Tíminn - 16.03.1967, Blaðsíða 3
1
FIMMTUDAGUR 16. marz 1967
TÍMINN
VÍNIANDSKORTIÐ
^ r^irTnBrr *
SKOÐAÐ CEGNUM
STÆKKUNARGLER
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
Sýningin á Vínlandskortinu
var opnuð í forsal Þjóðminja-
safnsíns að viðstöddu fjöl-
menni, ráðherrum, ambassa-
dorum erlendra ríkja og ís-
lenzkum embættismönnum.
Dr. Kristján Eldjárn þjóðminja
vörður bauð gesti velkomna, en
mmm.
Prófessor Reichardt flytur ávarp við
opnunarathöfnina í Þjóðminjasafn-
þvínæst tók til máls James Pen-
field ambassador Bandaríkjanna á
íslandi, en þetta er í síðasta sinn
er Ihann kemur hér opinberl. fram
fyrir hönd þjóðar sinnar, þar sem
hann er á förum héðan.
Þá tók til máls Konstantine
Reichardt prófcssor við Yale há-
skólann, en hanu mun þalda erindi
um Vínlandskort I á morgun kl.
15.30 í hátíðarsal Háskólans.
Gylfi Þ. Gíslason menntamála
ráðherra tók Mðastur til máls, opn
aði síðan sýninguna, og viðstadd
ir flykktust um sýningarkassana
sem kortið er geymt í, — en ó-
einkennisklæddir lögreglumenn
fylgdust meg úr fjarlægð. Var
greinilegt á gestum að þeim þótti
mi'kið til kortsins koma, er þeir
rýndu á kortið í gegnum glerið
sem það er geymt undir.
Sýningin á kortinu verður opin
daglega til og með 30. marz kl.
13.30 — 22. Aðgangur að sýning
unni er ókeypis og fá gestir prent
aðar upplýsingar um kortið og
fylgirit þess á sýningunni.
Hingað kom Vínlandskortið frá
Noregi, en það var sýnt opinber-
lega í Osló. Þegar sýningu á
kortinu lýkur hér á landi verð-
ur það sennilega sent til Kaup-
mannahafnar og sýnt þar.
Prófessor Einar Ól. Sveinsson rýnir í Vínlandskortið í gegn um stækkunargler.
Gestir flykkjast í kring um sýningarkassana sem hafa að geyma kortið og fylgirit þess. Kortið er neðst til
vinstri í kassanum. (Tímamyndir Kári)
Stökk í höfnina og náði í
meðvitundarlausan mann
KJ-Reykjavik, miðvikudag. Idreginn upp á hafnarbakkann hálf
í morgun féll maður í Reykja meðvitundarlaus.
víkurhöfn, en nærstaddur lög- Tjminn hafði tal af Sveini í
regluþjónn Sveinn Stefánss. stakk kvöld vegna björgunarinnar og
sér eftir manninum og hélt hon- sagðist honum svo frá:
um á floti þangað til hann varl — Ég var á eftirlitsferð um
höfnina einn míns liðs, og þegar
ég er á Miðbakkanum niður und
an hafnarbakkanum sé ég ein-
hverja þúst á sjónum, og sýnist
þetta í fyrstunni vera lík á floti,
en við nánari atihugun sé ég hvar
bólur komu á sjóinn, og þá hlaut
þetta að vera maður með ein-
hverju lífsmarki. Ég fór því úr
jakkanum og skónum og í sjóinn,
synti að manninum og dró hann
Erambald a bls. 15.
FLUGFELAGID 0G SAS HEFJA
SAMVINNU í FÆREYJAFLUGI
Talið líklegt, að þar með sé rekstrargrundvöllur Faröe Airways úr sögunni
NTB—Kaupmannahöfn.
OÓ--Reykjavík, miðvikudag.
Dansk-færeyska flugfélagiS
Faröe Airways, sem haft hef-
ur með hendi áætlunarflug
milli Færevja og Kaupmanna-
ha*nar í þrjú ár, verður senni
lega lagt niður 1. apríl n.k.
þar sem starfsgrundvöllur
þess er brostinn. Félagið held-
ur einnig uppi áætlunarflugi
til Bergen og Orkneyja.
Fél&gið hefur farið þess á leit
við dönsku flugmálastjórnina að
framiengja loftferðasamninginn á
þessum flugleiðum, en SAS hefur
tilkynnt sömu yfirvöldum það að
félagið ætli að notfæra sér rétt-
indi sin á flugleiðinn- Færeyiar-
Norðurlönd sem „lánuð' hafa ver
ið Faröe Airways í þrjú ár. Ætlun
SAS er að leigja flugvélar frá
Flugfélagi íslands á leiðinni milli
Færeyja og Kaupmannahafnar. En
íslendingar fljúga á núverandi flug
leið milli Reykjavíkur og Fær-
eyja.
Malið hefur verið lagt fynr Lög
þingið í Færeyjum. Faröe Air-
ways hefur nýlega pantað oriár
nýjar flugvélar. Um 3Ö manas
vinnu hjá félaginu.
l'íminn bár þessa frétt frá 'VT3
undir Svein Sæmundsson, blaða-
fulltrus Flugfélags íslands, og
sagði hann að samningaviðræður
um þttta mál hefðu farið fram
í Kaupmannahöfn milli fulltrúa
SAS og Flugfélagsins. SAS hefði
farið fram á við dönsku flug-
málastjórnina að notfæra sér rétt
indi sín á flugleiðinni milli Fær-
eyia.og Norðurlanda og farið fram
á við Flugfélag íslands að það
félag sæi um flugið á þessari flug-
leið. Samningar hafa tekizt um að
Fluge.agið taki að sér áætlunar-
flug á þessari leið og að flogið
verði á flugvélum FÍ og með ís-
lenzkum áhöfnum. Félögin hafa
gert með sér sérstakan samning
um skiptingu kostnaðar og teKna
á tlugleiðinni. Áætlunarflugi á
leiðinn' Færeyjar—Kaupmanna-
hötn verður hagað með tilliti til
áær'urarferða milli íslands og
Færeyja.