Alþýðublaðið - 16.02.1984, Side 1

Alþýðublaðið - 16.02.1984, Side 1
Fimmtudagur 16. febrúar 1984 33. tbl. 65. árg. Vigdís Finnbogadóttir forseti: Gefur kost á sér áfram Geir Hallqrímsson um trúnaðarskjalið: í höndum all- margra manna Vigdís Kinnbogadótlir, forseti íslands, hefur ákveðið að gcfa kost á sér áfram annað kjörtíma- bil. Alþýðublaðinu barst eftirfar- andi tilkynning frá forsetanunv. „Þeim tilmælum hefur verið beint til mín að ég gefi kost á mér við forsetakjör, sem fram á að fara á komandi sumri, fyrir kjör- tímabilið 1984—1988. ' Ég hef ákveðið að verða við þessum til- mælum. Uinboðsmenn mínir verða Svanhildur Halldórsdóttir full- trúi, Háaleitisbraut 30 og Þór Magnússon þjóðminjavörður, Bauganesi 26, bæði í Reykjavík“ Fjölmargir þingmenn tóku þátt í umræðum á Alþingi um svör utan- ríkisráðherra við fyrirspurn Stefáns Benediktssonar um hvernig skýrsla merkt trúnaðarmál geti hafa kom- ist i hendur Morgunblaðsins. Um- rædd skýrsla var tekin saman af Stefáni Jónssyni, Hannesi Pálssyni Hannes Pálsson: Skýrslan ekki fjölrituð erlendis „Við afhentum utanríkisráðu- neytinu skýrsluna á sínum tíma, en hún var ekki fjölrituð þar úti. Ef hún hefur verið fjölrituð þá hefur það verið gert í ráðuneyt- inu“ sagði Hannes Pálsson í sam- tali við Alþýðublaðið um umræð- ur þær sem átt hafa scr stað um skýrslu hans, Braga Jósepssonar og Stefáns Jónssonar. „Mér finnst eðlilegt úr því sem komið er að skýrslan veriö birt, það eru ekki eðlileg vinnubrögð af Morgunblaðsins hálfu að standa þannig að málinu“ Utanríkisráðherra fullyrðir að skýrslan hafi ekki lekið úr ráðu- neytinu, veist þú livaða aðilar fengu skýrsluna? „Nei, ég veit það ekki. Við fengum náttúrlega eintak sjálfir, en ekki hefur Morgunblaðið feng- ið mitt eintak. Sjáifsagt hefur skrifstofa sendiherrans fengið eintak, en þá ekki fyrr en síðar“ sagði Hannes. og Braga Jósepssyni eftir þing Sam- einuðu þjóðanna 1971, þar sem meðal annars var fjallað um við- ræður þeirra við 3 Norðmenn um hugsanlega brottför varnarliðsins, en meðal Norðmannanna var Arne Treholt. Geir Hallgrímsson lagði á það áherslu að skýrslan hafi ekki verið merkt trúnaðarmál af ráðuneytinu sjáifu, heldur af höfundum, en það væri í höndum ráðherra og ýfir- manna ráðuneytisins að dreifa slík- um skjölum. Sagði Geir öruggt að skýrslan hefði ekki lekið út úr ráðu- neytinu, hún hefði verið fjölfölduð á sínum tíma og verið í höndum all- margra manna. Morgunblaðið neitar að gefa upp með hvaða hætti blaðið fékk um- rædda skýrslu. Alþýðublaðið ræddi við þá Hannes Pálsson og Braga Jósepsson um þessi mál. Borgarfulltrúar Alþýðu- flokks og kvennaframboðs: Borgin lýsi stuðningi við stórbœtt kjör láglaunafólks og að meðallaun kvenna og karla verði þau sömu Geir Hallgrímsson Sigurður E. Guðmundsson borg- arfulltrúi Alþýðuflokksins og borg- arfulltrúar Kvennaframboðs munu á fundi borgarstjórnar í kvöld Bragi Jósepsson: Forvitnileg viðbrögð „Viðbrögð utanríkisráðherra eru forvitnileg, þegar hann segir að Bragi Jósepsson þessi skýrsla hafi ekki verið trún- aðarskjal hjá ráðuneytinu. En ég er sammála og sannfærður um það, að í þessari skýrslu Itafi ekkert verið sem geti skaðað hags- muni íslands, engin hernaðar- leyndarmái,“ sagði Bragi Jóseps- son, lektor, í samtali við Alþýðu- blaðið er hann var inntur álits á umræðum þeim sem fram hafa farið um meintan leka í ráðuneyt- inu. „Mál þetta virðist vera að sveigj- ast inn á nýjar brautir, en um dag- inn var verið að vega að okkur með vafasömum og óljósum stað- hæfingum. Stefán Jónsson ætlaði að beita sér fyrir því að skýrslan yrði birt í heild, en mér skilst að utanríkisráðuneytið hafi sett sig á móti, sem er forvitnilegt í ljósi ummæla utanríkisráðherra að ekki væri um trúnaðarskjal af ráðuneytissins hálfu og engin hernaðarleyndarmál á ferðinni“ — Hvaða aðilar fengu skýrsl- una á sínum tíma? „Ég fékk mitt eintak, en ég get ekkert um það sagt hverjir hafi fengið hana fyrir utan okkur þremenninga sem vorum fulltrúar Framhald á bls. 3 Nokkrir borgarfulltrúar minnihlutans með fyrirspurnir varðandi Isfilm:_ Hvers vegna svo mikla leynd yfir samningum borgarstjóra um ísfilm? Á borgarstjórnarfundi i kvöld verða fluttar nokkrar fyrirspurnir um ísfilm h.f. frá Gerði Steinþórs- dóttur, Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur, Sigurði E. Guðmundssyni og Sigurjóni Péturssyni. Spurt er um eftirfarandi: Getur orðalagið „. . .