Alþýðublaðið - 08.11.1984, Síða 2
2
Fimmtudagur 8. nóvember 1984
■—fi ITSTJ ÓRNARGREIN ■■■"■
Hörmungartímabil
bau hafa verið mörg „tímamótin“ á skömmum
starfstíma núverandi ríkisstjórnar. Nú, ennþá
einu sinni, telja stjórnarsinnar kominn tíma til
að fara yfir allt sviðið á nýjan leik og endurnýja
og endurbæta fyrri áætlanir ríkisstjórnarinnar.
Fróðiegt er að rifja upp öll þau vatnaskil,
sem orðið hafa á hinni stuttu ævi ríkisstjónar
Steingríms Hermannssonar. Til að byrja með
voru það tímamót að áliti stjórnarsinna að
beita „pólsku aðferðinni“ viö stjórnun þjóðar-
búsins. Þá voru launin skorin niður með einni
handarsveiflu og stór hluti af starfsemi verka-
iýðsféiaga bannaður. Næstu kaflaski! voru,
þegar ríkisstjórnin afréð að bera næst niður
hjá öldruðum, sjúkum og börnum í landinu.
Ellilifeyrir var skorinn niður, sjúkum og öryrkj-
um var gert að greiða stórfé fyrlr læknishjálp.
og lyf og hugmyndir voru um harkalegan niður-
skurð á grunnskólanámi.
Frelsið til okurvaxta, sem ríkisstjórnin leysti
úr læðingi í sumar var næsta stórt afrek rikis-
stjórnarinnar að eigin sögn. Allir þekkja afleið-
ingarþess; raunvextireru hvergi hærri í hinum
vestræna heimi, en hér á iandi. Húsbyggjendur
og íbúðarkaupendur, þúsundireinstaklingaog
atvinnureksturinn; aliir þessir eru að siigast
undan vaxtabyrðinni.
Svo settust þeir niður á haustdögum, Þor-
steinn Páisson og Steingrímur Hermannsson
og ákváðu að hefjasamningu nýs kapítula í við-
burðarríkri sögu ríkisstjórnarinnar. Nú átti að
endurskoða stjórnarsáttmálann frá ökkla til
eyra. Og eftir margra vikna yfirlegu tróðu svo
tvímenningarnir upp frammi fyrir fréttamönn-
um og boðuðu nýja og betri tfma með endur-
bættum stjórnarsáttmála. En blekiö á þeim
sáttmálavarvarlaþurrt orðið, þegarhöfundarn-
ir sjálfir sögðu að nú þyrfti að skoða allt sviðið
á nýjan leik. Og ennþá stendur sú endurskoðun
yfir. Raunar tekur hún ekki aðeins til málefn-
anna einna, heldur einkum og sér i lagi til til-
veru ríkisstjórnarinnarsjálfrar, framtíðar henn-
ar eða falls.
I millitlðinni hafði raunar rfkisstjórnin misst
buxurnar niður á hælana, því forsætisráðherra,
fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins höfðu allir lýst því yfir að ekki kæmi
tii greinaað laun hækkuðu neitt nú í haust um-
fram þau þrjú prósent, sem samningarnir frá í
febrúar á þessu ári kváðu á um. Eins og öllum
er kunnugt skrifaði fjármálaráðherra nokkru
slðar undir kjarasamning við BSRB, sem kvað
áum 10% launahækkun strax. Þarvarð stjórn-
in enn einu sinni að kokgleypa öll stóru orðin.
Hörmungarsaga þessarar rfkisstjórnar er
með eindæmun. Hvert glappaskotið hefur rek-
iðannað. Þettatímabii f sögu íslenskra stjórn-
mála á eftir að rifja oft upp á komandi tímum,
öðrum til viövörunar. Hitt er nauðsynlegt að
punkturinn verði nú þegar settur aftan við
þessa sorgarsögu. íslenska þjóðin hefur ekki
efni áfrekari „frægðarverkum" núverandi ríkis-
stjórnar. Nóg er komið.
—GÁS
Bílgreinasambandið:
Stjórnvöld endurskoði
skattlagningu bíla
4> HJÁUPARSJÓÐUR
GÍRÓNÚMER 90000-1
Hjálparstarf
Rauða kross
íslands í Eþíópíu
Aðalfundur Bílgreinasambands-
ins 1984 var haldinn í Reykjavík
laugardaginn 13. oklóber sl.
Þátttakendur á l'undinum voru um
200, félagsmenn, makar þeirra og
gestir.
Almenn aðalfundarstörf hól'ust
síðan kl. 14:15 og var fundarstjóri
kjörinn Þórir Jónsson og f'undar-
ritari Jónas Þór Steinarsson. Á dag-
skrá voru almenn aðalfundarstörf
og m.a. flutti formaður Bílgreina-
sambandsins Þórir Jensen ítarlega
skýrslu um störf stjórnar á síðast-
liðnu starfsári.
