Alþýðublaðið - 29.12.1984, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 29.12.1984, Blaðsíða 2
2 Laugardagur 29. desember 1984 RITSTJORNARGREIN ■" ■ — Staðhæfingar í Ijósi reynslunnar I ritstjórnargrein Alþýöublaösins fyrir réttu ári; ( áramótablaöinu 1983, var örlítið skyggnst fram áveginn og spáö í framvindui málaáárinu 1984, því ári, sem nú er aö Ijúka. Ástæöa er aö rifja upp nokkra þá framtíðarspádóma, sem i Alþýðublaðinu var þá að finna. Þar sagði m.a.: Það er engin ástæða til að leyna þvi, að þótt síðari hluti þessa árs hafi verið launafólki þungur i skauti, þá bendir allt til þess að hið næsta ár verði ekki siður erfitt. Rikisstjórnin hefur boðað áframhaldandi láglaunapólitik; laun munu ekki hækka að neinu marki allt næsta ár, sumir ráðherranna segja þau alls ekkert mega hækka. Á sama tima ergjaidbyrð- in aukin, gert er ráð tyrir gjaldskrárhækkunum opinberra stofnana og einnig hitt, að umtals■ verð verðbólga er enn til staðar og hana eiga launþegar að bera bótalaust. Og stjórnar■ herrarnir ýja ekki einu sinni að þvi að fólki verði á einn eða neinn hátt bættarþær kaupmáttar- skerðingar, sem það hefur mátt þola allan sið- ari hluta þessa árs. Það er þvi Ijóst á meðan ríkisstjórn, Steingrims Hermannssonar, held- ur óbreyttum kúrs i efnahags* og atvinnumál■ um, þá mun enn harðna á dalnum hjá hinum ai- menna iaunþega á næstu misserum.“ Þetta voru glefsur úr ritstjórnargrein Alþýðu- blaðsins fyrireinu ári. Sú mynd sem blaðið dró upp af þróun mála var hvorki björt né fögur. Vafalaust hefur einhverjum fiogið I hug þá, að blaðiö væri óþarflega svartsýnt á framþróun málaáárinu 1984. En hverjareru svostaðreynd- ir máisins, þegar upp er staðið og umrætt tíma- bil er liðið? Var dregin upp of dökk mynd? Hef- ur árið verið íslensku launafólki léttara I skauti, en Alþýðublaðið hafði spáð fyrir um? Lítum á framangreindar staðhæfingar blaðsins og síð- an á staðreyndir I Ijósi reynslunnar. <r Arið 1984 hefurverið íslensku launafólki erfitt á marga lund. Það fór eftir sem Alþýðublaðið sagði. Álögur voru auknar á flestum sviðum þjóðlífsins. Fióðbylgja verðhækkana dundi yfir. Svokaliað vaxtafrelsi var tekið upp, sem framkaliaði hreina og klára okurvexti og þar- með auknar byrðar á heröar lántakenda. Laun hækkuðu ekki, enda þótt gerðir hefðu verið kjarasamningar um prósentuhækkanir á laun, þvl ríkisstjórnin stal jafnharðan aftur þeim kjarabótum sem slakað var út I samningunum. Til marks um það, nægirað minnaágengisfell- inguna, sem skellt var á launafólk, aðeins fá- einum dögum eftir að skrifað hafði verið undir nýja kjarasamninga; kjarasamninga, sem náð- ust ekki fyrr en að afloknum bitrum og heitum átökum á vinnumarkaðnum. Þessi gengisfell- ing þurrkaði I einu vetfangi út allan þann ávinn- ing, sem launafólk hafði náð fram I kjarasamn- ingunum. Blekið varvarlaþornað ásamningun- um, þegar rlkisstjórnin hafði I raun rifið þá I tætlur. Það var heldur ekki ofsagt I ritstjórnargrein Alþýðublaðsins fyrir ári, að ef ríkisstjórnin héldi óbreyttum kúrs I efnahags — og atvinnu- málum, þámyndi enn harðnaádalnum hjáhin- um almenna launþega á árinu 1984. Ástandið á þúsundum íslenskra heimila á liðnum mánuð- um hefur verið með slíkum eindæmum, að ieita þarf langt aftur I tíma til að finna sam- jöfnuð, til að finna jafn erfitt ástand hjá launa- fólki og nú er. En núverandi stjómvöld hafa ekki einungis látið sverfa til stáls gegn launafólki I landinu með þvi að skerða kjör þess aftur og aftur. Hitt erekki léttvægara, að ríkisstjórnin hefur gjör- samlega misboðið réttlætisvitund fólks. Al- menningur I iandinu hefur horft upp á það trekk I trekk hvernig stjórnvöld hafa af algjöru siðleysi fært milljarðakrónaúrvösum fjöldans og I guilkisturfyrirtækjaog fjármagnseigenda. Gengdarlaus hagsmunavarsla ráðherranna . fyrir hina betur settu I þjóðfélaginu hefur gengið fram af almenningi. Þaö er ekki aðeins að landsmenn hafa með öllu misst tiltrú á núverandi ríkisstjórn, heldur og telur stærsti hluti þjóðarinnar það nauð- synjaverk hið mesta, að núverandi rfkisstjórn fari frá völdum hið fyrsta. Ef einhverjum hefur ekki verið Ijós nauðsyn þess um síðustu ára- mót, þá er sá hinn sami örugglega viss í sinni sök nú. íslenska þjóðin hefur hreinlega ekki efni á því að láta núverandi stjórnarflokka leika lausum hala við stjórnvölinn öllu lengur. - GÁS. Þjóðhátíðarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 1985. Samkvæmt skipulagsskrá sjóösins nr. 361 30. september 1977 er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúru- verndarráðs. b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menn- ingarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns. Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráöstöfunarfé hverju sinni i samræmi við megintilgang hans, og komi þareinnig til álita viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er í liðum a) og b). Vió það skal miöað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarfram- lag til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækkaönnuropinberframlög til þeirraeðadragaúrstuðningi annarra við þau.“ Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Umsóknar- frestur er til og með 22. febrúar 1985. Eldri umsóknir ber að endurnýja. Umsóknareyðublöð liggja frammi I afgrelðslu Seðlabanka islands, Hafnarstræti 10, Reykjavík. Nánari upp- lýsingar gefur ritari sjóðsstjórnar, Sveinbjörn Hafliðason, I síma (91) 20500. Reykjavík, 27. desember 1984. Þjóðhátiðarsjóður VINNINGSNÚMER í Happdrætti Krabbameinsfélagsins •; . Dregiö 24. desember 1984. ..... BMW 520i bifreið: 22120 PEUGEOT 205 GR bifreið: 6266 BIFREIÐAR fyrir 300 þús kr: 153928 154730 159282 APPLE//C tölvur: 19302 100636 107442 110504 150217 SÓLARLANDAFERÐIR með ferðaskrifstofunni Úrval: 7900 15560 24381 56708 89880 91134 104828 124936 130598 132466 136920 138573 139929 151940 160134 SÓLARLANDAFERÐIR með ferðaskrifstofunni Útsýn: 9918 24708 34054 74110 77560 78164 85172 91205 97972 105191 116880 121032 123241 124170 131914 Handhafar vinningsmiöa framvisi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins aö Skógarhlið 8. simi 62 14 14. Krabbameinsfélagiö þakkar landsmönnum veittan stuöning. Krabbameinsfélagið Verðbólgu- hraðinn 78% Þá er verðbólgan hlaupin af stað einsog launþegum hafði verið lofað ef þeir semdu um sómasamleg laun sér til handa. Reyndar var vitað að hún losnaði úr viðjum sínum hvort sem launþegar semdu eður ei. Ríkisstjórnin var búin að týna efna- hagsstefnu sinni, eða réttara sagt hafði aldrei haft neina. Hvaða stefna er það eiginlega að ætla að láta eina stétt manna greiða niður verðbólgudrauginn? Það er álíka hjátrú að álíta að slíkt dæmi gangi upp og að kalla til preláta í því skyni að kveða niður draug. Sé miðað við hækkun á fram- færsluvísitölu milli mánaðanna nóvember — desember, þá hefur hún hækkað um 4,85% á þessum eina mánuði. Það þýðir að verð- bólguhraðinn er kominn upp í 76,53% á ársgrundvelli. Það er Kauplagsnefnd, sem hefur reiknað þetta út og stærsti hluti hækkunar- innar stafar af hækkun matvöru- verðs, eða 1,4%. Hagstofan hefur reiknað út vísi- tölu byggingarkostnaðar og er hækkunin frá því að hún var reikn- uð síðast út, í september byrjun ein 10,25%. Þar af er áætlað að ein 5,12% hækkun sé á milli mánað- anna nóvember — desember. Það þýðir að sé verðbólguhraðinn á árs- grundvelli miðaður við hækkun vísitölu byggingarkostnaðar á milli mánaðanna nóvember — desem- ber, þá er hann nú rúm 80%. Að lokum skal þess getið að Seðlabankinn hefur reiknað út lánskjaravísitöluna fyrir janúar- mánuð 1985 og reyndist hún vera 1006, sem er 4,9% hækkun frá þvi í desember. Sé verðbólguhraðinn miðaður við lánskjaravísitöluna, er hann nú 77,5%. Sé tekið meðaltal af þessum þremur útreikningum kemur í Ijós að verðbólguhraðinn nú er um 78% á ársgrundvelli. Tómas Seðla- bankastjóri Viðskiptaráðherra, Matthias Á. Mathiesen, hefur í dag skipað Tómas Árnason, fyrrverandi ráð- herra, bankastjóra við Seðlabanka Íslands frá 1. janúar 1985 að telja. Happdrætti Styrktarfélags vangefinna. Vinningsnúmer 1. vinningur Citröen bifreið nr.........59704 2. vinningur Daihatsu Charade bifreið nr. .92667 3. vinningur Bifreið að eigin vali að upphæð kr. 260 þús. nr.............................66273 4.—10. vinningur húsbúnaður að eigin vali hverað upphæð kr. 80. þús. nr. 3321 — 9089 — 10524 — 25332 — 76452 — 90929 — 98357. Styrktarfélag vangefinna. Styrkir til háskólanáms í Noregi Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt aö þau bjóöi fram styrk handa íslenskum stúdent eöa kandídat til háskóla- náms í Noregi háskólaárið 1985—1986. Styrktímabilið er níu mánuöir frá 1. september 1985 að telja. Til greina kemur að skipta styrknum ef henta þykir. Styrkurinn nemur 3.600,- n.kr. á mánuöi. Umsækjendur skuli vera yngri en 30 ára og hafa stund- að nám a.m.k. tvö ár viö háskóla utan Noregs. Umsóknum um styrk þennan, ásamt afritum próf- skírteina og meömælum, skal komiö til menntamála- ráöuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik fyrir 1. febrúar n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráöuneytinu. Menntamálaráöuneytiö 17. desember 1984. FÉLAGSSTARF ALÞÝÐUFLOKKSINS Alþýðuflokksfólk Hafnarfirði Áriðandi fundur næstkomandi miðvikudags- kvöld, 2. janúar, f Alþýðuhúsinu. Fjallað verður um málefni Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar og fyrir- liggjandi tillögur i þeim efnum, sem lagðar hafa verið fram i bæjarstjórn. Mikilvægt að sem flestir mæti. Bæjarfulltrúar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.