Alþýðublaðið - 05.10.1983, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 05.10.1983, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 5. október 1983 'i\i iduuniMHivunciiv' Að játa á sig vesaldóminn öjálfstæðismenn meö Morgunblaðið í broddi fylkingar, býsnuðust mikið yfir þeirri óvirðingu, sem fyrrverandi ríkisstjórn sýndi þingræðinu í landinu. Voru ófáar þingræðurnar haldnar af þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins vegna þessa máls og ekki voru þær færri forystugreinarnar í Morgun- blaðinu. Þessi hatramma — og um flest réttmæta — gagnrýni Sjálfstæðisflokksins náöi þámarki sínu, þegar umdeild bráðabirgðalög ríkisstjórnar Gurtnars Thoroddsen voru gefin út í ágústmánuði 1982 og ekki lá fullljóst fyrir hvort þingmeirihluti væri fyrir hendi til staöfestingar lögunum. Það voru svo sjálfstæðismenn sjálfir, sem renndu þess- um bráðabirgöalögum framsóknar og Alþýöu- bandalagsins niöur, þegar til kom, með því að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna á Alþingi. Sjálfstæöisflokkurinn leit það einnig mjög alvar- legum augum, að Alþýðubandalagið hefði neitun- arvald í ákveðnum lykilmálum í fyrrverandi ríkis- stjórn. Morgunblaðið og margir þingmenn flokks- ins töluðu um leynisamkomulagið á stjórnarheim- ilínu, þar sem fámennur þingflokkur gæti stöðvað framkvæmdir sem mikill meirihluti þingmanna vildi í gang, s.s. eins og framkvæmdir við flugstöð- ina á Keflavíkurflugvelli. Þessi afstaða Sjálfstæðisflokksins og Morgun- blaðsins er hér rifjuð upþ af ákveönu tiiefni. Á fundi á Akureyri fyrir skömmu, uppiýsti Sverrir Her- mannsson iðnaðarráðherra að foringjar Sjálfstæö- ' isflokksins hafi gengist undir þá kröfu Framsókn- arflokksins að þing yröi el^ki kvatt saman í sumar, eins og meirihluti þingmanna Sjálfstæðisflokksins hefði verið áfram um. Þetta samkomulag hefði ver- ið gert munnlega og í bakherbergjum, án vitneskju flestra þingmanna Sjálfstæöisflokksins. Og Sverr- ir Hermannsson iðnaöarráðherra sver sjálfur af sér öll tengsl við þetta mál. Hann segist nefnilega vera þingræðissinni hinn mesti og hafi þótt þaö eölilegt að þing hefði verið kallað saman strax að afloknum kosningum. Hann sagði orörétt á Akur- eyrarfundinum: „Ég var ekki þar til kvaddur, þar sem ráöið var ráðum stjórnarsamvinnu í ríkinu ís- lands á vordögum. Ég hef ekki sannanir fyrir því, en hlýt að álykta að í lokaviðræöum samninga hafi veriö gengið undir það jarðarmen af okkar forystu- mönnum að fallast á kröfu Framsóknarflokksins um að þing yrði ekki kvatt saman“. Og Sverrir hélt áfram: „Þetta er hvergi skrifaö, en ég get ekki annað , ályktað, en að svo hljóti að hafa. verið og ég dreg þær afleiðingar af eftir- leiknum, því við fengum engu um þokaö. Og það var ekkert annað að gera en játa á sig vesaldóm- inn í því efni. Ég sá engin sköpuð ráð til þess að ná fram þessu, sem ég taldi mjög mikilvægt, og ýmsir mínir félagar, þingfloklysformaðurinn og hávaðinn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, en málið var þá þannig vaxið, þegar á reyndi að ég sá ekki ann- aö ráð en að renna af þessum hólmi“. Svo