ýmis önn- ur þjónustustarfsemi á sviði fjölmiðlunar" (sbr. samþykktir fyrir hlutafélagið ísfilm h.f. (uppkast) 2. gr.) vísað til stofn- unar og reksturs sjónvarps- stöðvar? Fari svo að umrætt hlutfélag hefji rekstur sjónvarpsstöðvar, má þá eiga von á, að dagskrár- stjórn þeirrar stöðvar verði skip- uð á líkan hátt og stjórn hluta- félagsins (sbr. 27. gr. áður- nefnds uppkasts að samþykkt- um), þ.e. einn fulltrúi Dagblaðsins og Vísis, einn fulltrúi Morgunblaðs- ins, einn fulltrúi borgarstjórnar- meirihlutans, einn fulltrúi SÍS, einn fulltrúi Isfilm h.f. og einn fulltrúi Almennabóka- félagsins? Hvers vegna kýs meirihluti borgarstjórnar „að ganga til liðs við eina kvikmyndagerð af mörgum, sem starfa i Reykjavik, og veita því fyrirtæki þannig óeðlilega samkeppnisstöðu á markaðnum" (sbr. bréf Saga film til borgarstjóra 23. fyrra mán.)? Hverju svarar borgarstjóri þeirri ábendingu Saga film, að hann fari með rangt mál um stöðu kvikmyndagerðar í Reykjavík, sérstaklega þegar hann láti orð falla á þá lund, að ekkert fyrirtæki á því sviði sé þess umkomið að sinna kvik- mynda- og myndbandagerð af þeim myndarskap og með þeim gæðum, sem nauðsynleg séu? Hvað á borgarstjóri við, þegar hann segir í borgarstjórn — skv. Morgunblaðinu 8. þ.m. — að Framhald á bls. 3 leggja fram tillögu, þar sem lagt er til að Reykjavíkurborg lýsi þeim vilja sínum, að í komandi samning- um verði megináhersla lögð á stór- bætt kjör hinna lægst launuðu og að meðallaun kvenna og karla verði þau sömu. Eins og Alþýðublaðið greindi frá fyrir skömntu, iögðu ofangreindir borgarfulltrúar fram tillögu á síð- asta borgarstjórnarfundi, þar sem þeim tilmælum var beint til launa- málanefndar borgarinnar, að hún legði aðaláhersluna á hina lægst- launuðu og jafnrétti kynja í launa- málum, í komandi samningunt borgarinnar við starfsmenn sína. Þeirri tillögu var vísað til nefndar. Nú er það hins vegar svo, að fjöl- margir starfsmenn borgarinnar eru ekki í Starfsmannafélagi Reykja- víkurborgar, heldur eiga aðild að Sókn, Framsókn og Dagsbrún. Þykir flutningsmönnum eðlilegt að borgarstarfsmenn lýsi viðhorfum sínum í kjaramálum hvað varðar stöðu þessara starfsmanna Reykja- víkurborgar. En tillaga Sigurðar E. Guð- mundssonar, Guðrúnar Jónsdóttur og Sólrúnar Gísladóttur er þannig: Viðræður eru nú hafnar milli Al- þýðusambands íslands og atvinnu- rekenda um gerð nýrra kjarasamn- inga. Hjá Reykjavíkurborg vinnur fjöldi fólks, Hest konur, sem aðild eiga að verkalýðsfélögunum innan ASÍ. Þar ntá nefna Starfsmannafé- lagið Sókn, Verkakvennafélagið Framsókn og Verkamannafélagið Dagshrún. Þótt borgin eigi ekki beina aðild að þessum viðræðum né heldur samningsaðild við gerð kjarasamn- inga skiptir miklu máli, að borgin móti stefnu sína í þessum efnum, áður en til samninganna kemur. Framhald á bls. 3 Kaupmáttur elli- og örorkulífeyris_ 23—27% skerðing á 16 mánuðum Kaupmáttur elli- og örorkulífeyris hefur ver- ið skertur á síðustu 16 mánuðum um 23—27%. Hefur kaupmáttur elli- og örorkulífeyris ekki verið minni í að minnsta kosti áratug. Þetta kemur fram í ályktun þingflokks og framkvæntda- stjórnar Alþýðuflokksins. Þar segir enn fremur: „Framhald núverandi þróunar lýsir óþolandi vanþakklæti í garð hinna öldruðu, sem lagt hafa grunninn að núverandi þjóðfé- lagi. Alþýðuflokkurinn mótmælir harðlega því ntiskunnarleysi stjórnvalda sem felst í þessari að- för og öldruðum og öryrkjum og kerfst þess að hagur þessa fólks verði strax réttur"

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.