Alþýðublaðið - 21.01.1984, Side 3

Alþýðublaðið - 21.01.1984, Side 3
Laugardagur 21. janúar 1984 3 Minning: Ólafur Magnússon, verkamaður Siglufirði Fæddur 28, des. 1906. Dáinn 3. jan. 1984. Þriðjudaginn 10. janúar var gerð frá Siglufjarðarkirkju útför Ólafs Magnússonar, er lést á Sjúkarhúsi Siglufjarðar 3. janúar eftir stutta Iegu. Ólafur Magnússon var fæddur 28. des. 1906 á Ytrakrossnesi í Eyja- firði. Hann var sonur hjónanna Soffíu Árnadóttur og Magnúsar Jónssonar, sjómanns. Þau Soffía og Magnús eignuðust níu börn sem öll eru látin, nema Helga, sem bú- sett er í Reykjavík, ekkja Haraldar Jónssonar, smiðs frá Akureyri. Þegar Ólafur var þriggja ára gamall dvaldi móðir hans með hann hjá hjónunum Ólöfu Elíasdóttur og Jóni Benjamínssyni, sem síðan urðu fósturforeldrar hans, en þau bjuggu á Hóli í Staðarsveit í Eyja- firði. í þessari fallegu sveit ólst Öl- afur upp og kynntist þar fljótlega búmennsku og bústörfum, uns hann yfirgaf þetta góða heimili sitt og fór til náms í búfræði að Hólum í Hjaltadal. Á þessum árum þurfti mikið áræði og dugnað til þess að brjótast til náms. Minningarnar frá námsárunum að Hólum voru Ólafi kærar og samferðarfólkið þar hon- um hugstætt alla ævi. Á Hólum stundaði Ólafur íþrótt- ir og var í sýningarhópi, sem ferð- aðist allvíða og sýndi fimleika. Hann var alla ævi mikill áhuga- maður um íþróttir. Árið 1927 lauk hann búfræði- námi frá Hólum. Það var eftir- minnilegur dagur í lífi Ólafs, er hann 1982 sótti Hóla heim á hundr- að ára afmæli skólans og hitti þar fyrir skólafélaga, sem hann hafði átt samleið með fyrir rúmlega fimmtíu árum. Sú stund gladdi hann mjög, þá 76 ára gamlan. Eftir námið á Hólum lá leið hans aftur heim i Eyjafjörð þar sem hann starfaði á ýmsum býlum. Hingað til Siglufjarðar flytur Ól- afur 1932. Fyrst í stað starfaði hann hjá Árna Ásbjarnarsyni við bú- störf. Seinna vann hann hjá múr- arameisturunum Baldri Ólafssyni og Sigurði Magnússyni. All mörg ár vann Ólafur hjá Síldarverksmiðj- um ríkisins en síðustu árin hjá Þormóði Ramma h.f. meðan heils- an leyfði. Árið 1936 kvæntist Ólafur eftir- lifandi eiginkonu sinni, Júlíönu Sigurðardóttur, mestu myndar- og dugnaðarkonu, dóttur sæmdar- hjónanna Guðrúnar Hansdóttur og Sigurðar Ásgrímssonar, sem allir Siglfirðingar þekktu. Þau hjónin Ólafur og Júlíana eignuðust fjögur börn. Tvö þeirra dóu í frumbernsku, en upp komust tvíburarnir Arnar, rafvirki og verk- stjóri hjá Rafveitu Siglufjarðar, kvæntur Guðrúnu Árnadóttur og Sigrún, gift Sigurði Jónssyni, sjó- manni. Með Ólafi Magnússyni er til moldar genginn mætur og gegn maður úr verkalýðsstétt, sem ekki lét mikið yfir sér í hversdagslegu lífi, en var einn af þeim hundruðum manna og kvenna, lífs og liðnum, sem eru hornsteinar og máttar- stolpar þjóðfélagsins með gjörðum sínum og athöfnum. Hversu oft höfum við ekki heyrt það hin síðari ár, sérstaklega úr hópi yngri kynslóðarinnar, þegar spurt er um störf og stöðu manna, „ég er bara verkamaður" „ég er bara sjómaður" „ég er bara bóndi“. Það er starf bóndans að láta tvö strá eða fjögur