Alþýðublaðið - 30.08.1984, Síða 3
Fimmtudagur 30. ágúst 1984
3
Listafólk frá Azer-
bajdsjan í heimsókn
Um 20 hljóðfæraleikarar, söngv-
arar og dansarar frá sovétlýðveld-
inu Azerbajdsjan eru væntanlegir
hingað til lands í byrjun september
til þátttöku í árlegum Sovéskum
dögum MÍR.
Sovéskir dagar MÍR, Menningar-
tengsla íslands og Ráðstjórnarríkj-
anna, eru nú haldnir í níunda sinn,
en dagarnir eru hverju sinni helgað-
ir sérstaklega einu hinna 15 lýðvelda
Sovétríkjanna, að þessu sinni Azer-
bajdsjan. Verður lögð áhersla á að
kynna með ýmsum hætti á tónleik-
um og sýningum þjóðmenningu og
þjóðlíf í þessu fjarlæga Kákasus-
lýðveldi.
Flestir í hópi gestanna frá Azer-
bajdsjan, sem til íslands kona, eru
félagar í Þjóðdansa- og söng-
flokknum „Könúl“ í Bakú, höfuð-
borg lýðveldisins. Flokkur þessi
hefur starfað í nær aldarfjórðung
og komið fram víða í Sovétríkjun-
um og utan þeirra, m.a. í Búlgaríu,
Finnlandi, Frakklandi, Póllandi, á
Ítalíu og Spáni. Verkefnaskrá
flokksins er afar fjölbreytt. Auk
þjóðdansa og þjóðlaga frá Azer-
bajdsjan sýnir flokkurinn dansa frá
öðrum lýðveldum Sovétríkjanna og
flytur tónlist frá mörgum löndum.
Einleikarar á þjóðleg hljóðfæri
eru Agasalím Abúllaév og Aríf
Asadúllaév. Listrænn stjórnandi
flokksins er Alí Úsúbov og dans-
stjóri Aríf Gúsjenov. Tveir söngvar-
ar eru með í förinni, Nísa Kasímova
og Jaltsin Rzazade, bæði starfandi
við Ríkisútvarpið í Azerbajdsjan.
Fyrir hópnum frá Azerbajdsjan
verður Nabí Khazrí skáld og for-
maður Vináttufélagsins þar í landi.
Hann er nú talinn í hópi fremstu og
kunnustu skálda og rithöfunda í
Sovétríkjunum.
í tilefni Sovésku daganna er
margvíslegt sýningarefni væntan-
legt hingað til lands frá Azerbajdsj-
an og verður sett upp í húsakynnum
MÍR að Vatnsstíg 10. Á sýningunni
verða margvísleg sýnishorn list-
muna frá Kákasusríkinu, en þar
stendur skreyti- og nytjalist með
blóma og byggir á gömlum grunni.
Löngum hefur farið mikið orð af
teppagerð Azerbajdsjana og verða
nokkur sýnishorn teppa á sýning-
unni, einnig leirmunir, skartgripir,
útsaumur og tréskurður. Þá verða
svartlistarmyndir sýndar, Ijós-
myndir, bækur, barnateikningar
o.fl. Sýningin að Vatnsstíg 10 verð-
ur opnuð laugardaginn 8. sept. kl.
16 og síðan opin á virkum dögum
kl. 17-19 og um helgar kl. 14-19.
Sovéskir dagar MÍR 1984 verða
formlega settir mánudagskvöldið 3.
september í félagsheimilinu Hlé-
garði í Mosfellssveit. Það verða
flutt ávörp af hálfu MÍR og gest-
anna frá Azerbajdsjan, en síðan
mun listafólkið flytja hluta af efnis-
skránni, sem það hefur undirbúið
Tökum að okkur
hverskonar
verkefni
í setningu,
umbrot og
plötugerð, svo
sem:
Blöð í dagblaðaformi \
Tímarit
Bcekur
o.m.fl.
Ármúla 38 —
Sími 81866
Fjölbreytni er mikil i teppagerð Azerbajdsjana
fyrir íslandsferðina og flutt verður
i heild á eftirtöldum tónleikum og
danssýningum: Hellissandi 4. sept.,
Stykkishólmi 5. sept., Búðardal 6.
sept., Varmalandi í Borgarfirði 7.
sept. og í Reykjavík (Þjóðleikhús-
inu) laugardaginn 8. sept.
Gestirnir frá Azerbajdsjan verða
viðstaddir opnun sýningarinnar að
Vatnsstíg 10 laugardaginn 8. sept.
kl. 16 og einnig munu þeir koma í
sýningarsalina vegna Azerbajdsj-
an-kynningar sunnudaginn 9. og
mánudaginn 10. sept.
Gert er ráð fyrir að hluti list-
munasýningarinnar verði settur
upp á þeim stöðum, þar sem efnt
verður til tónleika og danssýninga.
Eins og jafnan áður mun MÍR
gefa út lítinn bækling í tilefni Sov-
ésku daganna með fróðleik um
Azerbajdsjan og upplýsingum um
listafólkið sem þaðan kemur og
verkefnaskrá þess.
