Alþýðublaðið - 16.02.1984, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.02.1984, Blaðsíða 4
alþýóu- ■ n RT.rr.j Fimmtudagur 16. febrúar 1984 Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guðmundsson. Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Árni Stefánsson. Blaðamaður: Friðrik Þór Guðmundsson. Auglýsingastjóri: Helma Jóhannesdóttir Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866. Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12. Áskriftarsíminn er 81866 Mismunandi samningar og vinnulöggjöf í Evrópu Löggjöf 1981 Samningar aðila Jvinnumarkaðarinsl Austurríki 40 40 Belgía 40 36-39 Frakkland 39 36-39 England 37,5-40 írland 48 35-40 ftalía 48 35-40 Danmörk 40 Sviss 45 40-45 V-Þýskal. 48 40 Finnland 40 35-40 Holland 48 40 stunda vinnuvika 7 stunda dagvinna Þegar Daninn er kominn heim og sestur að snœð- ingi á Islendingurinn erm eftir 3 stunda vinnu 8 tíma vinna, 8 frítímar og 8 tíma svefn. Þannig hljóðaði ein megin krafan sem Alþjóðasamband jafnaðarmanna setti fram árið 1889. Þá vann launafólk reyndar undantekningalítið laugardagana, svo þessi krafa var í raun um 48 tíma vinnuviku. í dag hafa flest ríki Evrópu sett 40 tíma vinnuviku í löggjöf og víða er útiit fyrir að á ailra næstu mán- uðum og árum fari vinnudagurinn (dagvinnan) að styttast enn um 1 tíma á dag eða 3—5 tíma á viku. & Mér brá ónotalega þegar ég las í DV aö Steingrímur heföi gengið framhjá börum Andropovs. Sá hann ekki börurnar, hugsaöi ég meö mér? Var hann að hugsa um grautinn? Var mikið hneyksl- ast á honum? „Þegar Karl Meyer setur bílinn sinn í gang og ekur heim úr vinnu sinni í Hamburg, hefur Rik Van- hindern í Brussel þegar verið heima um stund, en Pierre Durant í Zurich verður enn að vinna um sinní* Þannig hefst grein sem birtist í Aktuelt nýlega þar sem fjallað er um vinnutíma og frítíma í Evrópu- löndum. Þar segir og: „Þegar sviss- neskur launþegi heldur af stað í or- Framhald á bls. 2 Hækkun launa og verðlags 1983 mælt í % (1. des. ‘82 —l.des. ‘83) 125,1 Svona hækkaði verðlag miklu meira en launin á síðasta ári Ofangreint súlurit birtist í Félagsblaði KÍ, Kennarasam- bands íslands, sem er nýkomið út. Það sýnir ljóslega hversu verðlag í landinu hækkaði miklum mun meira en launin á síðasta ári. í fyrstu súlu til vinstri má sjá launahækkun ríkisstarfs- manna á síðasta ári upp á 31,58%. Þvi næst má sjá hækkun byggingavísitölu upp á 55,9%, síðan hækkun framfærslu- vísitölu upp á 77,12, þá hækkun lánskjaravísitölu um 77,49, næst er hækkun rafmagns til heimilisnota í Reykja- vík upp á 92,0, bensín um 65,9, olíu til húshitunar um 41,9, Hitaveitu Reykjavíkur um 125,1 og loks afnotagjaldið af síma um 68,15. Taflan skýrir sig annars sjálf.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.