Alþýðublaðið - 27.10.1984, Blaðsíða 4
alþýðu-
ijimtai
Laugardagur 27. október 1984
Útgefandi: Blað h.f.
Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Guðmundur Árni Stefánsson.
Ritstjórn: Friðrik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson.
Skrifstofa: Helgi Gunniaugsson og Halldóra Jónsdóttir.
Auglýsingar: Eva Guðmundsdóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð.
Sími:81866.
Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent, Siðumúla 12.
Áskriftarsíminn
er 81866
Þingmál Jóhönnu Sigurðardóttur og fleiri:
Endurmenntun vegna tæknivæðingar
Á ári hverju gerast byltingar stórar og smáar á sviði tækniþróun-
ar í atvinnulífinu.
Það hlýtur að teljast með stærstu verkefnum næstu ára að tryggja
að þróun tækninnar verði ekki til þess að stórir hópar launafólks
heltist úr lestinni og njóti þannig ekki hlutdeildar í þeim framförum
sem af þessari þróun leiðir.
Þingmenn Alþýðuflokksins í
neðri deild Alþingis hafa lagt fram
frumvarp erlýtur að þessum mál-
um, nánar tiltekið að endurmennt-
un vegna tæknivæðingar í atvinnu-
lífinu. Gerir frumvarpið ráð fyrir
því að komið verði á samræmdri og
skipulagðri endurmenntun og að
skilyrði skapist til aðlögunar vegna
tæknivæðingarinnar, einkum í
þeim atvinnugreinum þar sem at-
vinnuöryggi starfsmanna er í hættu
vegna þessa.
Endurmenntunarráð
í frumvarpinu er félagsmálaráð-
herra falið að skipa sjö manna ráð,
þar sem sæti eiga fulitrúar ASÍ,
BSRB, VSÍ, VMSS, menntamála-
ráðuneytisins og tveir eftir tilnefn-
ingu félagsmálaráðherra. Auk þess
er gert ráð fyrir sérstökum starfs-
manni. í greinargerð með frum-
varpinu er nánar gert grein fyrir
markmiðum þess. Þar segir meðal
.annars:
„Hér á landi hefur allt of lítil um-
ræða enn farið fram um áhrif þeirra
róttæku breytinga sem rafeinda-
tækni og áhrif tölvuvæðingar
munu hafa á vinnumarkaðinn, —
atvinnulíf og atvinnuhætti í land-
inu á komandi árum. Hvaða nýja
möguleika hún muni opna og hvaða
hættu mun hún hafa í för með sér ef
ekki verður brugðist við í tíma á
réttan hátt?
Undanfarna áratugi hafa orðið
miklar breytingar á atvinnulífinu í
heiminum og margt bendir til þess
að þessar breytingar séu rétt að
byrja. Breytingar þessar hafa það í
för með sér að öll störf og vinnuað-
ferðir munu breytast og um miklar
tilfærslur verða á vinnuaflanum á
milli atvinnuvega, starfsgreina,
verkefna og vinnustaða. Sjálfvirkni
og vélvæðing mun hafa það í för
með sér að mörg störf munu annað-
hvort taka miklum breytingum eða
úreldast og ný störf taka við sem
gera sífellt auknar kröfur til starfs-
fólks um endurmenntun. Ef ekki er
brugðist við með réttum hætti í
tíma er mikil hætta á því að það
muni hafa í för með sér versnandi
lífskjör og atvinnuleysi hér á landi.
Brýnasta verkefnið
Þær gífurlegu breytingar, sem
áhrif tæknivæðingarinnar munu
hafa á allt atvinnulíf á komandi ár-
um, gera kröfu til þess að tilfærslur
geti átt sér stað á mannaflanum
milli verkefna og atvinnugreina
með eðlilegum hætti, en forsenda
þess er að starfsfólki sé gert kleift
að njóta endurmenntunar og starfs-
þjálfunar í miklu ríkara mæli en nú
er.
