Alþýðublaðið - 11.01.1984, Síða 1
Miðvikudagur 11. janúar 1984 7. tbl. 65. árg.
Sighvatur
ráðinn framkvstj. Norræna félagsins
Sighvatur Björgvinsson fyrrum
alþingismaður fyrir Alþýðuflokk-
inn var fyrir skömmu ráðinn
framkvæmdastjóri Norræna fé-
lagsins á íslandi. Samkvæmt
heimildum Alþýðublaðsins mun
Sighvatur hefja störf hjá félaginu
Framhald á 3. síðu
Launamunur kynja 1980—1982:
Tvœr af hverjum
þrem konum virkar
í atvinnulífinu,
en aðeins 37%
vinna fullt starf.
Færðust konur hlutfallslega nær
karlmönnum í meðallaunum á
árunum 1980 til 1982? Eftir þeim
upplýsingum sem finna má í ritum
Framkvæmdastofnunar ríkisins
um vinnumarkaðinn á þessum
árum virðist lítið hafa miðað í þá
áttina. Launamismunurinn þarna á
milli fyrir hvert ársverk hélst á þess-
um árum í 52-53%.
Árið 1980 nam mismunurinn á
meðallaunum kynjanna 53.1%,
meðallaun karla voru þá 84.190
nýkrónur, en kvenna 54.990 ný-
krónur, fyrir ársverk. Árið 1981 dró
aðeins úr mismuninum, hlutfallið á
milli fór þá niður í 51.7%, svo segja
má að eitthvað hafi miðað í áttina.
Þá voru meðallaun karla um 129
þúsund krónur fyrir ársverk, en
kvenna 85 þúsund. Árið 1982 hins
vegar eykst bilið á ný, meðallaun
karla fara upp í 199 þúsund, en
kvenna í 131 þúsund og mismunur-
inn því í 51.9%. Á tveimur árum
höfðu meðallaun karla því hækkað
um 136.4%, en kvenna um 138.2%.
Ekki beinlínis stórt stökk í jafn-
réttisbaráttunni. Þessar upplýsing-
byggjast á launamiðum og
eigenda atvinnu-
launaframtölum
fyrirtæka.
Hvað með atvinnuþátttöku
kvenna? Alls voru starfandi á
vinnumarkaðinum árið 1982 (meir
en 13 vikur á árinu) 153.783 manns,
þar af 83.282 karlar (54.1%) og
69.435 konur (45.9%). Árið 1980
var hlutfallið hins vegar 55.9%
karlar en 44.1% konur, svo ljóst er
að hlutfall kvenna á vinnumarkað-
inum hefur aukist um 1.8 pró-
sentustig. Á þessum tveimur árum
hefur karlmönnum á vinnu-
markaðinum aðeins fjölgað um
Framhald á 3. síðu
Launamunur kynjanna hélst nánast óbreyttur á árunum 1980—1982, karlmenn höfðu 52—53% hœrri laun
en konur fyrir hvert ársvérk. Þó tvœr af hverjum þremur konum á aldrinum 15—75 ára séu virkar í atvinnu-
lífinu, vinna aðeins 37% þeirra fullt starf.
Algjör óvissa
segir Asmundur Stefánsson um gang samningaviðrœðnanna
„Bilið á milli er það stórt, að það
er í raun ekki hægt að gera sér grein
fyrir möguleikunum i samninga-
viðræðunum. Við gerum okkur
Ijóst að það er vegna þessa óraun-
hæft að fella sig í víggirðingar
kröfugerða og gagnkröfugerða, við
Kvennaframboðskonur í hár saman:
höfum verið að skoða málin, ræða
fram komin atriði fram og til baka,
bæði hvað varðar almennar launa-
hækkanir, stöðu láglaunahópanna
og önnur atriði" sagði Ásmundur
Stefánsson, forseti ASÍ í samtali við
Alþýðublaðið í gær um gang samn-
ingaviðræðnanna.
Sagði Ásmundur að ekkert hefði
komið fram, hvorki í eina áttina eða
aðra, sem gerði stöðuna ljósari.
„Hitt er alveg ljóst að það skiptir
verulegu máli að finna megi skjótt
lausn í málinu, því þeir sem minnst
bera úr býtum eiga bágt með að bera
þessa stöðu öllu lengur. Og vegna
framþróunarinnar almennt á þessu
ári skiptir miklu máli fyrir alla að
samið verði fljótt, svo menn viti
hvar þeir standa. En eins og er er
ekki hægt að gera sér grein fyrir því
hvernig samningaviðræðurnar
munu þróast“ sagði Ásmundur.
