Alþýðublaðið - 18.01.1985, Blaðsíða 3
Föstudagur 18. janúar 1985
3
l-ÍNU-OGTOGV.
RANNAPAR ÓÁKV
Bann við línu-
og togveiðum
Þann 11. janúar sl. var tilteknu
svæði í Breiðafirði lokað fyrir veið-
um í eina viku. Hafrannsóknar-
stofnunin, hefur nú lagt til við
ráðuneytið að bann þetta verði
framlengt enda sé hér um þekkta
smáfiskaslóð að ræða.
Ráðuneytið hefur því gefið út
reglugerð, sem bannar línu- og tog-
veiðar á svæði, sem markast af lín-
um, sem dregnar eru milli eftir-
greinda punkta:’
a. 65°04’N — 24°27’V
b. 65°07’N — 24°42’V
c. 65°19’N — 24°36’V
d. 65°08’N — 24°03’V
Svæði þetta verður kannað reglu-
lega undir umsjón útibústjóra Haf-
rannsóknastofnunarinnar á Ólafs-
vík og banninu aflétt þegar aðstæð-
ur leyfa.
Skatturinn
4
fræðilegt jafnt sem efnahagslegt.
Hinn hugmyndafræðilegi þáttur
varðandi varnarmálin er greinilegur
og það er margt varðandi félags-
málin sem afar erfitt er að skera
niður. Hann byrjaði þar á því sem
auðveldast var að skera og beindist
einkum að hinum fátæku, en marg-
ir slíkir liðir eru ekki aðeins fyrir
hina fátæku, tryggingar ýmiss kon-
ar og eftirlaun, sem og greiðslur til
hermanna.
— Reagan er mjög á móti því aö
hækka skattana, ekki satt?
„Við komum mjög sennilega til
með að sjá skattahækkun hjá
Reagansstjórninni. Sennilega verð-
ur hún kölluð öðru nafni, t.d.
skattaumbætur, en þegar reikning-
arnir verða gerðir upp mun koma í
ljós að skattarnir hafi hækkað. Æ
fleiri líta á það nú sem reginhneyksli
hversu margir stöndugir einstakl-
ingar komast upp með að borga
ekkert í skatta og það má búast við
umbótum í þá átt að loka fyrir
þetta. Einnig hefur verið minnst á
að koma á virðisaukaskattinum."
— Hvaða breytingar sérð þú
fram á í Bandarískum stjórnmálum
á næstu árum?
„Ein allra merkilegasta breyting-
in sem nú er í gangi er hin land-
fræðilega breyting, þar sem áhersl-
an er æ meir að færast frá Norð-
Austur og Mið-Vesturríkjunum til
Suðurríkjanna og ríkja á Vestur-
ströndinni. Það hefur nú gerst i
fyrsta skipti í sögunni að íbúamiðj-
an er komin vestur fyrir Missis-
sippi-fljótið. Þessar landfræðilegu
hræringar munu hafa alls konar af-
leiðingar í för með sér. Löngum
hefur allt snúist um Austurblokk-
ina svo kölluðu (eastern establish-
ment) og valdakjarnann þaðan. En
nú horfum við upp á nýja valda-
miðstöð með Reagan, Schultz,
Weinberger og fleiri frá California
o.s.frv. Tala má um annars konar
andrúmsloft og endurnýjaðan
athafnakraft. Þeir sem eru bjart-
sýnir og sjá fram á áframhaldandi
breytingar í þessa veru gera sér von-
ir um jákvæðar afleiðingar, nýja
dínamík fyrir landið i heild. Fólkið
í þessari nýju valdamiðstöð kemur
frá ríkjum sem hafa önnur viðhorf
en tíðkast hafa hvað mest.fólkið er
áberandi meira gegn verkalýðsfé-
lögum og finnst ekki eins mikið til
velferðarkerfisins koma. Hinir sem
eru svartsýnari sjá fram á mikla að-
lögunarerfiðleika, á sviði stjórn-
mála, menningarmála o.s. frv. Þeir
sjá fram á aukna sundrungu og svo
jafnvel myndun „undirstétta", sem
við minntumst á hér fyrr.
Annars er það staðreynd að tala
má um hringrás þegar bandarísk
stjórnmál eru annars vegar. Hlut-
irnir færast til einnar áttar en síðan
í aðra átt seinna. Mér finnst til
dæmis vera margar hliðstæður með
Reagan og svo Coolidge, þó margt
hafi verið ólíkt. Kynslóðaskipti eiga
sér stað og ekki má gleyma því að
Bandaríkin eru samansett af ólík-
um hópurn. Ef til vill má telja Reag-
an vera þáttaskil í þessari hringrás"
sagði Fogelman að lokum.
