Alþýðublaðið - 20.03.1982, Page 2
.RITSJÓRNARGREIN,
Laugardagur 20. mars 1982.
Nú skal brýna vopnin
Þær eru ískaldar kveðjurnar, sem launa-
menn í landinu fó frá fulltrúum atvinnurek-
enda, nú þegar samningar um kaup og kjör
fólks í landinu eru að hef jast. Þorsteinn Páls-
son framkvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins sendir í Moggann og þar hefur hann
upp raust sína: „Verðum að semja án grunn-
kaupshækkana og skerða vísitöluna," segir
hann kaldur og rólegur og verður síðan alveg
hlessa, þögar verkalýðshreyfingin leggur
fram óbreyttar kröfur frá þvi í haust.
Atvinnurekendur eru að segja iaunþegum
þaðeitt, aðnú þurfi að lækka launin, nú þurfi
fólkið í landinu að herða sultarólina. Nú geti
atvinnurekendur ekki greitt „hin háu laun"
lengur.
Auðvitað hef ur þessi söngur atvinnurekenda
heyrst fyrr. Þetta er sama viðlagið og þeir
notuðu í upphaf i samningaviðræðna s.l. haust.
Þetta er sami söngurinn og þeir hafa kyrjað í
hverjum samningum.
En skyldi atvinnurekendum ekki vera Ijóst
að kiarasamningunum í haust lauk aldrei,
þeim var í raun aðeins f restað f ram á vor. Og
halda Þorsteinn Pálsson og hans menn, að 3%
grunnkaupshækkunin, sem launþegar fengu í
nóvember s.l. eigi að duga næstu árin? Það
halda þeir greinilega og vilja ekki aðeins neita
öllum grunnkaupshækkunum, heldur einnig
skerða verðbætur á laun. Þeir vilja sem sagt
lækka launin. Telja bersýnilega, að þrjú
prósentin frá í haust hafi verið þremur
prósentum of mikið.
Auðvitað er öllum hugsandi mönnum það
Ijóst, að kröfur Alþýðusambandsins frá því í
haust, eru í fullu gildi nú. Og nú er að koma
vor og þá verður tekinn upp þráðurinn þarsem
frá var horfið í s.l. haust.
Niðurstöður vinnumarkaðskönnunar sýndu,
að yfirborganir eru tíðar á vinnumarkaðnum.
Það sýnir Ijóslega, að þeir geta ef þeir vilja,
greitt hærri laun til launþega. Það segir okkur,
að harmagrátur atvinnurekenda vegna
erfiðrar rekstrarstöðu, er aðeins einn þáttur
sjónarspilsins, sem þeir setja ævinlega ó svið
tímum kjarasamninga.
það verður hins vegar fróðlegt að fylgjast
með ríkisstjórninni í þessum kjarasamn-
ingum. Það verður lærdómsríkt að heyra við-
horf ráðamanna Alþýðubandalagsins og hvort
þeir styðji launþega í sjálfsagðri kjarabar-
áttu, eða hvort þeir taki undir með atvinnu-
rekendum og segi verðbætur til handa laun-
þegum verðbólguhvetjandi og því óæskilegar.
Því verður ekki trúað að óreyndu að Svavar
Gestsson og co taki undir með Þorsteini Páls-
syni, atvinnurekendum og íhaldinu og kenni
launum verkafólks um hraða verðbólgunnar.
Þessir samningar verða langt f rá þvf átaka-
lausir og það verður grannt fylgst með því,
hvort forystumenn Aiþýðusambandsins úr Al-
þýðubandalaginu, fylgi nú eftir hinum stóru
orðum og berjist til sigurs í komandi samn-
ingagerð, eða hvort þeir lúffi fyrir stjórnar-
herrunum og semji upp á eitthvað smotterf til
skamms tíma — svona til að gefa ráðherrum
Alþýðubandalagsins frið í ríkisstjórninni.
Launafólk mun hins vegar fylgjast vel með
framgangi forystumanna ASI í samn-
ingunum. Eftir að skyndilega var klippt á
þráðinn s.l. haust og samningum i raun
frestað fram á vorið, þá töluðu verkalýðsfor-
ingjarnir um það, að átakspunkturinn hefði
aðeins verið færður um nokkra mánuði. Nú
eru þessir mánuðir liðnir og því skulu verka-
lýðsleiðtogarnir standa við stóru orðin, og ekki
standa upp frá samningaborðum, fyrr en
hagur launafólks hefur verið tryggður.
Kröfur ASí eru þær helstar, að grunnkaup -
hækki um 13% á tveggja ára tímabili og að
verðbætur á laun verði óskertar. Þetta hljóta
að teljast hófsamar og sanngjarnar kröfur,
ekki sfst þar sem vísitölubætur á laun hafa alls
ekki náð að fylgja verðþróun i landinu, bæði
vegna gallaðs vísitölukerfis og einnig vegna
þess hve mörgum mikilvægum þáttum hefur
verið kippt út úr verðbótavfsitölunni.
