Alþýðublaðið - 01.09.1984, Page 2

Alþýðublaðið - 01.09.1984, Page 2
2 Laugardagur 1. september 1984 RITSTJÓRNARGREIN Rauðu blikkljósin Þaö er ekki fyrir menn með meyrt hjarta að sitja á stóli fjármálaráðherra. Því hafa menn áttað sig ásfðustu daga. Það þarf sterk bein til að þola það þegar rauð neyðarljós taka að loga hér og þar á landinu. Og þótt Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra haldi fast um pyngjuna — endurtaki i tima og ótíma að ríkis- sjóður sé á hausnum, — þá stóðst hann ekki ákallið og rauðu Ijósin á Norðausturlandi og vildi að Framkvæmdastofnun bjargaði málun- um f snatri með 8 milljón króna láni. Það er ekkert áhlaupaverk að átta sig á enda- lausum snúningum og hliðarhoppum fjármála- ráðherra. Einn daginn stendur hann stjarfur og segir að ekkert þýði fyrir menn eða samtök að koma til sfn og biðja um peninga; þeir væru ekki til. Svo berast af þvf fréttir, að einstakling- ar læðist inn á skrifstofu fjármálaráðherra og segi sínar farir ekki sléttar og leita ásjár hjá ráðherra. Þá viknar ráðherraog allar gáttir opn- ast;'hann tekur upp símann. Málinu er bjargað. Fyrírgreiöslufurstinn hefurtekið til höndum. Og svo þetta með rauðu Ijósin, sem Albert Guðmundsson fjármálaráðherra segist ekki mega sjá loga, án þess að hjarta hans brenni af hjálparlöngun. Það er kannski leið fyrir opin- bera starfsmenn og samtök þeirra að koma upp ákveðnu merkjakerfi við fjármálaráðherra til að hann átti sig á slakri stöðu þeirra ( kjara- málum. Og þá eru það rauðu blikkljósin sem gilda. Að gamni slepptu, þá er ekki nokkur leið að átta sig á mátflutningi og gjörðum núverandi fjármálaráðherra. Það er eitt í dag og annað á morgun. Vfst er maðurinn litrfkur f meira lagi, enda keppast fjölmiölar við að skýra frá afrek- um hans. En að með Albert Guðmundssyni færi æðsti maður fjármála á íslandi, myndi engan óra fyrir, sem ekki vissi betur. SteingrfmurHermannsson þótti uppfinninga- samur og kom æði oft á óvart. Litbrigði hans fölna og fjölmiðlasegull hans missir aðdráttar- afl sitt ef svo fer fram með fjármálaráðherra, sem verið hefur. En auðvitað er það ekkert gamanmál fyrir þjóðina að það sitji einstaklingur f sæti fjár- málaráðherra sem er upptekinn af því að leika fjölmiðlatrúð. Vitaö er að innan raða sjálfstæðismanna rfkir mikill hugur í ýmsum að koma fjármálaráð- herra frá. Hér er um að ræða þann sama hóp og tók andköf, þegar fyrir láað Albert Guðmunds- son myndi hljóta sæti f rfkisstjórninni. En í hópnum hefurfjölgað að mun. Óbreytt er þó að ákveðinn hópur sjálfstæðismanna stendur föstum fótum kringum Albert og mun ekki Ijá máls á þvl að við honum verði hreyft. Innan- flokksvandamál sjálfstæðismanna hafa áður verið erfið. Ekki eru þau auðveldari viðfangs nú. Andstæðingaflokkar Sjálfstæðisflokksins hafa stundum ekki grátið það þótt það hitni í kolunum í Valhöll. Það er þó öllu alvarlegra, þegar flokkurinn situr f ríkisstjórn og innan- mein sjálfstæöismanna ganga aftur f lélegri stjórnun þjóðarbúsins. Albert var vandi sjálf- stæðismanna einha, þegar honum var ekki hieypt til valda. Nú er hann vandi þjóðarinnar allrar. Vandamál sem þegar verður að leysa. —GÁS. Lögtaksúrskurður Hér með úrskurðast lögtak fyrir gjaldföllnum og ógreiddum þinggjöldum ársins 1984 álögöum í Kópa- vogskaupstað, en þau eru: Tekjuskattur, eignaskattur, sóknargjald, kirkjugarðs- gjald, slysatryggingagjald v/heimilisstarfa, vinnueftir- litsgjald, slysatryggingagjald atvinnurekenda, lífeyris- tryggingagjald atvinnurekenda, atvinnuleysistrygg- ingagjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, iðnlána- sjóðsgjald, sjúkratryggingagjald og sérstakurskatturá skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Ennfremur fyrir launaskatti, skipaskoðunargjaldi, lestargjaldi og vita- gjaldi, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi bifreiðaog slysa- tryggingagjaldi ökumanna 1984, áföllnum og ógreidd- um skemmtanaskatti og miðagjaldi, söluskatti af skemmtunum, vörugjaldi af innlendri framleiðslu sbr. 1. 77/1980, sérst. vörugjald af innlendri framleiðslu sbr. 1. 