Alþýðublaðið - 01.09.1984, Qupperneq 4
alþýdu-
■ n RT’jT'M
Laugardagur 1. september 1984
Útgefandi: Blað h.f.
Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Guðmundur Árni Stefánsson.
Ritstjórn: Friörík Þór Guömundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson.
Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir.
Auglýsingar: Eva Guðmundsdóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð.
Sími:81866.
Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
Hvað vildi Alþýðuflokkurinn
Stjórnarskrármál, starfshœttir Alþingis
og endurbœtur í opinberri stjórnsýslu
Hér á baksíðu Alþýðublaðsins
munum við birta fastan dálk um
helstu stefnumál Alþýðuflokksins
og tillögur, sem settar voru fram í
stjórnarmyndunarviðræðunum
vorið 1983. Er mjög fróðlegt að
rifja þetta upp í Ijósi þeirrar þróun-
ar, sem síðan hefur orðið í þjóðfé-
lagsmálunum.
Fyrsti hluti þessarar upprifjunar
mun fjalla um stjórnarskrármál og
endurbætur á opinberri stjórn-
sýslu.
Eins og lesendum blaðsins er vel
kunnugt um, skipaði forsætisráð-
herra nefnd til að gera tillögur um
breytingar á stjórnkerfi rikisins og
stjórnarháttum. Þó enginn úr
stjórnarandstöðunni væri skipaður
í nefndina, sem vissulega er alvar-
legt mál, þar sem nefndinni er ætl-
að að gera gagngerðar breytingar á
stjórnkerfi landsins, þá hefur Al-
þýðublaðið fregnað að tillögur
nefndarinnar, sem fljótlega verða
lagðar fyrir ríkisstjórnina í formi
lagafrumvarps, beri vissan keim af
tillögum Alþýðuflokksins voriö
1983.
Stjórnarskrármál.
Vorið 1983, setti Alþýðuflokkur-
inn fram eftirfarandi tillögur um
stjórnarskrármál:
Innan tveggja ára verði kvatt til
þjóðfundar um stjórnarskrármál.
Fundurinn verði ráðgefandi fyrir
Alþingi og fjalli um þær tillögur,
sem liggja fyrir varðandi breytingu
á stjórnarskrá Iýðveldisins.
Fulltrúar á þjóðfundi verði ann-
ars vegar fulltrúar kjörnir í hverju
kjördæmi og hins vegar fulltrúar af
landslista. Fulltrúar skiptist til
helminga milli fulltrúa einstakra
kjördæma og landskjörinna full-
trúa, en heildartala fulltrúa skal
ákveðin af Alþingi.
Starfshættir Alþingis.
Þingsköp Alþingis verði endur-
skoðuð.
M. a. verði sett ákvæði til þess að
stytta umræður og taka upp ný um-
ræðuform.
í upphafi hvers þings skal gera
starfsáætlun og fylgja henni í með-
ferð mála.
Bæta skal sérfræðiaðstoð við
þingmenn og nýta tölvutækni í
skjalameðferð þingmanna og
starfsmanna þingsins.
Eftirlitsþátturinn í störfum Al-
þingis skal efldur.
Komið verði á þeirri hefð að
þingmenn sitji ekki í stjórnum
þeirra stofnana, sem Alþingi skal
hafa eftirlit með.
Breyta skal vinnubrögðum við
fjárlagagerð, í því skyni að beita
fjárlögum, sem virkara hagstjórn-
artæki til þess að koma á jafnvægi
í þjóðarbúskapnum.
Fjárveitinganefnd fylgist í aukn-
um mæli með framkvæmd fjár-
laga.
Endurbætur í
opinberri stjórnsýslu
Unnið verði að áframhaldandi
samruna iðnaðar-, landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðuneyta, er fjalli um
nýtingu náttúruauðlinda og mann-
afla og samræmi starfsskilyrði at-
vinnuvega og fjárfestingarstefnu.
Endurskoðaðir verði starfshættir
ráðuneyta og ríkisstofnana og gert
sérstakt átak til hagræðingar á ár-
inu 1984.
Settar verði reglur um tilfærslur í
stjórnunarstöðum og æviráðning
afnumin, nema í undantekningar-
tilvikum.
Hagsýslustofnun og Ríkisendur-
skoðun verði stofnanir á vegum Al-
þingis. Hagsýslustofnun geri úttekt
á kostnaði og efnahagsáhrifum
frumvarpa til laga eða breytinga á
eldri löggjöf.
(Eftir helgi höldum við áfram upp-
rifjuninni).
Þjóðflokki útrýmt fyr-
ir framan nefið á okkur
Veiðimennirnir koma þegar
rökkva tekur: 25 manns, vopnaðir
vélbyssum, öxum og hökum. 90
manns eru reknir út úr þorpinu, 89
liggja í valnum. Bara einn lifði af,
13 ára piltur. Haustveiðarnar eru
byrjaðar í Perú.
Gamli krókódíllinn Evrópa græt-
ur þegar allt er afstaðið. Grætur
þjóðflokka, sem búið er að útrýma.
Evrópa skammast sín nú fyrir villi-
mennskuna, sem nýlendustefnan
byggði á. Hún kveinkar sér nú yfir
afdrifum indíánanna í Bandaríkj-
unum. Kvikmyndir eru gerðar um
framkomu hvítra manna við indí-
ánana, Soldier blue og Little big
man og hvíti maðurinn skammast
sín. Hvílík villimennska, segjum
við, 70 árum of seint.
