Alþýðublaðið - 25.04.1984, Síða 3
Miðvikudagur 25. apríl 1984
3
Vélstjórqfélag Vestmannaeyja:
Atelur kæruleysi og undan-
látssemi opinberra aðila
„Félagsfundur í Vélstjórafélagi
Vestmannaeyja haldinn miðviku-
daginn 11. apríl 1984 styður heils-
hugar þá einstaklinga og félaga-
samtök sem berjast og hafa barist
nú síðari ár fyrir því að koma sjálf-
virkum sleppibúnaði fyrir gúmmí-
björgunarbáta um borð í íslenska
skipastólinn sem allra fyrst, jafn-
framt krefst fundurinn þess að hætt
verði allri undanlátsemi gagnvart
gildandi reglugerðum í því sam-
bandi“, segir í frétt frá Vélstjórafé-
lagi Vestmannaeyja. Þar segir og:
„Fundurinn átelur harðlega það
kæruleysi og þá undanlátsemi opin-
berra aðila sem með öryggismál
sjómanna hafa að gera það er
furðulegt að opinber stofnun sem
fer með öryggismál sjómanna skuli
leyfa sér að leika sér með reglugerð-
ir sem hún sjálf hefur sett á þann
veg að gera svo slakari kröfur en
hún setti í upphafi og þá sérstaklega
þegar það er haft í huga að það var
til búnaður sem uppfyllti þær kröf-
ur sem settar voru í upphafi.
Svo kom enn ein furðufregnin
um þessa stofnun fram í sjónvarps-
þætti þann 10.4 1984 sem fjallaði
um öryggismál sjómanna þegar
settur siglingamálastjóri sagði að
stofnunin gæti ekki gefið út af sinni
hálfu hvað af þeim sleppibúnaði
fyrir gúmmíbjörgunarbáta sem
framleiddir eru í dag væri full-
komnastur til notkunar, en stofn-
unin væri fær um að dæma um
hvort búnaðurinn væri hæfur eða
ekki svo furðulegt sem það nú er.
Eins kom fram í áðurnefndum
sjónvarpsþætti afskipti ráðherra af
útgáfu haffærisskírteinis sem var
útrunnið og mótmælir félagið
harðlega svona íhlutun, ef að tögg-
ur væru í sjómönnum þá ættu þeir
að sigla í land og fara ekki út aftur
fyrr en viðkomandi ráðherra hefði
afturkallað þetta gerræði og léti
þær stofnanir í friði á meðan þær
vinna samkvæmt þeim lögum sem
þær eiga að starfa eftir.
Að lokum vill félagið óska þess
að sú umfjöllun um öryggismál sjó-
farenda sem átt hefur sér stað að
undanförnu haldi áfram og að sky n-
semin verði látin ráða en ekki æs-
ingur eða ofstæki á einn eða annan
hátt“.
Miðstjórn Bandalags sérskólanema:___
Vill tafarlausan undirbúning að
uppbyggingu námsmannaíbúða
Miðstjórn Bandalags íslenskra
Sérskólanema samþykkti eftirfar-
andi ályktanir á fundi sínum þann
3. apríl s.l.:
Miðstjórn BÍSN skorar á Al-
þingi, ríkisstjórn íslands og Sam-
band íslenskra Sveitarfélaga að
hefja nú þegar undirbúning að upp-
byggingu námsmannaíbúða til
handa öllum sérskóla- og háskóla-
nemum.
Fundurinn átelur ofangreinda
aðila harðlega fyrir að hafa alger-
lega brugðist skyldu sinni í þessu
máli og álítur að með markvissri
stefnu hefði mátt og megi í framtíð-
inni afstýra mestu af húsnæðisöng-
Karlakórinn Fostbræður heldur
árlega tónleika fyrir styrktarfélaga
sína í Háskólabíói fimmtudaginn
26. apríl kl. 19.00 og laugardaginn
28. sama mánaðar kl. 15.00.
Söngstjóri kórsins er Ragnar
Björnsson.
Píanóundirleikari er Jónas Ingi-
mundarson.
Einsöngvarar með kórnum eru
Kristinn Sigmundsson, óperu-
söngvari og Björn Emilsson, einn
kórfélaga.
Á tónleikunum koma fram í boði
kórsins og syngja einsöng nokkrir
nemendur, sem stunda söngnám
við tónlistarskóla í Reykjavík, en
þeir eru:
þveiti því senr hér ríkir á aðalsvæði
háskóla- og sérskólanáms hérlend-
is, Reykjavík.
Miðstjórn BÍSN skorar á ís-
lensku þjóðina, Alþingi hennar og
ríkisstjórn að vakna til meðvitund-
ar og rísa upp gegn hinni hraðvax-
andi hættu sem tilveru þjóðar í
þessu landi er búin af takmarka-
lausum viðbúnaði kjarnorkuveld-
anna í höfunum umhverfis landið.
Miðstjórnin skorar á Alþingi að
lýsa ísland, lofthelgi landsins og
fiskveiðilögsögu án tafar kjarn-
orkuvopnalaus svæði og að vinna
að þeirri ákvörðun fylgi á alþjóða-
Frá Tónlistarskólanum í Reykja-
vík: Anders Torsten Josepsson.