Hlutfallið
í 52—53%
Sætti mig ekki
við vinnubrögðin
sagði Lára Júlíusdóttir, sem sagt hefur af sér sem
fulltrúi Kvennaframboðsins í heilbrigðisráði
„Það kom upp ágreiningur út af
tillögum Kvennaframboðsins í
borgarstjórn við gerð fjárhagsáætl-
unar borgarinnar, þessar tillögur
gengu þvert á afstöðu mína í heil-
brigðisráði og þær voru ekki bornar
undir mig. Því taldi ég forsendurn-
ar fyrir setu minni í ráðinu brostn-
ar. Þetta voru leiðinleg vinnubrögð
sem ég sætti mig ekki við“, sagði
Lára V. Júlíusdóttir, lögfræðingur
ASÍ, en á fundi borgarráðs í gær var
tekið fyrir bréf hennar þar sem hún
segir af sér sem fulltrúi Kvenna-
framboðsins í heilbrigðisráði
Reykjavikurborgar og heilbrigðis-
málaráði Reykjavíkurlæknis-
héraðs.
Þá mun Lára einnig ætla að segja
af sér sem fulltrúi Kvennafram-
boðsins í stjórn sjúkrastofnana
borgarinnar, sem er undir heil-
brigðisráði.
Þessi ágreiningur innan Kvenna-
framboðsins mun hafa vaknað upp
þegar borgarfulltrúar Kvennafram-
boðsins lögðu til að fjárveiting
borgarinnar til reksturs læknastofa
við Þórsgötu og í Domus Medica
yrði lögð niður, en þessu er Lára
ósammála. Sagði hún reyndar að
þetta væri ekki eina málið sem
ágreiningur væri um.
„Ég hefði náttúrlega getað setið
áfram sem fulltrúi Kvennafram-
mtwm
FJÖUBREYTTJ
OG BETRA
boðsins í þessum ráðum, en ég taldi
heiðarlegra að segja af mér“.
— í Kvennaframboðinu eru
konur með ærið ólíkar skoðanir,
má reikna með að þetta dragi dilk á
Framhald á 2. síðu
Mannaskipti
á toppi Tímans
Líklegt er að ritstjóraskipti verði
á Tímanum í kjölfar þeirra skipu-
lagsbreytinga, sem þar eru í vænd-
Borgarstjórnaríhaldið samt við sig:
Atvinnusjúkdóma-
deild lögð niður
Borgarstjórnaríhaldið er samt
við sig. Alþýðublaðið hefur þegar
greint frá því hvernig hrikaleg fjár-
málapólitík Davíðs Oddssonar og
liðsmanna hans hefur leitt til þess
að skattbyrði Reykvíking mun á
næsta ári verða geigvænleg, þrátt
fyrir 90 milljón króna lántöku og
Sett í skúffu
hjá borgarlœkni
niðurskurð á hinum ýmsu sviðum.
Eitt af því sem lenti á niðurskurð-
arborði skattakóngsins Davíðs
Oddsonar er atvinnusjúkdóma-
deild Heilsuverndarstöðvar Reykja-
víkurborgar, sem lengi hefur verið
við lýði og gegnt mikilvægu hlut-
verki. í fjárhagsáætlun meirihlut-
ans voru fjárframlög til deildarinn-
ar felld niður, þrátt fyrir tilmæli
Framhald á 2. síðu
um og eiga að koma til fram-
kvæmda 1. apríl.
Eins og kunnugt er var öllum
starfsmönnum Tímans sagt upp
störfum með hefðbundnum þriggja
mánaða uppsagnarfresti frá og með
síðustu áramótum. Meðal þeirra
starfsmanna sem fengu uppsagnar-
bréf, var annar tveggja ritstjóra
blaðsins, Elías Snæland Jónsson,
en hinn ritstjóri blaðsins, Þórarinn
Þórarinsson, sem starfað hefur ára-
tugum saman við blaðið, var hins
vegar sá eini starfsmaður blaðsins
sem hlaut ekki þá óskemmtilegu
sendingu.
Það liggur ljóst fyrir, að mati
kunnugra, að Þórarinn muni hætta
störfum við blaðið síðar á þessu ári,
— sennilega í október.
Þá hefur Alþýðublaðið einnig
hlerað að, ýmsir ráðandi menn í
hinu nýja útgáfufélagi, Nútíman-
um, sem er i sjálfu sér ekkert annað
eri nýtt heiti á „gamla” útgefanda
Framhald á 2. síðu