107/1978, vinnueftirlitsgjaldi, skipulagsgjaldi af ný- byggingum, söluskatti sem (eindaga er fallinn, svo og fyrir viðbótar- og aukaálagningum söluskatts vegna fyrri tfmabila. Verða lögtökin látin fara fram án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda en ábyrgð rlkissjóðs.að 8 dögum liðnum frá birtingu úrskurðar þessa, ef full skil hafa ekki verið gerð. Bæjarfógetinn í Kópavogi, 28. ágúst 1984. Útbod Tilboð óskast í gatnagerð og lagnir Löngubrekku austurhluta, helstu magntölur, gröftur 2690 m3, fylling 2710 m3 og malbik 2405 m2. Utboðsgögn verðaafhent átæknideild Kópavogs gegn 1000 kr. skilatryggingu. Tiiboðum skal skilað á sama stað fyrir kl. 11 mánudaginn 10. september 1984 og verða þá opnuð að viðstöddum bjóðendum. Bæjarverkfræðingur Kópavogs. Útboö Vegagerð rlkisins óskar eftir tilboöum f akstur á styrkingar- og slitlagsefni í Hrunamannaveg (ca. 10.500 m3). Verkinu skal lokið 21. september 1984. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Selfossi og í Reykjavík frá og með 3. september n.k. Skilaskal tilboðum fyrirkl. 14:00 þann 10. septem- ber1984. Vegamálastjóri. Þjóðflokkur 4 um landa einsog Perú, Bólivíu og Guatemala. En stjórnmálabaráttan hefur fyrst og fremst verið á milli vinstri og hægri manna af hvíta minnihlutanum. Leiðtogi landbúnaðarverka- manna af indíánabergi í Bólivíu, Genaro Flores, hefur bent á að þó indíánarnir séu Iang stærsti hópur- inn í verkalýðsstéttinni eigi þeir varla nokkurn fulltrúa í verkalýðs- hreyfingunni, né á vinstri væng stjórnmálanna. í Guatemala þurfa indíánahreyf- ingarnar að berjast við allslags bönn og miklar ofsóknir, sem hafa kostað þúsundir mannslífa. í. Perú hafa indíánabændurnir lent í klemmu milli baráttu stjórn- arinnar við skæruliða, en báðir aðilar hafa notfært sér þessa bar- áttu til að ræna og drepa indíána. Þegar barið er upp á hjá þeim á miðri nóttu, er erfitt að vita hvort þeir muni deyja fyrir kúlum stjórn- arinnar eða byltingarinnar. Enn er komið fram við indíánana einsog þeir væru hernumin þjóð. Einsog kynþáttur þeirra væri lægra settur en aðrir kynþættir. Þeir hafa ekki sama rétt og hvíti maðurinn. Kynþáttaofsóknir og fyrirlitning á indíánum er mjög einkennandi fyr- ir suður-amerísk stjórnmál, bæði á hægri og vinstri kantinum. Og hvað með okkur hin? Frá 1980 hafa 10.000 indíánar verið myrtir. Getiði ímyndað ykkur hver viðbrögðin væru í Evrópu ef hér væri um að ræða hvítan þjóðflokk? Bæði í Evrópu og Bandaríkjun- um hefur fólk miklar áhyggjur af örlögum hvalsins, og selsins, jú og mannkynsins. Við erum hrædd við kjarnorkusprengjuna. Við viljum frið. En friður í skilningi Evrópu- búa og Bandaríkjamanna er friður í okkar heimshluta, öryggi fyrir okkur og afkomendur okkar. Á meðan er indíánunum slátrað sem kvikfénaði. Með fullri virðingu fyrir hvaln- um, selnum og friðarhreyfingun- um, þá er tími til kominn að fólk geri sér grein fyrir örlögum indíán- anna. Eða eigum við að bíða í 20 ár þar til við getum byrjað að gráta yfir örlögum þeirra, þegar það er orðið of seint? (Byggt á grein í Arbeiderbladet) PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar aö ráöa Verkamenn til starfa í nágrenni Reykjavíkur og úti á landi. Nánari upplýsingar verða veittar í starfsmannadeild Lagerstörf Verslunardeild Sambandsins óskar eftir starfsmönn- um til lagerstarfa. Bónusvinna. Nánari upplýsingar hjá lagerstjóra á staönum. <& VERSLUN ARDEILD HOLTAGÖRÐUM------SÍMI 81255 Við leitum að starfsfólki til eftirtalinna starfa: Skráningarstarfa Um getur verið að ræða heiis- eða hálfsdags- störf. Leitað er að fólki með starfsreynslu. Ritarastarfa Leitað er að ritara með góða vélritunarkunnáttu. Eftirlitsmanni í vöruafgreiðsiu og lagermanni með meirapróf Umsóknareyðublöð hjá starfsmannastjóra er veitir frekari upplýsingar. SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA STARFSMANNAHALD Utboö Tilboð óskast I lóðarlögun við Aðalland 8 I Reykjavlk fyrir Byggingardeild borgarverkfræðings. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavfk, gegn kr. 2000 skilatryggingu. Tilboðin verða opnuö á sama stað fimmtudaginn 13. septem- ber n.k. kl. 11 f. hád. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.