Alþýðublaðið - 27.07.1984, Síða 4
alþýðu-
■ ■JhT'JTVM
Föstudagur 27. júlí 1984
Útgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Árni Stefánsson.
Dlaðamaöur: Friðrik Þór Guðinundsson.
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, sími 81866.
Setning og umbrot: Alprent hf. Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
Islendingur
á öldum
ljósvakans
í Noregi
Forsíða Arbeiderblaðsins. Gunnar Friðþjófsson til vinstri.
Ef að líkum lætur mun umræðan
um útvarpslögin verða tekin aftur
upp á Alþingi í haust. Einsog flestir
muna var málið svæft í nefnd sl. vor
og kom því aldrei til afgreiðslu. í
nýju útvarpslögunum er gert ráð
fyrir því að útvarpsrekstur verði
gefinn frjáls að takmörkuðu leyti.
Flestir eru sammála því að einokun
ríkisútvarpsins beri að afnema, hins
vegar greinir menn á um að hve
miklu leyti útvarpsreksturinn skuli
gefinn frjáls. Sumir vilja algjört
frelsi en aðrir vilja takmarka það að
einhverju leyti og að hið opinbera
veiti leyfin.
Auk þess er deilt um það hvort
leyfa skuli auglýsingar í einkastöð-
vunum. Spilar þar auðvitað inn
hræðsla ríkisútvarpsins við að það
þurfi að fara að deila auglýsinga-
kökunni með fleiri aðilum.
Hvað gerist eiginlega ef lög þessi
ganga í gegn. Fyllist þá allt af út-
varpsstöðvum á einu bretti, eða
verða það fyrirtæki á borð við ís-
film, sem verða nýir einokunaraðil-
ar á þessum markaði?
Reynsla Norðurlandanna
Á Norðurlöndunum hefur verið
gerð tilraun með svokölluð ná-
grennisútvörp, þ.e.a.s. svæðið sem
útsendingin nær yfir er takmarkað
við næsta nágrenni, sveitarfélag eða
borg. Hefur þetta verið reynt bæði
í Svíþjóð og í Noregi. Auðvitað eru
ekki allir á eitt sáttir með ágæti
þessarar tilraunar, en flestir munu
þó sammála um það að þrátt fyrir
ýmsa vankanta nágrennisútvarps-
ins, hefur það orðið til að auka fjöl-
breytnina. Stilli maður á nágrennis-
stöð í Svíþjóð getur verið að vottur
jehóva sé að boða hlustendum
fagnaðarerindið eða þá tyrkneskur
innflytjandi segjandi fréttir að
heiman, jú íslendingar búsettir í
Klassískur þriller í
Iðnaðarráðuneytingu.
Hætt er við að orkureikn-
ingur ráðuneytisins rjúki
upp úr öllu valdi því þar er
nú leitað með logandi
Ijósi að þriðja manninum.
Svíþjóð eru með sínar stöðvar, kyn-
hverfingar, stúdentar, fatlaðir o.s.
frv., allslags félagasamtök hafa tek-
ið þennan miðil í þjónustu sína.
Norska tilraunin er ekki eins
gömul í hettunni og sú sænska og
þar hefur þróunin orðið dálítið
öðruvísi. Þar hefur áhugafólk um
útvarpsrekstur tekið sig saman og
stofnað útvarpsstöðvar. En reynsl-
an hefur sýnt að áhugamennskan
nægir ekki. Einhvernveginn verður
að fjármagna útsendingarnar.
Einsog allir sem komið hafa nálægt
þáttagerð í útvarpi vita, getur
klukkutíma þáttur tekið langan
tíma í undirbúningi og þáttagerðar-
fólkið getur ekki stöðugt verið að
gefa vinnu sína, á einhverju verður
það að lifa, auk þess kostar útsend-
ingin sitt.
Auglýsingar
Að auglýsa í útvarpi og sjónvarpi
er bannað bæði í Svíþjóð og
Noregi. Sýnist sitt hverjum um
kosti þess og galla og skal ekki fjöl-
yrt um það hér. Þar sem slíkar regl-
ur gilda um ríkisfjölmiðlana þykir
sjálfsagt að þær gildi líka um ná-
grennisútvarpið. Þetta hefur aftur á
móti sett þeim sem reka þessar
stöðvar stólinn fyrir dyrnar, því eini
möguleikinn til að reka þessar
stöðvar er með auglýsingum.