En við þurfum ekki að fara svo
langt aftur í tímann. Það er verið að
útrýma heilu þjóðflokkunum beint
fyrir framan nefin á okkur. Þús-
undum indíánabænda hefur verið
slátrað síðastliðin tvö ár.
Pilturinn sem lifði af slátrunina,
sem talað var um í byrjun greinar-
innar, sagði að þeir sem að slátrun-
inni stóðu hafi verið skæruliða-
hreyfing, sem kallast „Sendero
Luminoso“ (Upplýsti stígurinn).
En þetta hefðu allt eins getað verið
borgaralega klæddir meðlimir í
herlögreglunni. Skæruliðarnir í
Perú eru engin lömb að leika sér
við, en þó er herinn og ríkislögregl-
an enn grimmari og mun afkasta-
meiri við að myrða og ræna fátæka
bændur af indíánabergi.
Indíánarnir eru fjölmennasti
þjóðflokkurinn í Perú og Bólivíu.
Þeir eru afkomendur Inkanna, sem
þar réðu ríkjum í þúsund ár þar til
spánskir stigamenn brutu niður ríki
þeirra.
400 ára misrétti
Spánska krúnan mergsaug land-
ið og íbúa þess. Landbúnaður, sem
hafði verið blómlegur í Inkaríkinu,
var eyðilagður, indíánarnir settir í
nauðungarvinnu í silfurnámum.
Þrjú hundruð árum seinna kom
frelsið. Ekki fyririndíánana, heldur
fyrir hvítu innflytjendurna.
150 ár eru liðin frá því að Perú og
Bólivía urðu frjáls undan spönsku
krúnunni. Enn eru indíánar í meiri-
hluta, enn eru vopnin og valdið í
höndum afkomenda innflytjend-
anna, evrópsk-ættaða minnihlut-
ans.
Indíánar eru um 60-80% af íbú-
Framhald á bls. 2
Nú eru þeir hættir að hækka
eða lækka gengið. Þeir leið-
rétta bara. Og láta leiðrétt-
inguna meira að segja gilda
afturlyrir sig.
MOLAR
Harka í samninga-
viðræðum
Ætli mönnum brygði ekki í brún
ef launþegar mættu á sáttafund
hjá vinnuveitendum sínum og á
skrifborðinu, við hliðina á papp-
írum forstjórans lægi skamm-
byssa. Þetta gerðist í Danmörku
nýlega. Starfsfólk í nýlenduvöru-
verslun fór í verkfall og þegar
trúnaðarmaður verkamannanna
mætti til fundar á forstjóraskrif-
stofunni, var skammbyssa á borð-
inu fyrir framan forstjórann. Þar
sem samband forstjórans og
þeirra sem unnu hjá fyrirtækinu
hefur verið mjög spennu þrungið
lengi, tók trúnaðarmaðurinn
þetta sem ógnun við sig og kærði
atburðinn. Forstjórinn sagði að
byssan hefði verið þarna óvart,
hann bæri alltaf á sér skammbyss-
una þegar hann færi út á kvöldin
og hún hefði gleymst á skrifborð-
inu. Starfsfólkið tók þessa skýr-
ingu með fyrirvara og Iagði niður
vinnu þar til Vinnuveitendasam-
bandiðdanska kom með skriflega
afsökun á framkomu forstjórans.
•
Ef pressan hefði
haldið kjafti...
Einsog mönnum er eflaust í
fersku minni, fór sérkennilegur
húmor Reagans forseta Banda-
ríkjanna mjög fyrir brjóstið á
fólki um allan heim fyrir ekki svo
löngu síðan. Það var 11. ágúst að
forsetinn lýsti því yfir í hljóð-
prufu að hann væri nýbúinn að
undirrita lög þess eðlis að Sovét-
ríkjunum yrði útrýmt eftir fimm
mínútur. Mótmælum rigndi yfir
forsetann hvaðanæva að. Þegar
blaðamaður spurði hann hvað
honum fyndist um viðbrögðin,
svaraði hann ergilegur: — Þetta er
hálf neyðarlegt — ef pressan hefði
haldið kjáfti, vissi enginn að ég
sagði þetta.
200 metrarnir
Nú stendur yfir Norræna sund-
keppnin um 200 metrana. Þegar
Molar voru ungir þótti það sjálf-
sögð skylda hvers sundfærs
manns að fleyta sér þessa metra í
þeirri von að íslenska þjóðin sigr-
aði í þessari keppni. í dag er öldin
önnur. Frá Akranesi berast þær
fréttir að þátttaka sé slæleg og
ekki nóg með það, meira að segja
þeir sem synda vilja ekki taka
skráningarkost en að sögn sund-
varða þar kemur slíkt að litlu
gagni fyrir Akranes og landið í
heild, þó fólk syndi 200 metrana
ef það er hvergi skráð.
Sá stærsti í Noregi
Það eru ekki bara íslendingar,
sem þykir það fréttnæmt þegar
krækt er í þann stóra. Meðfylgj-
andi mynd rákumst við á í norsku
dagblaði og fylgdi það sögunni að
þetta væri stærsti lax sem veiðst
hefði í Noregi í 20 ár. Laxinn var
1,4 metrar á lengd og vó 20,2 kg.
Hann beit ekki á öngulinn heldur
krækti veiðimaðurinn í sporðinn
á laxinum.