Alþýðublaðið - 01.07.1982, Qupperneq 2
2
'RITSTJÓRNARGREIN'
Fimmtudagur 1. júlí 1982
ÍSLAND OG UMHEIMURINN
A fróðlegri ráðstefnu Lífs og lands um
efnið: ,,Maður og stjórnmál'', flutti Magnús
Torfi Ólafsson það erindi, sem hvað mesta
athygli vakti. Umpæðuefni Magnúsar Torfa
var fsland og umheimurinn. Magnús Torfi
hef ur um langt skeið ritað um erlend stjórn-
mál af meiri þekkingu og gerhygli en aðrir
menn. Hann var í mörg ár erlendur frétta-
skýrandi Þjóðviljans og á þeim árum ein-
dreginn talsmaður hlutleysisstefnu í utanrík-
ismálum. Hann gerðist síðar ráðherra og
formaður Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna en afstaðaþeirratil varnarsamstarfs
lýðræðisríkjanna og nauðsynjar landvarna á
íslandi, var vægast sagt reikul og óljós. Með
hliðsjón af því vöktu niðurstöður Magnúsar
Torfa í umræddu erindi verðskuldaða at-
hygli. Hann tekur afdráttarlausa afstöðu
með nauðsyn varnarviðbúnaðar i landinu og
þáfttöku erlends áhættuf jármagns í íslenzkri
iðnþróun. En þetta eru þau tvö helztu ágrein-
ingsefni, sem uppi eru með þjóðinni í utan-
ríkismálum. Rökstuðningur Magnúsar Torfa
fyrir afstöðu sinni er ekki síður athygli verð-
ur. Hann sagði:
„( síðari umræðum og deilum um þær á-
kvarðanir í íslenzkum utanríkismálum, sem
teknar voru á árunum 1945-1951, er einatt
gengið fram hjá því, viljandi eða óviljandi,
að landsmenn skiptust ekki aðeins í tvo
flokka heldur þrjá i afstöðunni til beiðni
Bandaríkjastjórnar (um herstöðvar á Islandi
til 99 ára 1945). Ferðinni réðu hvorki þeir sem
segja vildu þvert nei, né hinir sem f úsir voru
að játa ósk Bandaríkjamanna um að gera Is-
land að Hawaii Norður-Atlantshafsins, held-
ur var það hópurinn í miðjunni sem mótaði
afstöðu íslenzkra stjórnvalda, þeir sem töldu
rétt að heimila Bandaríkjamönnum hernað-
araðstöðu á landinu, en hvorki um ófyrir-
sjáanlega framtíð né ásamt afsali íslenzkra
landsréttinda. Af þessari afstöðu markast
Keflavíkursamningurinn, yfirlýsingin af Is-
lands hálfu við gönguna í Atlantshafsbanda-
lagið og núgildandi varnarsamningur."
Ennfremur segir Magnús Torfi:
„Fámennri þjóð í strjálbýiu landi, sem
byggir blett á hnettinum, þannig i sveit sett-
an, að aðstaða þar getur skipt sköpum f hern-
aðarátökum, er háskalegt að skiptast í harð-
snúnar, andstæðar fylkingar f afstöðu til
utanríkismála. Eins og nú er komið, ekki síst
eftir tiðindin sem eru að gerast á Suður-At-
lantshafi, getur enginn sem vill láta taka sig
alvarlega haldið því fram, að sjálfstætt, ís-
lenzkt riki geti komizt af án öryggisgæzlu og
viðbúnaðar. Spurningin er ekki, hvort örygg-
isráðstafana sé þörf gagnvart umheiminum,
heldur hvernig þeim ber að haga."
Þá segir Magnús Torfi:
„Ekki fer milli mála að þróun eldflauga-
tækni, geimtækni og neðansjávartækni f
hernaðarskyni á síðustu árum hefur aukið
hernaðarþýðingu islands. Þjóðsem er aivara
að varðveita sjálfstæði sitt til frambúðar
getur ekki leitt hjá sér að fylgjast kerfis-
bundið af sérþekkingu með framvindunni á
þessu sviði. Skjóti íslenzka þjóðin sér undan
því að f jalla um öryggismál landsins af al-
vöru, vegna þess að framkvæmd þeirra hef-
ur um skeið verið falin öðru rfki, er hún
dæmd til að glopra úr höndum sér raunveru-
legu sjálfstæði."
I framhaldi af þessari röksemdafærslu
segir Magnús Torf i miklu skipta, „að islend-
ingar sjálfir fylgist sem bezt með því, sem
aðrir aðhafast í þeirra eigin landi í nafni ís-
lendinga og á íslenzka ábyrgð." Þetta þýði að
þörf sé íslenzkra manna í islenzkri þjónustu
með þá þjálf un og sérþekkingu sem með þarf
til að geta fylgzt náið með þvf sem fram
vindur í öryggismálum og til að veita íslenzk-
um stjórnvöldum sérfræðilega ráðgjöf. Þar
með væri kominn upp með þjóðinni kjarni
hæfra manna, svo unnt verði að færa í fs-
lenzkar hendur öryggisgæzlu og viðbúnað í
landinu og umhverfis það, þegar íslenzk
stjórnvöld telji að ytri aðstæður hafi skipast
þannig, að unnt sé að draga úr eða hverfa f rá
erlendri aðild að þvf verkefhi.