Nú er í gangi almenn umræða um
að leyfa auglýsingar í útvarpi og
sjónvarpi í Noregi og er búist við því
að það verði leyft áður en langt um
líður. En hvernig komast útvarps-
stöðvarnar af þangað til.
Radíó 1
í Osló er starfrækt útvarpsstöð,
sem kallast menningarradíóið,
radíó 1. Hefur þessi stöð verið mik-
ið í fréttum í Noregi undanfarið
vegna þess að þeir hafa lýst því yfir,
sem reyndar allir vissu, að þeir taki
við peningum frá fyrirtækjum, en í
staðinn fjalla þeir um fyrirtækin í
útsendingum sínum. Nú er radíó 1
ekki eina stöðin sem notar þessa að-
ferð til fjármögnunar á útsending-
um sínum, hversvegna voru þeir þá
að koma með þessa yfirlýsingu?
Tilgangurinn er eflaust tvíþætt-
ur. I fyrsta lagi til að vekja athygli á
þeim vanda sem nágrennisútvörpin
eiga við að glíma og koma af stað
umræðunni um að leyfa auglýsing-
ar í útvarpinu og í öðru lagi til að
vekja athygli á útvarpsstöð sinni,
þvi það er hart barist á þessum vett-
vangi og um að gera að vera í sviðs-
ljósinu.
Nú vill svo til að íslendingur er
framkvæmdastjóri þessarar út-
varpsstöðvar, en hún er ein af
stærstu nágrennisútvarpsstöðvun-
um í Osló. Heitir hann Gunnar
Friðþjófsson, Hafnfirðingur að
uppruna, menntaður í viðskipta-
fræðum við Handelshögskólan í
Osló.
Fjármögnunarleiðir
Blaðamaður Alþýðublaðsins
hitti Gunnar fyrr í sumar og ræddi
þá við hann um þessi mál. Sagðist
Gunnar hafa byrjað hjá útvarpinu
vegna ritgerðar, sem hann var að
vinna í skólanum. Fjallaði ritgerðin
um á hvaða grundvelli hægt væri að
reka nágrennisútvarp. Það fór svo
að hann ílengdist hjá Menningarút-
varpinu og fór að taka að sér þátta-
gerð fyrir þá. Gerðist hann smám-
saman meðeigandi í stöðinni.
í fyrravetur var svo komið að út-
varpsstöðin var rekin með bullandi
tapi. Engir peningar komu inn en
reikningar hlóðust upp. Voru þá
hann og maður að nafni Öysten
Hagen fengnir til að reyna að koma
einhverju lagi á fjármálin.
Fyrsta skrefið í þá átt var að þeir
gerðu samkomulag við Blindra-
félagið í Noregi. Keypti Blindrafé-
lagið helming af hlutafé útvarpsins
og lagði auk þess í mikinn kostnað
við að koma upp almennilegri
vinnuaðstöðu fyrir útvarpið.
Gunnar er nú einn af þrem laun-
uðum starfsmönnum útvarpsins, en
hann sér um fjármálahliðina á
Framhald á bls. 2
MOLAR
Eðliskostir stjórnar Fáks
Aðkeyrslan að hesthúsum Fáks og
félagssvæðinu á Víðivöllum er
mjög umdeild og að margra mati
algjörlega óviðunandi, enda staf-
ar mikil slysahætta af umferðinni
hjá hesthúsunum. A aðalfundi
Fáks, sem haldinn var í mars benti
einn félagsmanna á að leysa mætti
málið með veg um Grjótnámið
enda mun fyrirhugað að reisa
reiðhöli þar. Framtíðarvegurinn
yrði síðan um svokallaðan Efri-
byggðaveg. Eftir að hafa reifað
þessar hugmyndir sínar lýsti hann
eöliskostum stjórnar 'Fáks og
sagði að hún væri búin góðum
reiðhestakostum, þetta væru klár-
hestar með tölti, sem koma vel
fyrir í reið, höfuðburður væri
góður, vilji notalegur en snerpuna
vantaði.
•
Aldeilis misrétti
Skattakóngur Reykjavíkur að
þessu sinni var Birgir Einarsson
lyfsali, einn hinna 7 kollega sem
voru í 14 efstu sætunum. Og hvers
vegna eru lyfsalar svona margir á
toppum? Því svarar Birgir til að
þeir sjálfir og fyrirtækið séu eitt,
að þeir fái ekki að stofna hlutafé-
lög um reksturinn og geti ekki eins
og margir aðrir flokkað laun sín
undir rekstrarkostnað. Haldiði að
sé nú misrétti.
