Alþýðublaðið - 20.02.1982, Side 2
2
FLOKKSSTARF
Laugardagur 20. febrúar 1982
i-. ------RITSTJÓRNARGREIN-----------------
Hið tvöfalda siðferði
í alþjóðamálum
Hinn umdeildi sjónvarpsþáttur um Pólland, sem ný-
lega var sýndur á skjánum, hef ur orðið ýmsum tilef ni
til þrætubókarlistar í eins konar samanburðarsið-
fræði: Með hvaða rétti þykjast forystuöfl lýðræðis-
rikjanna geta fordæmt herforingjastjórn í Póllandi, á
sama tíma oa herforingjastjórn hefur hrifsað til sín
völdin í einu bandalagsríkja Atlanzhafsbandalagsins,
Tyrklandi? Kommunum þótti nóg um að „hann Gunn-
ar okkar Thoroddsen" — eins og Thor Vilhjálmsson
orðaði það, — skyldi(koma fram í umræddum sjón-
varpsþætti, við hliðina á fulltrúa herforingjastjórnar-
innar í Tyrklandi.
Það tók Alþingismenn ekki nema nokkrar klukku-
stundir að ná samstöðu um ályktun, þar sem herfor-
ingjastjórnin i Póllandi var fordæmd. Hins vegar vill
það vef jast fyrir sumum alþingismönnum að taka af-
stöðu til þingsályktunartiliagna Alþýðuf lokksins um
málefni El Salvadors og Tyrklands.
Þingsályktunartillaga þingmanna Alþýðuflokksins
um vítur á mannréttindabrot herforingjastjórnarinn-
ar í Tyrklandi, gefur einmitt tilefni til að leggja
áherzlu á þann mun sem er á afstöðu bandalagsríkja
Póllands og Tyrklands.
Valdarán herforingjanna í Tyrklandi er að því leyti
innanlandsmál, að hvorki Bandarikin né Atlanzhafs-
bandalagið komu þar við sögu. Valdataka hersins í
Póllandi var hins vegar gerð fyrir stöðugan þrýsting
frá Sovétríkjunum og undir þrálátum hótunum um
innrás Rauða hersins að öðrum kosti. Það fer ekki á
milli mála að Sovétrfkin og leppstjórnir þeirra í Aust-
ur-Evrópu fögnuðu mjög valdaráni hersins í Póllandi
og styðja herstjórnina þar. Því er beinlínis yf irlýst, að
herinn sé að bjarga „sósíalismanum" þar í landi. Það
má til sanns vegar færa.
Setning herlaga f þessum tveimur löndum var gerð
viðgerólíkar aðstæður. Hin frjálsa verkalýðshreyf ing
í Póllandi hafði vakið aðdáun um vfða veröld fyrir
það, að andófsaðgerðir hennar gegn stjórnvöldum
fóru fram með friðsamlegum hætti, án þess nokkru
sinni að gripið væri til ofbeldisaðgerða. Hin pólska
„samstaða" snerist fyrst og fremst um kröfuna um
lýðræði, mannréttindi og friðsamlegar þjóðfélagsum-
bætur.
I Tyrklandi ríkti hins vegar sannkölluð ógnaröld.
Hryðjuverkasveitir öfgamanna, einkum frá hægri,
stóðu fyrir þrjátíu pólitískum morðum á degi hverj-
um. Rikisstjórnin í landinu hafði reynzt ófær um að
vernda lýðræðið. Hún gat ekki einu sinni verndað líf
manna fyrir löglausum aftökusveitum fasistiskra
blóðhunda, sem vildu lýðræðið feigt.
Og sá er munurinn á bandalagsríkjum Pólverja og
Tyrkja, að kraf an um að tyrkneskir herforingjar virði
mannréttindi og afhendi völdin lýðræðislega kjörnum
stjórnvöldum hið fyrsta, er borin fram með vaxandi
þunga af bandalagsríkjum Tyrkja. Þvi er öfugt farið
um Pólland. Afstaða og ábyrgð bandalagsríkja Pól-
lands annars vegar og Tyrklands hins vegar verður
því ekki lögð að jöfnu.