Sú mikla umræða, sem nú fer fram
beggja vegna Atlantshafsins, um nauðsyn
þess að stöðva og draga úr kjarnavopnavíg-
búnaði risaveldanna, styðst við ærin rök:
Ottann við allsherjartortímingu í gereyðing-
arstríði og endalok líf s á þessari plánetu, ef
til slíkrar styrjaldar kemur. I þeim umræð-
um greinir menn einkum á um, hvort ein-
hliða af vopnun annars aðilans dregur úr eða
eykur líkur á valdbeitingu og hernaðarátök-
um. Barátta fyrir gagnkvæmum samdrætti
kjarnavígbúnaðar og samningum risaveld-
anna um afneitun á slíku stríði, er að sjálf-
sögðu jákvæð. Hún breytir hins vegar engu
um nauðsyn lýðræðisríkjanna f yrir samstöðu
og sameiginlegt öryggiskerfi. Hún breytir
heldur engu um það, að „sjálfstætt, íslenzkt
ríki getur ekki komizt af án öryggisgæzlu og
viðbúnaðar", eins og Magnús Torfi segir.
Spurningin er ekki, hvort slíkra öryggisráð-
stafana sé þörf, heldur hvernig þeim beri að
haga. — JBH
Guatemala
dýra málma; nikkel, kopar og
úranium og einnig eru oliu-
lindir, sem gefa af sér talsvert
fé. Þannig má færa rök fyrir
þvi, að Guatemala sé frábrugöið
hinum löndunum á marga visu.
Ef fjallað er um ibúana sér-
staklega þá stendur upp úr sú
staðreynd, að meira en helm-
ingur þeirra er af Indjánaætt-
um. Þeim hefur veriö ýtt til
hliðar eins og fram hefur komið
áður. Það er ekki fyrr en á
seinni árum að þeir hafa komið
af fullum þunga inn i hina póli-
tisku baráttu. Auðfólk i landinu
hefur ætið notað Indjánana sem
ódýrt vinnuafl.
Úm 2% ibúa i Guatemala
njóta 80% teknanna af auðlind-
um landsins. Megin keppikefli
stjórnkerfisins hefur verið það
að berja á kommúnistum og
skapa „takmarkað” lýðræði.
Við höfum kosningar á fjögurra
ára fresti og skiptum þá um for-
seta en forsetinn kemur alltaf úr
röðum herforingjanna. A sið-
ustu árum hafa herinn og auð-
menn sameinast um það að
halda völdum og þeir hafa
myndað nýja stétt. Yfirmenn
Staða forstöðumanns
viö nýtt skóladagheimili i Breiðagerðis-
skóla er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt kjarasamningi borgar-
starfsmanna.
Upplýsingar veitir skólastjóri i sima 11941
i dag og á morgun frá kl. 16 — 18.
Umsóknir sendist fræðsluskrifstofu
Reykjavikurborgar, Tjarnargötu 12, fyrir
10. júli n.k.
Skólastjóri
4
hersins hafa auðgast á þvi að
nota almannafé og meö við-
skiptasamningum við opinbera
aöila.
Sumir halda þvi fram að her
Guatemaia sé sá best vopnum
búni i Mið-Ameriku og kunni að
ráðast inn í Ei-Salvador ef þar
verða stjórnarskipti?
Það er rétt, að herinn i Guate-
mala er sá best vopnum búni,
tæknilega best þróaður og
jafnframt öflugasti her i
Miö-Ameriku. Þeir komu So-
mosa til aðstoðar hér áður
fyrr og við vitum aö nú leggja
þeir stjórn E1 Salvador lið. Þeir
hafa einnig góð samskipti við
herinn i Hondúras og stjórnvöld
þar i landi. Þeir vinna ötuilega
að þvi að koma hugmyndum
sinum á framfæri i nágranna-
rikjunum. Það getur leitt til
versnandi samskipta við ná-
grannalöndin þegar fram i sæk-
ir.
Þ
Uusar kennarastöður
Nokkrar kennarastöður við Fjölbrautaskólann á Sauðár-
króki eru lausar til umsóknar, kennslugreinar: stærð-
fræði, eðlisfræði, islenska, danska, enska, saga og sér-
greinar tréiðna.
Nánari upplýsingar gefur Jón Hjartarson skólameistari.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 10. júli n.k.
Menntamálaráðuneytið
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavikur held-
ur félagsfund að Hótel Sögu, Súlnasal, i
kvöld, fimmtudaginn 1. júli 1982, kl. 20.30.
Dagskrá: Nýir kjarasamningar
Verzlunarmannafélag Reykjavikur
FARPANTANIRog FARGJÖLD
innanlandsflug
millllandaflug
FLUGLEIÐIR
Við bendum viðskiptavinum okkar á að kynna sér nýju númerin á bls. 78 í símaskránni. Gott fólk hjá traustu félagi
26622
25100