Mondale
4
maðurinn sem lætur ekki haggast
þrátt fyrir hamaganginn í kringum
hann — hann heldur ró sinni og
æðruleysi í gegnum þykkt og
þunnt.
Það skiptir ekki öllu máli hvað
hann segir — oft er það innihalds-
laust, — en hvernig hann segir það,
er aðalatriðið. Og hann kann að
fara með hlutverk sitt.
Fn þessi silkimjúka áferð Banda-
ríkjaforseta myndi út af fyrir sig
duga skammt, ef hann hefði ekki af
neinu öðru að státa. Hann hefur
náð að koma atvinnuleysinu aðeins
niður og verðbólgunni sömuleiðis.
Þjóðarverðmæti jukust einnig á
fyrri helmingi ársins 1984. Demó-
kratar benda hins vegar á að at- ,
vinnuleysi sé nú jafnmikið og var
þegar Reagan tók við embætti.
Honum hafi hins vegar tekist að
koma atvinnuleysinu upp í 10%
1981-1982 og því hafi Reagan aðeins
verið að leysa vandamál, sem hann
bjó til sjálfur, þegar atvinnuleysinu
er nú komið niður í 7,5%. Það sé
sama atvinnuleysi og var þegar
Carter lét af embætti og Reagan tók
við.
Reagan uppástendur aftur á
móti, að þegar hann hafi tekið við
embætti eftir Carterstímabilið, hafi
allt verið í kaldakoli og ástandið á
leið úr vondu í hið versta. Það hafi
því tekið sig nokkurn tíma að snúa
þeirri öfugþróun við og fá málin til
að ganga í rétta átt á nýjan Ieik. Það
hafi honum hins vegar tekist og nú
séu Bandaríkjamenn að uppskera
af því. Segir Reagan að atvinnuleysi
minnki stöðugt og hafi gert síðustu
mánuði og framhaldandi þróun sé á
aukningu þjóðartekna. Og Reagan
hnykkir á og segir einnig að sam-
fara minnkandi atvinnuleysi, þá
hafi stjórn hans tekist að koma
verðbólgunni niður. Hann bendir
og á að í maí 1983 hafi verðbólgu-
stigið farið niður í 3,7%; lægra en
verið hafi í hálfan annan áratug.
Ýmsir véfengja þó þátt stjórnar
Reagan í þessari þróun efnahags-
málanna og segja aðra þætti hafa
vegið þyngra í þessu sambandi, en
einhverjar ákvarðanir og aðgerðir
stjórnarinnar.
Demókratar hafa sagt að út frá
fræðilegum sjónarmiðum sé það
ekkert meiriháttar afrek að ná nið-
ur verðbólgu með því að keyra nið-
ur lífskjör í landinu og gera efna-
hagslífið út á atvinnuleysi. Annað
er það, sem Demókratar hamra á,
og það er fjárlagahallinn á Reagan-
stjórninni. Hann er upp á 190 bill-
jónir dollara. Það ef þó spurning
hve mikil áhrif hallinn á ríkisrekstr-
inum hefur á almenna kjósendur.
Þeir sjálfur eru vanir því að skulda
og láta sér því fátt um finnast, þótt
ríkissjóður yfirdragi.
Möguleikar Mondale
En hefur Mondale einhverja
möguleika? Hefur hann einhverja
raunverulega von um sigur í nóvem-
ber? Eða eru forsetakosningarnar
einfaldlega æfing í lýðræði — fast-
ur punktur í tilveru Bandaríkjar
m,annaáfjögurra árafresti, sem
verður að ganga í gegnum, enda þótt
allir viti úrslitin fyrirfram?
En mikilvægt atriði í þessu máli
er sú staðreynd að 2A hluti milli-
stéttarfólks hefur það nú lakara en
var þegar Reagan tók við völdum.
'A hluti hefur það hins vegar betra.
Og millistéttin er sterk í Bandaríkj-
unum, hún mætir á kjörstað, hún er
fjölmenn, hún gæti ráðið úrslitum í
kosningunum. Og hvað gerir stærri
— hluti þessarar stéttar, þegar það
liggur fyrir svart á hvítu að lífskiör-
in hafa dregist saman í tíð Reagan?
Og meira en það. Ýmsir halda því
fram að þróunin sé á þann veg, að
millistéttin þurrkist út fyrr en síðar.
Stærri hluti hennar verði að lág-
stétt, en þriðjungur hennar færist
upp — komi til með að verða að há-
stétt — auðkýfingum. Þeir sem eru
þessarar skoðunar segja bandarískt
þjóðfélag á leið til umpólunar — á
leið til skarpari andstæðna en
nokkru sinni fyrr.
í raun skiptir það ekki öllu máli
fyrir rnikinn meirihluta kjósenda í
Bandaríkjunum hvort atvinnuleysi
er meira eða minna nú, en þegar
Reagan tók við af Carter. Meiru
skiptir, að þeir sem hafa atvinnu
hafa lakari kjör nú en áður. Þeir
bera einfaldlega minna úr býtum.
