Alþýðublaðið - 09.02.1982, Blaðsíða 1
BREYTINGAR I BORGARSTJÚRN:
Þriðiudaqur 9. febrúar 1982.
19. tbl. 63. árg.
OPIÐ PRÓFKJOF
Úrslit prófkjörs i Hafnarfirði:
■|T.bÝr>TTFinK'ySTl>
Borgarblaðið komið út:
Frambjóðendur
í prófkjörinu
kynntir og
helstu baráttu
mál þeirra
Fyrsta tölublað Borgar-
blaðsins á þessu ári kom Ut i
gær. Blaðið er að þessu sinni
tileinkað prófkjöri Alþyðu-
flokksins i Eeykjavik um
næstu helgi.
I blaðinu eru greinar
skrifaðar af frambjóðendum i
prófkjörinu ásamt stuttri
kynningu á hverjum þeirra
fyrir sig. Leiðari blaðsins
fjallar um komandi borgar-
st jórnarkosningar Bjarni
Guðnason skrifar um skatt-
leysi bænda og rætt er við
EmanUel Morthens fram-
kvæmdastjóra Borgar-
blaösins.
Jón Baldvin Hannibalsson
skrifar um opið prófkjör og
Vilmundur Gylfason grein
sem hann kallar „Að hygla
hinu smáa”.
Þá er þakkarávarp til
Björgvins Guðm undssonar
sem nýlega létaf störfum sem
borgarfulltrúi og heitu pott-
arnir eru á sinum stað.
Borgarblaðið er 24 sfður að
stærð.
Hörður Zophaniasson
Guðmundur Arni Stefánsson
Bragi Guðmundsson.
HÖRÐUR EFSTUR OG GUÐMUNDUR
ARNI I ÖÐRU SÆTI
HÖRÐUR ZOPHANtASSON
bæjarfulltrúi lenti I fyrsta sæti á
lista Alþvðuflokksins fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar, í prófkjöri
sem haldið var um helgina. Hann
hlaut 542 atkvæði f fyrsta sæti.
Annar maður á listanum varð
GUÐMUNDUR ARNI STEFANS-
SON ritstjórnarfulltrUi með 326
atkvæði i 1. og 2. sæti. Þriðji varð
BRAGI GUÐMUNDSSON, hlaut
371 atkvæði i 1.—3. sætiog i fjórða
sæti ienti JÓNA ÓSK GUDJÓNS-
D ÓT T I R meöi 417 atkvæði
i 1.—4. sæti.
öll hlutu þau bindandi kosn-
ingu.
Alþyðuflokkurinn á nú tvo
fulltrúa i bæjarstjóm Hafnar-
fjarðar, þá Hörð og Jón Bergsson
sem ekki gaf kost á sér i próf-
kjörinu.
Alls kusu 845 manns i próf-
kjörinu, 775 atkvæði voru gild en
70 atkvæði ógild.
Úrslit i sameiginlegu prófkjöri i Borgarnesi:
Harka að færast i kjaradeiluna á Vestfjörðum:
Verkalýðs- og sjómannafélag
Bolungarvíkur ákveður aðgerðir
Fjölmennir fundir hafa verið
haldnir á Vestfjörðum á siðustu
dögum, þar sem verkalýðsfélög á
fjörðunum hafa tekið undir kröfur
Alþýðusambands Vestfjarða. 160
manna fundur var i vcrkalýðsfé-
laginu Baldri á ísafirði, sem er
einn stærsti fundur i verkalýösfé-
lagi þar um slóðir um árabil. 1
Bolungavik mættu 50 manns á
fundi um kjaramálin. A fundun-
um var samþykkt sérstök
traustsyfirlýsing á samninga-
nefnd ASV, og henni veitt umboð
tilaö ákveða aðgerðir og knýja á i
þeirri deilu sem verkalýðsfélögin
á svæðinu eiga nú i við atvinnu-
rekendur.
A fundinum á Bolungavik voru
greidd atkvæði um traustsyfirlýs-
ingu á samninganefnd ASV 33
greiddu tillögunni atkvæði, 5 voru
á móti og 12 sátu hjá. A fjölmenn-
um fundi á tsafirði var svipuð til-
laga samykkt.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Vt-rkalýðs- og sjómannafélags
Bolungavikur hefur þegar ákveð-
ið og timasett aðgerðir, en beðið
er með að tilkynna þær, þar til
niðurstöður annarra funda á
Vestfjörðum eru komnar fram.
Guðlaugur Þorvaldsson, rikis-
sáttasemjari, var á föstudag
staddurá Isafirði með aðalsamn-
inganefndum beggja aðilja. Eins
og komið hefur fram, hafa verka-
lýðsfélögin farið fram á jöfnun
orkukostnaðar og niðurfellingu
söluskatts af flutningsgjöldum.
Hafa þeir átt viðræður við full-
trúa stjórnvalda, nú siðast i vik-
unni sem leið. Þá ræddi Karvel
Pálmason við Gunnar Thorodd-
sen, Pálma Jónsson og Friðjón
Þórðarson. Pálma Jónssyni var
þá falið, sem stjórnarformanni
RARIKS að kanna orkujöfnunar-
málið nánar.
Talið er að Alþýðubandalags-
ráðherrarnir séu mjög á móti
kröfum verkalýðsfélaganna á
Vestfjörðum og telja menn til
marks um þaö, aö verkalýðsfé-
lagið á Þingeyri sem kommar
ráða afturkallaði verkfallsheim-
ild nýverið og þykir það tiðindum
sæta i miðri kjaradeilu.
