Alþýðublaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 1
.Föstudagur 9. nóvember 1984
195. tbl. 65. árg.
Atakið gegn skattsvikum:
Fjármagnið fæst ekki
I svari Jóns Helgasonar dóms-
málaráðherra við fyrirspurnum
Jóhönnu Sigurðardóttur um mögu-
legar aðgerðir gegn skattsvikum
kom fram, að við fjárlagagerð fyrir
næsta ár hafi öllum hugmyndum
um aukið fjármagn til þessara mála
verið hafnað.
Jóhanna Sigurðardóttir vakti
athygli á því að í þingsályktunartii-
lögu Alþýðuflokksmanna, sem
samþykkt var i maí 1984, væri kveð-
ið á um tafarlausa framkvæmd
ýmissa verkefna til að draga úr
skattsvikum og gera alla skatt-
heimtu, ríkissjóðs skilvirkari og
hraðvirkari en nú er. Beindi Jó-
hanna því til dómsmálaráðherra
hvort hann hefði beitt sér fyrir
endurskoðun laga um skipan dóms-
valds i héraði og fleira í samræmi
við ákvæði þingsályktunartillög-
unnar og í öðru lagi hvenær búast
mætti við að stofnuð verði sérdeild
við Sakadóm Reykjavikur, fjölgun
sérhæfðra starfsmanna við em-
bætti saksóknara og að starfsemi
Rannsóknarlögreglu ríkisins verði
efld í þessum málaflokkum.
I svari Jóns Helgasonar kom
fram að öllum tilmælum þings-
ályktunartillögunnar hefði í raun
verið hafnað af fjármálaráðuneyt-
inu. Ekkert hefði komið fram um
sérdeild við Sakadóm Reykjavíkur,
en ekki hefði verið fallist við undir-
búning fjárlagafrumvarpsins á
starfsliðsaukningu. Ekki hefur ver-
ið óskaðeftir fjölgun starfsliðs hjá
embætti ríkissaksókanara því þörf-
in væri talin brýnni að fjölga hjá
Rannsóknarlögreglunni. Var óskað
eftir 5 nýjum stöðum þar, en á þetta
var heldur ekki fallist við undirbún-
ing fjárlagafrumvarpsins. Sagðist
Jón vonast til að við endurskoðun
kæmust þessi mál í gegn.
Jóhanna harmaði að ekki hefði
fengist nægjanlegt fjármagn til
þessara hluta. Hún vitnaði meðal
annars í ummæli skattrannsókn-
arstjóra máli sínu til stuðnings:
„Það vantar einhvern pólitískan
vilja til þess að gera átak í þessum
málum“ ítrekaði hún fyrirspurn
sína um hvort til greina kæmi að
stofna áðurnefnda sérdeild við
sakadóminn í Reykjavík og hvenær
endurskoðun laga um þessi nrál
lyki. Jón sagðist ekki geta svarað til
um endurskoðunina, en ítrekaði að
það væri Alþingis að ákveða þær
fjárveitingar sem til þessara mála
þurfa að koma.
Fyrír framan Valhöll, hús Sjúlfstœðisflokksins t Reykjavik, hefur verið komið fyrir heljarmiklum
bautasteini, sem gárungarnir kalla Þorstein, segja sumir að hann sé grafsteinn ríkisstjórnarínnar, enn
aðrir að hérsékominn minnisvarði um steinrunna stefnu frjálshyggjupostulanna, sem nú hafa töglin
og hagldirnar í flokknum og að lokum eru þeir til sem segja þennan steingerving hafa svipmót Stein-
grims forsœtisráðherra, en sjálfstœðismönnum þykir orðið svo vænt um hann að þeir geti ekki slitið
augun af honum. Okkur á A Iþýðublaðinu þóttiþó sennilegast að þarna vœri komin heimkynni huldu-
hers Alberts.
Kjartan Jóhannsson um vantraustið:_
Ríkisstjórnin rúin trausti
Vantrauststillaga stjórnarand-
stöðunnar á hendur ríkisstjórninni
vartil umræðuí gær. í samtali við
Alþýðublaðiðum ástæðurnar fyrir
vantrauststillögwini sagði Kjartan
Jóhannsson formaður Alþýðu-
flokksins að megin ástæðurnar
lægju Ijósar fyrir.
„Ríkisstjórnin er rúin öll trausti.
Þingmenn úr stjórnarandstöðunni:
Átak til fjármö
ar krabbameinsi
8 þingmenn úr röðum stjórnar-
andstöðuflokkanna liafa lagt fyrir
sameinað þing tillögu til þings-
ályktunar um fjármögnun krabba-
meinslækningadeildar, þar sem
ríkisstjórninni er falið að stofna til
þjóðarátaks til að fullgera megi
krabbameinslækningadeild á
Landspítalalóð á næstu 3 til 4
árum. Fyrsti flutningsmaður til-
lögunnar er Jóhanna Sigurðardótt-
ir.
Tillagan gerir ráð fyrir því að gef-
inn verði út sérstakur skuldabréfa-
flokkur að upphæð a.m.k. 125
milljónir króna til 6 ára með verð-
tryggðum kjörum og á vöxtum sem
Seðlabankinn ákveður. Eiga
skuldabréfin að vera undanþegin
skattskyldu. Sömuleiðis er gert ráð
nun-
eildar
fyrir því að ríkissjóður leggi árlega
þá fjárhæð sem vantar til að Ijúka
megi deildinni á næstu 3-4 árum.
í greinargerð með tillögunni segir
að þó 5 ár séu nú liðin frá þvi undir-
búningur hófst að upþbyggingu
krabbameinslækningadeildar hef-
ur framkvæmdum ekkert miðað
vegna fjárskorts.