Frá Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar: Jóhanna Sveinsdótt-
ir.
Frá Nýja Tónlistarskólanum í
Reykjavík: Björn Björnsson og Sig-
ríður Elliðadóttir.
Á efnisskrá tónleikanna er tónlist
frá Bandaríkjunum, íslandi, Eng-
landi, Frakklandi, Þýskalandi,
Ungverjalandi og Sovétríkjunum.
Mörg þessara laga eru vel þekkt og
hafa notið mikilla vinsælda. Meðal
verka á efnisskrá má nefna Bolero
eftir Ravel, Rímnalög eftir Ragnar
Björnsson, rússnesk þjóðlög þ.á m.
Stenka Rasin o.fl.
vettvangi, sér í lagi á meðal ná-
grannaþjóða okkar.
Ríkisspítalar
skipta við
Bæjarleiðir
í síðustu viku var undirritaður
samningur um leigubílaakstur milli
Rikisspítala og leigubílastððvarinn-
ar Bæjarleiða til eins árs samkvæmt
útboði Innkaupastofnunar rikisins.
Samningurinn kveður á um að
Ríkisspítalar skipta nú eingöngu
við Bæjarleiðir um fólksflutninga
með leigubílum. Hér er einkum um
að ræða samningsbundinn akstur á
starfsfólki vegna útkalla og vinnu
utan áætlunartíma strætisvagna.
Einnig flutning á sjúklingum milli
stofnana. Bílastöðin Bæjarleiðir
gefur magnafslátt af viðskiptun-
um. Einnig munu þessir aðilar i
sameiningu skipuleggja flutning-
ana og nýta betur akstur leigubíla
en verið hefur.
Ríkisspítalar reikna með að
sparnaður af samningi þessum
verði um 1—1.5 milljónir króna á
þessu ári.
Arlegir styrktar-
tónleikar Fóstbræðra
Hafnarfjörður
Matjurtagarðar
Leigjendum matjurtagarða í Hafnarfirði tilkynnist
hér með að þeim berað greiða Ieigunafyrir5. maí
næst komandi ella má búast við að garðlöndin
verði leigð öðrum.
Bæjarverkfræðingur
Veðurathugunarmenn
á Kili
Veðurstofa íslands óskar að ráða tvo einstaklinga, hjón
eða einhleypinga, til veðurathugana á Hveravöllum á
Kili. Starfsmennirnir verða ráðnir til ársdvalar, sem
hefst 1. ágúst 1984. Umsækjendur þurfa að vera heilsu-
hraustir og reglusamir, og nauðsynlegt er, að a.m.k.
annar þeirra kunni nokkur skil á meðferð véla. Tekið
skal fram, að starfið krefst góðrar athyglisgáfu, ná-
kvæmni og samviskusemi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, heilsufar,
menntun, fyrri störf og meðmælum ef fyrir hendi eru,
skulu hafa borist Veðurstofunni fyrir 10. maí n.k.
Allar nánari upplýsingar gefa deildarstjóri og veður-
fræðingar áhaldadeildar Veðurstofunnar, Bústaðavegi
9, Reykjavík
Gjöf Jóns Sigurðssonar
Samkvæmt reglum skal veita fé úr sjóðnum Gjöf Jóns
Sigurðssonar „til verðlauna fyrir vel samin vísindaleg
rit og annars kostar til þess að styrkja útgáfur merki-
legra heimildaritá*. Heimilt er og að „verja fé til viður-
kenningar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem
hafa vlsindarit I smíðum“. Öll skulu rit þessi „lúta að
sögu íslands, bókmenntúm þess, lögum, stjórn og
framförum".
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonarauglýsir hér
með eftir umsóknum um fjárveitingar úr sjóðnum.
Skulu þær stílaðar til verðlaunanefndarinnar, en send-
ar forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsi, 101 Reykja-
vlk, fyrir 15. maf n.k.
Umsóknum skulu fylgja rit, ritgerðir eða greinageröir
um rit í smíðum.
Reykjavík, 15. apríl 1984
Verölaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar
Bjarnl Guðnason
Magnús Már Lárusson
Sigurður Lindal
Tilkynning frá
Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur
Axel Blöndal læknirhættirstörfum sem heimilislækn-
ir 1. júní n.k. Þeir samlagsmenn sem hafa hann fyrir
heimilislækni eru beðnir að koma I afgreiöslu S.R. og
velja sér nýjan heimilislækni.
Eru menn vinsamlegast beönir að hafa sjúkrasamlags-
skírteini meðferðis.
Aðalfundur
Hagtryggingar h.f.
árið 1984 verður haldinn I Domus Medicavið Egilsgötu
laugardaginn 28. aprll og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta félagsins.
Aðgöngumiöar að fundinum og atkvæðaseðlar verða
afhentir hluthöfum eðaöðrum með skriflegt umboð frá
þeim i skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 10,
Reykjavlk dagana 24.-28. apríl á venjulegum skrif-
stofutlma.
Stjórn Hagtryggingar hf.
Bfllinn í lagi
— beltin spennt
bömin í aftursæti.
GÓÐAFERÐ!
U
UMFERÐAR
RÁÐ