Alþýðublaðið - 01.07.1982, Page 1
Fimmtudagur 1. júlí 1982
96. tbl. 63. árg.
Alþýðublaðið spyr Steingrim Hermansson:
Að dreifa byrðunum — Hvað er
skattlagning?
í sjónvarpsfréttum á þriöju-
dagskvöld var Steingrimur Her-
mannsson sjávarútvegsráö-
herra spurður hvort ráöstafanir
hans tii bjargar útgerðinni —
skattatilfærslur, niðurgreiðsla á
oliu og fleiri hugsanlegar bráða-
birgðaráðstafanir boðuðu ekki
skattlagningu á almenning til að
halda útgerðinni á floti.
Nei, sagði Steingrimur Her-
það annað en
mannsson. Það á ekki að skatt-
leggja almenning. bað á að
dreifa byrðunum. Nú spyr Al-
þýðublaöið: Hvernig er hægt að
dreifa byrðunum án þess að ein-
hver borgi?
FORKASTANLEGT AÐ
SEMJA UM VÍSITÖLU
SKERÐINGU LAUNA
— segir Pétur Sigurðsson,
formaður ASV
„Það er forkastanlegt að
verkalýðshreyfingin skuli semja
um visitöluskerðingu eins og nú
hefur verið gert”, sagði Pétur
Sigurðsson, formaður Alþýðu-
sambands Vestfjarða.i viðtali við
Alþýðublaðið i gær. Tilefnið er
nýgerðir kjarasamningar ASl og
vinnuveitenda, sem undirritaðir
voru i fyrrinótt og kveða á um 3%
visitöluskerðingu 1. sept. n.k.
Þetta er hrikalegt fordæmi, sem
forkólfar Alþýðusambandsins
hafa gefið og ég tel.að þetta hefðu
þeir varla gert fyrir nokkra aðra
en þá rikisstjórn sem nú situr.”
Þú telur þá að þetta séu ekki
góðir samningar?
Góðir samningar! Það hljóta að
vera afskaplega góðir samning-
ar, sem vinnuveitendur með bor-
stein Pálsson i fararbroddi eiga
frumkvæði að. Það hljóta að vera
óskasamningar, sem þessir aðil-
ar er nú ráða ASl og forystumenn
vinnuveitenda verpa i samein-
ingu.Égverðað segja það alveg
eins og er, að samningarnir eru
búnir að vera eitt samfellt grimu-
ball frá upphafi. I byrjun eru sett-
ar fram kröfur sem eiga að dekka
vilja félagsmanna, en enginn hef-
ur kannað hvort vilji er raunveru-
lega til að standa við. Siðan er
samið upp á brot af þessum kröf-
um og svo ætlast menn til að
hrópað sé húrra fyrir þessu öllu.
Hvernig er það hægt? spyr ég.
Þú telur þá að tölurnar hafi
verið samþykktar á æðstu stöð-
um?
Er einhver vafi á þvi? Ég get
ekki séð, að þessir samningar séu
einhver óskadraumur verkafólks,
þar sem fiskvinnslufólkið og þeir
sem vinna við frumvinnslu sjáv-
arafla verða áfram á botninum.
Og hvað með visitöluskerðing-
una?
Já, visitöluskerðingin, sem
verkalýðsforystan semur yfir sig
þarna, er það langalvarlegasta
við þessa samninga. bað er for-
kastanlegt að verkalýðshreyfing-
in skuli hafa léð máls á þessu.
Maður stendur gjörsamlega mál-
laus gagnvart þessu atriði. bað
verður þokkalagt fyrir þessa
menn i framtiðinni að hafa þetta
fordæmi hangandi yfir sér. Ég hef
ekki trú á þvi að þetta hefðu þess-
ir ágætu herrar gert fyrir nokkra
rikisstjórn aðra en þá sem nú sit-
ur. En hinum talnavisu sérfræð-
ingum sem stýra samningum
virðist greinilega hafa tekist að
telja ASI menn á að þetta væri
eina leiðin. Á móti þessari skerð-
ingu koma siðan starfsaldurs-
hækkanir, sem mér sýnast nýtast
einna helst þeim félögum sem
hafa verið lengi i starfi. Þetta
þýðir það, að fiskvinnslufólkiö og
þeir sem vinna t.d. við úrvinnslu
sjávarafla fá ekki þessar hækk-
anir, þvi að þeir hafa fæstir lang-
an starfsaldur. Hvað þýðir þetta?