Dæmi: Raunveruleg laun almenns
verkamanns eru í dag 14% lægri en
þau voru 1972, kaupmátturinn er
snöggtum minni. Og ofan á bætist
að skattar eru þyngri nú en þá.
Þetta gæti orðið Ronald Reagan
þungt í skauti í kosningunum. Og
hann getur fáu svarað, þegar á þetta
er drepið.
(Meira verður um stöðuna í
bandarísku forsetakosningunum í
Alþýðublaðinu á morgun.)
Tilkynning til
innflytjenda
Fjármálaráðuneytið hefur með reglum nr. 367/1984
heimilað að taka megi upp einfaldari tollmeðferð á inn-
fluttum vörum. Samkv. 2. gr. reglnanna skal innflytjandi
sem óskareftireinfaldari tollmeðferð uppfyllaeftirtalin
skilyrði:
a) Innflytjandi stundi atvinnureksturog hafi til þess til-
skilin leyfi, svo sem verslunarleyfi, sbr. lög nr.
41/1968, eða iðnaöarleyfi, sbr. lög nr. 42/1978.
b) Innflytjandi hafi tilkynnt Hagstofu íslands um at-
vinnustarfsemi slna og hafi verið færður á fyrir-
tækjaskrá, sbr. lög nr. 62/1969.
c) Innflytjandi hafi tilkynnt skattstjóra um starfsemi
sína, enda sé hann ekki sérstaklega undanþeginn
söluskattsskyldu, sbr. lög nr. 10/1960.
d) Innflytjandi hafi flutt inn vörur á næstliðnu 12 mán-
aða tímabili fyrir 16 mkr. að tollverði eða tollaf-
greiðslur verið minnst 200 að tölu á sama tíma. Við-
miðunartölurþessarskulu lækkaum helming fráog
með 1. janúar 1985.
e) Innflytjandi hafi að mati tollstjóra sýnt fram á við
gerð og frágang aöflutningsskjalaað hann hafi til að
bera fullnægjandi þekkingu á þeim lögum og regl-
um sem gilda um tollmeðferð innfluttra vara.
Innflytjandi sem uppfyllir framangreind skilyrði skal
sækja skriflega á þar til gerðu eyðublaði um einfaldari
tollmeðferð til tollstjóra þar sem lögheimili hans er
samkvæmt fyrirtækjaskrá. í umsókn skal tilgreinaeftir-
talin atriði:
a) Nafn, aðsetur og starfsnúmer. Starfsnúmer innflytj-
anda skal vera nafnnúmer hans eða auðkennis-
númer í fyrirtækjaskrá, sbr. b-lið 2. gr.
b) Númer söluskattsskírteinis og vörusvið þess.
c) Innflutningsverðmæti á síðastliönum 12 mánuðum
og fjölda tollafgreiðslna á sama tíma.
d) Hverjir hafi umboð til þess að undirrita aðflutnings-
skýrslurfyrirhönd innflytjanda, riti hann ekki sjálfur
undir þær, svo og rithandarsýnishorn.
e) Aðrar þær upplýsingar sem eyðublaðið gefur tilefni
til.
Eyðublaðið ásamt sérprentun af reglunum fæst í fjár-
málaráðuneytinu og hjá embættinu. Um frekari fram-
kvæmd hinnar einfaldari tollmeðferðar, sem komið
geturtil framkvæmda 1. október n.k., vísast til reglna nr.
367/1984.
Er innflytjendum bent á að kynna sér reglur þessar og
senda umsóknir til embættisins.
22. ágúst 1984.
Tollstjórinn í Reykjavik
Tilkynning frá
Stofniánadeild
landbúnaðarins
Umsóknirum lán vegnaframkvæmdaáárinu 1985
skulu hafa borist Stofnlánadeild landbúnaöarins
fyrir 15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á
framkvæmdinni, þar sem meðal annars er til-
greind stærð og byggingarefni.
Ennfremurskal fylgjaumsögn héraðsráðunautar,
skýrsla um búrekstur og framkvæmdaþörf, svo
og veðbókarvottorð.
Þáþurfaað komafram í umsókn væntanlegirfjár-
mögnunarmöguleikar umsækjanda.
Sérstaklega skal á það bent að þeir aðilar sem
hyggja á framkvæmdir í loðdýrarækt árið 1985,
þurfa að senda inn umsóknir fyrir 15. september
n.k., svo þeir geti talist lánshæfir.
Þá skal einnig á það bent að bændur, sem hyggj-
ast sækja um lán til dráttarvélakaupa, þurfa að
senda inn umsóknir fyrir 31. desember n.k.
Eldri umsóknir falla úr gildi 15. september næst-
komandi, hafi deildinni eigi borist skrifleg beiðni
um endurnýjun.
Reykjavík, 27. ágúst 1984.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Leggjum ekki af staö í feröalag í lélegum bíl eöa illa útbúnum.
Nýsmuröur bíll meö hreinni olíu og yfirfarinn t.d. á smurstöö er lík-
legur til þess aö komast heill á leiöarenda.
yUMFER«R