mörg eru þau orð Sverris Hermannssonar, þegar hann lýsir þvi, hvernig foringjar Sjálfstæöis- flokksins gengust undir kröfur Framsóknarflokks- ins um aö setja þingræðið í landinu í fjötra. Svo mikiil var ákafinn í foringjum Sjálfstæðisflokksins aö komast i stjórn og ráðherrastóla, aö þeir hugs- uöu sig ekki tvisvar um, heldur gerðu leynisam- komulag við framsókn, gengust undir neitunar- vald framsóknar og sviku málstað þingræöisins, sem þeir hafa í orði barist svo mjög fyrir á liðnum árum. Það þýðir lítt fyrir Sverri Hermannsson og aðra skoðanabræður hans í þingflokki Sjálfstæöis- flokksins að bregöa sér í hlutverk hins iðrunarfulla Steingríms Hermannssonar og segja eins og Sverrir á fundinpm á Akureyri um baktjaldasamn- inga íhalds og framsóknar gegn þingræðinu: „Þetta voru mistök en við skulum hafa þau sem víti til varriaðar. Við þurfum að reisa við þingræði okk- ar“. Sannleikurinn er sá, að Sjálfstæðisflokkurinn er með allt niöur um sig í þessu máli. Þingræðishjal sjálfstæðismanna á liðnum árum var sýndar- mennska ein. Það kemur skýrt fram, þegar for- ingja íhaldsins munar ekki um að selja þingræöið fyrir nokkra ráðherrastóla. Eða ætli Sverrir Her- mannsson iðnaðarráðherra, sem telursig sannan fulltrúa þingræöisins í landinu hafi ef til vill „játað á sig vesaldóminn“ og „runnið af þessum hóimi" til að verða ekki af embætti ráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á þeim tíma „sem ráðum var ráðið í stjórnarsamvinnu í ríkinu íslands á vordögum" og heiftúðug barátta átti sér stað í þingflokki Sjálfstæðisflokksins um hinar mjúku ráöherrasessur? Auðmýking Sjálfstæðisflokksins er mikil. Flokk- urinn lætur framsókn eftir forsætisráðherraem- bættið og í það sest sá maður, sem sjálfstæðis- menn hafa úthrópað sem mest á liðnum árum. Sjálfstæðisflokkurinn beygir sig einnig fyrir kröfum framsóknar um frestun þinghalds og ekki síöur um afnám samningsréttarins. Risinn á brauðfótunum í íslenskri pólitík — Sjálfstæðisflokkurinn — er aö falli kominn. — GÁS Á sláandi 4 Aðeins 1% kvenna faglærðar Hlutfallsleg skipting mannafla á störf. Eig. Fag Ófag Skr. + versl. Sérfr. og stjórnun Konur 10,5 1,0 47,3 35,8 5,4 Karlar 16, 13,7 37,0 21,6 11,0 Bílgreinasambandið: Ástand hjólbarða er algerlega óviðunandi Vetrardekk undir bílinn kosta nú alls um 12000 kr. — þar af 45 % til ríkisins Eins og mönnum er kunnugt þá skiptast konur og karlar mjög mis- munandi á störf. Aðeins 1% kvenna á vinnumarkaði teljast faglærðar meðan 14<7o karla eru faglærðir. Tæpur helmingur kvenna flokkast ófaglærðar eða 47% en aðeins 37% karla og konur eru helmingi færri í stjórnunarstörfum og störfum sér- fræðinga. Þessar tölur sýna ein- faldlega það sem allir vita.að konur á vinnumarkaði eru með minni menntun en karlar og það speglast í tekjunum. Sé atvinnulífinu skipt í þrennt þ.e. frumvinnslu. úrvinnslu og þjónustu þá kemur i Ijós mjög mis- munandi skipting kynjanna á þess- ar þrjár greinar. Hlutfallsleg skipting mannafla á at- vinnugreinar 1981. Konur Karlar Frumvinnsla 10,5 16,8 Úrvinnsla 2 5,2 4 0,2 Þjónusta 64,3 4 3,0 Næstum 2 af