Alþýðublaðið - 13.12.1984, Side 3
Fimmtudagur 13. desember 1984
3
J ólagaman
/ tilefni jólakomu mun Alþýðu-
blaðið birta endrum og eins
þrautir, gátur og annað léttmeti
fyrir börn og fullorðna að
skemmta sér við, meðan taldir eru
dagarnir fram að jólum.
Ferskeytla
24
Héma er ferskeytt
vísa, rétt stuSluð
og rímuð. Hún er
eftir Jón Helgason,
en Bjami Jónsson
kennarí skráði.
Hvemig er vísan?
Omaklega vegið að
neytendasamtökum
Stjórn Neytendasamtakanna
mótmælir harðlega þeim ummæl-
um, sem fram komu í sjónvarps-
þættinum „Heilsað upp á fólk“,
laugardaginn 8. des. sl. I þættinum
var mjög ómaklega vegið að forystu
Neytendasamtakanna og hún sök-
uð um andúð á bændum, auk þess
að vera úr tengslum við neytendur í
landinu.
Stjórn Neytendasamtakanna
bendir á, að forystumenn samtak-
anna hafa aldrei ráðist að bændum,
heldur hefur skipulag landbúnað-
arins verið gagnrýnt, auk þess sem
bent hefur verið á hátt verð ýmissa
landbúnaðarvara. Það er mjög
fróðlegt í þessu sambandi að hlutur
launa bóndans í verði landbúnaðar-
vara hefur stöðugt farið minnkandi
á síðustu 15 árum. Það er einnig
athyglisvert, að á sama tima og
bændum var gert að draga úr
mjólkurframleiðslunni, á árunum
kringum 1979, jókst mannahald í
mjólkursamlögunum. Það er því
ljóst að einkaneysla bænda á ekki
sök á háu verði landbúnaðarvara,
heldur milliliðir og rangt skipulag.
Hvað varðar fullyrðingar í þætt-
inum um að Neytendasamtökin séu
úr tengslum við neytendur, má
benda á að aldrei fyrr hafa jafn
margir gengið til liðs við samtökin,
eins og á síðustu mánuðum. Tala
félagsmanna hefur á þessum tíma
vaxið um 30%. Jafnframt má
minna á, að góð tengsl samtakanna
við almenning komu skýrt í ljós,
þegar rúmlega 20.000 neytendur á
höfuðborgarsvæðinu skrifuðu
íslendingafélagið í Kaupmanna-
höfn hefur sent Alþingi áskorun,
sem varðar kosningarétt til handa
íslenskum ríkisborgurum erlendis.
Á hinum árlega aðalfundi félagsins,
sem haldinn var í október, var það
samþykkt einróma að senda Al-
þingi íslendinga eftirfarandi áskor-
un:
„Aðalfundur íslendingafélagsins
i Jónshúsi haldinn þann 15. október
skorar á Alþingi íslendinga að gera
þegar þær breytingar á kosninga-
Iögunum, sem þarf til að atkvæðis-
bærir íslenskir ríkisborgarar bú-
settir erlendis njóti þeirra grund-
vallar mannréttinda, sem felast í
réttinum að kjósa til Alþingis“
fyrir, einstæðar mæður og hjónum,
sem vinna bæði hjá BÚH.
Sagði Guðríður að fólk sem ynni
við þessa frumframleiðslu lifði við
óskaplegt öryggisleysi. Það væri
hægt að segja upp kauptrygging-
undir áskorun um að einokun á
sölu kartaflna yrði afnumin. Undir-
skriftasöfnun þessi stóð þó aðeins
yfir í tvo daga í matvöruverslunum.
Að lokum ítrekar stjórn Neyt-
endasamtakanna mótmæli sín, og
krefst þess að hlutleysi sjónvarpsins
verði betur í heiðri haft í framtíð-
inni.
Hin nýkjörna kvennastjórn ís-
lendingafélagsins í Kaupmanna-
höfn telur það með öllu óviðunandi
að íslendingar búsettir erlendis
haldi áfram að vera hornrekur ís-
lenska lýðveldisins. Stjórnin ætlar,
að tala íslenskra ríkisborgara á
Norðurlöndum einum skipti þús-
undum. Fjöldi þessara íslendinga
dvelur erlendis í þeim tilgangi að
afla sér reynslu og þekkingar á sviði
atvinnu- og menntamála, sem i
fjölda tilfella er í þágu og hag ís-
Ienska ríkisins. Þess vegna er það
bæði óréttlátt og vanhugsað að gera
íslenska ríkisborgara „þegnlausa"
og án réttar til að móta það þjóðfé-
lag, sem þeir telja sig tilheyra.
unni með viku fyrirvara.
Enn sem komið er er Bæjarút-
gerðin eina fiskvinnslufyrirtækið í
bænum, sem hefur sagt upp starfs-
fólki sínu, en nú er allt útlit fyrir að
næst stærsta fiskvinnslan í Hafnar-
firði, Sjóli hf., segi upp starfsfólki
sínu á föstudaginn kemur og bætast
þá rúmlega 50 manns á atvinnuleys-
isskrá í Hafnarfirði. Er ekki búist
við að Sjólastöðin taki aftur til
starfa fyrr en um miðjan janúar.
