Alþýðublaðið - 14.12.1983, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 14.12.1983, Blaðsíða 4
alþýou Miðvikudagur 14. desember 1983 Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guðmundsson. Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Árni Stefánsson. Blaðamenn: Þráinn Hallsrímsson oe Friðrik Þór Guömundsson. Auglýsingastjóri: Helma Jóhannesdóttir Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Árroúla 38, Reykjavík, sími 81866. Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 81866 Tölvur misnotaðar í Noregi: SAS njósnar um starfsmenn sína Starfsmenn SAS-flugfélagsins eru ekki sérlega ánægðir með yfir- menn sína þessa dagana. Þeir vita þó varla hvert þeir eiga að beina reiði sinni, hvort hún á að bitna á hönnuðum tölvukerfa fyrirtækis- ins eða að einstaklingum í yfir- stjórn flugfélagsins, sem misnotað hafa tölvuupplýsingar á undan- förnum mánuðum. Það hefur sem sé komið í Ijós, að einhverjir yfir- menn fyrirtækisins hafa notað tölvukerfi SAS til að kanna vinnu- framlag ýmissa starfsmanna og fleira í þeim dúr. Raunar er það svo, að allir sem aðgang eiga að tölvu- kerfi SAS, geta notfært sé eða mis- notað þessar upplýsingar. Þar með taldar ferðaskrifstofur i öllum Norðurlöndunum. Fjöldi upplýsinga um starfsfólk er í tölvubanka SAS; þar má t.d. finna upplýsingar um sjúkdóma, leyfi, uppsagnir, starfsaldur og sitt- hvað fleira, sem ýmsum kann að finnast næsta persónulegir hlutir. Þá er einnig að finna t.d. heimildir um seinkanir flugvéla og hvaða flugumferðastjórar hafa átt þar hlut að máli. „Við teljum að þetta sé algerlega ólöglegt og við höfum lagt málið fyrir Tölvueftirlitið", segir formaður félags flugumferða- stjóra í Noregi, Asbjörn Wikestad. Það var af einskærri tilviljun, að þetta mál komst upp. Þannig var að nokkrir starfsmenn voru að leik við eitt af innsláttarborðum fyrirtækis- ins. Þegar af tilviljun ákveðnir lykl- ar voru slegnir skilaði tölvan frá sér upplýsingum, sem vöktu furðu starfsmanna. Þarna var að finna fjölda flug- umferðarstjóra og einkennisorð við þá eftir því, hvort flug sem þeir höfðu stjórnað gengu eftir áælun eða ekki. Þegar kannað var hvort tölvulykillinn framkallaði sömu upplýsingar á SAS - skrifstofum í nokkrum borgum, kom í ljós að svo var. Einnig var hægt að ná fram upplýsingunum frá öllum ferða- skrifstofum, sem tengdar eru SAS. Formaður flugumferðastjóra segir, að þetta sé ekki í fyrsta sinn, sem yfirmenn SAS leiki þennan leik gagnvart starfsmönnum. í fyrra kom svipaður atburður fyrir og var málið kært. Kallaður var saman samningafundur með starfsmönn- um og yfirmönnum fyrirtækisins en á meðan á honum stóð, var pró- gramm með umræddum upplýs- ingum þurrkað út úr tölvunni. Stjórn fyrirtækisins lofaði þá, að þetta myndi ekki endurtaka sig, en nú er augljóst að ekki á að standa við það. Tölvueftirlitið í Noregi hefur óskað eftir því við SAS-samsteyp- una, að hún geri grein fyrir þessu máli innan eins mánaðar. í Tölvu- eftirlitinu er tekið undir þær skoð- anir starfsmanna SAS, að greini- lega sé um lögbrot að ræða og gerð- ar hafa verið ráðstafanir til að hreinsa út umrætt prógramm. Nokkrir starfsmenn brugðu á dögunum á leik við tölvur SAS-fyrirtœkis- ins. Þeir voru undrandi þegar tölvan sýndi allt í einu upplýsingar sem alls ekki er heimilt að safna um starfsmenn og frammistöðu þeirra í vinnunni. JOHANNA SIGURÐARDÓTTIR: Atak gegn út- breiðslu fíkniefna Jóhanna Sigurðardóttir Á undanförnum vikum hafa komiö fram opinberar upplýsingar um, að notkun fíkniefna hafi á undanförnum einum til tveimum árum fariö ört vaxandi og fram hafa komið ógnvekjandi tölur í því sambandi. í riti heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytisins, sem gefið var út í júní 1983 um kannanir á áhrifum fíkinefnadóma 1980 og kannanir á kannbisneyslu íslend- inga gefur m.a. eftirfarandi könnun sem gerð var í skólum landsins til kynna. 