Tíminn - 28.05.1967, Qupperneq 8
8
TÍMINN
SUNNUDAGUR 28. maí 1967.
GARÐAR GARÐARSSON:
EXPQ ‘67
Montreal 21. 5. ‘67.
Nú er næstum mánuður síðan
heimssýningin hér í Montreal var
opnuð almenningi og á þeim tíma
hafa meira en 6.5 millj- rnanna
séð sýninguna. Ber hún nú þegar
merki um þennna gífurlega fjölda,
því teppi eru þegar gatslitin í sýn
ingarsölum, og allt skemmt, sem
hægt var að skemma. Er hegðun
fólks öll hin furðulegasta, það ríf
ur allt og tætir. í finnsku, dönsku
og sænsku deildunum þurfti að
girða sýningarmuni af, því fólk
stal og braut allt sem hönd á
festi. íslenzka deildin hefur næst
um sloppið, því þar er allt nagl-
fast, en þó er fólk komið vel á veg
með að skemma módelið, sem sýn-
ir heitavatnskerfið.
ísland sýnir, sem kunnugt er,
undir kennitákninu „Eldfjalla-
land nýtir jarðhitann". Hefur deild
in fengið sérlega góða dóma og
mikið hrós þeirra sem vit hafa
á. Ekki veit ég þó, hve mikið hún
nær til almennings, því hann er
alltaf að keppast við að komast í
gegnum sem flesta skála á sem
stytztum tíma. En stanzi einhver
til að lesa textann við einhverja
myndina, þá les hann líka textann
með hinum myndunum og lýkur
síðan lofsorði á. Teknar hafa verið
sjónvarpsmyndir af deildinni fyrir
fjöldamargar sjónvarpsstöðvar,
m. a. fyrir Kanadísku sjónvarps-
stöðvarnar og New York sjónvarp-
ið'. Hefur ísl. starfsfólkið í deild
inni komið þar fram, og staðið sig
með prýði. Einnig hefur það verið
í fjölda mörgum blaðaviðtölum,
og komið fram í útvarpi og sér-
stökum sjónvarpsþáttum, m. a. í
rússneska sjónvarpinu- Hlýtur
starfsfólkið mikið lof fyrir fágaða
framkomu og frábaera þekkingu á
öllu sem lýtur að íslandi, svo og
á öðrum sviðum. Starfsfólk hinna
landanna er einnig prýðisfó'lk og
finnst mér Finnar þar vera fremst
ir.
Um deildirnar hefur sjálfsagt
verið skrifað heima, en ísl. deild
in er milli finnsku og dönsku deild
anna. Danir sýna undir kenni-
tákninu „Maðurinn sem hráefni",
og samanstendur deild þeirra af
sex „skúlptúrum" og er hver
þeirra samsettur úr samskonar
stólahlutum og hanga þessi lista
verk í mjóum stálvírum úr loftinu,
en undir þeim liggja sex stórar
myndir á smá stalli, sem heldur
þeim frá gólfinu. Á myndunum
eru skýringartextar og svo á
hverri mynd eitt af „Grook“-kvæð
um Piet Hein‘s — Finnar sýna
undir kennitákninu „Skapandi
Finnland", og á fimm geysistórúm
pöllum, sem hanga skáhallt niður
úr loftinu sýna þeir listaverk úr
tré, gleri, leir, kopar og röggva-
kemur I þremur stórum bogum
og eru sýndar þrjár myndir í
hverjum boga. Eiga myndirnar —
sem og salurinn allur, sem er blár
— að tákna hafið sem tengir Norð
urlöndin, og skiptir í sífellu um
liti á myndunum. Fást þessi lita-
skipti fram með sérstökum ljós-
kösturum, sem eru nýir sinnar teg
undar. Fyrir framan myndirnar er
vatn og gosbrunnar. Hafa þessar
myndir og tækin hlotið verðskuld
aða athygli. í þessum sama sal eru
sýningarkassar, sem sýna forn-
minjar frá fornöld. Þar er m. a.
Flatartungufjölin svo og Skál-
holtskortið, sem er á einum sýn-
ingarglugganum. Undir þetta allt
dynur svo norræn músík m. a.
syngur ísl. karlakór „Sigla svörtu
skipin" Á þessari hæð er einnig
teppi. A veggjunum sýna þeir; veitingahúsið, sem rekið er af
ýmsar vefnaðarvörur, án þess þó, SAS Catering, dótturfyrirtæki
að deildin beri hinn minnsta keim SAS. Veitingahúsið skiptist í
af vörusýningu og er deildin þrennt, kaffiteriu, vínstúku og
geysifalleg. — Norska deildin | fyrsta flokks veitingasla, sem hef
í heitir „Maðurinn og vatnið“. Hafa i ur standandi kalt borð allan dag
I Norðmenn þar fallegan fóss og! inn. Aðsóknin að veitingahúsinu
1 sýna virkjun vatnsfaila og nýtingu j er svo geysimikil að alltaf eru
rafmagns í iðnaðarþágu. Einnig í langar biðraðir við dyrnar, og
gera þeir grein fyrir hinum geysi i komast miklu færri að en vilja.
lega skipaflota sínum og þýðingu i Af ísl. réttum þarna má nefna
hans fyrir Noreg og heiminn. í i hangikjöt, síld, sem mest öll kem
sænsku deildinni kennir margra i ur frá íslandi — og rjúpur sem er
grasa. Aðaluppistaðan í þeirra j annar vinsælasti rétturinn, næst á
deild er átta mín. kvikmynd um j eftir norska hreindýrakjötinu —
Svíþjóð og fær hún góða dóma ! því miður eru vinnuskilyrði í öllu
veitingahúsinu með fádæmum lé-
leg og erfitt um vik. Aðsóknin hef
ur farið svo langt fram úr djörf
ustu spám, að allir voru óviðbún
ir því geysilega álagi sem varð.
