Alþýðublaðið - 04.02.1984, Side 2

Alþýðublaðið - 04.02.1984, Side 2
2 Laugardagur 4. febrúar 1984 •RITSTJORNARGREIN' 55 Hann þarf ekki að greiða dagmömmu" Alþýðublaöió skorar á Albert Guðmundsson, fjar- málaráðherra, að sýna og sanna íslenskri jojóð, að hann geti lifaö af 12.400 krónum á mánuði. I þessari áskorun felst það, að hann greiði af þessari fjárhæð öll almenn útgjöld, en ekkert umfram það. Hann þyrfti að kaupa mat fyrir sig og sína, greiða hita og rafmagn, síma, skatta og gjöld af öllu tagi og reka bifreið. Honum verður ekki gert að greiða dag- mömmu fyrir barnagæslu, né húsaleigu. Svo má hann reyna að komast einu sinni til tvisvar í bíó og kaupa eina flösku af hvannarót og nokkra vindla- pakka af ódýrri gerð. Þessi áskorun er borin fram vegna þeirrar yfirlýs- ingar fjármálaráðherra, að innan fjárlagadæmisins rúmist ekki launahæW<anir, er ýtt geti opinberum starfsmönnum upp að launamörkum fátæktarinnar. Það er f ráleitt að fjármálaráðherra geti borið því við, að I fjárlögum hafi ekki verið gert ráð fyrir þvi, að lág- markslaun gætu náð 15 þúsund króna markinu. Þessi yfirlýsing fjármálaráðherra kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Hún gengur þvert á öll ummæli ráðherrans þess efnis, að hann hafi rikan skilningáhögum láglaunafólks. Því til staðfestingar hefur hann greint frá þröngum kjörum í æsku. Hann hefur átt mikil og góö samskipti við launafólk i Reykjavík, og þess vegna verður það enn óskiljan- legra, aðhann skuli hafageðtil að bjóöa 12.400 krón- ur í lágmarkslaun. Tuttugu og fimm prósent hækkun félaga hans, Daviös Oddssonar, á gjöldum Hitaveitu Reykjavikurhirðirdrjúgan hlutaaf þeirri launahækk- un, sem fjármálaráðherra segist geta staðiö undir. Svo mikið liggur við ( huga fjármálaráðherra, að hann hefur hótað að segja af sér, ef farið veróur út fyrir þann ramma, sem hann ákvað með fjárlaga- gerðinni. Að vísu hefur hann áður hótað að segja af sér, ef erlendar skuldir þjóðarinnar færu upp fyrir á- kveðið mark. Því marki er nú náð, en fjármálaráð- herra situr áfram. Vonandi gildir hið sama um launa- markið. Það er öllum mönnum Ijóst, að vandi rikissjóðs er mikill, en staða hans verður ekki óviðráðanlegri þótt lágmarkstekjur verði mióaðarvið 15 þúsund krónur. Það hefði mátt, og má enn, leita leiða til að bæta honum það tjón, sem fjármálaráðherra telur, að sjóöurinn verði fyrir, ef 15 þúsund króna lágmarks- laun verða að veruleika. Fjármálaráðherra er ekki raunsær I mati sínu á þessu máli, og hann verðurekkert minni maöurfyrir aðviðurkennaþað. Forsætisráðherraog iðnaðarráð- herra hafa áttað'sig á staðreyndum málsins. - ÁG - Viö eigum landinu skuld aö gjaldaí Ferðamálaráð íslands hefurákveðið, aðefnatil her- ferðar fyrir bættri umgengni við náttúru iandsins. Þetta er verðugt verkefni, sem flestir þyrftu að sýna áhuga. Vaxandi ferðamannastraumur til íslands og , aukin umferð um hálendiðog viðkvæmagróðurreiti, veldur því, að betur þarf að vera á varðbergi en nokkru sinni fyrr. í ávarpi Ferðamálaráðs vegna þessa átaks segir meðal annars, að á siðustu áratugum hafi islenskri þjóð orðið æ Ijósara, aö hún á landi sínu skuld að gjalda. Myndarleg afborgun hafi verið greidd með þjóðargjöfinni til landgræðslu og þvi yfirlýsta stefnumiði, að koma gróðri í það horf, sem var, þegar land var numið. En það séu margar afþorganir eftir þótt eilítið hafi saxast áskuldina. Pá er minnt á, að ýmis tækni nútímans valdi því, að aldrei hafi verið jafn nauðsynlegt að