FÉLAGSSTARF
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur
Tillaga uppstillingarnefndar til stjórnarkjörs í Alþýðu-
flokksfélagi Reykjavíkur liggur frammi á skrifstofu Al-
þýðuflokksins til og með 22. jan. Breytingar verða að
berast fyrir þann tlma.
Stjórnin
Alþjóðleg
bænavika
Alþjóðleg bænavika um einingu
kristinna manna er árviss þáttur í
lífi kristinna manna víða um hinn
kristna heim.
Að undirbúningi hennar hér á
landi stendur samstarfsnefnd krist-
inna trúfélag á íslandi. í henni eiga
sæti tveir fulltrúar þjóðkirkjunnar
og einn fulltrúi frá hverjum eftirtal-
inna trúfélaga: Rómversk-kaþólsku
kirkjunni, Aðventistum, Hvíta-
sunnusöfnuðunum og Hjálpræðis-
hernum.
Efni bænavikunnar að þessu
sinni var valið af alkirkjulegum
hópi á Jamaica í Vestur-lndínum og
er: „Frá dauða til lífs með Kristiþ
Efes. 2:4—7. Þar er undirsírikað,
að kristnir menn í heimi erfiðleika
og margvíslegra þrenginga eiga nýtt
líf og von í samfélagi við Jesúm
Krist og þá jafnframt hver við ann-
an.
í bænavikunni bjóða söfnuðirnii
hver öðrum til sameiginlegs guðs-
þjónustuhalds. Hér í Reykjavík
verða guðsþjónusturnar á eftirtöld-
um stöðum:
Sunnudag 20. jan. í Neskirkju kl.
2. e.h., miðvikudag 23. jan. í Dóm-
kirkju Krists konungs kl. 8.30 e.h..
fimmtudag 24. jan. hjá Hjálpræð-
ishernum kl. 8.30 e.h., föstudag 25.
jan. í Aðventkirkjunni kl. 8.30 e.h..
og laugardag 26. jan. í Fíladelfíu
kirkjunni kl. 8.30.
Lausar stöður
Eftirtaldar stöður við Hegningarhúsið í Reykjavík eru
lausar til umsóknar:
1) Staða forstöðumanns. Samkvæmt 11. gr. laga um
fangelsi og vinnuhæli nr. 38/1973 skal öörum fremur
skipa í stöðuna lögfræöing eða félagsráðgjafa og
skulu þeir sérstaklega hafa kynnt sér fangelsismál.
2) Staða varðstjóra.
3) Staða fangavarðar. Aldursmörk eru 20-40 ár.
Umsóknirergreini aldur, menntun og fyrri störf sendist
ráðuneytinu fyrir 1. febrúar nk.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 14. janúar 1985.
Skútuvogur 7 Reykjavík
Kauptilboð óskast í grunnbyggingu að iðnaðar-
húsnæði við Skútuvog 7, Reykjavík, þ.e. sökklar
og steypt plata að hluta, 4300 m3. Stærð lóðar er
11.155 m2.
Tilboðseyðublöð liggja frammi á skrifstofu vorri
þar sem allar nánari upplýsingar eru veittar.
Kauptilboð þurfa að hafa borist skrifstofu vorri
fyrir kl.11:00, 5. febrúar nk.
INNKAUPÁSTOFNUN RÍKISINS
Boraartuni 7. simi 26844
GREIDENDUR
Á bakhlið launamiðans eru prentaðar
leiðbeiningar um útfyllingu einstakra
reita launamiðans. Þar kemur m.a.
fram að í reit 02 á launamiða skuli telja
fram allar tegundir launa eða þóknana
sem launþegi fær, ásamt starfstengdum
greiðslum svo sem:
1. verkfærapeninga eða verkfæra-
gjald,
2. fatapeninga,
3. flutningspeninga og greiðslu far-
gjalda rnilli heimilis og vinnu-
staðar.
Greidda fæðispeninga skal telja fram í
reit 29 ásamt upplýsingum um vinnu-
dagafjölda viðkomandi launþega.
Frestur til að skila launamiðum rennur
út þann 21. janúar. Það eru tilmæli
að þér ritið allar upplýsingar rétt
og greinilega á miðana og vandið
frágang þeirra.
RÍKISSKATTSTJÓRI