Er starfsfólk veitingahússins út-
taugað og dauðuppgefið. Einnig
hefur verið mikil óánægja með
fæði starfsfólksins, en starfsfólk
veitingahússins og sýningardeild
anna hefur matstofu í kj-allara skál
hjá flestum. Svíar sýna ýmsar iðn
aðarvörur og listvarning t. d. úr
gleri, en ekki minnir deildin þó
neitt á vörusýningu frekar en
finnska deildin. Má segja, að mjög
listrænt yfirbragð sé á öllum
Norðurlandadeildunum.
Á fyrstu hæð hússins hafa Norð
urlöndin sameiginlegan upplýsinga
sal. Þetta er langur blár saluf með
borði eftir öðrum veggnum. Við
þetta borð sitja svo þeir sem upp- i ans- Sem dæmi má nefna, að í
lýsingarnar gefa og á veggnum j Sær (2°- maí> urðu margir veikir
fyrir aftan þau er mynd af við ! og er hald manna að hér hafi ver-
komandi landi. Vegurinn á móti ið um matareitrun að ræða og
Norræni sýningarsalurinn.
hugsuðu SAS Catering þeigjandi
þörfina- Við veitingahúsið vinnum
við nú tvö íslenzk. Veitingahúsið
heitir því fallega nafni „Miðnætur
sólarveitingahúsið".
Undir skálanum — sem stendur
á súlum að mestu leyti — eru sýn
ingarkassar þar sem sýnd er list-
vinna frá Norðurlöndum. M. a- eru
þarna skartgripir úr silfri og
bronsi eftir Jóhannes Jóhannesson
og Gerði Helgadóttur svo og
heimagert sjal eftir Þórdísi Egils
dóttur. Eg hefi oft verið spurður
hvort hægt væri að fá þessa muni
keypta. Á öðrum stað í skálanum
eru tvö mjög falleg röggvar-teppi
eftir Júlíönu Sveinsdóttur. í
höggmyndagarði við hlið skálans
er myndin Öldugjálfur eftir Ás-
mund Sveinsson og sé ég oft menn
tylla sér á hana til að láta taka
af sér mynd.
Surtseyjarkvikmynd Ósvaldar
Knudsen átti að sýna hér fyrir
nokkru, en á síðustu stundu komu
upp einhver formsatriði, svo fresta
varð sýningunni. Nú hefur væntan
lega verið gengið frá þessum forms
atriðum og verður myndin sýnd
bráðlega í Du Pont fyrirlestra- og
kvikmyndasalnum á Expo. Brot
Hér er loftmynd frá hluta af sýningarsvæðinu við höfnina í Montreal. Til vinstri sést á sýningarskála Sovétríkjanna, og á hinni eyjunni er banda
ríska sýningarsvæðið.
úr myndinni gengur stöðugt í skál
anum „Maðurinn og lífið“ og er
alltaf hópur manna að skoða hana.
Sunnuhópur var héma á ferð
inni um daginn, fararstjóri Jón
Helgason. Með í ferðinni var hinn
landskunni blómasali og fyrr-
verandi hreppstjóri Þórður á Sæ-
bóli og kona hans Helga. Þórður
var hinn brattasti og vanda, en
það sem mesta athygli vakti við
Þórð var hinn skrautlegi klæðnað
ur hans. Hann var sumsé klæddur
fánalitunum að sið brezkrar bítla
tízku og fomra höfðingja. Var
hann í rauðri skikkju með hvftum
bryddingum og í bláum kyrtli. Á
fótunum hafði hann skó úr elti-
skinni uppbundna, og á höfðinu
eitthvað sem minnti á araibiska
kollhúfu. Sagði Þórður að þetta
væri fom höfðingjabúningur —
að sjálfsögðu — og hefði verið not
aður á þjóðveldisöld. Kona hans
var í mjög fallegum ísl. búningi.
Er skemmst frá því að segja, að
menn héldu, að hér færi kóngur
og drottning af íslandi. Mun fátt
hafa vakið .tafnmikla athygli á sýn
ingunni þann daginn. Eg gekk með
þeim smáspöl um sýninguna og
varð vart þverfótað fyrir Ijósmynd
uram, sem mynduðu þau hjón í
bak og fyrir. Síðar frétti ég að
eitthvað hefði Þórður komizt í
tæri við Austurríkisforseta og af
lítillæti sínu gefið honum eigin
handarundirskrift sína. En sjálf-
sagt mun Þórður segja alþjóð
ferðasögu sína við gott tækifæri
og læt ég því lokið þeirri sögu.
Annars hefur hér komið fátt
íslendinga, einn og einn á stangli.
Standa mun það þó til bóta, því
mér skilst, að margir ferðahópar
séu væntanlegir á næstunni. m.
glímuflokkur, sem sýna á þ. 8.
júní, samnorræna daginn, svo og
karlakórinn, sem halda mun hér
tónleika 23. og 24. júní í Theatre
Maisonneuve- Af öðrum listavið-
burðum hér á næstunni má nefna
Ástralskan ballettflokk. Stoklk-
hóimsóperuna með Birgit Nilson
í fararbroddi. Flytja Svíarnir m.
a. Aniara eftir Karl Blomdal.
Einnig má nefna Konunglega bail
ettinn frá Covent Garden í Lond
on í Old Vic og Ríkisóperuna i
Hamborg og margt fleira.
Við íslendingarnir erum við
góða heilsu, ef frá er tekið kvef.
en það hefur verið mjög kalt hcr
í Montreal og svo matareitrunin
sem fyrr var á minnzt. Biðjum við
öll fyrir beztu kveður heim til
íslands.
Garðar Garðarsson.