í allri atvinnuuppbyggingu og
leiðum til að bæta lífskjör fólks er
eitt brýnasta verkefnið að opna
starfsfólki möguleika til að geta að-
lagast með eðlilegum hætti áhrifum
þeirra gifurlegu breytinga sem
tæknivæðingin mun hafa í för með
sér á allt atvinnulíf á komandi ár-
um. Endurmenntun starfsfólks er
því ein veigamesta forsenda þess að
hægt sé að nýta sér nýjar tækni-
breytingar til aukinnar framleiðni,
hagvaxtar og bættra lífskjara hér á
landi“.
Starfsöryggi kvenna
Síðan segir í greinargerðinni.
„Margt bendir til þess að það sé
ekki síst starfsöryggi kvenna sem er
í hættu vegna þess að störf þeirra og
menntunarval eru einhæfari og því
viðkvæmari fyrir tölvuþróuninni.
Enn eru ýmiss konar tækninám og
tæknistörf, sem eru hagnýt í störf-
um sem viðkoma tölvuvæðingu,
sem höfða lítt til kvenna op fæstar
sækja í slík nám eða störf. A íslandi
hefur þróunin orðið sú að á árinu
1983 voru af 174 nemendum, sem
skráðir voru í tölvunarfræði í Há-
skóla íslands 140 karlar og 34 kon-
ur, eða 82% karlar en 18% konur.
Aftur á móti virðist svo vera að
konur standi jafnfætis körlum að
því er varðar aðsókn að tölvunám-
skeiðum.
Úttekt, sem gerð var á vegum
Stjórnunarfélags íslands sem m.a.
hefur á sínu starfssviði tölvunám-
skeið, sýnir að konur voru tæplega
helmingur þeirra sem sóttu tölvu-
námskeiðin. Athyglisvert var að
konur voru yfir 90% allra þátttak-
enda í ritvinnslunámskeiðum en
karlar aftur á móti í miklum meiri
hluta þeirra þátttakenda sem sækja
námskeið sem fjalla um stjórnun,
áætlunargerð og undirbúning
tölvuvæðingar.
Á ráðstefnu, sem haldin var sl.
vetur hér á landi um atvinnumál
með tilliti til jafnréttis kynjanna
vegna tæknibreytinga, komu fram
athyglisverðar upplýsingar sem vert
er að benda á:
1. Ráðstefna Alþjóðasambands
verslunarmanna um tölvuvæð-
ingu benti m.a. á að 8% vöxtur
sjálfvirkni á 10 ára tímabili
mundi gera 20—25% skrifstofu-
starfa óþörf. — Um 5 millj. af
17—18 millj. skrifstofufólks í
Vestur-Evrópu mun þá missa
vinnu sína.
2. í skýrslu „Simens office“ er
áætlað að 5.7 millj. skrifstofu-
starfa í Vestur-Þýskalandi sé
hægt að staðla 43% og gera
25—30% sjálfvirk.
3. Frönsk skýrsla (NORA) spáir
30% samdrætti í atvinnu hjá
bönkum og tryggingafélögum á
10 árum. Aætíað er að 82% af
349 þús. vélriturum í Frakklandi
muni missa atvinnu vegna til-
komu ritvinnslutækja.
4. í Bretlandi spá sérfræðingar
verkalýðssamtakanna um 20%
atvinnuleysi á þessu sviði upp úr
1990.
5. I Danmörku er reiknað með að á
næstu árum hverfi um það bil 75
þús. skrifstofustörf.
Þessar upplýsingar sýna að áhrif
tölvuvæðingar mun ekki hvað síst
gæta í störfum þeim þar sem konur
eru fjölmennar, svo sem í almenn-
um skrifstofu- og þjónustustörf-
um“.
Viðbrögð skipta miklu
í lok greinagerðarinnar segir síð-
an:
„Margt bendir til þess að hlut-
fallslega muni störfum ófaglærðra
fækka, en fjöldi tæknimanna,
stjórnenda og sérhæfðra starfs-
Jóhanna Sigurðardóttir
manna fara vaxandi. Einnig er lík-
legt að þróun sjálfvirkni í fisk-
vinnslu samfara framförum í flutn-
ingatækni geti haft í för með sér
mikla fækkun starfa í fiskvinnslu.
