Alþýðublaðið - 03.04.1982, Blaðsíða 2
2
Laugardag
Líf eða dauði
Dauði miðbæjarins er alþjóðlegt sjúkdómseinkenni
stórborga samtímans. Miðbærinn er gjarnan elzti
borgarhlutinn, þar sem fornar og virðulegar bygg-
ingar segja sögu samfélagsins. En gatnakerf i er yf ir-
leittekki miðað við umferðarþarf ir nútímans. Þar er
hörgull á bílastæðum. Lóðaverð og fasteignaskattar
eru háir. Endurbyggingarkostnaður mikill og seina-
gangur á f ramkvæmdum. Oft endar þetta með því, að
fyrirtæki, stofnanir og starfsemi þrífast ekki í mið-
bænum. Fólk og fyrirtæki leggja á flótta út í út-
hverfin. Eftir stendur niðurnítt slömm. Þetta hafa
orðið örlög miðbæjarins í flestum borgum Ameriku.
Miðbærinn, hjarta borgarinnar, hættir að slá. Hann
breytist í niðurnítt slömm, þar sem Mafían tekur
völdin og klámið og eiturlyfin verða aðalatvinnuveg-
urinn. í staðinn teygja syf jaðar svefnborgir anga sina
út urn allar trissur.
Á ráðstef nu um atvinnulíf ið og höf uðborgina — lif-
andi miðbæ— sem haldin var nýlega að Hótel Borg að
tilhlutan Verzlunarráðsins, var sýnt f ram á, að sömu
sjúkdómseinkenni gera vart við sig í Reykjavík. Mið-
bær Reykjavíkur erdeyjandi bær. Hann er aðeins með
lífsmarki að degi til virka daga kl. 9—5. Þegar kvölda
tekur, breytist hann í Hallærisplan misskilinnar æsku.
Hvers vegna? Astæðurnar eru margar. Ein er sú að
höfundar aðalskipulags Reykjavíkurborgar
1962—1983 týndu miðbænum út úr skipulaginu. Þeir
dæmdu miðbæinn til dauða. f staðinn vildu þeir búa til
nýjan miðbæ við Kringlumýrarbraut. Nú eru tveir
áratugir þessa aðalskipulags liðnir. Það bólar ekkert
á nýja miðbænum, enda verður hann ekki búinn til
með reglugeró og reglustriku. I staðinn hefur eðlileg
miðbæjarstarfsemi teygt sig frá Grjótaþorpi að
Grensásvegi og út um allar trissur. En allan þennan
tíma hef ur miðbænum haldið áf ram að blæða út. Fólki
hefur fækkað og fyrirtæki hafa f lúið. Það er að verða
ógerningur að reka erindi í miðbænum vegna um-
ferðaröngþveitis.
Eigendur húsa i miðbænum eru fangar eigna sinna.
Heimild fæst ekki til niðurrifs og endurbygging er
óframkvæmanleg vegna óhagkvæmni og óvissu í
skipulagsmálum, eða opinberra kvaða. Kvaðir um
bílastæði með nýbyggingum stórhækka byggingar-
kostnað, en leysa ekki umferðarmál. Lóðamat í
miðbænum er það langhæsta i allri borginni. Fast-
eignaskattar eru himinháir á verðlausu og ónýtanlegu
húsnæði. Reykjavíkurborg leggur 25% álag á fast-
eignagjöld atvinnuhúsnæðis. Það gera nágranna-
sveitarfélögin ekki. Þegar saman fer skipulagsleysi,
óraunhæft lóðamat, himinhá fasteignagjöld, og hvers
kyns kvaðir, sem útiloka endurbyggingu og hag-
kvæman rekstur, má Ijóst vera, að stefna borgaryfir-
valda er að drepa miðbæinn. Allir stjórnmálaf lokkar
eru samsekir. Þessari þróun verður að snúa við. Mið-
bærinn er hjarta Reykjavíkur. Lifandi miðbær á að
vera hjartans mál allra Reykvikinga.