hverjum þrem kon- um vinna í þjónustugreinum eða 64,3% á móti 43% karla. Innan þessa þjónustuhugtaks rúmast niargar atvinnugreinar t.d. versl- unarstörf, samgöngur, viðskipti og opinber þjónusta en þessar greinar eru í lægri kantinum hvað meðal- laun varðar miðað við frumvinnslu og úrvinnslugreinarnar þótt mun- urinn sé ekki mikill. Samandregnar niðurstöður varð- andi launamismun kynjanna hljóma því á þessa leið. Samkvæmt úrvinnslu launamiða allra lands- manna eru karlar með helmingi hærri meðal árstekjur en konur. Þessi tekjumunur stafar að stórum hluta af lengri vinnutíma karla en einnig af því að karlar eru hlutfalls- lega fjölmennari í sérhæfðum störfum og stjórnarstörfum. Niðurstöður könnunar á ástandi hjólbarða sýna að það er almennt algerlega óviðunandi og hættulegt. Bílgreinasambandið hefur síðast- liðin tvö vor kannað þetta og bæði árin reyndust nær þriðji hver bíll vera með ólöglega hjólbarða eða 32.5% í vor en 30.6% í fyrra. Á þessum tíma árs eiga hjólbarð- ar að vera í hvað besta ástandi, vetrardekkin farin og því tækifæri fyrir hendi að gaumgæfa sumar- hjólbarðana. Þess má geta að ökuslysarannsóknarnefnd í Finn- landi hefur komist að því að 23% slysa eru vegna ástands bílsins, þar af 15% vegna hjólbarðanna, en hér er átt við tilfelli þar sem dauðaslys varð. í fréttatilkynningu frá Bíla- greinasambaninu segir enn fremur: „Ef við lítum á niðurstöður hjólbarðakönnunarinnar í vor, kemur í Ijós að meira en fjórði hver bíll var ekki með mynstur í lagi, þ.e. of slitna hjólbarða, eða 26.9% bíl- anna. Þetta er mun hærri tala en í könnuninni í fyrra, en þá var 21% bílanna með of slitna hjólbarða. Aftur á móti voru nú 6.6% bíla með óeðlilegt slit á hjólbörðum en 9.5% í fyrra. Munur á þessum könnunum er ekki ýkja mikill en út úr þeim virðist þó hægt að lesa varhuga- verða þróun, þar sem ólöglegum bílum og bílum með of slitið mynst- ur hefur fjölgað. Þetta er hættuleg þróun og algerlega óviðunandi og nauðsynlegt er að efla fræðslu og grípa til aðgerða til að bæta úr þessu bága ástandi. Þess má geta í framhaldi af þessu að gera má ráð fyrir að nýir vetrar- hjólbarðar kosti i kringum 3.000r kr. eða í kringum 12.000r kr. undir bílinn auk nagla og ásetningar. Af þeirri upphæð renna um 45% til ríkisins í formi aðflutningsgjalda og söluskatts. Ef aðflutningsgjöld yrðu felld niður af þessu nauðsyn- íega öryggistæki fyrir bifreiðir mundi útsöluverð hjólbarða lækka um nær þriðjung. Öllum 1 stjórar Landakotsspítala hætt störfum vegna óánægju. Hins vegar er haft eftir Loga Guð- brandssyni, framkvæmdastjóra Landakotsspítala að nýja kerfið hafi reynst vel, þó svo gæti verið að einhverjar af þeim konum sem hættu hafi gert það vegna þess að þær treystu sér ekki til að vinna eftir því og að einhverjum eldri konum hafi þótt það erfitt að laga sig að nýjum aðstæðum. sjálfra okkar vegna! TREfiSTUW TWGCOm ViUitö SAMNINCSREPf SKRIFUM UNDIR! Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Björn Þórhallsson, Guðmundur J. Guðmundsson, Karl Steinar Guðnason, Ragna Bergmann

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.