Oðru máli gegnir um El Salvador. Þar liggur nú-
verandi ríkisstjórn Bandaríkjanna undir sívaxandi
gagnrýni bandalagsþjóða sinna fyrir hernaðarstuðn-
ing við blóðuga ógnarstjórn, sem reynir að réttlæta
ódæðisverk sín í naf ni baráttunnar gegn heimskomm-
únismanum. Þetta atferli Bandaríkjastjórnar er ekk-
ert einkamál hennar. Það er siðferðilega óverjandi.
Og það skaðar málstað lýðræðisríkjanna um heim all-
an, ekki sízt meðal þjóða þriðja heimsins.
Það er ósannað mál, að það sé á valdi Bandaríkja-
stjórnar að binda endá á ógnaröldina í El Salvador. En
lágmarkskraf an er sú, að hún hætti að veita of beldis-
öflunum virkan stuðning.
v Það er álitamál, sögulega séð, hvort blóði drifinn
ferill einstakra ógnarstjórna hins brúna fasisma í
ýmsum ríkjum Suður-Ameriku er grimmúðlegri en
ógnarstjórn hins rauða fasisma í Sovétríkjunum og
leppríkjum þeirra, vegið á mælikvarða f jöldamorða,
pyndinga og þrælahalds. Sá er munurinn að öðrum
þjóðum stafar augljóslega minni hætta af óqnar-
stjórnum í El Salvador eða Guatemala en af
hinu gerzka herveldi, sem allt frá stríðslokum hefur
lagt hverja smáþjóðina á fætur annarri undir hramm
sinn, og er á ferli um alla heimsbyggðina.
Þess vegna er litið mark takandi á siðferðilegum
umvöndunum þeirra afla, sem í síbylju hamra á stór-
um sem smáum ávirðingum lýðræðisríkjanna, en
mæla hvarvetna gegn því að þau snúi bökum saman
um að verja lýðræðið gegn ásókn hins rauða alræðis.
Sá málflutningur verður aldrei annað en siðferðileg
tvöfeldni. —JBH
Verkalýðsmálanefnd Alþýðuflokksins
Fundur i verkalýðsmálanefnd Alþýðuflokksins verður
haldinn n.k. þriðjudag 23. febrúar kl. 17.30 á skrifstofum
Alþýðuflokksins.
STJÓRNIN
Akureyri —
Utankjörstaðatkvæðagreiðsla
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla fyrir prófkjör Alþýðu-
flokksins vegna bæjarstjórnarkosninga á Akureyri verður
aðStrandgötu 9, dagana 22.-27. febr. kl. 16—19 siðdegis.
KJÖRSTJÓRN
SEYÐISFJÖRÐUR
Alþýðuflokksfélag Seyðisfjarðar auglýsir hér með eftir
frambjóðendum til prófkjörs um skipan 5 efstu sæta á
framboðslista flokksins við bæjarstjórnarkosningarnar i
mai' n.k.
Framboð þurfa aö berast fyrir 26. febrúar til Ara Boga-
sonar, formanns kjörstjórnar, Ingva Svavarssonar og
Sigurðar Hjartar Sigurðssonar. Framboðunum þurfa að
fylgja meðmæli minnst 7 flokksbundinna alþýðuflokks-
manna og þar tilgreint i hvaða sæti viðkomandi býður sig
fram. Kjörstjtírn.
Alþýðuflokksfélag Kjósarsýslu
auglýsir hér með eftir frambjóðendum til prófkjörs um
skipan 3 efstu sæta á framboðslista flokksins við sveitar-
stjórnarkosningarnar i mai n.k.
Framboð þurfa að berast fyrir 28. febrúar n.k., til for-
manns kjörstjórnar, Hreins Þorvalssonar, Markholti 6,
Mosfellssveit. Framboðum þurfa að fylgja meðmæli
minnst 15 flokksbundinna alþýðuflokksmanna og þar til-
greint i hvaða sæti viðkomandi býður sig fram.
