Alþýðublaðið - 07.04.1984, Blaðsíða 2
2i
Laugardagur 7. apríl 1984
r-RITSTJORNARGRElN-
Á velferðarþjóðfélagið
undir högg að sækja?
A siðustu misserum hafa orðið miklar umræður í
ýmsum iöndum Vestur-Evrópu um velferðarþjóðfé-
lagið. Menn hefur greint á um það hve langt skuli
gangatil að tryggjaeinstaklinginn og sómasamlega
afkomu hans frá vöggu til grafar.
Jafnaðarmenn hafa ávallt litið svo á, að markaös-
kerfið geti ekki tryggt réttláta tekju- og eignaskipt-
ingu. Jafnvel að kjarasamningar launþegasamtaka
tryggi ekki réttmæta hlutdeild launþega I þjóðar-
tekjum, eins og svo berlega hefur komið I Ijós hér á
landi.
M ikill fjöldi þjóðfélagsþegna verður ávallt afskipt-
ur I markaðskerfi m.a. vegna aldurs, sjúkdóma, slysa
og af ýmsum öörum ástæðum. Þessir einstaklingar
geta ekki lifað því mannsæmandi menningarlífi,
sem þeir eiga rétt á, nema hið opinbera gæti hags-
muna þeirraog tryggi þeim nauðsynlegar tekjur.
Þetta hefur verið einn af rauðu þráðunum i starfi
og stefnu jafnaðarmannaflokka. Til þess að ná
þessu marki hafa þeir barist fyrir almannat rygginga-
kerfum. Með sjúkratryggingum, lifeyristryggingum,
fjöiskyldubótum, slysatryggingum, örorkubótum,
atvinnuleysisbótum og lágmarkstekjutryggingu
hefurnáðst stórkostlegurárangurí átt til tekjuöflun-
ar. — Enginn geturlengurhugsað sérþjóðfélagiðán
þessa kerfis, og allir viðurkenna réttmæti þess.
Þessu til viðbótar hafa jafnaðarmenn barist fyrir
húsnæðislánakerf i svo að hinir tekjulægri og raunar
allur almenningur eigi þess kost að afla sér hús-
næðis, sem ekki væri unnt ef markaðsöflin ein réðu
framboði og eftirspurn.
Svo afla megi fjár til þessa tekjujöfnunarkerfis,
þarf skattalöggjöfin að vera þannig, að allir þjóðfé-
lagsþegnar og öll fyrirtæki greiði til sameiginlegra
þarfa í skynsamlegu og réttu hlutfalli við greiðslu-
getu.
Þannig er í grófum dráttum sú stefna á sviði al-
mannatrygginga, heilsugæslu, húsnæðismála og
skattamála, sem nefnd hefur veriö félagsmála-
stefna og leggur grundvöll að velferðarþjóðfélag-
inu. Jafnaðarmenn hafa ávalit verið brautryöjendur í
baráttunni fyrirþessari stefnu, sem í grundvallarat-
riðum hefur nú hlotið almenna viðurkenningu eftir
áratuga baráttu.
Það fer hins vegar ekki hjá því, að enn sé deilt um
það hversu langt skuli gangaá þessu sviði, hve ræki-
lega afkoma einstaklingsins skuli tryggð og hvort
sú hætta sé fyrir hendi, að þetta kerfi dragi um of úr
framtaki einstaklinganna sjálfra til að bjarga sér.
Þegar erfiðleikar steðja að á efnahagssviöinu,
grípa afturhaldsöflin til þeirra kenninga, að vel-
ferðarríkið sé þjóðfélaginu of dýrt. Þess vegna þurfi
að skerða þá tryggingu, sem einstaklingurinn hefur
fyrir því að fá að lifa mannsæmandi lífi, hvort sem
hann geturaflað til þess teknaeðaekki. — Fjármun-
um, sem þannig sparast sé betur varið á vettvangi
atvinnurekstrar.
Þegar helkalt frumskógarlögmáliö tekur við og
hefur vald til að herja á velferðarríkið, er mannleg
reisn og frelsi i hættu. Þeir, sem viljastandavörö um
félagsmálastefnuna, verðaþáað grípatil sinna ráða.
Þaðhefurstundum reynsterfitt, þegarþeirhafaekki
getað bent á leiðir til að fjármagna með eölilegum
hætti velferðarkerfið. — Þáhafaþeirheldurekki get-
að komið sér saman um hversu langt skal ganga í
sjálfri velferöinni.
A undanfömum misserum hafa verið reifaðar hug-
myndir um það hvernig finna megi nýjar leiðir til að
tryggja velferðarríkið. Þessar hugmyndir verða
ræddaráráðstefnu í dag í Gerðubergi í Reykjavlk. Að
þessari ráðstefnu stendur fólk úr fjórum stjórnmála-
flokkum, sem láta sig félagsmálastefnuna miklu
varða. Þaó vill reyna að átta sig á þvi hver sé staða
velferðarþjóðfélagsins. Slik umræða er mjög mikils
virði!
- ÁG -
Áskorun til greiðenda
fasteignagjalda í Kópavogi
Hér með er skorað á alla þá sem eigi hafa greitt
gjaldfallin fasteignagjöld ársins 1984 að gera skil
innan 30 daga frá birtingu áskorunar þessarar.
Hinn 7. maí næst komandi verður krafist nauð-
ungaruppboös samkvæmt lögum nr. 49-1951 á
fasteignum þeirra er þá hafa eigi gert skil.
Innheimta Kópavogskaupstaðar
||| Bókavörður
Reykjavíkurborg óskar eftir að ráða bókavörð hjá skóla-
safnamiðstöð fræðsluskrifstofunnar Frfkirkjuvegi 1.