snúast til varn- ar og einmitt nú. Með bættum og auknum bilakosti eigi fleiri og fleiri þess kost að ferðast um landið, einkum hálendiö, þar sem eru viðkvæmustu gróður- reitirnir og fegurst náttúra. Bættar samgöngur milli íslands og umheimsins fjölgi til muna erlendum ferðamönnum, sem til landsins koma á eigin fafar- tækjum. Þá hafi tæknin fært manninum margvisleg þægindi í formi útbúnaóar og umbúða, sem nær undantekningalaust sé gert úr efnum, sem ekki eyð- ist. Ekki þurfi annað en að benda á fjörur í nágrenni þéttbýlis, svo menn átti sig á hve mikil vandamál hér séu áferðinni. Þjóðin verði að snúast til varnargegn skemmdarverkum áeigin landi. Hún verði að koma í veg fyrir, að hjólbaröar risti sundur gróðurreiti og grastorfur, hún verði að hafna því að vegir um há- lendið verði varðaðir gler- og plasthrúgum og að plastdúkar og brúsar bregöi annarlegum lit á lyng og móa. Þjóðin verði að afneita þeirri ómenningu, að vegir og opin svæði verði ruslatunnur, og vegaskilti skotmörk. Alþýðublaðið tekur eindregið undir þessi sjónar- miöog hveturtil aukinnar baráttu fyrirnáttúruvernd. Þótt snjór hylji nú jörð, er timabært að undirbúa sumarstörfin, ogþettaereitt af þeim mikilvægustu. Blaðið skorar á íslendinga að taka þátt I þeirri bar- áttu, sem Feröamálaráð hefur nú haft forgöngu um. — ÁG - Bankar 4 síðustu viðskiptavinina. Þannig tapaði bankakerfið meira en þrem- ur milljörðum á vafasömum karakterum í bísnis á síðasta ári, en nú gera þeir sér vonir um að tapið verði minna á þessu ári, þar sem atvinnurekstrargrundvallarræfill- inn er víst við að finnast. Bankastjórar eru því harla glaðir þessa stundina í Danmörku, ekki síst þar sem því er spáð að þeir megi enn búast við blómum í haga á þessu ári. Einnig er þetta talið geta haft í för með sér að peningastofn- anir sameinist til að mynda stærri rekstrareiningar og er spáð nokkr- um slíkum á þessu ári. Það verður því hugsanlega ein afleiðingin að bankavaldið hjá Dönum færist á færri hendur en nú er. Árni á 4 skömmu eftir að það uppgötv- aðist að sonur hans hafði stund- Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð fyrsta áfanga Norðurlandsvegar um Eyjafjarðar- leirur. Helstu magntölureru eftirfarandi: Fylling 46.000 m3. Grjótvörn 15.000 m3. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. nóv. 1984. Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjaldkera Vega- gerðar ríkisins, Borgartúni 5, 105 Reykjavík og á skrifstofu Vegagerðar ríkisins, Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri, fráog með mánudeginum 6. febrúar nk. gegn 2.500 kr. skilatryggingu. Fyrirspurnirásamt óskum um upplýsingarog/eða breytingar skulu berast Vegagerð ríkisins skrif- lega eigi síðar en 13. febrúar. Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn og skila í lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til Vegagerðar ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík eða Miðhúsavegi 1, Akureyri fyrir kl. 14.00 hinn 20. febrúar 1984 og kl. 14.15 sama dag verða tilboðin opnuð á þeim stöðum að viðstöddum þeim bjóð- endum, sem þess óska. Reykjavík, í janúar 1984. Vegamálastjóri Alþýðuflokkurinn Garðabæ Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 6. febrúar klukkan 20.30. Fundarefni: 1. Karl Steinar Guðnason skýrir frá gangi samninqa- viðræöna. 