Alþýðublaðið - 23.01.1985, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 23.01.1985, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 23. janúar 1985 —RITSTJÓRNARGREIN — — ' Veislunn i er lokið Stjómmálamönnum hefur orðið tiórætt um skuldasöfnun þjóðarinnar erlendis. Flestir þeirra vara við þeirri stórháskalegu þróun, en um leið og þeir eru sestir á valdastóla, þá þykir þeim auðveldast að fresta efnahagsvandamál- um og fjárskorti með því að slá ný lán I útlönd- um. Nægir þar að minna á stóryröi fjármálaráð- herra, Alberts Guðmundssonar þegar hann settist á ráðherrastól. Þá sagði hann það jafn- gilda uppsögn sinni sem ráðherra, ef hlutfali erlendra skulda af þjóðarframleiöslu færi yfir 60%. Nú er þessi hlutfallstala í 64% og fjár- málaráðherra situr enn eins og ekkert hafi í skorist. Þegar götín fóru að gera vart við sig I ríkisrekstrinum og í Ijós kom að fjárlögin gengu ekki upp frekar en fyrri daginn, þá var neyðarlendingin sú sama og áður, hvað sem öllum gömlum loforðum leið; slegin voru er- lend lán. En vitaskuld er ekki hægt að skella allri skuldinni á núverandi fjármálaráðherra. Hann erekki fyrsti ráðherrann, sem hefur látið freist- ast til að fresta vandanum, en auka þó jafn- framt á hann, með sláttumennsku í útlöndum. Síðustu ríkisstjórnir hafa ailar staðið sig lak- lega á þessu sviði og látið reka á reiðanum. Skyldi almenningur I raun gera sér grein fyrir því hversu hrikalegar skuldir þjóðarinnar eru? Ætli fólk átti sig á því að hver og einn einasti Is- lendingur skuldar tæplega 190 þúsund krónur erlendis. Það þýðir skuld upp á 750 þúsund krónur fyrir hverja fjögurra manna fjölskyldu í landinu. Og í afborganir og vexti munu íslend- ingar greiða 6 milljarða króna á þessu ári, eða 10% af tekjum alls launafólks í landinu. í grein eftir Þórð Friðjónsson hagfræðing er rakin ömurleg öfugþróun þessara mála sfð- ustu áratugi. Þar kemur í Ijós að frá 1947 hafa skuldir þjóðarinnar erlendis aukist stöðugt. Þannig námu skuldirnar 1% af þjóðarfram- leiðslu það ár, en voru komnar upp I tæplega 20% árið 1965. Árið 1975 var hlutfallið orðið 35%, en á slðustu 10 árum hefur hlutfallið hækkað upp I hvorki meira né minna en 64%. m I gagnmerkri grein í Alþýðublaðinu I dag gerir Magnús Marisson þessi mál að umtalsefni og bendir á að hóflegt erlent fjármagn sé ekki ætíð af hinu vonda, ef því er stýrt til bráðnauð- synlegra og arðbærra framkvæmda. Allt of oft hefur hins vegar borið á því hér á landi að erlent lánsfjármagn sé notað til gæluverkefnastjórn- málamanna, sem engan arð gefa og jafnvel til reksturs ríkisins og stofnana þess. Erlendu lánin hafa farið í alls kyns óþarfa og skapað þenslu. Magnús Marfsson segir m.a. í grein sinni: „Við sjáum nú þessa dagana hvernig röng notk- un á erlendu fjármagni sem skapað hefur þenslu hefur leitt til þess að sá árangur sem þjóðin var að ná í baráttunni gegn verðbólg- unni glataðist vegna hins þensluskapandi er- lenda fjármagns, sem dælt var inn í landið af lltilli fyrirhyggju. Tíminn líður, veislunni er lok- ið, og við dyrnar standa kröfuhafarnir, þeir munu ekki láta eftir sinn hlut. Ekki er ástæða til að harma það að veislunni er lokið. Hún var nefnilega kostuð af þeim sem ekki voru boðnir en eru látnir greiða veislukostnaðinn.11 I þessum orðum Magnúsar