KJÖRSTJÓRN
Alþýðuflokksmenn Hafnarfirði
Arshátið Alþýðuflokksfélaganna verður haldin laugar-
daginn 6. mars í Gaflinum við Reykjanesbraut. Ýmis
skemmtiatriði.
Allir velkomnir.
Miðapantanir og nánari upplýsingar gefa,
Arni Hjörleifsson, s. 52453
Elin Harðardóttir, s. 52911
Vaigerður Guðmundsdóttir, s. 51391.
Alþýðufiokksfélögin Hafnarfirði
Auglýsing um prófkjör Alþýðuffokksins
i Garðabæ um skipan framboðslista
við bæjarstjórnarkosningar 1982
Prófkjör um 4 efstu sætin á framboöslista Alþýðuflokks-
ins i Garðabæ við bæjarstjórnarkosningarnar 1982 fer
fram dagana 20. og 21. mars 1982
Niðurstöður prófkjörs eru bindandi um skipan sætis á
framboöklista hafi frmbjóðandi hlotið i viðkomandi sæti
1/5 hlutá' atkvæöafjölda Alþýðuflokksins við siðustu bæj-
arstjórnarkosningar.
Kosningarétt i prófkjörinu hafa allir þeir sem lögheimili
eiga i Garðabæ og orðnir verða fullra 18 ára þann dag,
sem bæjárstjórnarkosningarnar fara fram og eru ekki
flokksbundnir i öðrum stjórnmálaflokkum.
Framboðsfrestur rennur út föstudaginn 5. mars 1982,
klukkan 20.
Framboðum skal skila til formanns kjörstjórnar, Helgu
Kr. Möller, Hliðarbyggð 44.
Framboðum skulu fylgja meðmæli minnst 5 flokks-
bundinna Alþýðuflokksmanna. Meðmælendur skulu hafa
náð 18 ára aldri, þegar bæjarstjórnarkosningarnar fara
fram.
Tillögum um framboð skal fylgja skriflegt samþykki
þess, sem tillaga er gerðum
Heimilt er frambjóðenda að ráða hve ofarlega hann vill
stilla sér i sætiog skal það þá tekið fram, enda býður hann
sig einnig i öll sætin þar fyrir neðan. Sé ekkert slikt tekið
fram er frambjóðandi i framboði i öll sætin fjögur.
Kjörstjórn Helga Kr. Möller
Kristinn Þórhallsson
ÓIi Kr. Jtínsson
(D Útboð
Tilboð óskast i 2 Mobil rön
Útboðsgögn eru afhent á :
3.
Tilboðin verða opnuð á sai
n.k. kl. 11 f.h.
ínnkaupastofnun
Fnkirkjuvæ^'
||| Hitavei
Óskar eftir að r<
eða tæknifræðing
og rafeindabúnað
Úpplýsingar ur
Gunnarsson i sir
sendið umsókn í
menntun og starfí
1982.
lítboi
Hafnarfjarðarbær
gerð á Hvaleyrari
afhent gegn 1.00(
skrifstofu bæjarvf
6.
Tilboð verða opni
daginn 2. mars kl
Bæjarverkfræðing
Rafmagns
ríkisins
óska að ráða við:
við f jármáladeild.
Umsóknir ásamt u
un, aldur og fyri
mannastjóra fyrir
Rafmagnsveitur ri
Langavegi 118.
105 Reyk javik.
Rafmagns
ríkisins
auglýsa starf yfii
umsóknar.
Umsóknir ásamt i
un, aldur og fyri
mannast jóra fyrir
Rafmagnsveitur ri
Laugavegi 118
105 REYKJAVÍK
Útboð
Laxárdalshreppur
að steypa upp 2. ái
ardal.
Útboðsgagna ma \
dalshrepps, Buöar
s.f., Borgartúni 17
fræði- og teiknistc
40, Akranesi, gegr
Sveitarstjórinn Bi