Alþýðublaðið - 18.12.1982, Side 4
atlþýðu-
blaöió
Laugardagur 18. desember 1982
Útgefandi: Alþýöufiokkurinn.
Kramkvæmdastjóri: Jóhannes GuOmundsson
Stjórnmálaritstjóri og ábm. GuOmundur Arni Stefánsson.<
Blaöamaöur: Þráinn Hallgrim'sson.
Gjaldkeri: Haildóra Jónsdóttir.
jDreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson.
Kitstjórn og augiýsingar eru að Siöumúla 11, Reykjavik, simi 81866.
Askriftarsíminn
er 81866
HraiV.kell Ásj eirsson var fulltrúi
Alþýðullokksins fyrri hluta • 37.
þings Snmcinuðu þjóðanna. Al-
þýðublaðið halði samband við
hann og spurði hvað efst hefði verið
á baugi þann tíma sem hann sat
þingið.
„Þegar ég var þarna var efst á
baugi í 4. nefndinni, eða
„nýlendunefndinni“, sem ég átti
sæti í, málefni Falklandseyja,
Austur-Tímor, Vestur-Sahara og
svo sjálfstæði Namibíu, en auðvit-
að komu mörg önnur ntál til um-
ræðu.
gala og tillagan athyglisverð fyrir
þá sök út af fyrir sig. Aðeins fjögur
Evrópuríki greiddu tillögunni at-
kvæði: Portúgal, írland, Grikkland
og svo Island.
Af öðrum nefndum má nefna að
í þriðju nefndinni svo kölluðu var
mikið fjallaö um jafnréttismál og
flutti þar íslenski fulltrúinn ræðu
fyrir hönd Norðurlandanna, lýsti
þróun jafnréttismála í þeim lönd-
um og talaði mjög fyrir auknu jafn-
rétti kynja á milli.
Á öörum vettvangi voru af-
vopnunarmálin mikið til umræðu
„Mjög lærdómsrík reynsla”
Rætt við Hrafnkel Ásgeirsson, sem sat fyrir hönd Alþýðuflokksins
fyrri hluta 37. þings Sameinuðu þjóðanna
Falklandséyjadeilan var auðvit-
að mjög ofarlega í umræðunum og
greinilegt að Argentínumenn
lögðu mikið kapp á að konra sinni
stefnu á framfæri, því þeir sendu á
þingið sinn utanríkisráðherra,
meðan aðrir létu sendiherra sína
duga. Þaö er allt saman kunn saga,
en hitt hefur síður komist í hámæli,
að Island greiddi atkvæði nteð til-
lögu Portúgals og fleiri ríkja um að
Austur-Tímor yrði veitt sjálfstæði,
en það er nú innan Indónesíu.
Þetta er fýrrverandi nýlenda Portú-
sem og Apartheid stefnan í S-
Afríku. Almennt voru flest öll rík-
in á móti þeirri stefnu sem von er,
en deildar meiningar voru uppi um
orðalag á tillögu þeirri sem átti að
leggja fyrir. Voru mörg ríkin rnjög
róttæk í stefnu sinni, en almennt
voru Norðurlöndin hógværari og
höfnuöu alfarið lausn er byggði á
hervaldi.
Allt saman var þetta mjög at-
hyglisverð og lærdómsrík reynsla
fyrir mig. Meö mér voru þarna Ás-
geir Pétursson fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, Svava Jakobsdóttir fyrir
Alþýðubandalagið og Stefán Val-
geirsson fyrir Framsóknarflokk-
inn. Yfirleitt hófst hverdagurá því
að við hittumst í sendiráðinu okk-
ar, farið var yfir þau mál sem komu
til kastanna deginum áður og svo
yfir þau mál sem voru á dagskrá
þann daginn. Síðan var farið niður í
Sameinuðu þjóðirnar og stóðu
fundir til kl. 1, en þá kom hié til kl.
3. Eftir það var fundahöldum fram
haldið og stóðu mismunandi langt
fram eftir, eftir því hvaða mál
voru á dagskrá".
Sigurður Þór Guðjónsson skrifar um tónlist:
HASKOLAKORINN
„Hægt er að túlka fyrir fólki
dýpstu hræringar okkar tima”
Tónleikar I láskólakórsins 4. des.
Tónlist eftir Hjálmar II. Ragn-
arsson
Flytjendur: Háskólakórinn,
Dómkórinn, Snorri Sigfús Birgis-
son, Einar Jóhannesson og Mart-
ial Nordeau.
Efnisskrá: Gloria fyrir kór, Róm-
ansa fyrir flautu, klarinett og pí-
ano og Canto fyrir kór.
Háskólakórinn efndi til tón-
ieika í Félagsstofnun stúdenta 4.
des. Þar voru flutt verk eftir
, stjórnanda kórsins Hjálmar H.