í stjórn Bílgreinasambandsins
voru kjörnir Þórit Jensen formað-
ur. Aðrir í stjórn: Gísli Guðmunds-
son, Árni Sigursteinsson, Ari
Ólafsson, Björn Ómar Jónsson,
Ólafur Kristinsson, Ingvar Helga-
son, Sigfús Sigfússon og Svanlaug-
NT 1
komið fram að ástæðan fyrir þessu
er sú hörkulega kjararánsstefna,
sem núverandi ríkisstjórn hefur
beitt fyrir sig. Gjaldþrotin eru aug-
Ijós afleiðing af þeirri stefnu. Það
sem okkur þótti hinsvegar nýtt við
fréttina, er að NT skuli birta hana
núna.
NT hvílir nú fallbyssurnar en í
staðinn eru þeir með lymskulegar
árásir á stjórnina með því að draga
verk hennar fram í dagsljósið.
Ronald Regan var í forsetakosn-
ingunum í Bandaríkjunum endur-
kjörinn með talsverðum meirihluta
atkvæða kjósenda. Hlaut hann alls
59% atkvæða gegn 41% Walters
Mondale og 525 kjörmenn á móti
13. Mondale sigraði aðeins í heima-
ríki sínu Minnesota og í höfuðborg-
inni.
Þegar fyrstu atkvæðatölur tóku
að berast leit út fyrir að Reagan
myndi vinna stærri sigur en Nixon
ur Ólafsson. Þrír síðastnefndu eru
nýir í stjórninni og koma í stað Ás-
geirs Gunnarssonar, Lúðvígs B. Al-
bertssonar og Jóns Þorgrímssonar
sem ekki gáfu kost á sér til endur-
kjörs. Endurskoðendur voru kjörn-
ir Ágúst Hafberg, Jónas Jónasson
og til vara Sverrir Sigfússon.
Eftirfanandi ályktanir voru sam-
þykktar á aðalfundi Bílagreinasam-
bandsins 1984:
Aðalfundur Bílgreinasambands-
ins 1984 vill vekja athygli á aðstöðu-
mun olíufélaganna til varahluta-
sölu varðandi opnunartíma, stað-
setningu og fleira. Aðalfundurinn
skorar á stjórn sambandsins að
beita sér fyrir því að aðilar innan
Bílgreinasambandsins fái jafna að-
stöðu til sölu varahluta og olíufé-
lögin. Jafnframt að kannaðir verði
möguleikar á því að aðilar innan
Bílgreinasambandsins sjái um
dreifingu og e.t.v. innflutning á olíu
og olíuvörum.
Aðalfundur Bílgreinasambands-
ins 1984 vill vekja sérstaka athygli á
þýðingu þjónustuiðnaðar. Nauð-
synlegt er að þjónustuiðnaði í bíla-
greininni sé sköpuð sambærileg
rekstrarskilyrði á við aðrar iðn-
greinar og m.a. verði leiðréttur
mikill mismunur á aðflutnings-
gjöldum. Þessi háu gjöld á tækjum
og búnaði til bifreiðaverkstæða
hindra eðlilega endurnýjun og upp-
byggingu í greininni.
Aðalfundur Bílgreinasambands-
ins 1984 vill vekja athygli á nauðsyn
öflugs starfs í þágu umferðarörygg-
árið 1972, þegar sá fékk um 61%
atkvæða, þannig ieit út um tíma að
Reagan færi upp í 63%.
Þó Reagan hafi þannig unnið
stórsigur í forsetakosningunum, þá
er ekki hægt að segja að Repúblik-
anar hafi samhliða gert stóra hluti í
þingkosningunum. Þeir unnu á í
kosningunum til fulltrúaþingsins,
fengu 15 sæti i plús, en það var mál
manna að til að tryggja „samvinnu-
is og bendir á þörf þess að hraðað
verði endurskoðun og endurbótum
á umferðarlögum og skipulagi bif-
reiðaskoðunar. Aðstaða til bif-
reiðaskoðunar um allt iand verði
stórbætt. Skyndiskoðanir á bifreið-
um í umferðinni verði auknar veru-
lega, sérstaklega með tilliti til
breyttra reglna um skoðun nýrra og
nýlegra bíla. Nú geta liðið yfir 3 ár
þar til bilar fara í skoðun. Á þeim
tíma getur komið fram verulegt slit
á öryggisbúnaði. Bifreiðir sem
lenda i umferðaróhöppum og verða
fyrir tjóni á öryggisbúnaði verði af-
skráðar og ekki skráðar á ný fyrr en
þær hafa verið skoðaðar sérstak-
lega. Betri bifreiðaskoðun er ein
fljótvirkasti og hagkvæmasta leiðin
til að stuðla að auknu umferðar-
öryggi.
Aðalfundur Bílgreinasambands-
ins 1984 leggur til að heimiluð verði
endurskoðun bifreiða á viðkennd-
um verkstæðum um allt land.