vaxa, sem áður var eitt. Það er starf sjómannsins að sækja björg í bú og gull um lygnan og úfinn sjó. Það er starf verka- mannsins að byggja upp borgir og bæi, vegi og stræti, temja fossa og beisla hita jarðar og orku vindanna, nýta þann afla sjávar, sem okkar fengsælu sjómenn bera að landi og skapa alhliða framkvæmdir með vinnu sinni. í þessum störfum bóndans, sjómannsins og verka- mannsins hefur verið og verður saga lands og þjóðar. Þetta eru ekki bara verkamenn, bara sjómenn eða bara bændur eins og nú er svo oft talað um, heldur hornsteinar og máttarstólpar íslensks þjóðfélags frá örófi alda og um alla framtíð. Ólafur Magnússon var duglegur og samviskusamur verkamaður — trúr og dyggur í hverju því starfi sem hann gegndi. Friðsemdarmað- ur, sem mátti ekki vamm sitt vita í neinu. Aldrei heyrðist hann mæla styggðaryrði í garð nokkurs manns. Drengskaparmaður til manna og málefna. En þetta þýddi ekki það að hann hefði ekki skoðun á mál- Harðar deilur 1 un innan borgarkerfisins. Þá hefur einnig komið í ljós í þessu máli, að ekki var einhugur um afstöðu stjórnar Sambands ís- lenskra samvinnufélaga um hlutdeild SÍS. Tveir stjórnarmenn, Hörður Zóphaníasson og Finnur Kristjánsson varaformað- ur stjórnarinnar, greiddu atkvæði gegn þátttöku SÍS; Gunnar Sveinsson sat hjá, en aðrir greiddu mál- inu atkvæði sitt. Það vek- ur athygli að Ingólfur Ólafsson kaupfélagsstjóri KRON, sem situr einnig í stjórninni og er yfirlýstur Alþýðubandalagsmaður greiddi inngöngu SÍS í kompaní hægri manna atkvæði sitt. Annars staðar hér á síð- unni og á bls. 4 má sjá við- horf stjórnarmanna í SÍS, Harðar Zóphaniassonar og Finns Kristjánssonar um málið, svo og bókun Sigurðar E. Guðmunds- sonar borgarfulltrúa Al- þýðuflokksins í borgarráði í gær. Magnús 1 ið upp að taka upp neikvæöan tekjuskatt. „Einn stærsti kosturinn við þessa leið er að hún getur komið í veg fyr- ir ólgu á vinnumarkaðinum. Fyrir- komulagið er hið sama og nú er beitt með barnabótunum, en í dag fer ónýttur persónuafsláttur til ríkisins. Við Alþýðuflokksmenn fluttum vegna efnahagsráðstafana í febrúar 1981 breytingatillögu þar sem lagt var til að greiddur yrði út neikvæð- ur tekjuskattur. Þessu var synjað. í fyrra lagði ég og aðrir Alþýðu- flokksmenn fram frumvarp til laga um þetta, en það kom ekki til af- greiðslu vegna áhugaleysis þáver- andi stjórnarsinna. Svo var það í vor að ég og fleiri í minnihlutanum lögðu fram í fjár- hags- og viðskiptanefnd efri deildar breytingartillögu við afgreiðslu bráðabirgðalaganna um þetta atriði, en- þá var þetta mál einnig fellt. Það er auðvitað afskaplega gott ef á að fara að taka þetta upp nú. Þetta er tvímælalaust besta leiðin til að bæta hag hinna lægst launuðu við þessar aðstæður. Það má reynd- ar segja að mikið af þeim málum sem Alþýðuflokkurinn hefur verið með hafi loks fengið hljómgrunn , hjá hinum flokkunum löngu á eftir að hann hefur lagt þau fram. Má nefna mál eins og að stöðva inn- flutning á togurum, tillögur okkar í ilandbúnaðarmálum, þá er umræð- an nú um afkomutryggingu fróðleg í