2. Önnur mál. Stjórnin að njósnir f yrir Sovétríkin árum saman. Þorsteinn Treholt er virtur maður í Noregi, framá- maður í Verkamannaflokknum áður fyrr og landbúnaðarráð- herra í eina tíð. Hann varð fyrir miklu áfalli, þegar fregnin barst honum. Hann átti erfitt um mál, þegar hann talaði við blaðamann Arbeiderblaðsins, tilfinningarnar yfirbuguðu orð- in, en hann hafði ekki látið bugast. Fjölskyldan hafði orðið fyrir þungu áfalli. Þorsteinn sagði í viðtalinu við Arbeiderbladet, að sonur sinn Arne hefði aldrei haft aðgang aðgögnum ríkisstjórnarinnar á þeim tíma sem hann, þ.e. Þorsteinn Treholt var landbúnaðarráðherra. Þorsteinn var langbúnaðarráherra á árunum 1971—72 og frá 1973—76. Hann er nú kominn á eftirlaun og ekki leng- ur áhrifamaður i flokki norskra jafnaðarmanna. Það var verjandi Arne Treholt sem hringdi í Þorstein skömmu eft- ir að Arne var handtekinn og sagði honum frá því sem gerst hafði. Öryggislögreglan hafði ekki haft tal af honum en Þorsteinn hafði hringt til tengdadóttur sinnar til að ræða málin. „Þetta var eins og sprengja. Ég vissi nákvæmlega ekki neitt. Aldrei hefur nokkuð komið upp á yfir- borðið, sem gæti gefið þetta til kynna, hvorki í þeirri ríkisstjórn sem ég gegndi embætti í eða síðarþ segir Þorsteinn. Þorsteinn var spurður hvernig það mátti vera að hann fékk ekki neina vitneskju um hvað var að ger- ast, því nokkrir helstu menn í ráðu- neytinu á þessum tíma hefðu fengið vitneskju um þennan grun. „Ég fékk aldrein neinar upplýsing- ar. En ég fór úr stjórninni í janúar 1976“ Þá var hann einnig spurður hvort hann hefði ekki orðið var við neitt grunsamlegt allan þann tíma sem hann bjó hjá syni sínum á þeim tíma sem hann gegndi ráðherraem- bætti. „Nei, á þeim tíma var Arni mjög upptekinn af ástandinu í Grikk- landi og það voru stöðugt Grikkir á heimili hans. Fyrir utan þá vissi ég ekki af öðrum samböndum við út- lendinga,“ segir hann. Mjög náið var með þeim feðgum. Arne var sá eini af börnum Þor- vandamála í persónu eða lífi Arne steins, sem ætlaði greinilega að feta Treholts sem skýrt gætu njósnir í fótspor stjórnmálamannsins. hans fyrir Sovétmenn. Þorsteinn var að lokum spurður „Nei, ekki get ég gert mér grein hvort hann þekkti til einhverra fyrir þvíþ sagði hann. Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveöið hefur veriö að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir árið 1984. Tillögur skulu vera um: Formann, varaformann, ritara, gjaldkera, þrjá meðstjórnendur og þrjá til vara. Tólf trúnaðarráðsmenn og átta til vara. Tvo endurskoðendur og einn til vara. Tillögum, ásamt meðmælum hundrað full- gildra félagsmanna, skal skila á skrifstofu félags- ins, Skólavörðustíg 16, eigi síðar en kl. 11 fyrir há- degi mánudaginn 13. febrúar 1984. Stjórn Iðju, félags verksmiðjufólks. Tölvudeild Sambandssins óskar eftir að ráða í eftirfarandi störf: Kerfisforritari (System programmer) Við leitum eftir starfsmanni með reynslu í kerfis- forritun eða próf í tölvunarfræði eða sambæri- lega menntun. Kerfisfræðingur Við leitum eftir starfsmanni með reynslu í kerfis- setningu eða próf í viðskiptafræði eða sambæri- lega menntun. Tölvudeildin býður upp á góða aðstöðu og fjöl- breytilegt starf. Við höfum yfir að ráða IBM 4341, S/34 og 5280 tölvur. Umsóknarfrestur um ofangreind störf til 13. febrúar n.k. Umsóknareyðublöð fást hjá starfs- mannastjóraSambandsins, Sambandshúsinu við Sölvhólsgötu og skal skila umsóknum þangað. Upplýsingar um störf gefurforstöðumaðurTölvu- deildar Sambandsins. SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA STARFSMANNAHALD

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.