Af viðtölum sem Alþýðublaðið
átti við forystumenn verkalýðsfé-
laga á Vestfjörðum um helgina,
má ráða að þar sé nú rikjandi
mikill baráttuandi. Forystumenn
eru nokkuð óhressir með, hvað
litið hefur heyrst frá öðrum
landshlutum um þau baráttumál,
sem ASV hefur sett á oddinn. En
orkujöfnunarmálin og lækkun eða
afnám söluskatts á flutnings-
kostnað eru stórmál fyrir alla
landsbyggðarmenn.
— 1
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
tekur sæti í borgarráði
— Sigurður Guðmundsson
verður aðalfulltrúi í
borgarstjórn
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir tök i
siðustu viku við af Björgvin
Guðmundssyni í borgarraði, en
hann hefur eins og kunnugt er
tekið við forstjórastarf i hjá
Bæjarútgerð Reykjavíkur. A
sama tima tók Sigurður E.
Guðmundsson við sem aðalfull-
trúi i borgarstjórninni af Björg-
vin Guðmundssyni og sat hann
sinn fyrsta fund sem aöalfulltrúi
á fimmtudag s.l.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir er
önnur konan, sem tekur sæti i
borgarráði frá upphafi. Auður
Auðuns sat eins og kunnugt er i
borgarráði um 17 ára skeið og
var hún fyrsta konan sem sæti
átti i ráðinu. Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir var auk þessa á fimmtu-
dag kosin til að gegna embætti
fyrsta varaforseta borgarinnar.
Sigurður E. Guðmundsson
skipaði þriðja sæti framboðs-
lista A lþýðuflokksins við siðustu
borgarstjórnarkosningar. Hann
á sæti i Stjórn verkamanna-
bústaöa i' Reykjavik, er
stjórnarformaður Bygginga-
sjóðs Reykjavikurborgar og
fulltrúi flokksins i Heilbrigðis-
ráði.
Alþýðublaðið óskar borgar-
fulltrúunum velfarnaðar i
nýjum störfum sinum.
Ingigerður Jónsdóttir efst á lista
Alþýðuflokksins
— enginn hinna
flokkanna með konu
i öruggu sæti
Ingigerður Jónsdóttir kjötiðn-
aðarmaður hrepptiefsta sætið á
lista Alþýðulfokksins i prófkjöri
fyrir hreppsnefndarkosningar i
sumar. Hún hlaut 25 atkvæði.
Næstur varð Eyjólfur Torfi
Geirsson en hann hlaut 31 at-
kvæði i 1. - 2. sæti, þá kom
Sveinn Hálfdánarsonmeð 43 at-
kvæði i' 1. - 3. sæti og Ingi Ingi-
mundarson með 39 atkvæði i 1. -
4. sæti.
Alþýöuflokkurinn á einn
mann i hreppsnefnd, Svein
Hálfdánarson en hann gaf ekki
kost á sér i' 1. sæti.
Enginn hinna stjórnmála-
flokkanna eiga konu i efsta sæti
lista sins.
í Borgarnesi var haldið sam-
eiginlegt prófkjör og kusu sam-
tals 393 eða 36.2% af ibúaskrá
sem var notuð sem kjörskrá þar
sem pr^fkjörið var opið öllum 18
ára oa ;ldri. Alþýðuflokkurinn
hlaut 61 atkvæði eöa 15.5%
1 siðustu kosningum fékk
flokkurinn 159 atkvæði og vant-
aði aðeins 6 atkvæði upp á að fá
annan mann kjörinn á kostnað
Framsóknarflokksins. Ljóst er
að fimm fyrrverandi hrepps-
nefndarmanna gefa ekki kost á
sértil endurkjörs og má þvi bú-
ast við þó nokkurri endurnýjun
eftir komandi kosningar.
Hækkanir dynja yfir:
Bensínlítir
inn nálgast
10 krónur
Hækkanir dynja nú yfir
landslýð um leið og útreikn-
ingar hafa verið geröir á
hækkun framfærsluvisitölu þ.
1. mars. Bensinið hækkaði á
laugardaginn var um 50 aura,
úr 8.95 í 9.45 og fer nú að
nálgast tikallinn.Ekkier þessi
hækkun þó tilkomin vegna
verðbreytinga erlendis, held-
ur vegna hækkunar vega-
gjalds, sem rennur óskipt til
rikisins. Þetta er i annað sinn
á tæpum hálfum mánuði, sem
bensi'n hækkar i verði hér á
landi, en fyrri hækkunin nam
5.9%.
Rikisstjórnin hefur einnig
heimilað hækkun á gjaldskrá
Hitaveitur Reykjavikur um
15%. Landsvirkjun var heim-
ilað að hækka taxta sina um
14% og Rafmagnsveitu
Reykjavikur um 12% að við-
bættri 7% hækkun vegna
heildsöluhækkunar frá Lands-
virkjun. Rafmagn til borgar-
búa hækkar þvi verulega á
næstu reikningum.
Einnig hefur Strætisvögnum
Reykjavikur verið heimiiað að
hækka fargjöid sin um 14%.
Vitaö er um miklar verð-
hækkanabeiðnir opinberra
fyrirtækja og þjónustufyr-
irtækja sem biða eftir opin-
berum heimildum i kerfinu,
Þannig má búast við að
stjórnvöld veröi búin að taka
dágóðan skammt af launa-
hækkunum 1. mars nokkrum
vikum áður en þær komast i
umslög launþeganna.
Fyrir baunadisk: Sigurður E. Guðmundsson:
Um stjórnarand- stöðu Framsóknar Kjördæmamálið
Sjá leiðara Sjá opnu