Upplýsingar veitir skólasafnafulltrúi í sima 28544.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
vfkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánu-
daginn 16. apríl 1984.
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í eftirtalin verk:
Efnisvinnsla á Vestfjörðum 1984
Hluti I.: | Vestur-Barðastrandarsýslu.
3 námur með samtals magn 15.500 m3
Hluti II.: í Norður-ísafjarðarsýslu.
4 námur með samtals magn 27.700 m3
Verki skal lokið eigi síðar en 1. október 1984.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Vegagerðar ríkis-
ins á ísafirði og hjá aðalgjaldkera Vegagerðar rlkisins,
Borgartúni 5, Reykjavík frá og með mánudeginum 9.
aprfl n.k. gegn 1000 króna skilatryggingu.
Fyrirspurnir ásamt óskum um upplýsingar og/eða
breytingar skulu berast Vegagerð ríkisins, ísafirði skrif-
lega eigi síðar en 24. apríl 1984.
Gera skal tilboð í samræmi við útboðsgögn og skila í
lokuðu umslagi merktu nafni útboðs, til Vegagerðar
ríkisins, Dagverðardal, ísafirði, fyrir kl. 14.00 hinn 30.
aprll 1984. Kl. 14.15 þann samadag verðaútboðin opnuð
þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Flutningur efnis Svertingsstaðir — Brú
Flytja skal 300 m3 af klæðningarefni 28,5 km leið.
Verki skal lokið eigi siðar en 15. júli 1984.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Vegagerðar
ríkisins á Hvammstanga og Drangsnesi frá og með
mánudeginum 9. apríl 1984, gegn 200 króna skilatrygg-
ingu.
Skila skal tilboði í lokuðu umslagi á skrifstofu Vega-
geröar rikisins, Hvammstanga fyrir kl. 14.00 hinn 2. mal
1984.
ísafirði í mars 1984.
Vegamálastjóri
Útboð
Tilboð óskast í stofnlögn Hitaveitu að íbúöarhverfi
norðan Grafarvogsannan áfangafyrir Hitaveitu Reykja-
víkur.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi
3, Reykjavík gegn 1500 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 12.
apríl næst komandi kl. 15 eftir hádegi.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Viðbygging við Sólvang
Tilboð óskast í byggingarframkvæmdir
við Sólvang í Hafnarfirði.
Gera skal sökkla, kjallara og gólfplötu 1.
hæðar byggingar sém er alls 1440 m2.
Stærð kjallara er 578 m2. Ennfremur skal
skilafokheldum hlutaaf 1. hæð, aðstærð
885 m2. Greftri fyrir húsinu er lokið. Verk-
inu skal að fullu lokið 1. des. 1984.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri gegn 5000,- kr. skilatryggingu. Til-
boð verða opnuð á sama stað þriðjudag-
inn 17. apríl 1984, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Utboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i efnis-
vinnslu á Norðurlandi vestra.
Helstu magntölur eru:
Víðidalstungumelar 10.200 m
Kjölur í Víðidal 2.700 m
Skinnastaðir 4.600 m
Undirfell 8.000 m
Skeggjastaðir 1.000 m
Verkinu skal lokið 15. iúlí 1984.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Vega-
gerðar ríkisins áSauðárkróki og í Reykajvík fráog
með 9. apríl 1984 og kosta kr. 500.-
Skila skal tilboði í lokuðu umslagi merktu „Efnis-
vinnsla II á Norðurlandi vestra 1984“ til Vegagerð-
ar ríkisins, Borgarsíðu 8, Sauðárkróki, fyrir kl.
14.00 hinn 24. apríl 1984 og kl. 14.15 sama dag
verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum þeim
bjóðendum, sem þess óska.
Reykjavík i apríl 1984
Vegamálastjóri
Friðarráðstefna 4
lina þjáningar og leita með því leiða
til að koma á friði meðal allra jarð-
arbúa.
Miklar vonir eru nú bundnar við
hina fyrirhuguðu ráðstefnu og því
fagnað að finnsku og sænsku
Rauðakrossfélögin skuli hafa á-
kveðið að efna til hennar á Álands-
eyjum sem eru samkvæmt alþjóða-
samþykktum hlutlaust svæði á ó-
friðartímum.
Nýlega hafa aðalskrifstofu RKÍ
borist frá Genf bæklingar og annað
kynningarefni um friðarmál. Er
þar að finna upplýsingar sem geta
verið nytsamar til hugleiðinga um
friðarmál og er þangað ýmsan
gagnlegan fróðleik að sækja fyrir
nemendur í skólum eða aðra hópa
sem vilja efria til kynningar á frið-
arstefnu Rauða krossins og um-
ræðna um hana.
Aðalsk
bifreið
í Mýra- og Borgarfja
Bifreiðaeftirlitið í E
og 13—16.30 eftirti
í Borgarnesi:
Þriðjudaginn 10. a
Miðvikudaginn 11. a
Fimmtudaginn 12. a
Föstudaginn 13. a
Þriðjudaginn 17. a
Miðvikudaginn 18. a
Þriðjudaginn 24. a
Miðvikudaginn 25. a
Fimmtudaginn 26. a
Föstudaginn 27. a
Miðvikudaginn 2. r
Fimmtudaginn 3. r
Föstudaginn 4. r
Þriðjudaginn 8. r
Logaland 9. r
Lambhagi 10. r
Olíustöðin 11. r
Endurskoðun ferfram í Bc
og í Lambhaga kl. 10—1
þann 15. júní.
Við skoðunina ber að Uí
bifreiðagjöldum, tryggin*
Athugið að engin í
mánudögum.