Þetta þýðir það m.a. að lægstu
launin verða áfram eins og þau
Pétur Sigurðsson :.... Þessir
samningar eru enginn óska-
draumur verkafólks, heldur eru
þeir viðurkenning Alþýðusam-
bandsins á þvi sem vinnuveitend-
ur og Þorsteinn Pálsson hafa ver-
iö að segja allan timann.
voru. Menn hafa talað um að lyfta
lægstu Iaununum alla þessa
samningagerð. En þegar upp er
staðið er það eins og sumir fara
með faðirvorið, það er mælt af
vörum fram án þess að nokkur
meining liggi þar að baki. Þetta
þýðir einfaldlega óbreytt ástand,
og þá spyr ég: Til hvers voru
menn eiginlega að þessu? Lág-
launafólkið situr áfram á botnin-
um.
Og menn tala um niðurlúta
verkalýðsleiðtoga?
Já, þessir samningar eru ekki
til þess fallnir að hrópa húrra fyr-
ir þeim. Visitöluskeröingin er
stóralvarlegt mál, sérstaklega ef
við höfum það i huga, að við búum
við svinfalsaða visitölu fyrir, sem
hvergi liðst nema i einræöisrikj-
um. Þessir samningar eru að visu
gerðir við erfiðar aðstæður, en
niðurstaða þeirra hlýtur að vera
sú, að verkalýðshreyfingin er
með þeim að viðurkenna nánast
öll rök Þorsteins Pálssonar og
vinnuveitenda frá siðustu vikum.
Það hlýtur aö teljast aum niður-
staða af margra vikna brölti.
„Mæli ekki með skerð-
ingu verðbóta á laun”
L, ,
m
— segir Kristján
Thorlacius formaður
BSRB
„Ég vii ekki leggja neinn sér-
stakan dóm á þá samninga sem
verkalýðshreyfingin hefur nú
gengið frá við vinnuveitendur,
en hitt get ég sagt, að ég mæli
ekki með þvl að skerða verðbæt-
ur á laun. Það hefur ekki gefist
vel hingað til”. Þetta sagði
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, þegar hann var spurður I
gær álits á nýgerðum kjara-
samningum ASt og VSt.
„Við höfum nýveriö lagt fram
okkar kröfugerö fyrir komandi
samningagerð og þar er við það
miðað, að visitölubætur fari eft-
ir óskertri framfærsluvisitöiu
og verðbætur verði reiknaðar
eftir þeim reglum sem giltu á
árinu 1977 áður en svokölluð
ölafslög gengu i gildi. Kröfu-
gerð okkar miðar þvi að fullum
verðbótum á laun, enda er öll-
um launþegum ljóst hvilikt stór-
tjón þeir biða, sem taka á sig
visitöluskerðingu við núverandi
óðaverðbólgu. Það hefur sýnt
sig, að reglur um óskerta visi-
töiu á laun hafa reynst launa-
fólki happadrýgstar i kjarabar-
áttunni og i raun eina aðhaldið
gagnvart stjómvöldum i verð-
bólgunni. Eg hef margbent á, að
þegar verðbætur hafa verið
taldar niður, þá fer verðbólgan
fyrst af stað. Þannig var það t.d.
á árunum ’74 og ’75. Þá voru
verðbætur skertar en verðbólg-
an hækkaði verulega á sama
tima. Ég mæli þvi ekki með
skerðingu verðbóta.”
En eru ekki líkur á, að nú
verði þessi skerðing látin ganga
yfir linuna, fyrst búið er að ná
henni fram?
„Ég get ekki annaö sagt um
þetta en það, aö við höfum ekki
gert ráð fyrir neinum slikum
skerðingum i okkar kröfugerð.
Samningar okkar renna út 1.