þessu sambandi og svo umræðan um neikvæðan tekjuskatt. Það er eins og það taki hina flokkana óra- tíma að skilja mikilvægi þessara mála Alþýðuflokksins,“ sagði Magnús. Sigurður 4 skuli fyrst skýrt frá þessu máli hinn 17. janúar eftir að það hefur sýni- lega lengi verið í undirbúningi á liðnu ári. Þegar það kemur fram er af því rammsterkur pólitískur keimur, sem allur er sömu ættar. Mál, sem þannig er úr garði gert, get ég ekki stutt eins og það er í pottinn búið“ Athugasemd í Alþýðublaðinu í dag (20.1) er sú ásökun borin á borgarstjóra, að hann hafi „hins vegar sjálfur í viðtali við útvarpið í gærdag" rof- ið þann trúnað um þetta mál (þ.e. aðild borgarinnar að ísfilm hf.), sem hann hafði lagt á borgarráðs- menn. Af þessu tilefni vil ég taka fram, að þessi ásökun er ekki frá mér komin, hvorki beint né óbeint, enda er ég henni efnislega ósammála. Útvarpsfréttin í há- deginu í gærdag birtist ekki fyrr en eftir að þagnarskyldu hafði verið aflétt, fyrr um morguninn, og því rufu engir trúnað eftir að svo var komið. Sigurður E. Guðmundsson. El Salvador fund- urinn á sunnudag: Hefst kl. 15 Á sunnudaginn vcrður haldinn stuðningsfundur við alþýðu El Salvador, eins og greint var frá í blaðinu í vikunni. Hins vegar kom fram í fréttinni að fundurinn ætti að hefjast að Hótel Borg kl. 13, en það mun ekki rétt vera, fundurinn á að hefjast kl. 15. Alþýðublaðið hvetur alla til að mæta á fundinn og taka þátt í baráttunni gegn hinni illræmdu óbótastjórn sem fer með drápum og ofbeldi gegn alþýðu manna i E1 Salvador. efnum þjóðfélagsins og bæjarfé- lagsins. Olafur var jafnaðarmaður er taldi að jafnaðarstefnan væri eina stjórnmálastefnan sem boðaði öllum þjóðum gróandi þjóðlíf — frelsi jafnrétti og bræðrajag. Þessi skoðun breyttist ekki hjá Ólafi, þótt Alþýðuflokkurinn ætti ekki alltaf velgegni að fagna í kosningum. Eins og svo margir Siglfirðingar, kynntist Ólafur slæmum tímum í atvinnumálum bæjarins en með at- orku og dugnaði þeirra hjóna kom það aldrei niður á heimili þeirra enda bæði eftirsótt til vinnu. Ólafur var stéttvís maður og mörg ár í trúnaðarmannaráði verkalýðsfélagsins. Sótti manna best fundi og fylgdist vel með. Hann var vel látinn vinnufélagi og var gott til vina. Að síðustu kveð ég Ólaf Magnús- son með bestu þökk fyrir samferð- ina. Okkar kunningsskapur var þannig, að hann gleymist mér ei. Frú Júlíönu og börnum þeirra hjóna og öðrum ættingjum og ást- vinum flyt ég mínar dýpstu samúð- arkveðjur. Nú er. ferð Ólafs yfir móðuna miklu hafin og fyrir stafni er fyrir- heitna landið, þar sem bræðralag ríkir og jöfnuður býr og almætti Guðs varir um alla eilífð. Blessuð sé minning Ólafs Magnússonar. Siglufirði 10. janúar 1984. Jóhann G. Möller. mis tia*1*1. ru rý-111' 'angri' ótrúW0a ff sei» et ° ftoVfisOOccvél' (super *&*£%**?&* tve ríell**1;-* ef iaut»* ssetu*11' fyrirfer‘’a9a»iðs' uálrl*8'3yð**** >6ð 4, sgssí&s- SérSta“ayarfaL. 09 —í' ^da e>S° bestur * 10 ét- BÍLABORG HF Smiöshöfða 23 sími 812 99 Almenna auglysingastofan hf

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.