Framhald á bls. 2
Þjóðin hefur misst alla trú á henni:
Hún hefur misst öll tök á efnahags-
Iífinu og óánægjan hefur magnast
svo upp innan stjórnarflokkanna
að nú berst hvert neyðarópið á fæt-
ur öðru. Auk þessa hefur ríkis-
stjórnin sýnt lögurn landsins lítils-
virðingu, samanber framkomu ráð-
herra vegna hinna ólöglegu út-
varpsstöðva.
Það er okkar mat að ríkisstjórnin
eigi að fara frá hið fyrsta, hún
myndi með því að gera þjóðinni
mikinn greiða. Rikisstjórnin hefur
stóraukið misréttið í þjóðfélaginu
einmitt þegar brýnast liggur við að
draga úr öllu misrétti. Ríkisstjórnin
hefur komið atvinnuvegunum á
kaidan kiaka, hefur ekki hlustað á
þau áköll sem þaðan berast, en
heldur höndum sínum í skauti.
Þetta er kjarninn á bak við van-
trauststillögu stjórnarandstöðunn-
ar. Það er augljóst að ríkisstjórnin
á ekki að sitja við völd lengur, held-
ur fara frá“ sagði Kjartan.
Flokksstjórnarfundur á mánudag
Flokksstjórnarfundur Alþýöuflokks vcröur haldinn næstkomandi
mánudag í lönó (uppi), kl. 17.
Fundarefni eru stjórnmálavióhorfiö, undirbúningur flokksþings oj>
önnur inál.
Eiður Guðnason um álsamninginn:
Bókhaldsleikfimi iðnaðarráðherra
Þá hafa alþingismenn loksins
fengið að sjá álsanrninginn
margumtalaða, sem samninga-
nefnd Sverris Hermannssonar,
iðnaðarráðherra, hefur farið með
sem ríkisleyndarmál, þó hún hafi
verið að semja um orkusölu úr
vatnsföllum allra landsmanna.
Nú þegar búið er að birta samn-
inginn og iðnaðarráðherra hefur
skrifað undir hann, skilja menn
hversvegna farið var svona leynt
með samninginn. Þessi samning-
ur er einfaldlega ekki þess eðlis að
hann hefði þolað opinbera um-
fjöllun, áður en undir hann var
ritað. Hinsvegar er hægt að
slengja honum á borð alþingis-
manna nú þegar hann er fullfrá-
genginn og undirritaður. Héðan í
frá verður ekki aftur snúið. Sverr-
ir Hermannsson veit að Sjálf-
stæðisflokkurinn og Framsókn-
arflokkurinn vilja fá þetta mál út
úr heiminum og munu því sam-
þykkja hann þegjandi og hljóða-
iaust.
En hversvegna er þetta þá svona
vondur samningur?
Við höfðum samband við Eið
Guðnason, formann þingflokks
Alþýðuflokksins og spurðum
hann hverjir væru helstu vankant-
ar þessa samnings að hans mati.
Eiður sagði að Alþýðuflokkur-
inn hefði strax í ágústlok, þegar
séð var hvert stefndi með þessum
samningi, gagnrýnt ýmis atriði
hans, m.a. það að verðtryggingu
vantar í hann og trygg endurskoð-
unar ákvæði. Slíkt er mjög vara-
samt þar sem allar forsendur, sem
þessi samningur byggir á geta
breyst á mjög skömmum tíma.
Einnig lagðist Alþýðuflokkurinn
gegn því að taka mál það sem ís-
lenska ríkið hafði höfðað á
Alusuisse, úr gerðardóm.
Samninganefndin semur hins-
vegar um að láta skattamálin lönd
og leið. Þessar þrjár milljónir
dollara sem Sverrir Hermannsson
miklast nú mjög af, en þeir eru
um 'A hluti þeirrar upphæðar,
sem krafist var að Alusuisse
greiddi, munu heldur ekki koma i
hlut ríkiskassans. íslendingar fá
ekki krónu, heldur er þetta bara
bókhaldsleikfimi. Þannig er að
skatteignainnistæða ísal hjá
stjórnvöldum, sem var lögð niður
í tíð Hjörleifs Guttormssonar,
sem iðnaðarráðherra, er búin til
aftur og þessar 3 milljónir dregn-
ar af henni" sagði Eiður um þann
hluta samningsins, sem varðar
„uppgjör“ iðnaðarráðherra í
skattamálinu.
Sú hækkun upp á 13-14 mills,
sem samningurinn gerir ráð fyrir
er langt því frá að vera nægjanleg.
Framleiðsluverð orkunnar er um
20 mills en gangverð á raforku til
álvera mun vera í kringum 20 mills
víðast hvar í heiminum.
Auk þess er Alusuisse veittur
forgangsréttur til kaupa á nýrri
orku í framtíðinni, svo hægt verði
að stækka álverið um 50%.
Að lokum sagði Eiður að Al-
þýðuflokkurinn væri á móti þess-
um samningi vegna þess að mikil-
vægum hagsmunum íslensku
þjóðarinnar hefði verið fórnað og
sýnt væri að samningurinn
tryggði ekki hlut okkar sem
skyldi. Þó svo að samningurinn
leiði til einhverrar hækkunar á
raforkuverði, er hún ekki nógu
mikil. Við höfðum dregist langt
aftur úr með orkuverðið og hlaut
hækkunin að koma, en hún hefði
bara þurft að vera mun meiriý
Að lokum skal þess getið að ál-
samningurinn var tekinn til um-
ræðu í efri deild Alþingis í gær.