Veitingar og fleira
Deilt var um Skuggahverfið á
3720. fundi borgarráðs 20. júlí
síðastliðinn. en fleira var rætt og
afgreitt. Ein umsókn lá fyrir um
vínveitingaleyfi: í veitingahúsi við
Laugaveg 73 og var henni vísað til
áfengisvarnarnefndar. Veitinga-
húsið Glæsibær er að sækja um
veitingarekstur á Hlemmi, mælt
var með því að samþykkt yrði veit-
ingaleyfi fyrir „Við sjávarsíðuna",
Tryggvagötu, Hamarshúsi, einnig
fyrir Kiwanishreyfinguna að
Brautarholti 26 og sömuleiðis fyr-
ir Ask að Suðurlandsbraut 14.
Þá var bréf Frjálsrar fjölmiðlunar
(DV, Vikan, Orval) um lóð undir
stórhýsi vísað til borgarverkfræð-
ings og svo má geta þess að sam-
þykkt var að gefa stjórn verka-
mannabústaða kost á bygginga-
rétti fyrir 60 íbúðir í fjölbýli og 40
raðhús norðan Fjallkonuvegar í
Grafarholti ...
Fasteignasalar styðja NT
Það hefur ekki farið framhjá
neinum sem lesa blöðin reglulega
að NT hefur fengið öflugan bak-
hjarl þar sem eru fasteignasalarn-
ir i landinu. Þeir sjá sér nú hag í
því að efla málgagn stjórnar-
flokks framsóknarmanna eins og
Moggann. Og peningarnir hljóta
nú að streyma inn í buddu NT.
Þegar til dæmis er litið á miðviku-
dagsblað NT seinasta kemur í ljós
að af 28 síðum eru 10 síður af fast-
eignaauglýsingum (35.7% blaðs-
ins). Allt í allt voru auglýsingar
rúmlega 56% af efni blaðsins.
Það nær hins vegar ekki árangri
Moggans um helgar þegar hart-
nær 60% af efninu eru auglýsing-
ar ...
Góó staðsetnmg. Verö trtboó.
HRÍSHOLT
Embýlishús ca. 300 tm * tveimur hæðom. Nœstum tuíbúió gott hús. 32 tm
bilskúr. Stórar svalir. Mikið útsýni. Verö 4.5. mi«j
ARNARNES
Embyhshús ca.300 tm á tveimur hœðum. Húsið er ekki alveg (uMbúið en vel
ibúöarhæft. Bílskúr. Skipti koma til greina á minni eign. Gott útsýni. Verð 5 3
múlj.
SELJAHVERFI
Einbýlrshús sem er haeð og '4 kjallan, ca. 290
svetnherb. Góðarinnr.,tvöfaldurbil«'^,
5.6 milij.
MOSFELLSTV|
Einbýlishús/tvi
innb. bilskúr
Möguleiki á að s
MOSFELLSSN
Einbýlishús ca 2
svefnherb. Glæsilc V
smáIbúbahveV
Einbýlishús sem er k V
koma tíl greina á 4ra )
VESTURBÆR
Einbýlishús sem er k,V
Moguleiki á að hafa 3 íb’ \
Verð tilboð
iwinmf'irrmiT m
f smiðum
GARÐABÆR
Einbýlishús sem er á tvein... naeðum ca. 260 fm m/bílskúr. Húsið er til afh.
nu þegar. tilbúið undir tréverk að innan og undir málningu að utan. M|ög
aðgengilegl og gott hús á góðum stað. Fallegt útsýni. Verð 4.2 millj.
GARÐABÆR
4ra herb. ca. 110 fm ibúð á 5. hæð i blokk. Ibúðin afh. tilbúin undir tréverk og
málningu. Sameign frágengin. Fallegt útsýni. Verð 2.350 þús.
FOSSVOGUR
4ra-5 herb. ca. 120 Im ibúð á efri hæð i 5 ibúða húsi. Ibúðin afh. tilb. undir
tréverk og málnmgu og sameign frágengin. Fokheldur bilskúr ca. 27 fm. mjög
góð staðsetning.
■jt 1975. Möguleiki á 5
Mikið útsýni. Verð
A jarðhæð er stör
Mikið útsýni.
fellssveit. 4 stór
Tóð lóö. Skipti
Fasteignaþjónusta
iusturstræti 17, s. 26600
ÞortWrm Steingrlmtsoti
tögg. t»»toign**all.