Guðríður sagðist vonast til að
ástandið færi batnandi í janúar.
Ákverðið hefur verið að togarar
Bæjarútgerðarinnar, þeir Apríl,
Maí og Júní, fari á veiðar núna
fljótlega og komi með silfur hafsins
til heimabæjar síns. Þó sagði hún
að enn væri óvíst nema Maí sigldi
með aflann.
En hvað með þá hugmynd bæjar-
stjórnarmeirihlutans, sem heyrst
hefur, að jafnvel standi til að leggja
Bæjarútgerðina niður.
Guðríður sagði að þetta hefði
verið borið undir ráðamenn bæjar-
ins, en þeir hefðu svarið það af sér.
Ef til þess kæmi þá væri verkalýðs-
félögunum í bænum að mæta.
í haust hefur um og yfir 200
manns verið atvinnulausir í bænum
og fullar atvinnuleysisbætur eru
um 2.800 kr. á viku. Það verða því
mögur jól hjá mörgum fjölskyldum
í Hafnarfirði þetta árið.
Frystigámar til Japans
Núfyrir jólin sendir Sjávarafurðadeild Sambandsins 120. frystigáminn
á seinna helmingiþessa árs með frystar botnfiskafurðir áleiðis til Japan og
Kóreu.
Myndin var tekin fyrir fáum dögum á athafnasvœði Skipadeildar Sam-
bandsins, Holtabakka, þegar verið var að undirbúa lestun gámsins um
borð í M/S Dísarfell.
íslendingar I Danmörk
krefjast kosningaréttar
200 manns
Ritari óskast
Landbúnaðarráðuneytið óskar að ráða ritara til
starfa nú þegar. Góð vélritunarkunnátta nauðsyn-
leg.
Umsóknirmeð upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist lanbúnaðarráðuneytinu, Arnarhvoli,
101 Reykjavík.
Landbúnaðarráðuneytið,
10. desember 1984.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Iðjuþjálfi óskast sem fyrst í hálft starf á Geödeild F.S.A.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins
fyrir 15. janúar 1985.
Upplýsingar um starfið veitir yfirlæknir deildarinnar I
slma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsid á Akureyri.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Læknafulltrúi óskast sem fyrst í hálft starf á Geðdeild
F.S.A.
Umsóknir með upplýsingum um aidur, menntun og
fyrri störf sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins
fyrir 15. janúar 1985.
Upplýsingar um starfið veitir yfirlæknir deildarinnar í
sima 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á þv! að ein-
dagi launaskatts fyrir mánuðina ágúst, september og
október er 15. desember nk. Sé launaskattur greiddur
eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar þvi
sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga.
Launaskatt berlaunagreiðandaaö greiðatil innheimtu-
manns rikissjóðs, í Reykjavlk tollstjóra, og afhenda um
leið launaskattsskýrslu I þririti.
Fjármálaráðuneytið.
Ráðherranefnd Norðurlanda
Norræna menningar-
málaskrifstofan
í Kaupmannahöfn
Norrænamenningarmálaskrifstofan i Kaupmannahöfn
(Sekretariatet for nordisk kulturelt samarbejde) er
stjórnsýslustofnun fyrir samstarf ríkisstjórna Norður-
landa á sviði fræðslumála, vlsinda og almennra menn-
ingarmála. Menningarmálaskrifstofan, sem nú telur
um 50 starfsmenn, hefur umsjón með framkvæmd
samnorrænnar fjárhagsáætlunar, árið 1984 að fjárhæð
um 130 millj. danskra króna, sem skiptast i fjárveitingar
til um 40 norrænna stofnana og samstarfsverkefna.
í menningarmálaskrifstofunni er laus til umsóknar
staða ritara
Gert er ráð fyriraö móðurmál ritarans sé islenska, og að
hann hafi kunnáttu i a. m. k. einu af hinum Norðurlanda-
málunum. Um er að ræöa almenn skrifstofustörf, og
koma bókhalds- og gjaldkerastörf einnig til greina.
Reynsla af gjaldkerastörfum og bókhaldi er því æski-
leg. Reynsla af og áhugi á tölvuvinnslu er einnig æski-
leg.
Rlkisstarfsmenn eiga skv. giidandi reglum rétt á leyfi úr
stöðu sinni um allt aö fjögurra ára skeið, ef þeir ráðast
til starfa ( menningarmálaskrifstofunni. Laun miðast
við kjarasamningadanska rikisins og samtaka verslun-
ar- og skrifstofumanna(HK) I Danmörku. Þarvið bætast
tilteknar álagsgreiðslur.
Óskað er umsókna frá báðum kynjum. Umsóknarfresti
um framangreinda stöðu lýkur 5. janúar 1985. Ráðið
veröur I stöðuna sem fyrst eftir þann tfma. Umsóknir
skal senda til Nordisk Ministerrád, Sekretariatet for
nordisk kultureit samarbejde, Snaregade 10, DK-1205
Köbenhavn. Þar má og fá nánari upplýsingar um starfið
(sími 01-114711 í Kaupmannahöfn).