Borgaryf irvöld eiga að gleyma röngum áformum
um líffæraf lutning í Reykjavík. Hjarta borgarinnar á
að vera á sínum stað: I kvosinni. Þar á allt að vera
sem glæðir miðbæinn iðandi lifi: Ys og þys hafnar-
innarog miðstöðf jármála og viðskipta: Þar á að vera
þinghús, ráðhús, dómkirkja og höf uðstöðvar blaða- og
bókaútgáfu. Þar eiga að vera leikhús, ópera, tónleika-
salir, bókasöfn og listasöfn. Þar á að vera urmull veit-
ingastaða af öllum stærðum og gerðum, kaffihús,
krár, almenningsgarðar, útilaugar og útivistarsvæði.
Þar eiga að vera stórmarkaðir og urmull smáverzl-
ana, ekki sízt bókaverzlanir, sem bjóða andlega
þyrstu fólki upp á kaffi og með því.
Við viljum ekki slömm i miðbæ Reykjavíkur. Við
viljum lifandi miðbæ. Borgarstjórn Reykjavíkur:
Vinsamlegast skilið aftur miðbænum sem týndist í
aðalskipulaginu. —JBH
Akureyrarbær
Útboð
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri óskar
eftir tilboðum i byggingu brúar á Glerá á
Hliðarbraut. útboðsgögn verða afhent á
skrifstofu bæjarverkfræðings gegn 1000
kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sama stað og verða
þau opnuð fimmtudaginn 29. april 1982 kl.
11.00 f.h.
Bæjarverkfræðingur _
LAGERSTJÓRI
Innflutningsdeild Sambandsins Holta-
görðum óskar eftir að ráða lagerstjóra
sem fyrst. Starfið felur i sér meðal annars
yfirstjórnun á tölvustýrðum lager og eftir-
lit með bónuskerfi.
Leitað er að manni með góða stjórnunar-
hæfileika og æskilegt er að viðkomandi
hafi reynslu á þessu sviði. Skriflegar um-
sóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist starfsmannastjóra fyrir
15. þ. mán. er veitir nánari upplýsingar.
SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALD
gll
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i hjólbarða, slöngur og borða fyrir Strætis-
vagna Reykjavikur og Vélamiðstöð Reykjavikur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3,
tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 12 maí
1982. kl. 11. f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Útboð
Tilboð óskast i að steypa upp frá botn-
plötu og fullgera að ulan 2 hús i Tungudal
við Isafjörð. Heildarstærð húsanna er
3.034 rúmm.
Útboðsgagna má vitja hjá Magnúsi Reyni
Guðmundssyni, Bæjarskrifstofunum á
ísafirði og á Teiknistofunni óðinstorgi,
Óðinsgötu 7, Rvik gegn 2.000,00 kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð hjá Magnúsi Reyni
Guðmundssyni, föstudagirin 23. april kl.
11:00.
Svæðisstjórn Vestfjarðasvæðis
um málefni þroskaheftra
og
Bygginganefnd Styrktarfélags
vangefinna Vestfjörðum.
Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum i
gerð bundins slitlags á Norðurlandsvegi i
Hrútafirði, Hrútafjarðarhálsi, i Vatnsdal
og um Laxá á Ásum og á Skagastrandar-
vegi um Vatnahverfi. Helstu magntölur
eru eftirfarandi:
Fylling 21000 rúmmetrar
Tvöföldklæðning 120000 fermetrar
Verkinu skal að fullu lokið eigi siðar en 1.
september 1982.
Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjald-
kera Vegagerðar rikisins, Borgartúni 5,
Reykjavik, frá og með miðvikudeginum 7.
april n.k. gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Fyrirspurnir ásamt óskum • um upp-
lýsingar og/eða breytingar skulu berast
Vegagerð rikisins skriflega eigi siðar en
16. april.
Gera skal tilboð i samræmi við útboðs-
gögn og skila i lokuðu umslagi merktu
nafni útboðs til Vegagerðar rikisins,
Borgartúni 7,105 Reykjavik, fyrir kl. 14:00
hinn 20. april 1982, og kl. 14:15 sama dag
verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum
þeim bjóðendum, sem þess óska.
Reykjavik, i april 1982.
Vegamálastjóri
LAND
i se
og
stöi
n.k
2901
frá
stör
frá
til
inga
legt
A
n.