Ragnarsson. í upphafi söng
reyndar kór Dómkirkjunnar
undir stjórn Martins H. Friðriks-
sonar Gloria. Og kórinn söng
þessa erfiðu tónlist ágætlega. Þá
léku Snorri Sigfús Birgisson, Ein-
ar Jóhannesson og Martial Nor-
deau rómönsu. Þeir félagar léku
af ntikilli snilld. Og sessunautur
minn, sem var 16 ára, fannst
þetta skemmtilegasta ntúsikin á
tónleikunum. En alir var þetta
eins konar forleikur að helsta
verkinu á efnisskránni sem beðið
var með mikilli eftirvæntingu.
Það var Canto sem sanrið er við
texta úr Gamla testamentinu sem
Þórir Kr. Þórðarson prófessor
tók saman. I efnisskrá tónleik-
anna skrifar prófessorinn eins
konar hugleiðingu um efnivið
þeirra félaga. Er skemmst frá því
að segja að það er einhver há-
fleygasta lokleysa sem ég hef séð á
prenti. Þaö hlýtur að þurfa
gríðarlegan lærdóm og ógnarlega
visku til að skrifa svona með öllu
óskiljanlega. En tónlist Hjálmars
er auðskilin fyrir eyrað og sá texti
sem tónlistin er samin við er
sömuleiðis með fullu skiljanlegur
í sjálfu sér. Sagt er að hörmungar
þjóða úti í heirni hafi legið þungt
á tónskáldinu við samningu þessa
verks. Og mér finnst þessi tónlist
sanna svo ekki verður um villst að
hægt er að túlka fyrir venjulegu
fólki dýpstu hræringar okkar
tíma þegar í hlut eiga menn með
kunnáttu og listhæfni í músik.
Það eru ekki poppararnir sem
endurspegla samtíðina. Þeir eru
merki unt úrkynjun nútímans. En
menn eins og Hjálmar koma við
kvikuna í lífsskynjun okkar tíma:
óttinn, örvæntingin, hatrið og
þjáningin. Hafi tónskáldið og
kórinn margfaldar þakkir fyrir að
minna okkur á í jólaösinni að líf
mannkynsins á jörðunni er þrúg-
að af þjáningu sem er uppspretta
allrar listar og hugsjóna um betri
heim. Sigurður Þór Guðjónsson
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Landspítalinn
Aðstoðardeildarstjóri óskast á sængurkvennagang
22b.
Hjúkrunarfræðingar með Ijósmæðramenntun ósk-
ast á sængurkvennaganga.
Ljósmæður óskast á sængurkvennaganga.
Upplýsingar um ofangreindar stöður veitir hjúkrunar-
forstjóri í síma 29000.
Kleppsspítali
Aðstoðardeildarstjóri óskast á deild I frá 1. mars
1983.
Aðstoðardeildarstjóri óskast á deild XI.
Hjúkrunarfræðingar óskast við hinar ýmsu deildir
spítalans. Fastar vaktir koma til greina.
Uppýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarfor-
stjóri Kleppsspítalans í síma 38160.
Læknaritari óskast á Kleppsspítala og geðdeild
Landspítalans. Stúdentspróf eða sambærileg mennt-
un áskilin ásamt góðri vélritunar- og íslenskukunn-
áttu. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist
Skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 30. desember n.k. Upp-
lýsingar veitir læknafulltrúi Kleppsspítalans í síma
38160 eða skrifstofustjóri geðdeildar Landspítala í
síma 29000.
Starfsmaður óskast í fullt starf við barnaheimili
Kleppsspítala frá 1. janúar n.k. Upplýsingarveitir for-
stöðumaður barnáheimilins í síma 38160.
Kópavogshæli
Sálfræðingur óskast við Kópavogshæli. Umsóknir er
greini menntun og fyrri störf sendist stjórnarnefnd
ríkisspítalanna fyrir 15. janúar 1983.
Upplýsingar veitir yfirsálfræðingur Kópavogshælis í
síma 41500.
Ríkisspítalar
Reykjavík, 19. desember 1982.
Félagi ORÐ tZŒwfm
MATFHIASAR JOHANNESSEN
í þesisari bók, Félagi oró, eru greinar, samlöl og Ijóó frá vmsum
tímum sem höfundur hefur nú safnað saman í eina bók. Sumt af
þessu efni hefur áöur birst á prenii, en annaö ekki. I bókinni eru
greinar um bókmenntir og stjórnmál, og m.a. áður óbirtar frásagnir
af sovésku andófsmönnunum llrodsky, Búkovskv og Rostropovits,
sem allir hafa komiö hingaö til lands, en eru heimsþekktir hver á sínu
sviði. Fjölmargir íslenskir og erlendir menningar- og stjórnmálamenn
koma við sögu í bókinni. Kaflaheitin gefa nokkra liugmynd um
verkið: Af mönnum og málefnum, l'ndir „smásjá hugans" (af
Buekminster Fuller), Rispur, Bréf til Gils (Guðmundssonar fvrrum
alþingisinanns sem vöktu mikla athygli á sínum tíma), Andóf og
öryggi og Vetur á næstu grösum, en þar eru áöur óbirt ljóð Matthías-
ar sem tengjast efni bókarinnar með sérstökum hætti.
ÞJÓÐSAGA
ÞINGHOLTSSTR/ETI 27 — SÍMI 13510