ágúst og ég vil ekki leggja aö
öðru leyti dóm á þetta. Þessi
skerðing kemur að sjálfsögðu
ekki til framkvæmda hjá okkar
fólki. Við höfum einnig lagt á
það áherslu, aö nýr visitölu-
grundvöllur komi til fram-
kvæmda i komandi samning-
um.”
IÍR EINU
Samningar ASÍ og VSÍ hljóða upp á 4% hækkun grunnkaups nú
og svo 3% skerðingu 1. september:
Samið um óbreytt ástand
Ekki samningar
„til að hrópa
húrra fyrir”
— Láglaunafólkið
ennþá á
botninum
— ASÍ semur um
krukk í
verðbætur
launafólks
Eftir tveggja mánaða samn-
ingaþref náðust loks samningar
á miili Alþýðusambands Islands
og Vinnuveitendasambands Is-
lands i gærmorgun. Samning-
arnir taka gildi frá og með deg-
inum i dag, 1. júli og gilda til 1.
september á næsta ári, eða i 14
mánuði. Helstu atriði samn-
ingsins eru þau, að nú þegar
hækka grunnlaun um 4% en á
móti kemur visitöluskerðing á
verðbætur um tæp 3% þann 1.
september i haust. Þá munú
öll starfeheiti hækka um einn
launaflokk um næstu áramót. 1
samningunum eru einnig
nokkrar starfsaldurshækkanir.
Þá má geta þess að til viðbótar
3% skerðingunni 1. september
næstkomandi munu ákvæði
Ólafslaga einnig gilda til skerð-
ingar, en þau taka mið af við-
skiptajöfnuði landsmanna.
Það vekur talsverða athygli
að launþegahreyfingin skuli
nú ganga til samninga á þeim
grundvelli, að verðbætur á laun
skerðist sjálfkrafa á samnings-
timanum. Þar með viðurkennir
verkalýðshreyfingin að vel
megi höggva á launin þegar á
bjátar i þjóðfélaginu. Verð-
bæturnar hafa verið einasta
vörn launafólks gegn þeirri óða-
verðbólgu sem geisar og þeim
verðhækkunum sem dynja yfir
látlaust. Með þessum samn-
ingum hefur ASI viðurkennt að
verðbætumar eru ekki heilagar,
þær má skerða ef stjórnvöldum
eða öðrum finnst nauðsyn á
sliku. Það má minna á, að i tið
hægri stjórnar Geirs Hallgrlms-
sonar 1977 urðu miklar deilur
vegna þeirrar ákvörðunar rfkis-
stjórnar Geirs að skerða
verðbætur á laun. Verkalýðs-
hreyfingin.Alþýöuflokkur og Al-
þýðubandalag gagnrýndu þá
þær aðfarir ihalds og fram-
sóknar og má fullyrða að kosn-
ingasigur A-flokkanna nokkrum
mánuðum siðar hafi orðið til
vegna óánægju launafólks með
aðgerðir rikisstjórnarinnar i
þessum efnum.
öllum er ljóst að verðbætur á
laun hafa ekki fylgt eftir fram-
færsluvisitölunni, þannig að
launþegar bera skarðan hlut frá
borði miðað við verðlagsþróun i
landinu. Þá hefur rikisstjórnin
einnig leikið þann leik að
herða á niðurgreiðslum land-
búnaðarafurða, sem vega mjög
þungt I visitölunni, miklu
þyngra en raunveruleg neysla
segir til um, og þannig skert
verðbætur. Að öllu samanlögðu
hefur þvi visitölukerfið þurft
uppstokkunar við og lagfæringa
til að rétta hag launafólks.
Engu að siður hefur verðbóta-
kerfið á þriggja mánaða fresti
Framhald á bls 3.
Asmundur Stefánsson og Þor-
steinn Pálsson á fyrsta viðræðu-
fundi ASl og VSl i þeirri samn-
\ ingalotu sem lauk f gær. Á
^ myndinni er Þorsteinn bros-
fcl mildur, en Ásmundur heldur
W þyngri. Þessi svipbrigði hafa
Jf ekki breyst i rás samninganna.
Frekar að bros Þorsteins hafi
breikkað. Slikir eru þeir samn-
ingar sem nú hafa verið gerðir
milli ASÍ og VSl. .
I ANNAÐ