Launafólk í landinu þarf að leggja á sig
ómælda yf irvinnu til að endar nái saman. At-
vinnureksturinn í landinu er að sönnu ekki sér-
staklega blómlegur um þessar mundir, en ekki
verður þess þó vart að fyrirtæki hrökkvi upp
af ístórum stíl. Fyrirtæki á Islandi fara nefni-
lega helst ekki á hausinn. Pilsfaldakapítal-
isminn, sem þýðir það, að óstöndug fyrirtæki
hlaupa undir pilsfald ríkisvaldsins þegar á
bjátar, sér svo um að atvinnureksturinn
rúllar. Oll fyrirtæki eru ekki jafn vel rekin.
Því væri auðvitað eðlilegast að skussafyrir-
tækin fengju að sigla sinn sjó. En samtrygg-
ingin er svosterk meðal vinnuveitenda. Það er
sett pressa á hið opinbera. Það iátið punga út
lánum, jafnvel óafturkræf um eða styrkjum af
ýmsum tegundum og stærðum til að bjarga
fyrirtækjum fyrir horn. Barlómur atvinnu-
rekenda verður þvf hjóm eitt við þessar að-
stæður.
Það er því ekkert í veginum fyrir því, að
samtök verkafólks sæki af fullum krafti sjálf-
sagðan rétt sinn í komandi kjarasamningum.
Verkalýðsforingjarnir skulu vita það, að
launaf ólk í landinu mun ekki sætta sig við, að
bera skarðan hlut frá borði. Það mun ekki
gefa eftir eðlilegar grunnkaupshækkanir til
þess að núverandi ríkisstjórn geti lifað eitt-
hvað lengur.
Ásmundur og co skulu þvi brýna vopnin.
— GÁS.
Rektorskjör 2. apríl
Kjör rektors Háskóla Islands
fer fram föstudaginn 2. april nk.,
en nýkjörinn rektor tekur við
störfum með byrjun næsta
háskólaárs.
Rektor er kjörinn til þriggja
ára i senn, og eru skipaðir
prófessorar einir kjörgengir.
Atkvæðisrétt eiga prófessorar,
dósentar og lektorar og allir þeir
sem fastráðnir eru eða settir til
fulls starfs við háskólann og
stofnanir hans og hafa
háskólapróf.
Þá eiga allir stúdentar, sem
skrásettir eru i Háskóla íslaiiás
tveim mánuðun á undan reKiors-
kjöri, atkvæðisrétt. Greidd at-
kvæði stúdenta gilda sem einn
þriðji hluti greiddra atkvæða alls.
Á kjörskrá verða því um 300
kennarar og aðrir starfsmenn, en
um 3.600 stúdentar, eða samtals
um 3.900 manns.
Kosningarnar munu fara fram i
aðalbyggingu Háskóla íslands og
stendur kjörfundur yfir frá '
— 18.
Háskólaráð hefur skipað
kjörstjórn til að annast fram-
kvæmdkosninganna og eiga sæti i
henni sex menn, þar af tveir úr
hópi stúdenta. Formaður kjör-
stjórnar er Einar Sigurðsson
hásk óla bóka v örður.
Tilboð óskast i eftirfarandi bifreiðar, sem verða til sýnis
þriðjudaginn 23. mars 1982 kl. 13 — 16 i porti bak við skrif-
stofu vora að Borgartúni 7:
Volvo 244 DL fólksbifreið árg. '79
Volvo 144 fólksbifreið » » ’71
Mercury Comet fólksbifreið ) » ’77
Toyota Cressida fólksbifreið » » ’79
Toyota Cressida fólksbifreið ’ ’ ’78
Mazda 323fólksbifreið ) » ’78
LandRoverdiesel » ) ’77
Land Rover diesel » » ’75
LandRover diesel » » ’74
Land Rover diesel ” ’73
Volkswagen Double Cab pick-up »i ’75
Ford Escort sendiferðabifreið »» ’72
Gaz 69torfærubifreið ” ’78
U.A.Z. 469B torfærubifreið »» ’80
U.A.Z. 452 torfærubifreið »» ’77
Toyota Hi Ace sendiferðabifreið »» ’74
Chevrolet Suburban 4x4 »» ’77
Scania LS-llOvörubifreið »» ’72
Evenrude 16 Hö vélsleði »» ’68
Til sýnis hjá Flugmálastjórn Akureyrarflugvelli
Caterpillar D-7 jarðýtá »» '62
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30, að viðstöddum
bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum, sem
ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Samvinnuskólinn
BIFRÖST
SKÓLI
FYRIR
ÞIG?
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 10. JÚNÍ
Umsóknareyðublöð fást í kaupfélögum, Fræðslu-
deild Sambandsins, fræðsluskrifstofum og ýmsum
skólum.
Í|| ÚTB(
Tilboð óskast f að Ieggja ,
veitu Reykjavikur
Tilboðin verða afhent á skr
gegn 1500 kr. skilatryggin
Tilboðin verða opnuð á sa
n.k. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN I
Fríkirlquvégi 3
LANDSPÍTALINN
SÉRFRÆÐINGUF
við svæfinga- og
spitalans.
Upplýsingar er gi
fyrri störfum send:
spitalanna fyrir 7.
Upplýsingar veitir
i sima 29000.
SKURÐSTOFUH
INGUR óskast á
ans. Vinnutimi frá
daga i viku. Einni^
FRÆÐINGURá \y
Hlutastarf kemur
Upplýsingar um <
hjúkrunarforstjóri
Reykjavik, 21. mar
RÍKISSPÍTALARP