Ef starfsfólki í fiskvinnslugreinum
verða ekki sköpuð tækifæri til end-
urmenntunar og aðlögunar að nýrri
tækni getur starfsfólk í fiskvinnslu
innan fárra ára staðið frammi fyrir
miklu atvinnuleysi.
Á miklu veltur þess vegna hér á
landi að brugðist verði við tækni-
væðingunni með réttum hætti. Lyk-
illinn að því að aðlagast tækniþró-
uninni er fyrst og fremst skipulögð
endurmenntun starfsfólks. Hvernig
til tekst í þeim efnum mun hafa af-
gerandi áhrif á hvort og hvenær ein-
stakar atvinnugreinar taka tæknina
í þjónustu sína.
Slík fjárfesting sem stuðlar að
aukinni endurmenntun starfsfólks,
er því ekki síður mikilvæg en fjár-
festing í ýmsum tækjabúnaði og
gerir okkur ein samkeppnisfær við
aðrar þjóðir og leiðir til aukinnar
framleiðni, hagvaxtar og betri lífs-
kjara“.
r-
I mörgum atvinnugreinum er at-
vinnuöryggi starfsmanna í hœttu
Skoðanakannanir DV og Hagvangs:
Misræmi og lítill áreiðanleiki
.Nýlega hafa verið birtar niður-
stöður úr tveimur skoðanakönn-
unum DV og Hagvangs um fylgi
stjórnmálaflokkanna, ríkis-
stjórnarinnar og fleira. Kannanir
þessar, ef nota má svo virðulegt
nafn yfir þessa starfsemi, voru
framkvæmdar um og eftir síðustu
mánaðarmót. Hvað sem annars
má um þær segja þá er víst að þær
eru fróðlegar til skoðunar.
Kannanir þessar eru símakann-
anir og ná því ekki til þeirra sem
eru símalausir. Úrtak Hagvangs
var 1000 manns en DV 600 manns.
Öllu áreiðanlegri virðist könnun
Hagvangs að þvi leyti að úrtakið
er mun stærra og mun hærra hlut-
fall lét i ljós ákveðna afstöðu til
stjórnmálaflokkanna. Þannig
reyndist hart nær helmingur
hinna 600 manna DV könnunar-
innar annað hvort óákveðnir eða
neituðu að svara (46.4%). Byggir
niðurstaða blaðsins um fylgi
flokkanna því á svörum 322 í raun
og afstaða þeirra yfirfærð á hina
sem ekki tóku afstöðu. Hag-
vangskönnunin hins vegar virðist
ná til fólks sem af einhverjum
ástæðum er mun fúsara til að láta
í Ijós ákveðna afstöðu. E.t.v. segir
það eitthvað um gæði DV-könn-
unarinnar, án þess að nokkuð sé
fullyrt. Að minnsta kosti er það
umhugsunarefni hvernig DV virð-
ist lenda á allt annars konar úr-
takshóp en Hagvangur. Lögmálið
um tilviljanaúrtak gerir ráð fyrir
því að ef rétt er á málunum haldið
eigi slíkur munur að vera í lág-
marki þegar spurt er á svipuðum
tíma. Er það eitthvað sem gerðist
á þeim tíma er leið á milli kannan-
anna sem varð til þess að fólk varð
í umvörpum óákveðnara í afstöðu
sinni?
I könnun Hagvangs reyndust að-
eins um 25% ekki taka ákveðna
afstöðu og svarprósenta var um
80%. Það verður að teijast harla
góð útkoma og ekki út í hött að
taka þá út sem ekki svöruðu til um
fylgi sitt við ákveðinn flokk. Svar-
prósenta DV virðist hins vegar af
uppsetningunni að dæma að hafa
náð til allra í úrtaki sínu, svo trú-
legt sem það nú annars er.