Maríssonar er mikill sannleikurfólginn. Staðreyndin ersú,að hin óhóflega lántakaerlendis hefurekki skap- að almenningi betri lífsafkomu og bættari kjör eins og upphaflega var vonast til. Þvert á móti hefur fjármagninu verið sóað. En almenningur fær að borga brúsann þegar upp er staðið, eins og venjulega. En hvort sem fólki líkarbetureða verr, þá er nauðsynlegt að þjóðin öll horfist í augu við raunveruleikann f þessum efnum. Efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar er í húfi. Hvorki meiranéminna. Við íslendingarverðum að losna úr skuidaklafa erlendra lánadrottna. - GÁS. Sagan 1 mjög mikilvægt, og helst vildi hann fá Alþýðuflokkinn inn líka. Málgagn framsóknarmanna, NT, hvatti til kosninga, en Páll Péturs- son sagði að framsóknarmenn væru ánægðir með sína ráðherra. Skömmu síðar var haft eftir Guð- mundi Einarssyni BJ að um það bil fjórðungur þingflokks sjálf- stæðismmanna hefði sýnt áhuga á samstjórn þeirra með Alþýðu- flokki og Bandalagi jafnaðar- manna. En nú kemur örlítið hlé á framhaldssögunni, ekki síst vegna þess að athygli manna beindist að flokksþingi Alþýðuflokksins. Fljótlega eftir flokksþingið segir DV hins vegar að „nafla- skoðuninni sé lokið“ og að Þor- steinn verði ekki ráðherra í bráð, þó hann sjálfur, Steingrímur og Albert hafi verið því eindregið fylgjandi. Og Geir sagði það mið- ur að Þorsteinn væri ekki inni. Nú tekur við talsverð umræða um fjárlagagatið margfræga, en 28. nóvember opinberar Ólafur G. Einarsson að menn hefðu uppi spádóma um kosningar í vor, en segist þó vera sannfærður um að það sé Þorsteini ekkert persónu- legt kappsmál að komast í stjórn- ina. Daginn eftir viðurkennir for- hæðir og brýr eru vettvang- ur margra um- ferðarslysa. Við slíkar aðstæður þarf að draga úr ferð og gæta þess að mætast ekki á versta stað. JU^IFERÐAR sætisráðherra að það sé ekki nóg- ur kraftur í ríkisstjórninni og- hann hefði rætt við forystumenn í Sjálfstæðisflokknum um mögu- legar breytingar. Uppgjöf, for- sætisráðherra? Já, sagði hann, ef menn geta ekki komið sér saman. Viku síðar hefur hringurinn þrengst: Nú eru það fjármálin til Þorsteins eða hann alls ekki í stjórnina. DV segist hafa rætt við fjölmarga sjálfstæðismenn og hafa orðið vart við mikla þreytu með stjórnina og á miðstjórnar- fundi flokksins komu fram tals- verðar áhyggjur vegna fregna um að flokkurinn væri að tapa tiltrú fólks hvarvetna. Tveimur dögum síðar segir DV frá því að fyrr á ár- inu hafi Matti Bjarna boðið Þor- steini stól sinn en formaðurinn hafnað. 11. desember virðist blaðran síðan springa þegar formaðurinn lætur hafa eftir sér í DV að hann fari alls ekki í þessa stjórn og mátti lesa á milli línanna að hann væri í mikilli póiitískri fýlu. Það hefur vafalaust þess vegna mörg- um brugðið þegar fyrirsögn í DV skömmu síðar hljóðaði svo: „Sat í brennandi stól“. En ekki var það nú um Þorstein formann. Nýja árið heilsaði. Eitt fyrsta verk DV var að greina frá því að nú væri að sverfa til stáls í Sjálf- stæðisflokknum og valkostirnir væru skýrir: Ný ríkisstjórn, ný stjórnarstefna eða kosningar í vor. Þetta væru kröfur formanns- ins og fleiri og hann sagður leggja formannstitil sinn að veði. Um svipað leyti knýr Björn Dag- bjartsson á um breytingar og Ell- ert B. Schram segir stjórnina vera