um skipan sætis á
framboðslista hafi frambjóðandi hlotið I viðkomandi sæti
1/5 hluta af atkvæðafjölda Alþýðuflokksins við sfðustu
bæjarstjórnarkosningar I Hafnarfirði.
Kosningarétt I prófkjörinu hafa allir þeir sem lögheimili
eiga í Hafnarfirði og orðnir verða fullra 18 ára þann dag
sem bæjarstjórnarkosningarnar fara fram og eru ekki
flokksbundnir I öðrum stjórnmálaflokkum.
Framboðsfrestur rennur út sunnudaginn 17. janúar 1982
kl. 24.00.
Framboðum skal skila til formanns kjörstjórnar Hrafn-
kels Asgeirssonar Miðvangi 5, Hafnarfirði.
Framboðum skulu fylgja meðmæli minnst 25 flokksbund-
inna Alþýðuflokksmanna I Hafnarfirði. Meðmælendur
skulu hafa náð 18 ára aldri þegar bæjarstjórnarkosn-
ingarnar fara fram.
Tillögum um framboð skal fylgja skriflegt samþykki þess,
sem tillaga er gerð um.
Heimilt er frambjóðanda að ráða hve ofarlega hann vill
stilla sér I sætiog skal það þá tekið fram, enda býður hann
sig einnig i öll sæti þar fyrir neðan. Sé ekkert sllkt tekið
fram er frambjóðandi í framboði í öll sætin fjögur.
1 kjörstjórn: Hrafnkell Ásgeirsson.
Guðrún Guðmundsdóttir.
Einar Rafn Stefánsson.
Prófkjörstilkynning
Þeir Alþýðuflokksmenn er hyggjast gefa kost á sér i próf-
kjöri Alþýðuflokksins vegna komandi bæjarstjórnarkosn-
inga i Keflavik, sem fram fara 13 og 14 febrúar 1982 skal
bent á að skilafrestur framboðsgagna er fimmtud. 14. jan.
að Hringbraut 106 milli kl 20—22. Vegna afhendingu með-
mælendalista skal bent á sima 1240 og 3229.
F.H. Alþýðuflokksfélaganna
i Keflavík
Kjörstjórn.
Kópavogur
Alþýðuflokksfélag Kópavogs heldur fund að Hamraborg 7,
þriðjudaginn 12. jan. kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Sameiginleg prófkjör i Kópavogi.
2. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga.
3. önnur mál.
Stjórnin.