Niðurstöður þessara kannanna
eru mjög ólíkar. Mismunurinn
kann að nokkru leyti að felast í
tímamismuninum, sem þó er ekki
mikill, og í því að um umbrota-
tíma er að ræða. Ef gefið er að
kannanirnar séu ámóta áreiðan-
legar, sem er hæpið, þá mætti
ætla að fylgi ríkisstjórnarinnar
hafi á þessum nokkrum dögum
farið úr 54,1% (af þeim sem tóku
afstöðu hjá Hagvangi) niður í
46,9% (ákveðin afstaða hjá DV),
Eftir þessu að dæma ætti ríkis-
stjórnin því á 2—3 vikum að hafa
Alþyfluflokkur 6,2% 9,8%
Framsóknarflokkur 15,8% 13,6%
Bandalag jafnaðarm. 8,4% 5,4%
Sjólfstœðisflokkur 40,4% 44,6%
Alþýðubandalag 19,9% 20,3%
1 Samtök um kvennal. 9% 6,3%
Flokkur mannsins ^ 0,3%^
Ef þingsætum er skipt i róttu hlutfalli við fylg er bæði miðað við 60 þingmenn alls og mið burðar er sambœrileg skipting samkvæm kosninga:
Nú (60 þingm) Nú (63 þ Alþýðuflokkur 3
Framsóknarflokkur 10
Bandalag jafnaðarm. 5
Sjálfstœðisfl. 25
Alþýflubandalag 12
Samt. um kvennal. 5
'stöður skoðanakönnunar DV. sé ótví
Ivað fylgi flokkanna varðar þá eru vallar
glatað 13% af fylgi sínu. Hafa ber
í huga að þetta gerist á fyrstu vik-
um verkfalls BSRB.
Af einhverjum ástæðum virð-
ast kannanirnar gefa vísbending-
ar um að þrátt fyrir hratt fylgistap
ríkisstjórnarinnar hafi fylgi
Framsóknarflokksins aukist á
milli þeirra um 1 prósentustig, en
fylgi Sjálfstæðisflokksins hrunið
um sirka 5 prósentustig. Eftir
þessu að dæma virðist óánægjan
með ríkisstjórnina einkum og sér
í lagi beinast að sjálfstæðismönn-
um og er það í sjálfu sér ekki ótrú-
legt þegar embættisgjörðir og yf-
irlýsingar einstakra ráðherra
flokksins eru höfð í huga. Það
virðist bjarga Framsóknarflokkn-
um frá fylgishruni; sjálfsagt hafa
talsvert margir flúið frá Sjálf-
stæðisflokknum til framsóknar (á
leið sinni yfir til stjórnarand-
stöðuflokkanna!)
r
I könnununum kemur fram að
stjórnarandstöðuflokkarnir hafa
bætt við sig og treyst stöðu sína,
nema Alþýðuflokkurinn. í DV-
könnuninni fer fylgi Alþýðu-
flokksins að því er virðist úr tæp-
um 10% í september niður í rúm-
lega 6% í október. í Hágvangs-
könnuninni kemur hins vegar
fram að fylgi flokksins sé frekar
að aukast. Erfitt er að finna trú-
verðugar skýringar á þessu. Lík-
legast af öllu verður þó að telja að
DV-könnunin sé svo óáreiðanleg
vegna þess hversu úrtakið er lítið
og svarprósentan lág. Þegar litið
er til þess að könnunin byggir á
svörum 322 einstaklinga vegur
hver þeirra mjög þungt, eða um
þriðjung úr prósentu. Með öðrum
orðum blasir við að ef 2—3 ein-
staklinga í könnuninni færðust
snögglega frá öðrum flokkum til
Alþýðuflokksins væri fylgi hans
allt í einu orðið um 7% í stað um
6%. Það munar um minna. Hér er
alls ekki verið að flýja frá þeirri
mögulegu staðreynd að fylgi Al-
þýðuflokksins kunni að vera í
öldudal. Hér er aðeins verið að
segja að misræmið er svo mikið
að áreiðanleikinn verður að teljast
lítill.
Eftir stendur sú sterka vísbend-
ing að stjórnarflokkarnir hafa
glatað meirihluta sínum. í könn-
un Hagvangs kemur enda í ljós að
æ fleiri telja kjaraskerðinguna
vera helsta vandamál Islendinga í
dag.