Aðalfundur Bílgreinasambands-
ins 1984 vill enn vekja athygli á
nauðsyn bílsins í okkar strjábýla
landi og benda á að skattlagning á
bíleigendur er óhófleg. Ennþá
rennur um helmingur bílverðsins til
ríkisins. Sama á við nauðsynlegt
öryggistæki eins og hjólbarða.
Aðalfundur Bílgreinasambands-
ins 1984 skorar á stjórnvöld að
endurskoða skattlagningu á bíla og
bilgreinina í heild og telur að breytt
skipulag geti haft í för með sér veru-
legt hagræði fyrir bílgreinina, bíl-
eigendur og hið opinbera.
þýtt“ fulltrúaþing hefði viðbótin
þurft að vera að minnsta kosti 25
sæti. í kosningunum til öldunga-
deildarinnar gerðist það síðan að
Repúblikanar töpuðu 1 sæti, en
þeir halda þó meirihluta sinum þar.
Segja má að útkoman hafi orðið sú
að þó kjósendur hafi lýst yfir ótví-
ræðu trausti á Reagan hafi þeir þó
viljað tryggja honum aðhald með
því að neita honum um meirihluta í
fulltrúadeildinni.
Fjölmiðlar í öllum löndum heims
hafa að undanförnu flutt fréttir af
þeirri geigvænlegu hungursneyð
sem ríkir nú meðal ótrúlegs fjölda
fólks í Eþíópiu og fregnir hafa bor-
ist um viðbrögð margra ríkja og
hjálparstofnana sem komið hafa
þar til líknar.
Stjórn Rauða kross íslands hefur
nú ákveðið að gefa íslendingum
kost á að taka þátt í þessu alþjóð-
lega hjálparstarfi með því að efla
Hjálparsjóð Rauða kross íslands
með fjárframlögum en fé úr sjóðn-
um verður látið renna til Iíknar-
starfa í Eþíópíu. Gíróreikningur
Hjálparsjóðs er nr. 90000-1. Þar
verður öllum fjárframlögum fús-
lega veitt viðtaka.
Enda þótt Rauði kross íslands
telji nú rétt og skylt að efna til sér-
stakra samskota vegna neyðarinnar
í Eþíópíu þá er alllangt síðan RKÍ
hóf fyrst þátttöku í hjálp Rauða-
krossfélaganna til bágstaddra í Eþí-
ópíu. Er þar síðast þess að minnast
að í sl. ágústmánuði fór Sigríður
Guðmundsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur til starfa í Eþíópíu og er gert
ráð fyrir að hún vinni þar fram yfir
næstu áramót. í bréfi sem Sigríður
ritar Rauða krossi Islands frá
Sidamo-héraði í Suður-Eþíópíu
hinn 8. f.m. segir hún m.a.:
„Hér hefur ástand breyst mikið
síðan ég kom. Er við komum voru
fjórar fæðugjafastöðvar starfrækt-
ar hér af Eþíópíska Rauðakrossin-
um. í hverri þeirra voru um 2000
manns, börn, gamalmenni, ófrískar
konur og mjólkandi. í dag eru milli
50 og 100 börn í hverri þeirra. Hefur
ástandið batnað það mikið að við
höfum útskrifað alla nema allra
aumustu börnin. Er það vegna þess
að fólk hefur maís að borða eins og
er. En uppskeran af maís er frekar
rýr. Má búast við að hún verði búin
mánuði fyrr en venjulega. Hvað
tekur þá við? Það gæti aftur orðið
neyðarástand. Við reynum að koma
í veg fyrir það með því að fara reglu-
lega inn í þorpin, ganga hús úr húsi
og Ieita að veikum og illa nærðum
börnum. — Það er í ráði að ég fari
með annarri hjúkrunarkonu, írskri
nunnu, til héraðs sem heitir Gama
Gofa til að gera þar könnun á nær-
ingarástandi barna. Orðrómur er á
kreiki um að þar séu skelfilegar
hörmungar“.
Auk þeirrar aðstoðar sem Sigríð-
ur veitir er nú í ráði að tveir sendi-
fulltrúar til viðbótar fari frá Rauða-
krossi íslands á næstunni til starfa
í Eþíópíu. Annar mun vinna við
birgðaflutninga en hinn annast
verkfræðistörf í sambandi við leit
að vatni. Gert er ráð fyrir að annar
sendifulltrúinn verði í þrjá mánuði
en hinn á að ráða til sex mánaða.
En allt veltur á að það fólk sem
vinnur að líknarstörfum í Eþíópíu
geti úthlutað matvælum, lyfjum og
fatnaði. Til þess þarf fé. Þess vegna
er minnt á Hjálparsjóð RKÍ þar
sem öllum gefst kostur á að leggja
fram lítinn skerf til að bæta úr mik-
illi neyð.
Reagan vann stórt
Vonbrigði Repúblikana með þingkosningarnar