1. Að af liðlega 1000 manns sem könnunin náði til, neyttu 222 á aldr- inum 16 til 26 ára kannabis eða 22,18%. Fram kemur einnig í þessu í síðustu viku urðu talsverðar umræður um fíkniefni á Al- þingi. Jóhanna Sigurðardóttir spurði m.a. dómsmálaráð- herra Jon Helgason hvernig og hvort hann hygðist efla toll og löggæslu vegna stóraukinnar neyslu fíkniefna hér á landi á undanförnum misserum. Ýmsar fróðlegar upplýsingar komu fram í inngangi að fyrirspurn Johönnu og eru megin- atriðin dregin saman hér að neðan. Dýr störf í norskum skipasmíðaiðnaði:_ Hvert starf kostar ríkið 600 þús. krónur Fjárlögin hækkuðu um 166 milljónir í meðförum fjár- veitinganefndar... Hvers lags eiginlega með- ferð er þetta? Skyldi Albert kæra? Stjórnvöld í Noregi hafa af því þungar áhyggjur, að kostnaöur rík- isins af skipasmíöum þar í landi hefur á undanförnum árum farið 'stórvaxandi. Skipaiðnaður hefur eins og kunnugt er átt í vaxandi erfiðleikum víða um heim í þeirri efnahagskreppu, sem ríkt hefur undanfarin ár. Þetta hefur m.a. komið fram í því að fjölda skipa hefur verið lagt og verð á nýjum skipum hefur farið hlutfallslega lækkandi. Þar sem tilkostnaöur hefur ekki lækkað að sama skapi hafa skipasmíöastöövar víða á Vest- urlöndum leitað eftir aðstoð ríkis- stjóma til að haida starfseminni gangandi. Þannig er kostnaður norska ríkisins af smíði hvers skips í landinuu nú kominn í 21.5% og þykir mörgum nóg um. Nióur- greiðslur norska ríkisins á hvert starf i skipasmíðaiðnaði nemur nú hvorki meira né minna en 20.000 dölum eða nálægt 600 þúsund ís- lenskum krónum á starf. Mikið var deilt um þessar niður- greiðslur á norska Stórþinginu fyrir nokkrum dögum, þegar ríkis að- stoðin kom þar til umræðu. Ríkis- stjórnarflokkarnir vildu ekki auka aðstoðina mjög úr því sem nú er, en stjórnarandstaðan. Þ.e. jafnaðar- menn, frjálslyndir og vinstri sósía- listar vildu auka niðurgreiðslur enn frá því sem nú er og fara í allt að 700 þúsund á hvert starf. Þó að farið hafi verið að tillögum stjórnarinnar í þessu efni, kemur • Framhald á 2. síðu riti að á þessum aldri sé í landinu 48 þús. manns og ef reiknað er með sama hlutfalli neytenda og fram kemur í könnuninni þá nái neyslan til 10.656 manns á þessum aldri. í öðru lagi kemur fram í sömu könnun að á aldrinum 15 til 30 ára noti 222 eða 19,75% kannabis, í þessum aldurshópi eru 67.383 í landinu, ef sömu forsendur eru not- aðar um neyslu í þessum aldurshópi þá neyttu 13.312 manns á aldrinum 15 til 30 ára kannabisefna. Fram hafa auk þess komið opin- berlega nýverið enn meira ógnvekj- andi tölur en ég hef hér lýst, en það kom fram hjá formanni Æskulýðs- ráðs í sjónvarpi að 40 til 60% þeirra semeruáaldrinum 16—30áraneyti fíkniefna í einhverjum mæli. Erfitt er að staðhæfa þessar tölur sem þarna koma fram og ber því að taka þær með fyrirvara. Að auki má benda á að í Dagblaðinu nýlega kemur fram að þriðji hver sjúkling- ur sem leitar til lækna á meðferðar- stöð S.Á.Á. gerir það vegna lang- varandi ofnotkunar á kannabisefn- um eða öðrum sterkum eiturefnum. Á undanförnum árum hefur verið gert upptækt töluvert magn af fíkniefnum, og hefur það sem af er á þessu ári verið tekin 20 kíló af kannabisefnum og 600 gr. af an- fetamíni en til saman burðar voru tekin 8 kíló af kannabisefnum 1981 og 50 gr. t(f amfetamíni og 1982 um 8 kíló af kannabisefnum og73 gr. af amfetamíni! Aðeins smábrot Þeir sem gerst þekkja til, telja að hér sé aðeins um að ræða smábrot af því sem í umferð er hér á landi, en tölur hafa komið fram um að áætl- að sé að allt að 3 tonn séu í umferð. Á undanförnum dögum og vikum hef ég rætt við marga þá, sem að þessum málum vinna, bæði toll og löggæsluyfirvöld svo og yfirnefnd heilbrigðismála. Allir þessir aðilar eru sammála um, að fíkniefna- neysla hafi farið ört vaxandi á und- anförnum árum og að aukist hafi notkun á sterkum fíkniefnum svo sem amfetamíns. Það er því ljóst, að stjórnvöld verða að grípa til allra tiltækra ráða, til að fyrirbyggja út- breiðslu þessara stórhættulegu og skaðlegu efna, og gera verður stór- aukið átak til að fyrirbyggja að fíkniefni berist til landsins, svo og að auka í skólum og fjölmiðlum alla fræðslu um skaðsemi fíkniefna eins og hér hefur komið fram fyrr í dag. Hér er svo alvarlegt mál á ferð- inni sem getur haft svo ógnvekjandi afleiðingar fyrir einstaklinga og þjóðina í heild ef ekki er brugðist við með skjótum hætti. Bæði getur afleiðing þess orðið stóraukin af- brot þar sem fíkniefna neytendur neyta allra ráða til þess að verða sér út um peninga og fjárráð til þess að kaupa þessi fíkniefni og eins hitt að þetta getur eyðilagt líf fjölda ung- menna ef þessi mál eru ekki tekin föstum tökum. Auk þess sem af- leiðing þess getur orðið stóraukinn kostnaður við alla heilbrigðisþjón- ustu í landinu. Ég hef leyft mér ásamt nokkrum þingmönnum að flytja þetta mál Framhald á 2. síðu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.