tímaskekkju og að ráðherra flokks síns skorti pólitíska greind til að taka á vandanum. En um miðjan þennan mánuð var gefin út eins konar fréttatil- kynning um að engar breytingar væru á dagskrá. Þorsteinn virðist Árshátíð Hafnarfirði og Garðabæ Árshátíð Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði og Garðabæ verður haldin laugardaginn 2. febrúar næstkomandi og hefst klukkan 19.30. Mikil stemmning. — Mætum öll. Nánar síðar. Nefndin. loks sætta sig við orðinn hlut, það er í bili, því mótleikur hans var að boða til landsfundar í vor í stað þess að hann yrði í haust eins og með undanfarna tvo landsfundi. Þar með tók að heyrast annars konar hljómur í framhaldssög- unni, en hún heldur þó áfram af fullum krafti. í gær var haft eftir Sverri Hermannssyni og Valdimar Indriðasyni að æskilegt væri að formaðurinn kæmi inn í stjórn- ina. N ú er bara að bíða og sjá hvað setur. Líkt og með Dallas og Dynasty og fleiri slíka þætti, þá bregst höfundunum ekki boga- listin við að finna plott og „fjöl- skylduvandamálin" hrannast upp. Ekki missa af næsta þætti í sögunni endalausu. Stórsókn 1 sem að minnsta kosti gefa sterka vísbendingu um þróun mála, þá hefur fylgi Alþýðuflokksins vaxið verulega og flokkurinn annar stærsti flokkurinn í bæjarfélaginu með fimmta hvert atkvæði. Lítil breyting virðist hafa orðið á fylgi Framsóknarflokks, Bandalags jafnaðarmanna og Alþýðubanda- lags, en Kvennalistinn fær verulegt fylgi. Afhroð Sjálfstæðisflokksins er mikið. í þeim hópi sem svaraði í könnuninni höfðu nær 60% kosið flokkinn í síðustu kosningum, en margir þeirra hafa greinilega gefist upp á honum og fylgið komið niður fyrir 40%. í sömu könnun var meðal annars spurt um afstöðuna til veru lands- ins í NATO og reyndust 75,5% vera fylgjandi. Þá var einnig spurt hvort viðkomandi teldi tekjuskiptinguna í landinu vera réttláta eða rangláta. Rangláta söguðu 53,4% og önnur 33,1% töldu hana „fremur rang- láta“, samtals 86,5%. 11,5% töldu hana „fremur réttláta“ og aðeins 2% „réttláta", samtals 13,5%. Sjómenn 1 Hlutur sjómanna í aflaverðmæt- unum hefur minnkað verulega á undanförnum árum. T. d. var afla- hlutur sjómanna, laun og launa- tengd gjöld ein 47,9% af verðmæti aflans við botnfiskveiðar árið 1981, en miðað við óbreytt ástand verður sama hlutfall 41,6% í mars 1985. Á togurum var hlutur sjómanna rúm 36% 1981, en verður kominn niður í 29,7% í mars í ár. „Þetta sýnir svart á hvítu, að hlutur sjómanna fer hrað minnk- andi og við sættum okkur ekki lengur við þessa þróun“ sagði Ósk- ar Vigfússon að lokum. Síðdegis í gær var nýr fundur með sjómönnum og viðsemjendum þeirra, en engar fregnir höfðu bor- ist af honum þegar vinnslu blaðsins lauk. Öryggisleysi 1 Annars eru frystihúsin að fara í gang núna og þá rætist úr fyrir stærsta hluta þessa fólks, sem hefur gengið atvinnulaust frá því fyrir jól. Það er þó erfitt að meta stöðuna núna og það er fyrst á föstudaginn, sem kemur í ljós hversu margir hafa aftur fengið vinnu. Að lokum sagði Sigurbjörn að það yrði að leiðrétta þetta öryggis- leysi, sem fiskverkunarfólk býr við. „Það nær ekki nokkurri átt að fara svona með fólk, sem vinnur að und- irstöðuatvinnuvegi landsmanna. Eitthvað verður að gerast, allt ann- að er vonlaust"

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.